Morgunblaðið - 04.05.1945, Page 2

Morgunblaðið - 04.05.1945, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagnr 4. maí 1945 85 ara sr. Þorvaldur Jakobsson í DAG er sjera Þorvaldur Jakobsson 85 ára gamall. Hann e<: fæddur 4. maí 1860 á Stað- arbakka, sonur sjera Jakobs Fínnbogasonar og Þuríðar Þor- valdsdóttur prófasts í Ilolti Böðvarssonar. Hann útskrifað- i úr latínuskólanum 8. júlí 188 í og úr prestaskólanum 5. sept. 1883. Vígður 16: s. m. til Staðar í Grunnavík, veittur Brjánslækur 28. maí 1884 og Sauðlauksdalur 26. ágúst 1896. Hann er nú til heimilis á Oldu- götu 55 hjer í bæ. I fyrrakvöld hringdi einn skóiabróðir minn til mín og fór þess á leit, að jeg tæki að mjer að rita greinarstúf um afmæl- ísbarnið, einskonar afmælis- kveðju frá nemendum hans úr Fiensborgarskólanum. Þá var mjer ekki kunnugt um, að hinn góði, gamli kennari okkar ætti afmæli í dag og hafði því ekki aflað mjer neinna upplýsinga ta æfiferil hans og æfistarf annað en það, sem jeg' þekti til aí eigin raun. Og með því að jeg hafði ekki nema stutta kvöldstund til þess að semja þessa ritsmíð, varð jeg að láta mjer nægja að byggja hana á þeirri persónulegu kynningu, sem jeg hefi haft af sjera Þor- valdi sem nemandi hans. Hjer er því alls ekki um ítarlega af- mælisgrein að ræða, heldur nókkrar minningar, sem ná að eins yfir 2—3 ár úr æfi þessa aldna, merka manns. Nú er jeg alls ekki viss um, að sjera Þorvaldur kunni ökk- nr nemendum sínum nokkra þökk fyrir að fara að minnast hans opinberlega og birta um hann blaðagrein. Sjera Þor- váldur hefir komið mjer þann íg fyrir sjónir, að hann kæri sig lítt um, að veður sje gert út af honum og verkum hans. Kann er ekki gefinn fyrir að láta mikið á sjer bera. Vil jeg nu biðja sjera Þorvald vél að Virða og firtast ei, en meta okk- ar góða vilja — eins og hann varð oft að gera, þegar hann var kennari okkar. Árið 1921 flutti sjera Þor- valdur frá Sauðlauksdal til Háfnarfjarðar og var kennari við Flensborgarskólann til árs- ins 1934. Kendi hann þar stærð fræði og íslensku. Er skemst frá því að segja, að honum fórst hvorttveggja jafn vel. Fór þar saman alt í senn, ágæt þekk ing kennarans á námsgreinun- um, meðfæddir kennarahæfi- leikar og mikill persónuleiki, sem nemendur báru lotningu fyrif. Á prestskaparárum sín- um stundaði hann jafnan k.enslustörf. Munu þeir æði margir, sem nutu leiðsagnar hans fyrir lítið eða ekkert ændurgjald. Var í þá daga fátt svo kallaða framhaldsskóla æg ennþá minna um peninga, svo nærri má geta, að kensla •sjera Þorvaldar hafi verið vel þegin. Sjera Þorvaldur var því «ngíhn viðvaningur sem kenn- *>"i, er hann kom í Flensborg, •«nda kom brátt í ljós, að hann Jktmni að taka verk sitt föst- um tökum. Þar var eKkert hik, þar' var sama festan og örygg- ið, sem einkennir þennan gamla fræðimann. Sjera Þorvaldur er maður rammíslenskur í skapi, þjett- ur á velli, þjettur í lund. Hann er skemtilegur mjög í viðræð- um og manna fyndnastur.Og þó er hann mikill alvörumaður, með viðkvæmt og göfugt hjarta, Hann er gagnmentaður í íslenskum fræðum og auk þess latínumaður og grísku- maður. Mun þeim nú farið æði að fækka, íslensku mentamönn unum af gamla skólanum, er lesa klassiskar bókmentir á frummálinu sjer til skemtunar. Sjera, Þorvaldur Ijet sjer ekki nægja að vera kennari okkar, hann leitaðist líka við að liðsinna okkur og hjálpa á alla lund utan skólans. Hið á- gæta heimili hans í Hafnar- firði Stóð okkur jafnan opið. Var það mikils virði fyrir okk- ur piltana, sem urðum að hýr- ast í miður vistlegri heimavist og vorum ókunnugir og að sjálf sögðu einmana í Hafnarfirði. Og er skólanum var lokið og við tókum að stunda ýmsa vinnu í Firðinum, þá fylgdist hann með okkur og bauð okkur heim. Erú okkur ógleymanleg- ar margar ánægjustundir heima hjá þeim heiðurshjónum, sjera Þorvaldi og hinni ágætu konu hans, frú Magdalenu Jónas- dóttur. Okkur fanst við vera komin heim, heim til góðra for eldra. Hið hlýja viðmót þeirra og glaðværð örfaði okkur og hresti, svo við fórum frá þeim sem nýir menn.~ Að endingu, sjera Þorvaldur. Gamlir nemendur yðar úr Flensborgarskólanum senda yð ur bestu heillaóskir á þessum merkisdegi, með kæru þakk- læti fyrir liðnar samveru- stundir. Við vonum, að æfi- kvöld yðar verði bjart og fag- urt, að þjer njótið góðrar heilsu þar til þjer flytjið hjeðan burt. Og okkar heitasta ósk er, að íslenska þjóðin eignist marga fræðara á borð við yður. Eiríkur Sigurbergsson. wumiuiiiiuuuiuiuuuuuimiiuiumuiiiiiiiujuuBBi Morgunkjólar f Morgunkjólaefni Sumarkjólaefni E Blússuefni g Golftreyjur = Barnapeysur (ull) j| frá 16 kr. ANDRJES PÁLSSON | Framnesveg 2. fí Sími 3962. Sperrle og von London í gærkvöldi. í DAG voru handteknir í Suður-Þýskalandi tveir mar- skálkar. Það voru þeir Sperrle og von Weichs. Sperrle var einn af þeim flugmarskálkúm, sem stjórnaði flugfl.o'ta í árás- |um á. Dretland 1940, en von Weichs var sá, som stýrði Vörn Þjóðverja á Balkanskaga og undanhaldinu þaðan. Það var þrið.ji ameríski herinn uem handtók þessa marskálka. — Reuter. IIERDlS var komin af góð- um ættum, vestfirskum. For- eldrar hennar voru sæmdar- jhjónin Anna Þórarinsdóttir og Eiríkur Kristjánsson, búendur að Tannanesi og síðar að IIóli í Mosvallareppi í Önundar- firði. Af nánustu ættingjum lifa Herdísi þrjú systkini, sonur og fjögur sonarbörn. Við fráfall hennar er orðið skarð fyrir skildi í fámennum ættingja- hóp hennar nánustu. Ilerdís heitin var um ýmsa, þluti mikilliæf og gagnnxex’k kona. Ilún átti í ríkum mæli þann dugnað, skapfestu og viljaþrek, sem verið hefur að- alsnxark okkar bestu kvenna, alt frá dögunx Bergþóru. Iíún var „vinur vina smna“, hjálp- söm með afbrigðum og sýndi ]>á oft þau raungæði, senx ekki ]áta berast á torg. Ilún ]jet sjer mjög umhugað um sonar- börnin, ung o.g lítt á legg kom- in, þau áttu umhyggju henn- ar franx í andlátið. Herdís hafði átt við van- heilsu að stríða um nokurra, ára skeið og síðast legið rúm- föst og }xungt haldin að sjixkra þúsiixu Sólheimum. lljúkrunar ] iði og starfsfólki Sólheima var hún mjög þakklát fyri r ágæta umönrran og bað um að1 færa því sínar bestu þakkir. Ilerdís var trúuð. Ilún trúðr á guðlega forsjón, xyettlæti og náð. Trú hennar var henni' styrkur í hinum ýmsu erfið- leikum lífsins og gaf henni að> síðustu þrek til að inæta með; djörfung þeim sem engintí dauðlegur fær umflúið. Þannig er gott að lifa og gett að deyja. S. J. Sigurður Guðm undsson Sextugur arkitekt með vaxandi umbótaáhuga SIGURÐUR GUÐMUNDSSON arkitekl kom heim til mín í gærmorgurx, er hann var á leið til vinnu sinnar, því jeg hafði farið fram á það, að hann segði mjer eitlhvað frá lífi sínu og starfi. Hann á sextugsafmæli í dag. -— Hvað kom til að þú lagð- ir út á þá braut, að verða arki,- lekt?, spyr jeg Sigurð. — Frá því jeg var barn. lang aði mig alltaf til þess að ]æra að mála. Jeg var að myndast við að teikna heimilisfólkið, eins og börn oft g'era. Ekkert merkilegt við það. Á árunum fyrir fyrra stríð var jeg tvö ár kennai’i í Flens- borg. Fansl það engin framlíð- aratvinna, enda hafði ekki mentun til að kenna þar alls- konar fög. Á þessum árum kynt ist jeg Rögnvaldi heitn. Ól- afssyni. Það var prýðismaður í alla staði. Þá fór jeg að hugsa um, að það gæti verið eins gott að vera arkitekt eins og málari og sigldi 1915 til Hafnar. Fór á Akadem;ið þar og var þar síöan mikið lil, þangað til ái’ið 1924. Þ. e. a. s., jeg vann oft á leikni- stoíum samhliða náminu. Því jeg var illa staddur með pen- inga. Fyrsta bygging. sem jeg fekk er nokkuð kvað að, var Auslur bæjarskólinn hjerna árið 1924. Síðan fór jeg að byggja ýms íbúðarhús. Þá var það orðið algent hjer að steypa hús. En jeg var því ókunnugur, er jeg kom frá Danmörku. Hafði varla sjeð þar steinsteypu. Jeg gerði hjer ýmsar tilraun- ir, sem ekki þóttu mjög aðgengi legar fyrst í stað. — T. d- að byggja þunna jálnbenta veggi og grófhúða húsin í staðinn fyr ir að sljetthúða þau o. fl. En um þetta er getið í Iðnsögunni. Oþarft að endurtaka það. ^ — Hvað um ytra útlit hús- anna? — Ekki gott að segja mikið um það. Þau þóttu undarleg sum húsin, sem jeg teiknaði. — Hús Kjartans Thors hjerna við Laufásveginn, þótli t. d. helst til sjerkennilegt. Jeg teiknaði það fyrir Gunnlaug Claessen táfif d.oklor. Fólk hneykslaðist á þvi að húsiS skyldi vera að heita má gluggalaust að götunni. — Þegai’ fólk sá hinar hliðarnar, sagði það: ,,Nú! Það eru þá gluggar á því! En það eru járn- gluggar eins og á fjósi“. — Hvernig reynast járn- gluggarnir? — Vel, þegar þeir'eru gal- vaniseraðir. Annars ekki. Þegar jeg hafði gert frum- drætli að skólanum, skrapp jeg út aftur ‘ 1925. Byrjaði svo ekki fyrir alvöru fyrr en eftir að jeg kom heim út þeirri ferð. Jeg hefi altaf haft gaman af að Uppdráttur að merki, sem sýn- ir afstöðu fyrirhugaðs turns við Hóladómkirkju. fei’ðast, og gagn af því um leið. Jeg fór um Þýskaland og Aust- uri’íki meðan jeg var við nám. En seinna hefi jeg ferðast um England, Holland og Belgíu. En ekki komist suður að Mi'ð- jai’ðarhaíi ennþá. — Hvaða stórhýsi gerðir þú næst á eftir Austurbæjarskól- anum? — Það var Elliheimilið Gi’und við Hringbraut, þá Stú- dentagarðurinn gamli, þá Landakotsspítalinn nýi og Stykkishólmsspítali. Svo kom nýi Garður, Sjómannaskólinn og Bálstofan, sem reisa á í Foss vogi. En þær byggingar komu til sögunnar eftir að við Eirík- ur Einarsson gerðum fjelag með okkur. Og nú síðast er það Þjóð- minjasafnið. Jeg hefi líklega notið frændsemi við Sigurð Eramh. á hls. 7. Hugmynd að kapellu að Hallormsstað, eftir Sig. Guðm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.