Morgunblaðið - 08.04.1945, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐlt;
Sunnudagnr 0. apríl 1045
Á 8AIVIA 8ÓLARHRIIMG
Eftir Louis Bromfield
15. dagur
„Já — það ætti að bæta dá-
lítið úr skák. Undirlægjuhátt-
urinn gagnvart mönnum, sem
einhverjum fánýtum nafnbót-
um hefir verið klínt á, er enn
ríkari í eðli hans en tepruskap
urinn“. Hún saup drjúgan af
púnsinu. „Það er næsta furðu-
legt,, hvað Filip er að líkjast
honum föður sínum mikið. —
Hann er orðin lifandi eítirmynd
in hans“.
,,Þau hittast auðvitað —
Filip og Nancy?“
„Já, vitanlega.
Alida þagnaði andartak. —
„Það hlýtur að verða mikið á-
fall fyrir hana að sjá Filip. Hún
hefir ekki sjeð hann síðan hún
fór hjeðan —- er það?“
„Nei, ekki síðan hann var
tveggja ára gamall".
Savina fjekk sjer aftur í glas
ið. Hún heyrði einhversstaðar
klukkuna slá tólf högg og henni
datt alt í einu í hug, að þótt
hún væri orðin 67 ára, og af-
skræmd af spiki, hefði hún það
aldrei á tilfinningunni, að hún
væri orðin gömul, nema þegar
hún sæi unga menn, eins og
Filip, hraða sjer á stefnumót
á síðkvöldum.
Ef til vill hafði hún aldrei
verið gædd þeirri rjettu for-
dild, sem gert er ráð “fyrir, að
konum sje runnin í merg og
bein, og þessvegna ekkert
skeytt um það, þótt hár hennar
gránaði og línurnar í líkama
hennar máðust burt, í offitu.
Ellin hlaut að koma miklu
hraðar niður á konum, eins og
t. d. Nancy, og þá einkum og
sjer í lagi, ef hún óttaðist dauð
ann eins mikið og Hektor. Það
hlaut að vera henni kvalræði,
að sjá æskublómann fölna, dag
frá degi, fegurðina hverfa, and
litið verða slappt' og augun
sljó, vita, að hún myndi ekki
lengur vekja almenna athygli,
hvern sem hún færi, karlmenn
myndu ekki lengur snúa sjer
við á götunni, til þess að horfa
á eftir henni, með aðdáunar-
glampa í augum.
Nancy hlaut að vera nær
sextugu, og þótt hún hefði
hlotið góða giftingu, gat það
ekki bætt henni upp glataða
æsku og fegurð.
Hún tók að kenna í brjósti
um Nancy og fann um leið til
ánægju yfir því, að hún skyldi
aldrei hafa verið falleg. Það
voru önnur verðmæti til í þessu
lífi, en líkamsfegurð, en ef til
vill urðu þau ljett á metunum,
borið saman við alt það, sem
fegurð Nancyar hafði veitt
henni. Ef hún hafði ekki verið
því vitlausari, hlaut hún nú að
eiga drjúgan skerf dýrmætra
minninga, sem hún gat glatt
geð sitt við. Hún hafði áreiðan
lega elskað Patrick Dantry
heitt, og að honum látnum
hafði hún auðvitað átt ótal
elskhuga. En hvað svo sem
hafði komið fyrir hana, var ó-
gjörningur að hún iðraðist
gjörða sinna nú, þegar hún var
orðin gömul. Það, sem þjáði
Hektor gamla mest var ef til
vill það, að hann hafði altaf
vísað á bug öllu því, er hætta
var á, að kæmi honum úr jafn-
vægi, bælt niður allar hvatir
sínar og iðraðist þess nú, þegar
það var orðið um seinan, að
bæta fyrir það. Ef til vill átti
gremja hans í garð Nancy mest
megnis rætur sínar að rekja
til þess, að hún hafði gert alt
það, sem hann hafði aldrei gert,
og gat ekki gert hjeðan af.
Hún sá, að Alida virti hana
aftur fyrir sjer, óttaslegin á
svip. Hún rankaði við sjer og
reis á fætur með erfiðismunum.
„Það er orðið áliðið. Þú ættir
að vera komin í rúmið fyrir
löngu síðan og það er ekki holt
fyrir augun, að vinna lengur
við þetta ljós.“
Alida vafði þegjandi saman
saumunum og reis á fætur. Sa-
vina breiddi yfir búrið hjá
Kötu en Alida yfirgaf herberg
ið snúðugt, án þess að mæla
orð af munni. Henni var enn-
þá gramt í geði.
Þegar hún var farin, slökkti
Savina ljósin og stóð dálitla
stund við gluggann, og horfði
út í hríðina. Hún var að hugsa
um það, hve hræðilegt það yrði
fyrir Nancy,. að koma heim, eft
ir 25 ára fjarveru, þar sem alt
væri gjörbreytt frá því, sem
það hefði áður verið, ekkert
lengur til af því, sem hún hafði
tengt minningar sínar við. —
Jafnvel húsið, sem hún var
fædd í og gatan, þar sem hún
hafði leikið sjer, sem barn, var
horfið að eilífu.
Hún kallaði á hundana, og
hjelt af stað upp. Alida beið
hennar í ganginum uppi, og
Savina vissi, að hún hafði beð-
ið þarna í kuldanum og myrkr
inu, til þess að sýna henni, að
hún blygðaðist sín fyrir það,
sem hún hafði sagt áðan. Alida
var dálítið kvíðin á svip, þegar
hún kyssti hana og bauð henni
góða nótt. Savina sagði: „Þú
getur verið alveg róleg. Það er
ekkert að mjer. Það greip mig
bara einhver ótætis viðkvæmni
í kvöld — og það getur komið
fyrir á bestu bæjum“.
Það fór um hana ónota hroll
ur, þegar hún heyrði sína eig-
in rödd. Það var einhver hreim
ur í henni, er minnti á hörku-
lega, bitra rödd Hektors gamla.
Þegar Savina var háttuð
skeði það mikla undur, að hún
gat ekki sofnað. Það hafði
aldrei komið fyrir hana áður.
Hún tók að þylja með sjálfri
sjer sálma, sem hún. hafði num-
ið í æsku og þegar það bar eng
ann árangur, taldi hún upp að
átta í sífellu, eins og Alida
gerði, þegar gigtarskömmin
varnaði henni svefns.
En það var eitthvert afl hið
innra með henni, sem barðist
gegn vilja hennar. Hún fór að
hugsa um æsku sína, löngu liðn
ir atburðir skutu upp kollinum.
Þetta hlýtur að vera ellin, hugs
aði hún með sjer. Gamalt fólk
kvað oft eiga bágt með svefn og
hugsar þá sýknt og heilagt um
æsku sína. Það man greinilegar
eftir því, sem skeði fyrir
fimmtíu árum en því, sem
skeði i gær.
Loks rann henni í brjóst. —
Ferskur blómailmur barst að
vitum hennar. Það var ilmur-
inn í aldingarði Júlíu frænku,
í Staatsburg. Hún var þar á
gangi, ung stúlka, um tvítugt,
stór og hraustleg. Jörðin var
heit og græn. Það var einn af
þessum hljóðu sumardögum,
þegar náttúran virðist doka við
andartak, í spurn. En skyndi-
lega var kyrrðin rofin. Hestur
kom á harða stökki yfir girðing
una, kastaði reiðmanninum af
baki og hvarf síðan milli
trjánna. Reiðmaðurinn var
Hektor Champion. Hann lá
hræringarlaus í grasinu, andlit
hans alblóðugt. — Hún reif
stykki neðan af undirpilsi sínu,
vætti í læknum og þvoði blóð-
ið framan úr honum. Hann lá
með höfuðið í skauti hennar,
ljóst hárið úfið og smágert,
svipríkt andlitið náfölt. Þegar
hann loks opnaði augun, var
hún alt í einu gagntekin ein-
hverri blygðunarlausri fýsn,
sem hún hafði aldrei fundið til
áður, og löng stund leið áður
en hún mátti mæla. Hún sat
nötrandi og skjálfandi, og, gerði
ýmist að svitna eða skjálfa úr
kulda. Hann lá þarna, eins og
lítið hjálparvana barn. Hún
var sterk og hraust og gat elsk
að hann ög verndað, altaf.
Þegar Hektor var fær um, að
setjast upp og hún sá, að hann
var ekki alvarlega meiddur,
bældi hún niður stolt sitt og
spurði hann að því, hvort hon-
um litist ekki vel á þá hug-
mynd, að þau giftu sig. Hún
sagðist skilja það vel, að hann
væri feiminn og tilfinninganæm
ur og ætti bágt með að tala um
slíka hluti, en hún sagðist
elska hann svo mikið, að sjer
væri sama um alt annað. Þáu
þyrftu jafnvel ekki að gifta sig.
Savina rumskaði og jafnvel
nú, í svefnrofunum, fjörutíu
árum síðar, roðnaði hún, þegar
það rifjaðist upp fyrir henni,
hvernig hann hafði brugðist við
bónorði hennar. Hann hafði
komið með ótal afsakanir, sagt,
að hann yrði fyrst og fremst að
hugsa um móður sína, svo þyrfti
hann að fara til Ítalíu, og
dvelja þar eitt ár við listnám,
en að því loknu gætu þau ef til
vill farið að hugsa til giftingar.
En hún hafði skilið það mæta-
vel, að hann ætlaði sjer aldrei
að kvænast henni, hvorki þá,
nje síðar. Og hún mundi glöggt,
að þrátt fyrir alla ástina, sem
hún bar í brjósti til hans, hafði
hún skyndilega fyrirlitið hann,
fyrirlitið hann af öllu hjarta
fyrir þrekleysið og amlóðaskap
inn.
Og hvernig hafði svo listnám
hans gengið? Jú, hann hafði far
ið til Ítalíu til þess að læra að
mála, því að þá var alment ætl-
að, að allt, sem kæmi frá Ítalíu,
væri list, og hann hafði komið
heim aftur, að ári liðnu, með
nokkrar herfilega málaðar
helgimyndir.
niiiiiiiiiiimiuiiiiuuuiuiiiimiiauuuiiiiiiumiiiBmB
j y^]aqnúó JJhor L
lacjnuó ^Jhonaciaó §
hæstarjettarlögmaður s
Aðalstræti 9. Sími 1875. =
UIIllililllllUUUIIIIUUUUMIIllllMiQUWIIIllIJIIIllMIII
LISTERINE
RAKKREM
FERMING í DAG
í Dómkirkjunni 8. apríl kl. 11.
Piltar:
Ananías V. Árnas., Njálsg. 36B.
Ásgeir Stefánsson, Vitastíg 17,
Benedikt Þorbjörnss. Lokast. 28
Bergur Guðnason, Laugav. 28C.
Bjarni Jakobsson, Þórsgötu 29.
Björn St. Bjartmarz, Bergst.-
stræti 21.
Gunnar Bjartmarz, Bergslaða-
stræti 21.
Guðmundur Reykdal Karls-
son, Miðstræti 8A.
Guðmundur J. Þórðarson, Ás-
vallagötu 37.
Hallgrímur Hallgrímsson. Eski-
hlíð A.
Hörður Jónsson, Skólav.st. 11.
Jón Reynir Magnússon, Linl-
argötu 52.
Kristján Runólfson, Öldug. 59.
Markús Þórhallsson, Holtsg 39
Rögnvaldur Þór Rögn^aldsson,
Bergstaðastræti 53.
Guðmundur- K. H. Rögnvalds-
son, Bergstaðastræti 53.
Sigurður Hörður Andrjesson,
Mýrargötu 3.
Örn Þór, Hólavallagötu 13.
Stúlkur:
Auður Sigurðard. Hringbr. 188
Ester Georgsdóttir. Óðinsg. 20.
Halldóra L. Sveinsdóltir, Óð-
insgötu 25.
Inger Sigfúsdóttir, Hallveigar-
stíg 6.
Helga E. Jónsd., Hringbr. 111.
Hjörö's Ström, Grettisg. 58B.
Hulda B. Lárusdóttir, Fjölnis-
vegi 20.
Inga H. K. Maríusdóttir, Stýri-
inanr.aslíg -3.
Ingibjörg G. Aðalsteinsdóttir,
Haðarstíg 18.
Ingibjörg K. Hjartardóttir, Ás-
valiagötu 57.
Katrín Þórðard. Ásvallag. 37.
Olga Halldórsdóttir, Haðarst. 14
Svava S. Vilbergsd. Njálsg. 77.
í Dómkirkjunni kl. 2. — Sr. Bj.
Jónsson.
Drengir:
Andrjes Jón Bergmann Ásgeirs-
son, Ægisgötu 10.
Andrjes Pjetursson, Fjölnisv. 9.
Ármann Guðni Jónss. Bakkast. 6.
Árni Jón Pálmason Öldugötu 3.
Atli Ágústsson, Háteigsveg 19.
Benedikt Helgi Sveinsson, Kára-
stíg 3.
Birgir Jón Guðmundur Ólafsson,
Hringbraut 197.
Birgir Sigurbjartsson, Ingólfs-
stræti 6.
Björn Kr. Fritzson, Nönnug. 1 B.
Gísli Bryjnólfsson, Útsölum.
Guðjón Ingib. Hafliðason, Lind-
argötu 41.
Guðjón Már Valdimarsson, Sam-
tún 10.
Guðlaugur Hjörleifsson, Kirkju-
stræti 10.
Guðmundur Dalmann Tryggva-
son, Reykjalundi.
Gunnar Hrafn Ágústs. Holtsg. 10.
Gunnar Páll Kristjánsson, Smiðju
stíg 12.
Helgi Viktorsson, Seljaveg 9.
ísak N. ísaksson, Nýlendug. 11.
ón Guðmundsson, Rauðarárst. 22
Konráð Sigurðsson, Barónsst. 59.
Kristján N. Brunn, Skála 3 A,
Þóroddsstaðabr.
Ólafur Helgi Frímannsson, Bar-
ónsstíg 80.
Óskar Guðlaugsson, Öldug. 7.
Páll Rósinkr. Vigkonsson, Hofs-
vallagötu 23.
Sigurður Magnús Gestss., Grund-
arstíg 15 B.
Sigurður Alfreð Ingvarsson,
Höfðaborg 3.
Tryggvi Gunnarsson, Norðurhlíð.
Þórarinn Guðlaugsson, Ásvg. 27.
Þórir Bjarnason Bergþórugötu 12
Örn Sigurjónsson, Hringbr. 1,48.
Stúlkur:
Anna Hjartardóttir, Bræðrab. 22.
Ástríður Magnúsd. Vesturg. 7.
Birgja Benediktsd., Egilsg. 10.
Birna Oddsdóttir, Laugaveg 130.
Elín Sigurðard., Njarðargötu 31.
Elísabeth Clausen, Víðimel 63.
Elsa Dagmar Runólfsdóttir,
Bröttugötu 5.
Erla Auðlín Bótólfsdóttir, Breið-
holti, Lauf. •
Erla Gísladóttir, Tjarnarg. 8.
Erna Þorsteinsd., Laugav. 159 A.
Gríma Sveinbjörnsdóttir, Urðar-
stíg 11 A.
Guðlaug Eggrún Konráðsdóttir,
Bergst.str^ 33.
Guðríður Stefanía Þorvaldsdótt-
ir, Brunnstíg 10.
Guðrún Egilsdóttir, Nýlg. 17.
Guðrún Helga Högnad. Leifsg. 15
Guðrún Þ. Stephensen, Laufás-
vegi 4.
Helga Einarsd., Vesturgötu 53 B.
Hólmfríður Magnúsd., Bókhlöðu-
stíg 11.
Hrafnhildur Þórðardóttir, Berg-
staðastræti 71.
Hulda Jónína ■ Björnsdóttir,
Ingólfsstræti 16.
Jóhanna Jörgensen, Lvg. 49 A.
Jóna G. Kristinsd. Lvg. 147 A.
Jórunn Jónsdóttir, Barónsst. 65.
Kristíp Kristinsd. Aðalstr. 9 C.
Kristjana Sigr. Pálsd., Brunnst. 6
Nína Guðjónsd. Tjarnargötu 39.
Oddný Svala Bjarnadóttir, Fram-
nesvegi 13.
Ólöf Runólfsd. Njálsg. 72.
Pálína Kjartansd. Egilsg. 12.
Ragnhildur Sveinsd. Sólvg. 6.
Sigríður Einarsd., Lindarg. 22 A.
Sigríður Þórdís Sigurðardóttir,
Ásvallagötu 53.
Sonja Hansína Andersen, Sól-
vallagötu 5 A.
Unnur Axelsdóttir, Hringbr. 152.
Þórunn Ebba Þórarinsdóttir, Vest
urgötu 17 A.
í Fríkirkjunni kl. 2. — Sr. Árni
Sigurðsson.
Drengir:
Ágúst H. Óskarsson, Shellv. 2.
Árni Guðmundss. Hvg. 42 B.
Björn Kristján Láruss. Hbr. 186
Guðmundur Q. Einarss., Einh. 11
Guðjón Breiðfj. Jónss., Hvg. 76 B
Guðm. Haraldsson, Lindarg. 11.
Hallvarður E. Einvarðss. Hát. 7.
Helgi K. Sessílíusson, Óð. 4.
Hörður Jón Pjeturss. Þverh. 7.
Ingi. Bergm. Karlsson, Hvg. 76 B
Ingi F. Gunnarss., Framnv. 14.
Ingi Sig. Sturlaugss., Lvg. 72.
Ingólfur G. Gústafss., Fálkag. 19.
Ólafur Þ. Jónsson, Bollagötu 5.
Ottó Kr. Björnsson, Sólvg. 40.
Sigurbjarni Guðnason, Nýlg. 21.
Sigurbjörn J. Þ. Þorgeirsson,
Framnesvegi 8.
Steinn Steinsson, Holtsg. 14 A.
Þórir Sig. Hersveinsson, Hömr-
um, Suðurlandsbraut.
Þorsteinn Sigurðsson, Skólavörðu
holt 134.
Stúlkur:
Anna Jónasd., Ránargötu 22.
Arnhildur Jónsd., Bergst.str. 50 B
Ásdís Ó. Skarphjeðinsdóttir,
Skólavörðustíg 4 C.
Erla Sigurðard., Miðtún 22.
Fríða Helgad., Leifsgötu 17.
Guðriður Karlsd., Hverfisg. 75.
Halldóra E. Tómasd., Brekkust. 8
Halldóra Jónsd., Vegam. 3.
Hólmfr. A. Árnad., Hringbr. 211.
Kristbjörg S. Helgadóttir, Braga-
götu 23.
Kristín Grímsd., Bragagötu 36.
Marella Valg. Axelsd., Hvg. 106.
Margrjet Sigr. Árnad., Sólvg. 27.
Sonja Ingibjörg Kristensen,
Þormóðsstöðum.
Viktoría Kolbeinsd., Sóleyjarg. 21
Þuríður G. Ottósd., Fálkag. 32 A.