Morgunblaðið - 02.08.1945, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 2. ágúst 1945.
— Ræða forseta
FramK. af bls. 2.
Sá mikli áhugi; se'm nú virö-
i|t y(!ra með íslendingum til
jfess að nota meiri fjárráð en1
við höfum áður haft, til að bæta
framtíðarlífskjör þjóðarinnar
með því að taka í þjónustu okk
ár tækní nútímans, kemur ekki
að gagni, nema fyrst og fremst
sje lögð áhersla á það, að afla
sem bestrar þekkingar á því,
hvernig á að nota þessa tækni
og tækin, svo þau skili rjettum
og miklum afköstum. Hjer eig-.
um við mikið, enn óunnið verk
fyrir höndum. Verk sem verða
mun til þess að efla og auka
trúna á land og þjóð, ef vel
tekst.
Verkleg kunnátta.
Við verðum í þessu «ambandi
að gera okkur Ijóst, að þeir
óvenjulegu tímar, sem verið
hafa undanfarið, geta ekki hald
ið áfram. Vegna mikillar eftir-
spurnar eftir vinnuafli hefir
verið slakað til á kröfunum um
kunnáttu á ýmsum sviðum.
Fólk, sem ekkert eða lítið hefir
lært til þeirra verka, sem því
hefir boðist, hefir tekið boðinu
um vinnu, sem þekkingu þarf
til, án þess að hafa þá þekk-
ingu. Þetta er ekki nema mann-
legt. En af þessu getur leitt
hættu, ef ekki er við gert í
tíma, ekki síst fyrir yngri kyn-
slóðina, sem á það göfuga hlut-
verk að byggja up öryggi lýð-
veldisins. Sumir, sem eru á-
h.ugasamir og námfúsir, munu
iáera verkin smátt og smátt.
Aðrir dragast aftur úr og missa
rháske af þeim dýrmætu árum,
sem auðveldast er að læra. Auk
þess verður margskonar vinna
óeðlilega dýr af þessum ástæð-
um og á sinn þátt í að auka
dýrtíðarbölið.
A öðrum sviðum er hætta á
að menn sjeu of fastheldnir við
gamlar venjur og meira eða
minna úrelt vinnubrögð, sem
ekki standast í nútíma kepni.
Og sú hagsýni fær ekki staðist
til lengdar, að afla sjer nýrra
tækja, sem annað hvort koma
ekki að fullum notum vegna
þekkingarskorts á meðferð
þeirra, eða, endast miklu skem-
ur en ella af sömu ástæðum.
stendur, meðan við erum að
afla nýrra nútímatækja og læra
að fara með þau,vmá búast við
því, að við verðum að leggja
meira að okkur en undanfarið,
svo við getum staðið öðrum á
sporði. Eitt af því, sem aukin
tækni nútímans hefir leitt af
sjer, er það, að færa lönd og
þjóðir nær hver annari. Það er
ekki sennilegt að menn taki upp
aftur kjörorðið um að löndin
eigi að reyna að „vera sjálfum
sjer nóg“ um allar þarfir, eins
og vildi brydda talsvert á milli
styrjaldanna. Jafnvel ekki lönd
sem eiga svo margskonar nátt-
úruaucfæfi, að möguleiki væri
á að afla allra þarfa þjóðarinnar
í landinu sjálfu. Því fjær er
þetta okkur, sem byggjum ey-
land, sem að vísu á ýms nátt-
úruauðæfi, en þarf nú og mun
ávalt þurfa að afla sjer frá
öðrum talsvert mikils, af þörf-
um sínum. Til þess að geta það
án þess að eyða fjármununum,
þarf viðunandi markaði fyrir
útflutningsframleiðslu okkar.
Vöruvöndun og framleiðslu-
kostnaður sem sje stilt svo í
hóf að hann sje sambærilegur
við framleiðslukostnað þeirra
annara, sem leita sömu mark-
aða, er óumflýjanlegt skilyrði
fyrir þessu. Engin þjóð mun
telja telja sig hafa efni á því
að kaupa okkar framleiðslu
hærra verði en samskonar vör-
ur eru fáanlegar annarsstaðar.
Við mundum ekki fara fram á
slíka greiðasemi, enda væri það
óvænlegt til þess • að tryggja
sjálfstæði okkar og öryggi í
framtíðinni, að vera háðir
slíkri hjálp frá öðrum.
Jeg tek nú við forsetastarfinu
með óbreyttum ásetningi um að
rækja störf mín samkvæmt við
urkendum venjum nútímans í
lýðfrjálsum ríkjum, þar sem
þjóðhöfðingjavaldið er þing-
bundið. Þjónustuhugur minn
við heill og hag allrar þjóðarinn
ar er og óbreyttur. í þeim anda
mun jeg með guðs hjálp reyna
að rækja störf mín þann tíma,
sem mjer er ætlað meðan mjer
endist heilsa og líf.
Verðum að leggja að okkur. 8EST AÐ AUGLYSA I
Á meðan þetta millibilsástand MORGUNBLAÖINÖ.
— Potsdam
Framh. af 1. síðu.
ins. Einnig rhunu aðrir þátttak
endur í ráðstefnunni kveðjást í
kvöld.
Truman hittir Bretakonung.
Truman forseti mun leggja af
stað frá Potsdam til Plymouth
með flugvjel á morgun (fimtu-
dag). I Plymouth fer hann um
borð í beitiskipið ,,Augusta“,
sem flytur hann til móts við
Georg VI Bretakonung, sem er
um borð í breska herskipinu
„Renown“ skammt frá Ply-
mouth. Með konungi verður
Halifax lávarður, sendiherra
Breta í Washington, en Elísa-
beth drottning verður ekki við-
stödd. Um borð í „Renown"
snæðir Truman hádegisverð
með konungi og Halifax. Síðan
fer konungur með Truman um
borð í „Augusta" og kveður
hann þar.
Að því búnu leggur forsetinn
af stað til Bandaríkjanna, og
munu bresk skip fylgja skipi
hans nokkuð á leið. Auk þess
fylgir skipi hans ameríska beiti
skipið „Philadelphia".
- íþrótfakeppni Svía
og Dana
Framhald af 6. síðu.
4x400 m. boðhlaup: — 1. Sví-
þjóð 3:15,8 mín., 2. Danmörk
3:19,6 mín.
Keppnin var sjerstaklega hörð
í 400 og 800 m. hlaupunum. — í
800 m. leiddi Liljequist 500
fyrstu metrana, þá fór Holst-
Sörensen fram úr honum, ’en
Svíinn fylgdi fast á eftir. — Á
síðustu 30 metrunum hófst svo
harðvítug barátta um fyrsta
sætið. Er 10 metrar voru eftir,
leit enn svo út sem Holst-"Sör-
ensen myndi vinna, en Liljequist
hafði að pína sig fram úr hon-
um. í 400 m. hljóp Holst-Sören-
sen á innstu braut. Svíinn Sjö-
green var greinilega fyrstur
mest hlaupið. Þegar 10 metrar
voru eftir, var hann 1,5 metr. á
undan, en þá tók Holst-Sörensen
viðbragð og náði fyrsta sætinu.
Gæía fyigir
trúlofunar-
hringunum
frá
Sigurþór
Hafnarstr. 4.
María Sæmundsdóttir
• Hvítárvöllum sjötug
Það er tæplega að jeg geti
áttað mig á, eða trúað því, að
mín góða vinkona María Sæ-
mundsdóttir á Hvítárvöllum sje
sjötug í dag, jeg gæti frekar
hugsað mjer hana tuginum
yngri. Þessi fríða kona er enn
teinrjett, með ljettar og mjúkar
hreyfingar, þrátt fyrir anna-
mikið dagsverk, sem mjer er
óhætt að fullyrða, að hefir ver-
ið frábærlega vel af hendi leyst.
Jeg held, að jeg þekki enga
konu, sem mjer finst eiga jafn
ákveðið skilið að heita góð hús-
móðir og Maríu á Hvítárvöll-
um, þar er ekkert tómlæti eða
hálfverk,
Enda sýna verkin merkin.
Hverjum, sem komið hefir að
Hvítárvöllum, þar sgm hún
hefir búið í 42 ár, dylst þess
eigi, hvílíkt reglu- og myndar-
heimili þar er. Jeg veit,að jafn-
vel þó að næg efni hafi verið
fyrir höndum, þá hefir þó þetta
stóra og gestkvæma heimili út-
heimt alveg sjerstaklega mikla
og einhuga starfskrafta, og
kona eins og María, sem naum-
ast hefir gefið sjer tíma til, eða
haft áriægju af, að dveíja, þó
ekki væri nema næturlangt frá
heimili sínu, hún hefir sannar-
lega verið alveg óskift í starfi
sínu, enda mun Hvítárvalla-
heipiilið vera talið með mynd-
arlegustu heimilum landsins.
Það er mótað af listrænum
smekk, sem Maríu er í blóð bor-
inn. Þessi prúða, fallega, en hlje
dræga kona, hefir verið með af-
brigðum listhög í verkum sín-
um, hvað sem hún hefir tekið
sjer fyrir hendur, hvort heldur
það hefir vérið hinn fínasti út-
saumur, eða annað sem vanda-
samt var. Verkhyggni, hagsý.ni
og nýtni prýða þessa góðu
konu.
Jeg kyntist Maríu ekki fyr
en um það leyti, sem hún varð
fyrir þeirri þungu raun að missa
lífsförunaut sinn, Ólaf Davíðs-
son. Börnin þeirra 9 voru að
vísu flest upp komin, en mikið
áfall og þung sorg var það
hénni. En hún ljet ekki bugast
með hjálp sinna efnilegu barna,
hjelt hún öllu í sama góða horf-
(.
inu. Nú á síðari árum hafa veik-
indi á hennar nánustu ástvinum
mjög oft kvatt að dyrum hjá
henni, og þó að það hafi tekið
hana sárt, þá hefir hún ætíð
borið alt slíkt' með hetjulund
og frábærri stillingu.
Hvítárvellir standa í þjóð-
braut. Þar eru vegamót. Flestir
telja það fegursta staðinn 1 öll-
um Borgarfirði. Það hefir því
verið alveg óvenjumikil gesta-
koma þar, enda gestrisni þar
þjóðkunn, og það er á allra vit-
orði, sem þangað hafa komið,
að húsfreyjan hefir ekki brugð
ist skyldum sínum á þeim vett-
vangi, en það vita kanske færri,
að á heimili hennar hefir dval-
ið, um langt áraskeið aumingi,
sem hefir þurft umönnunar og
aðhlynningar við, eins og barn,
en þar hefir María allra síst
brugðist skyldum sínum, og
sýnir það best hversu mikill
mannvinur hún er, því til þess
þarf hreina fórnfýsi.
Jeg veit að hún hefir haft
góðar efnalegar ástæður, en jeg
veit líka, að þær eru ótaldar og
ómældar gjafirnar, sem hún hef
ir gefið, en þær hafa verið gefn
ar í kyrþey, því María er kona,
sem ekki gerir góðverk til að
sýnast.
Það verða margir í dag sem
hugsa hlýtt til afmælisbarnsins,
og heillaóskir og hlýjar kveðjur
streyma hvaðanæva að. Mar§-
ir rjetta þjer, kæra vin-
kona, hlýja vinarhönd, og jeg
vil vera ein af þeim.
Sigríður Bjömsdóttir.
ÍW ^
Efiir Robert Storm |
NOPEÍ I'LU
BE ÖEE'-Nö
vou, ,
BRAINV! ]
VOU K.NOW
PUIL CORRIQAN
WIN65 WEE-TWARD
TO INVEöTIQATE
^WELL, IT'S ÖOOD TO BE BACK )
^ — AWD SEE 7HE SAME OLD <
UNFA/WLIAR FACES. jf
WlLDA! so qlAD
TO SEE VOU ! 0EEN OUT
OF TOWN, I SEE ...
MELLO, BRAINV ! VEB, 1-
I'VE BEEN GATí-IERING
MATEPIAL FOR AVOTMER
OH , I'VE 6EEN TRVINö TO FIND
A JOB.. DISBARRED ATÍORNEV5
AREN'T EXACTLV IN DEAtAND,
1) Á meðau i-9 er á vesturleið til þess að rann-
^saka barns, og - orðtilraunina, er Wilda Dorré
vá gangi, á ý (hi^gsar): — Gott er nú
,yað vera koÁiií iítm‘ -'ög sjá sömu. gömlu, ókunnu
... íautjitin aftuj'. - i :•• <v . . • « .
2) Brainy: — Wilda! Það er gaman að sjá þig. Þú vinnu. En eins og þú veist, þá er nú ekki mikil
hefir eklíi Vferið í bBénúín, eða hHtað? Wilda;: L— Sæll, eftirspurn eftir lögfræðingum, sem hafa verið svíft-
Brainy. jíeg hgf ,v.erið. að yiða að. jnjpiyeftii í aðra, ;i*. mál flalnihgsley-fi. pá^tum við ekki . . . Wilda:
leynilögr^glysögú. En HváT héfir þó alið iihánninnf ‘ Néi; "Sj'aumsf síðári"* *
■3þ Brainy: —*• Jeg hef Verið áð leita mjer að at- • . , .,. ,