Morgunblaðið - 29.06.1943, Side 12
12
Þriðjudagnr 29. júní 1943,
fJonnóoióöfnun in:
Lokaskila-
grein frá
Morgan-
biaðinu
FRÁ BIRTINGU síðustu
skilagreinar hefir« Mor.gun-
blaðinu l)orist eftirfarandi
gjafir í Þormóðssöfnunina:
Sjómaður 50.00
Ur Stafholtstungum 375.00
Safnað af Slysavarna-
deildinni T >jörg á Hell-
iSsandi 776.00
N. N. 28.00
Áheit frá E. G. 10.00
NB. í síðustu skilagrein
misprentaðist: frá Kjalnesing
kr. 1.200.00, átti að standa:
Frá Kjalnesingum.
★
Er har nieð lokið hessari
fjársöfnun hjá Morgunblað-
inu.
Alls hefir blaðinu borist í
Þormóðssöfnunina 344.682.00,
og' er bað langstærsta f.jár-
söfnun, sem Morgunblaðið
hefir haft með höndum. Fjeð
hefir jafnóðum verið lagt inn
í aparisjóðsbók í Landsbank-
anum, sem verður nú afhent
úthlutunarnefndinni.
U'm leið og fjársöfnun bess-
ari lýkur vill Morgunblaðið
nota tækifærið og bakka öll-
um beim, sem lagt hafa fram
fje og stuðlað að ]jví, að gera
fjársöfnun bessa svo mynd-
arlega, að hún b.ióðinni til
mikils sóma.
Samiið vegna
árásar á Siíðina
WASHINGTON. — Ýmsir
forvígismenn í höfuðborg
Bandaríkjanna hafa látið í
l.jós samúð sína í garð íslend-
inga, vegna árásarinnar á
Súðina. Voru þeirra á meðal
Elbert Thomas, öldungadeild-
arþingmaður frá Utha, en
hann er formaður verka- og
mentamálanefnda deildar-
innar. Hann ljet meðal ann-
ars svo um mælt, að þjóð,
sem skerti hlutleysi annarar
þjóðar, hve smá sem hún
væri, ætti ekki að fá að taka
þátt í alþjóðaráðum.
Jo&hep H. Ball, öldunga-
deildarþingmaður frá Minne-
sota sagði meðal annars,
Bandaríkjamenn rjettu ís-
lendingum hönd sína í sam-
Úðarskyni.
Báturinn
irá Sandi
kominn
/rant
í FYRRAKVÖLD var
auglýst eftir opnum báti
frá Sandi, sem farið hafði
í róður um klukkan 8 um
morguninn sama dag,
En báturinn er nú kom_
inn fram. Herpinótabátar,
sem voru á veiðum út af
Grundarfirði, fundu bátinn
og drógu hann til hafnar
í fyrrinótt.
í FANGABÚÐUM
Hunánið þýskra fanga í fangabúðum í Norður-Afríku.
Umferð stöðvast um
Ölfusárbrú í 91/2 klst.
ÖLL UMEFERÐ farar-
tækja um Ölfusárbrú var
stöðvuð í gærdag frá kl.
8;30 árd. til kl. tæplega 6
síðd. Stafaði þetta af því;
að nokkrir stálteinar sem
halda brúnni uppi á aðal-
vírunum. biluðu.
Mun bilun þessi eíngöngu
stafa af mikilli umferð um
brúna undanfarið. — Hef-
ir það aldrei komið fyr áð-
ur, að þessir teinar, semj
eru aðaluppistaða brúar-
gólfsins, hafi bilað eins og
nú.
' Alls eru þrír teinar. —
Mun sá fyrsti hafa hrokk-
ið í sundur í fyrrakvöld, en
hinir tveir í gærmorgun.
Vegamálastjóri ljet þeg-
ar í gærmorgun byrja á að
gera við brúna. Voru smíð-
aðir nýir teinar og settir í
stað þeirra gömlu, er höfðu
brotnað.
Frjettaritari Morgunbl, á
Selfossi segir, að grindverk
ölfusárbrúar sje all illa út-
leikið, beyglað og bilað
víða.
Bresku sýning-
unni á Akureyri
lokið
Frá rjettaritara vor-
um á Akureyri.
BRESKÁ listsýningin á
Akureyi-i var opnuð fyrir
almenning í barnaskólahús
inu hjer fyrir rúmri viku
síðan,
Hefir sýningin vakið hina
mestu athygli allra þeirra,
sem þangað hafa lagt leið
sína. Telur dr. Cyril Jack-
sin, að nálægt 400 manns
hafi sótt sýninguna, Má
það teljast rr|jög sæmileg
aðsókn í ekki stærri bæ en
Akureyri.
Norðlenskir
skipstjórar
mótmæla
FARM/ANNA- og fiski-
mannasambandi Islands
hefir borist svo hljóðandi
símskeyti frá Akureyri:
„Fundur í skipstjórafje-
lagi Norðlendinga haldinn
27. júní 1943 mótmælir
harðlega ákvörðun atvinnu
málaráðherra u n þerðlag
á síld í síldarverksmiðjum
ríkisins á komandi sumri.
Fundurinn krefst þess, að
farið verði að tillögum
meirihluta stjórnar fyrr-
nefndrar verksmiðju í þessu
efni.
I stjórn skipstjórafjelags:
Norðlendinga:
Aðalsteinn Magnússon,
fornj. Egill Jóhannsson rit-1
ari, Sigurður Sumarliðasonl
gjaldkeri".
Fundarályktun þessi hef-
ir verið send atvinnumála-
ráðherra.
STÖÐUGAR ÁRÁS-
IR Á KISKA.
Washington í gærkveldi —:
Bandaríkjaflugvjelar hafa
hópum saman farið* til Kiska^
Aleutaeyjum að undanförnu,
og varpað niður miklu af
sprengjum. Varð af mikið
tjón á stöðvum Japana.
— Reuter.
ÚTSVÖR í DJÚPA-
VÍK.
Frá frjettaritara vorum
á Djúpavík.
NIÐURJFÖFN UN útsvara
er nýlega lokið hjer í hreppi.
Alls var jafnað niður
47.500.00 krónum. Þar af ber
h.f. Djúpavík riimlega helm-
ing. Auk þess fær hreppur-
inn allverulega upphæð, þar
sem. er hluti af stríðsgróða-
skátti.
Eggjáþjóf
ar í Geid-
inganesi
MIKIÐ HEFIR borið á
því undanfarið, að eggjaþjóf.
ar láti greipar sópa um
hreiðrin í Geldinganesi. Þar
var eitt sinn mikið fuglalíf,
en þjófarnir hafa fælt fugl-
ana burt.
Hestamannaf j elagið Fák-
ur hefir Geldinganes á leigu
til þess að hafa þar haga-
göngu fyrir hesta. Setuliðs-
menn, sem eiga að sjá um,
að hliðin að haglendinu sjeu
lokuð, kvarta undan því, að
alskonar fólk sje að ramba
þar um í eggjaleit og skilji
eftir opin hlið.
Eggjaþjófarnir mega bú-
ast við, að þeim verði gefn-
ar góðar gætur framvegis. Ef
þeim er nokkuð sárt um fjár-
muni sína, þá ættu þeir ekki
að eyða þeim í háar sektii*,
sem liggja við þessu eggja-
ráni.
3 sveitír í Reykja-
urboðhlaupinu
í kvöld
í BOÐHLAUPI Ármanns
umhverfis Reykjavík, sem
fram fer í kvöld, taka þrjár
15 manna sveitir þátt} frá
í. Ri„ K. R. og Ármanni.
Hlaupið hefst á íþrótta-
vellinum klukkan 8,30. —•
Þaðan verður hlaupið eftir
Hringbraut, og lýkur hlaup
inu á íþróttavellinum.
Kept er um „Alþýðu-
blaðshornið“, Ármann vann
það í fyrra og hitteðfyrra
og 1939, en KR 1940. Það
fjelag, sem vinnur hlaupið
þrisvar í röð eða fjmm sinn
um alls, hlýtur það til eign-
ar. Því fær Árrrjinn hornið
til eignar, ef fjelagið vinn-
ur hlaupið í kvöld. — Má
þess vegna búast við harðri
keppni,
Skemtikvöld
Sjálfstæðisfje-
laganna í kvöld
SJÁLFSTÆÐISFJELÖGIN
í Reykjavík halda aðra kvöld-
skemtun sína í Sýningarskál-
atium í kvöld.
Luðvig Hjálmtýsson,. for-
maður Ileimdallar, setur sam-
komiuia og stjórnar henni.
Ræðu flytur Sigiirður Krist-
jánsson alþm. •— Þá verður
til skemtunar listdans frk. Sif
Þórs, og Skúli Halldórsson
leikur á píanó. Dansað verð-
ur milli skemtiatriða og eft-
ir.
Þeir, sem vilja tryggja sjer
aðgang, ættu að kaupa miða
tímanlega í dag á skrifstofum
S j álfst æðisfl okksins, Thor-
valdsensstræti 2.
_9-óiandímóti•*
Valurvann
Fram 3 :1
NÆST SÍÐASTI LEIIvUR
Islandsmótsins fór. fram í gær,
milli Vals og Fratn. — Vind-
ur var allsnarpur og hafði
hánn eins og gefur að skilja
mikil áhrif á leikinn í heild.
Leikmenn voru ekki eiu.s ör-
uggir og ella og áttu oft erf-
itt með að ráða við knött-
inn.
Valur ljek undan vindi í
fyrri hálfleik. Fyrstu 15 mín-
úturnar var Valur í sókn, en
tókst ekki að skora. Eftir það
gerði Fram hættuleg upp-
hlaup, sem báru þó ekki ár-
angur, en yfirleitt lá knött-
urinn meira á Fram. —1 Er
20 mínútur voru liðnar skor-
aði BjÖrgúlfur fyrsta mark
Vals með fallegu skoti. Þá
færðist meira f.jör í leikinn,
leikmenn náðu meira valdí
yfir knettinum og leikurinn
varð jafnari.
Er tæpar tíu mínútur voru
eftir af hálfleiknum skoraði
Ellert annað mark Vals, eftir
að hægri innframherji hafði
gefið knötti>jn fallega fyrir,
Eftir þetta mark voru upp-
hlaup gerð á bá'ia bóga og
lauk hálfleikrium með 2:0
fyrir Val.
Síðari hálfleik ljek Fram
undan vindi og hófu þeir
liegar sólcn, en hún bar ekki
árangur. Annars var leikur-
inn svipaður og í fyrri hálf-
leik, nema hvað Fram var í
sóknaraðstöðu. Er 15 mínút-
nr voru af hálfleiknum fjekk
Fram aukaspymu rjett við
vítateig, en ekki náðist mark.
Fimm mínútum síðar fjekk
Valur á sig vítaspyrnu og
skoraði Sigurður .Tónsson.
Leikar stóðu þá 2:1. Skömmu
síðar fjekk Valur á sig aðra
vítaspyrnu, en skotið lenti
| rjett fratn hjá stönginni. —.
Eftir það var leikurinn nokk-
uð harður, en ekkert gérðist
sögulegt fyrr en tæpar 10
mínútur voru eftir að leikn-
nm, að Albert skoraði 3.
mark Vals. Það setn eftir var
leiksins voru gerð upphlaup
a háða bóga, án þess þó að
skorað yrði. Leikurinn end-
aði með sigri Vals 3:1.
Þ.
Bardagar
við Volkov
London I gærkv,.
ÞÝSKA frjettastofan hef
ir þau tíðindi að segja frá
Rússlandi í dag, að her
Þjóðverja hafi tekist að
bæta allmfikið aðstöðu sína
á Volkovsvæðinu eftir,
nokkra bardaga. Að öðru
leyti er sagt kyr, nema
kvað enn ber nokkuð á
lofthernaði og ráðast aðil-
ar einkum á járnbrautir að
vígstöðvabaki. —Reuter,
JAPAN MUN FÁ
FÁ HÖGG!
London í gærkveldi —:
Chennault foringi Banda-
ríkjaflughersins í Kína hefir
rætt við blaðamenn í fyrsta
skifti eftir að hann kom aúst-
ur af ráðstefnunni í Was-
hington. Hann sagði, að Jap-
anar myndu bráðlega hljóta
þung högg og stór. —Reuter.: