Morgunblaðið - 27.04.1945, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.04.1945, Blaðsíða 5
Föstudagur 27. apríl 1945. 5 bíOBG.UNBLAÐIÐ Síða sambands ungra Sjálfstæðismanna Ritstjórn: Sambandsstjórnin. Eiga ungmennafjelögin að vera unglingadeildir í Framsóknarflokknum? í SIÐU Sambands ungra sjálfstæðismanna hjer í blað- inu 8. febr. s.l. var það gagn- rýnt, og talið ósamrýmanlegt nauðsynlegu hlutleysi ung- mennafjelaganna, að Daníel Ágústínusson, framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins, skuli jafnframt vera hinn raun verulegi framkvæmdastjóri U. M. F. í. Einnig var gagnrýnd sú ráðstöfun stjórnar U.M.F.I. að tilnefna Daníel af sinni hálfu til setu í íþróttanefnd ríkisins og þar með tryggja Framsóknarflokknum 2/3 hluta þeirrar nefndar, sem á hverj- um tíma skiftir niður því fje, sem ríkið leggur af mörkum í íþróttasjóð til styrktar íþrótta- mannvirkjum og hinni frjálsu iþróttastarfsemi landsmanna. En eins og menn muna skipaði Hermann Jónasson á sínum tíma Guðmund Kr. Guðmunds- son, taumþægan Framsóknar- mann, til þess að vera formann íþróttanefndarinnar. Guðmund ur var síðan endurskipaður af utanþingsstjórn Dr. Björns Þórðarsonar. Eins og gefur að skilja, þar sem pólitísk aðstaða er annars vegar, hafa Framsóknannenn unað því hið versta, að á þetta skuli hafa verið minst. Gerir Daníel Ágústínusson, fram- kvæmdastjóri Framsóknar- flokksins og sambandsritari U. M. F. 1, þessa Morgunblaðs- grein að umræðuefni í löngu máli, sem hann skrifar í Tím- ann 23. febr. s.l. Spyr hann þar með hinu mesta yfirlæti, hvort leiðbeina þurfi ungmennafje- lögum og svarar sjer síðan sjálf ur á þá leið, að svo sje áreið- anlega ekki og lýsir yfir, að því er virðist í nafni sambands- stjórnar U. M. F. í., að öll sú gagnrýni, sem færð sje fram varðandi þetta efni, skuli skoð- ast sem níð og rógur um ung- mennafjelögin, einungis flutt í því skyni að sundra iingmenna- f j el agshrey f ingunni. Annar snögt um smærri spá- maður heldur en Dartíel er, Olafur nokkur H. Guðmunds- son að nafni, tekur svo upp í Tímann 16. mars s.l. aðalatrið- in úr grein Daníels að viðbættu sínu persónulega þakklæti til sambandsstjórnar U. M. F. í. fyrir ágætlega unnin störf og lýsir yfir þeirri vissu sinni, að engu breyti það um álit sannra ungmennafjelaga á Daníel Ágústínussyni og öðrum for- ystumönnum U. M. F. L, þó óvandaðir blaðasnápar í Reykjavík geri sjer það til dundurs að skrifa lymsku- blandnar greinar um sambands stjörnina. Grein þriðja Framsóknar- mannsins mun skrifuð áður heldur en umræður hófust um mál það, sem hjer að framan hefir verið rifjað upp að nokkru. Er höfundur hennar Jónas Baldvinsson á Lundar- brekku, og má skoða tillag Jón- asar til þessa máls, hugleiðing- ar hans út af skoðun, sem fram kom í útvarpserindi, sem einn af stjórnendum U M. F. 1, Gest ur Andrjesson bóndi á Hálsi, flutti 2. des. 1944, en þar var- aði hann við því, að ungmenna fjelögum væri á einn eða ann- an hátt blandað inn í þá bar- áttu, sem landsmálaflokkarnir heyja sín á mjlli. Þessi ungi Framsóknarmaður andæfir skoðun Gœts á Hálsi og kveður ungmennafjelögin hafa verið „einskonar ungliða- deildir samvinnufjelaganna", og vill auðsjáanlega ekki, að þar vrerði nokkur breyting á. Eiga ungmennafjelögin sam- kvæmt þessu að vera nokkurs- konar fjelög ungra Framsókn- armanna og er þá auðskilin við kvæmni Daníels Ágústínusson- ar, þegar á það er minst, að það sje ósamrýmanlegt hlut- leysi þeirra að þeim sje stjórn- að af aðalskrifstofu Framsókn- arflokksins í Reykjavík. Ef ungmennafjelagar ætlast til að þeim sje í framtíðinni sýndur jafn mikill trúnaður eins og hingað til, verða þeir, sem þar hafa forystu, að vera vel á verði gagnvart ásælni ein- stakra stjórnmálaflokka, og það er síst til styrktar aðstöðu U. i M. F. í. í þeim deilum, sem nú eru uppi um framtíðarviður- I kenningu sambandsins af hálfu ríkisvaldsins, ef grein Daníels I Ágústínussonar í Tímanum 23. febr. s.l., á að skoðast sem grein : argerð af hálfu sambandsstjórn | ar U. M. F. 1 í tilefni af þeirri ' gagnrýni, sem fram er komin vegna tilhneigingar Framsókn- arflokksins til að misnota ung- mennafjelagshreyfinguna sjer til framdráttar og þeirrar að- stöðu, sem flokknum hefir ver- ið gefin í því sambandi. Þetta mál verður ekki rætt hjer nánar að þessu sinni, en það verður áreiðanlega fylgst með því, hvað skeður í þessu efni og frá því skýrt og það gagnrýnt — ef þörf krefur, al- veg án tillits til þess, þótt ung- um Framsóknarmönnum finnist fátt um, að sagt sje frá fyr- irætlunum þeirra í þá átt að hafa ungmennafjelögin að „ungliðadeildum samvinnufje- laganna“. ftBST \f> vroi.TSA l •.umorNm.AOTW Þrótfmikil efling og endurnýjun Sfefnis í Hafnarfirði MIKILL ÁHUGI og vaxandi þróttur hefir færst í Stefni, fjelag ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, á þessum vetri. Síðasti aðalfundur fjelagsins var haldinn í desembermánuði og var þá kosin ný stjórn í fje- lagið. Hana skipa: Árni Ágústs- son, formaður, Jóhannes Bjarnason, varaformaður, Har- aldur Sigurjónsson, ritari, Ein- ar Sigurjónsson, gjaldkeri, og Helgi Kristjánsson, fjehirðir. I varastjórn eiga sæti Páll Dan- íelsson, Eggert Isaksson og Guðlaugur Þórðarson. Þessi nýja stjórn fjelagsins hefir lagt mikla áherslu á að efla starfsemi þess. Hóf hún m. a. undirbúning að því þegar 1 stað að koma á fót stjórnmála námskeiði á vegum fjelagsins, og naut til þess atbeina Jó- hanns Hafstein, formanns Sam- bands ungra Sjálfstæðismanna. Stjórnmálanámskeiðið hófst með góðri þátttöku hinn 12. mars s.l., og hafa reglubundn- ir fundir verið haldnir síðan. Jóhann Hafstein hefir veitt leið beiningar á námskeiðinu, en mælskuæfingar farið fram meðal þátttakenda og fyrir- lestrar verið fluttir. Fjelagsfundur var haldinn mánudaginn 16. þ. m. Stjórn fjelagsins hafði skrifað ungum stúlkum í Hafnarfirði brjef og leitað eftir þátttöku þeirra í fjelaginu. Margar stúlkur mættu á þessum fundi, og voru samþyktar inntökubeiðnir frá 20 stúlkum. Hefir fjelagið einn ig auk þessa aukist að með- limtölu frá síðasta aðalfundi. Stjórnmálanámskeiði fjelags- ins er nú um það bil að ljúka. Næstkomandi laugardag efnir fjelagið til skemtisamkomu, sem haldin verður í húsi Sjálf- stæðisfjelaganna í Hafnarfirði. Munu þar koma fram og flytja stuttar ræður þátttakendur í stjórnmálanámskeiði fjelagsins. Á þessa skemtun munu koma í heimsókn meðlimir í Heim- dalli, fjelagi ungra Sjálfstæðis- manna í Reykjavik. Ollum Sjálfstæðismönnum í Hafnar- firði er heimill aðgangur að þessari skemtisamkomu. Með þessari skemtisamkomu fjelagsins má segja, að hinni eiginlegu vetrarstarfsemi fje- lagsins sje um það bil að ljúka og er þess vegna þess að vænta. að Sjálfstæðisfólk í Hafnar- firði fjölmenni á skemtunina. Samstarf og góðvild þarf að ríkja milli sveita og kaupstaða MEÐAL stefnumála ungra! mynduð, að undanteknu sumr- Sjálfstæðismanna er að vinna að auknum skiiningi og sam- vinnu á milli sveita og kaup- staða. Er því ekki úr vegi að síða S. Ú. S. láti þessi mál til sín taka. Hafsteinn Pjetursson búnað- arþingsfulltrúi, bóndi á Gunn- steinsstöðum, flutti erindi í út- varpið nýlega á vegum bænda og húsmæðraviku Búnaðarfje- lagsins. Ýmislegt var gott í er- indi hans, en hann ræddi eink- um viðhorf sveita og kaupstaða manna hverra til annarra og nauðsyn á góðvild og skilningi á milli þessara aðila. Er vel farið, ef þessi, að sögn, vænt- anlegi frambjóðandi Fram- sóknarfl. í Austur-Húnavatns- sýslu beitti sjer fyrir því *inn- an Framsóknarflokksins, að hann hætti því þjóðskemdar- starfi að rægja saman sveitir og kaupstaði. Sú iðja hefir ver- ið ósleitilega stunduð af Fram- sóknarflokknum frá stofnun hans og til þessa dags. For- ystumenn flokksins, sem flest- ir hafa hreiðrað um sig í vel- launuðum stöðum í Reykjavík, hafa reynt að ala á öfund og tor trygni milli bænda og kaup- staðarbúa. Því miður hefir j þessi þokkalega starfsemi bor- ið nokkurn árangur, öllum til tjóns, nema valdaklíku Fram- sóknarflokksins, sem hefir lát- ið öldur stjettarígs og sundr- ungar lyfta sjer til valda. Af- urðasölumál bænda, einkum mjólkurmálin, hafa þeir tekið í þjónustu sinnar pólitísku starfsemi. Þar sem aðaláhuga- málið virðast vera kjósenda- hagsmunir og dutlungar Svein- bjarnar Högnasonar eða Eg- ils i Sigtúnum og að skapa sem mesta tortrygni og úlfúð um þessi mál, í stað helibrigðra verslunarhátta og að leitast við að efla gagnkvæmt traust og samvinnu á milli framleiðenda og neytenda, sem er hagsmuna- mál beggja aðila. Þrátt fyrir rógsiðju ýmsra framsóknarleiðtoga, er vaxandi skilningur á því meðal alls al- mennings í svgitum, að vel- gengni og góð kaupgeta við sjávarsíðuna er fyrsta skilyrð- ið fyrir velsæld í sveitunum, og gagnkvæmt. Hafsteinn Pjeturs- son komst svo að orði, í áður- nefndu erindi, að sveitunum væri að blæða út. Þetta er harð- ur dómur um stjórnarforustu inu 1942. Vilhjálmur Þór var landbún- aðarráðherra utanþingsstjórn- arinnar, en hann á sæti í mið- stjórn Framsóknarflokksins. — Allan valdatíma flokksins hef- ir hann fyrst Qg fremst talið sig vera bændaflokk og ætíð sagst vera að vinna að viðreisn sveitanna. Sá, sem þetta ritar, er sammála Hafsteini Pjeturs- syni um það, að forusta Fram- sóknar í landbúnaðarmálum hafi orðið þeim atvinnuvegi á margan hátt til niðurdreps, en jeg er ekki sammála honum um það, að sveitunum sje að blæða út. Jeg byggi þá skoðun Framhald á 8. síði* Það er mjög ánægjulegt til Framsóknarflokksins á undan- þess að vita, hvað Stefnir hef- ir eflst og vaxið á hinum liðna vetri og þess að vænta, að förnum árum og sjerstaklega á Yfirlýsing ÚT AF ummælum. sem birt- ust í blaði yðar 8. f. m., í grein, sem nefnist „Ósamrímanlegur erindisrekstur“, leyfum vjer okkur að taka fram eftirfar- andi. Á fundum íþróttanefndar rík isins hefir aldrei neitt málefni verið skoðáð nje afgreitt með visst stjórnmálalegt viðhorf fyrir augum, nje til hagsmuna nokkrum stjórnmálaflokki. Allir nefndarmenn íþrótta- nefndar ríkisins álíta það sem óskráð lög, að starfsemi henn- ar skuli algjörlega vera óháð stjórnmálastefnum. Allir nefndarmenn hafa jafn- an haft þetta sjónarmið fyrir augum í nefndarstörfum sín- um, og er aldrei frá því hvik- að, er um afgreiðslu mála hjá nefndinni er að ræða. Við leyfum okkur því að lýsa tortrygni greinarhöfundar al- gjörlega ástæðulausa. Með þakklæti fyrir birting- una. Kristján L. Gestsson. Þorsteinn Einarsson. ★ Athugasemd. Ofanrituð yfirlýsing, sem Þorsteinn Einarsson, íþrótta- fulltrúi, hefir lagt kapp á að fá birta sjer í síðu Sambands ungra Sjálfstæðismanna, skift- ir engu máli nje hrekur þá staðreynd, að stjórn U.M.F.Í. hefir með tilnefningu Daníels Ágústínussonar í íþróttanefnd ríkisins, gefið Framsóknar- flokknum meirihluta. aðstöðu í nefndinni. Þar sem ekkert var að öðru leyti á íþróttanefndina stjórn hans < Inr, ibúnaðarmál- minst, er yfirlýsingin algjör- um. Frá árinu 1 7 framhald verði á þessari sókn : búnaðarráðb fjelagsins og hafnfirsk æska skipi sjer ótrauð í raðir þess. rg. a hefir land- ’ í ð verið úr Framsóknarflokknum, þang að til að núverandi stjórn var lega þýðingarlaust gagn í sam- bandi við umræður um ásælni Framsóknarflokksins til ung- mennafjelaganna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.