Morgunblaðið - 19.03.1943, Síða 7
MORGU N BLAÐI0
Föstudagur 19. mars 1943.
Árni J. I. Árnason
fimtugur
Ijpinn af kunustu borgurum
þessa bæjar, Árni J. í.
Árnason, er fimtugur í dag.
Það var ekki ætlun mín með
þessum línum, að rekja æfi-
sögu Árna bónda, enda vona
jeg, að mjer endist ekki aldur
til að skrifa þá sögu til hlýtar.
Hins vildi jeg láta getið, fyrir
minn munn og margra annara
þeirra, er Árna hafa kynst, að
hann er óvenjulega vel gefinn
maður á ýmsa lund. Skal þá
það fyrst fram tekið, áð hann
er skáld, sem kann að kveða,
smiður í besta lagi og hug-
kvæmur um margt. Lætur hann
sig þjóðmál miklu skifta og
fylgist vel með öllum málum,
sem eru efst á baugi í voru
litla þjóðfjelagi. Ef vjer ættum
marga slíka drengi, jafn
trausta, 'jafn hyggna, jafn
framsýna, þá væri voru landi
vel borgið, ef hvert sæti væri
jafn vel skipað og það, er Árni
situr. Kr. X.
Maður rænd-
ur áfengi
í fyrrakvöld var ráðist á utan-
bæjármánn fyrir framan
Vörubílastöðina Þrótt og haiin
rændur tösku með 4 vínflöskum.
I fyrrákvöid var utanbæjar-
anaður á gangi fýrir frámán-
Vörubílastöðina Þrótt. Hafði
hann meðferðis tösku með 4 vín-
flöskum. Tveir menn komu til
hans og báðu hann að selja sjer
áfengi, en neitaði hann því. —
Rjeðist þá annar þeirra á harin
og fjell hann á götuna. Maður-
inn, sem gerði árásina tók þá
töskuna og hljóp upp á Amarhóls
tún, en sá sem með honum var
austur Kalkofsveg. Sá, sem fyrir
árásinni varð og tveir aðrir nær-
staddir menn, veittu aðalárásar-
manninum eftirför, en mistu af
honum sjónir inn á Lindargötu.
Lögreglan hóf skömmu seinna
feit að mönnunum og fann þá á
hominu milli Ilverfisgötu og
Ingólfsstrætis. Voru þeir fiuttir
á lögreglustöðina, llöfðu þeir
meðferðis mestan hluta vínsins,
en töskunni sögðust þéir háfa
hent í húsaport og fanst hún
þar.
Aðalárásarmaðurinn, Finnbogi
Guðmudsson, er sá hinn sami er
varð fyrir hnífstungu erlends
hermanns hjá Eimskipafjelags-
húsinu og skýrt var frá á sínum
tíma'
' *
Heimdallur og Qðinn
halda stjórnmála-
námskeið
i.
Fjelag ungra Sjálfstæðis-
manna. Heimdallur, og mál-
fundafjelag Sjálfstæðisverka-
manna Óðinn, hafa ákveðið að
halda stjórnmálanámskeið á næst
unni.
Að undanfömu hafa farið
fram viðgerðir og breytingar á
flokkshúsi Sjálfstæðismanna við
Thorvaldsensstræti 2, og er þar
m. a, fyrir komið smærri fund-
arsal, þar sem námskeiðin munu
fara fram.
Námskeiðunum verður hagað
þannig, að fluttir verða fræðandi
fyrirlestrar og erindi um stjóm-
mál, en þátttakendum skipt nið-
ur í flokka til mælskuæfinga.
Það er til þess ætlast að þeir,
sem vilja gerast þátttakendur í
námskeiðunum, geri aðvart á
skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
Thorvaldsensstræti 2, þar sem
þeir fá einnig allar upplýsingar
þeim viðvíkjandi.
Sennilegt er, að námskeiðin
geti hafist í lok næstu viku. Það
munu árpiðanlega margir fagna
því, að eiga þess nú kost að
sækja slík námskeið, sem áður
hafa verið með vinsælli þáttum
í starfsemi Sjálfstæðisfjelag-
anna, þó að of sjaldan hafi verið
til þeirra stofnað.
Japanar sækja
á i Burma
Tilkynt var í Nýjudehli í
gær, að Japanari hjeldu
uppi áköfum áhlaupum á her
Breta í Burma. Er mést barist
í námd við Ratheaudaung.
Hafa Bretar lagað vígstöðvar
sínar. til þess að koma í veg
fyrir,’ að nökkur hhvti hers
þeirra yrði skilinn frá megin-
hérrium, og dregið framverði
sína til baka. Lofthernaður
hefir verið mikill, og gera að-
ilar árásir á’flugvelli andstæð-
inganna.
í norður Burma hafa Jap-
anar hörfað af nokkru svæði
meðfram Salveenánni, og gert
árásir annarsstaðar við fljótið.
Breskar flugvjelar gerðu usla
í liði Japana við Arakan.
Rauði Kross stofnað-
ur á Seyðisflrði
O íðastliðinn öskudag var stofn
^ aður Rauði Kross Seyðis-
fjarðar með nálega 100 sráðum
fjelögum.
1 stjóm voru kosnir Benedikt
Jónasson, kaupmaður, formaður,
Egill Jónsson, hjeraðslæknir,
Hjálmar Vilhjálmsson, bæjai*fó-
geti, síra Erlendur Sigmundsson,
Gísli Jónsson, fulltrúi, frú Helga
Jóhannsdóttir, hjúkrunarkona og
frk. Margrjet Sigurðardóttir,
nuddkona.
Miklar skemdii
ð sfmallnum
Ifyrrakvöld urðu afar miklar
skemdir á símalínum og
mátti svo heita að sambands-
laust væri út úr bænum í fyrra-
kvöld, en símasamband var aft-
ur komið á við flesta staði í
gær.
Blaðið átti tal við póst- og
símamálastjóra, Guðmund Hlíð-
dal. Skýrði hann svo frá að í
Rangárvallasýslu einni hefðu
þrotnað um 100 símastaurar. í
Húnavatnssýslu brotnaði mikið
af ptaurum hjá Hvammstanga og
í Eyjarfjarðarsýlu fyrir norðan
Akureyri brotnuðu 40 staurar og
liggur línan niðri á tveggja kíló-
metra svæði. Var veðurhamurinn
svo mikill, að sumir staurarnir
hentust til langar leiðir. Bráða-
birgðasímasamband komst á við
Akureyri í gær. Á línunni fyrir
austan Akureyri urðu tiltölulega
litlar .skemdir og er Akureyri í
símasamþandi við Vopnafjörð..
Kappróðrar sjó-
mannadagsins
Sjómannadagsráðið fár þess
á leit fyrir nokkru við
bæjarráð, að kappróðrar fengju
að fara fram á Tjominni á
sjóiriannadaginn þ. 12. júní
næstk.
Bæjarráð var þessu hlynt.
Því misjafnlega hefir tekist
með þátttöku í hátíðahöldum
sjómarina, végna þess hve að-
stæður hafá verið érfiðar.
En þegar málið var athugað,
bryti þetta í bág við lögreglu-
samþyktina. Flutti borgar-
stjóri því tillögu á næstsíðasta
bæj arstjórnarfundi þess efnis,
að leýfi þetta yrði ekki Veitt.
En þá var frestað afgreiðslu
málsins.
Síðan hefir borist brjef frá
Dýraverndunarfjelaginu, þar
sem formaður fjelagsins lélur
öll tormerki á, að kappróðrar
yrðu leyfðir á Tjörninni um
varptímann, vegna þess að þeir
myndu trufla fuglana og ef til
vill fæla þá á brott, en fuglalíf
hefir aukist þar undanfarin ár,
sem kunnugt er, til ánægju
fyrir bæjarbúa, einkum börn
bæjarins. Jón Pálsson stvður
erindi Dýraverndunarfjelagsins,
en ] hann , hefir allra manna
mest unnið að því að fuglalíf
Tjarnarinnar íengi að dafna.
Stjórn Náttúrufræðifjelags-
ins hefir og verið beðin um um-
sögn sína í málinu og fjekk hún
Finn Guðmundsson magister til
þess að segja um það álit Sitt.
Hann fjellst á, að vegna
fuglanna mætti leyfa kappróð-
urinn í eitt sinn, en helst ekki
oftar. Segir að á þessum árs-
tíma sjeu endur á eggjum og
ekki komnar á syðri Tjörnina,
en krían sje ekki svo viðkvæm,
að hún muni kippa sjer upp við
þessa umferð í ríki hennar.
Á bæjarstjórnarfundi í gær
var samþykt tillaga' borgar-
stjóra frá fyrra fundi, að veita
ekki þetta leyfi. Og er málið!
því óleyst, hvar kappróðurinn |
Afmæli K. R.
FMÆLISHÁTÍÐ K. R. fór
fram í Oddfellowhúsinu
á miðvikudagskvöldið. Var þar
hvert sæti skipað. Skemtunin
hófst með því, að herra Friðrik
Lúðvíksson sýndi skuggamyndjr
frá því í gamla daga í K. R. og
var það hin besta skemtun. Séra
Jón Thorarensen flutti snjalla
ræðu fyrir minni K. R. og íþrótt-
anna. Formaður K. R. afheriti
fimleikaverðlaun fjelagsins í ein-
menningskepninni og voru hinir
3 ágætu fimleikamenn fjelagsins
hyltir af samkomunni. Þá söng
einn aðalstofnandi K. R. hr. Pjet
ur A. Jónsson óperusöngvari ein-
söng og var margklappaður upp.
Þá var leikin ný K. R.-revy eftir
formanninn Erlend Pjetursson.
Ljek hann sjálfur annað hlut-
verkið, en Jón Hjartar ljek á
móti honum. Var mikið af K. R.-
bröndurum í revýunni og fagn-
aðarlátum áhorfenda ætlaði
aldrei að linna. Formaður til-
kynti á skemtuninni, að í dag
hefði fjelaginu borist 1 þús. kr.
afmælisgjöf frá einum eldri K.
K.ing, sem þakklæti'hans til fje-
lagsins fyrir hið framúrskarandi
dugmikla íþróttastarf þess í
þágu bæjarfjelagsins. Að lokum
var dans stiginn til kl. 3. Var
sannur myndarbragur á þessari
skemtisamkomu.
Næturlæknir er í nótt Bjami
Jónssonj Reynimel 58, sími 2472.
Dagbók
L O. O. F. 1 = 1243198»/» S
Lágafellskirkja. Méssa fellur
niður næstkomandi sunnudag, 21-
þ. m. í þess stað verður messað
sunnudaginn 28. þ. m.
ÚtvarpiS í dag:
20.30 Útvarpssagan: Kristín Svía
drotning, IX (Sigurður Gríms*
son lögfræðingur).
21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Kvartett nr. 15 í B-dúr eftir
Mozart.
21.15 Erindi: Sálarfíf kvenna, U
(dr. Símon Jóh. Ágústsson).
21.40 Hljómplötur: Islensk söng-
lög.
22.00 Symfóníutónleikar (plotur)
Symjhonie fantasique eftir
Berlioz.
120 þösuíid Gyðingar
d.epnir í Rumeíifu
—^-r'n. v.iv Jaíík ííwí'
STOKKHÓLMI í gær:
Rúmlega 120,000 Gyðingar
hafa verið líflátnir í Rúmeníu
frá því er styrjöldin hófst, seg-
ir í • fregn frá Ankara, sem
sænska blaðið Aftontidingen
birtir í dag.
.60.000 Gyðingar þar í landi
hafa verið sendir í þrældóms-
vinnu fyrir austan Donetsfljót.
Reuter.
Fjelagið hefir sótt um upptöku
íslands. geti farið fram.
sem deild í Rauða Krossi
70 smálesta skip,
| í góðu standi með nýrri Dieselvjel, er tíl leigu. Lyst-
* hafendur sendi nöfn sín til Morgunblaðsins merkt:
i’
t
Skip til leigu“.
1
■>■ IL" Sfihanr
-i • • .wmatatf öbæ'í: ts&agoi
toðúad nýftomin ^fi4
i. & iasstóf
Eggerl Krlst|áv»ssoKi & Co. h.f.
witsisvá' j: ailffiÖEffíi
Jarðarför systur okkar ” '
SIGRÍÐAR GUNNJÓNU STEFÁNSDÓTTUR,
frá Rjúpnafelli í Vopnafirði, sem andaðist í Landakots-
spítala föstudaginn 12. þ. m., fer fram frá dómkirkjunni,
laugardaginn 20. þ. m., kl. V/2 e. hád.
Fyrir hönd okkar og fjarstaddra foreldra.
Guðrún Stefánsdóttir, Karólína Stefánsdóttir,
Hólmfríður Stefánsdóttir.
Innilegar þakkir færi jeg öllum, sem við andlát og jarð-
arför heiðruðu minningu konunnar minnar og móður okkar
GUÐRÚNAR SIGRÍKSDÓTTUR.
Sjerstaklega þakka jeg skipshöfninni á b.v. Sindra.
Fyrir mína hönd og dætra minna
Guðm. Þórðarson.