Morgunblaðið - 14.08.1945, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.08.1945, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 14. ágúst 1945 'Stftí „Þóra er nærxú komin með sína lest”, sagði Elliði við pabba sinn, „og það er verið að láta upp hjá Agli, Bergur er að teyma á milli, en Helga litla er að komast til fólks- ins. Það komast nokkurir hestarnir inn í dag”. XXII. Uppskeran. Ein vikan leið eftir aðra. Tíðin var hin besta. Þetta sumar þótti eitt hið ágætasta, sem komið hafði lengi. Allar hlöður á Felli voru orðnar fullar um leitir. — Ná- grannarnir stungu saman nefjum um það, að engin furða væri, þótt heyjaðist á Felli, þar sem hver stundi væri notuð og aldrei litið upp frá verki um sláttinn. Þegar nágrannar Jósefs voru lausir við verk að sumr- inu, og ljetu eitt og annað eftir sjer, þá gekk allt sinn vanagang á Felli, þar unnu allir af kappi, Fellsfólkið mátti ekki tefja sig. Kaupafólkið og Kalli var drifið burtu'fyrir leitirnar. Fekk hver það kaup, sem hann átti að fá, og það rtómum joeningum. Næsti vetur var harður. Hey gengu víða fljótt upp. Fjöldamargir voru orðnir heylausir um sumarmál í kring um Jósef á Felli. Horfði nú til vandræða fyrir þeim eins og oft áður, en Jóteef átti nóg hey, og hann ljet engan tómhentan frá sjer fara, er til leitaði í heyvandræðunum. Að lokum voru fyrningar á Felli eftir alla hjálpina, og það var algengt. Sáu þá margir, að ekki var einskisvert að nota vel sumarið eins og hann Jósef á Felli gerði. E n d i r . Viðlegan á Felli JJjtlr dJatlqrím J/óni onáóon 55. 38. dagur Hvolpurinn var til sölu, og áður en varði var hann orðinn rjettmæt eign Cluny Brown. Hún trúði því vart, að hún ætti þetta litla yndislega dýr, sem hún hjelt á í fanginu, og var sífelt að nema staðar til þess að horfa á það og dást að því. „Það er engu líkara en jeg hefði gefið henni tunglið", hugsaði Belinski með sjer. „Hvers vegna máttir þú ekki eiga hund, ef þig langaði til þess?“ spurði hann. „Það gat jc-g aldrei skilið“. „Ekki jeg heldur. Jeg gat aldrei skilið, hvers vegna jeg mátti ekki gera alt það, sem mig langaði til. Það virtist aldrei nein skynsamleg ástæðá til þess að banna mjer það. Við getum bara litið á Arn frænda“. Það var Arn frændi, já! Cluny tók í hönd Belinski, og þau leiddust saman til String- götu. Þegar þau voru komin að húsinu, þar sem Arnold Porritt bjó, hringdu þau dyra- bjöllunni. XXIX Kafli. „Það er jeg, Arn“, sagði Cluny Brown. Andartak stóð Porritt graf- kyrr og horfði á hana. Hann hafði aldrei verið skjótur að hugsa nje átta sig á hlutunum, og þegar frænka hans, sem hann hugði vera í Devonshire, birtist þarna alt í einu, var það nær of mikið umhugsunarefni fyrir hann. En það, sem ruglaði hann rnest, var, að við hlið hennar stóð ókunnugur maður, sem hefðu átt að vera hr. Wil- son, en var alls ekki hr. Wil- son. — Porritt stóð því kyrr og velti þessu öllu fyrir sjer, þar til Cluny misti þolinmæðina. „Ætlarðu ekki að bjóða okk- ur inn?“ spurði hún og ýtti dá- lítið við honum. Porritt herfði aftur á bak og Cluny gekk inn með Belinski á hælunum. Þegar þau voru komin inn í stofuna, virti Porritt Belinski mjög vandlega fyrir sjer. En hvernig sem hann athugaði manninn, gat hann ekki sjeð, hver staða hans væri í þjóðfjelaginu, og það fanst honum hábölvað. Cluny kysti frænda sinn ástúðlega á kinn- ina og sagði því næst: „Þetta er hr. Belinski, frændi, og við ætlum að giftast“. „Þetta er ekki rjetti maður- inn“, sagði Porritt. Þetta voru fyrstu orðin, sem hann hafði mælt, síðan frænka hans birtist, og þau gerðu það að verkumv að málið lá nú ljós- ara fyrir en áður. Porritt fann, að hann stóð aftur á traustum grundvelli og Cluny vissi nú nákvæmlega hvað það var, sem húp þurffi að berjast gegn. „Hm. . . . mjer finst nú að þú gætir sagt, að það væri gaman að sjá okkur“, sagði hún. „Evað er þessi hvolpur að gt-ra hjer?“ „Jeg á hann. Við keyptum hann á leiðinni hingað. Þú get- ur hjálpað okkur til þess að finna eitthvert nafn á hann“. Cluny tók hvolpinn upp og str. uk honum blíðlega. Hann hixtaði dálítið um leið, og Porr- itt sagði, þungur á brúnina: „Hann er veikur. Þú mátt ekki fara með hann fram í eldhús- ið“. „Hvernig á jeg að búa til mat handa okkur, ef jeg fer ekki fram í eldhúsið?“ spurði Cluny, og þrammaði um leið af stað og skildi mennina tvo eftir. — Porritt hjelt áfram að ein- blína án afláts á Belinski, sem svaraði augnaráði hans með samúðarbrosi. Hann vissi þá þegar miklu meira um Porritt en gamli maðurinn myndi nokkru sinni fá að vita um hann. „Mjer þykir það mjög leitt, að þetta skyldi koma svona flatt upp á yður“, sagði hann loks. „í raun rjettri skeði þetta alt svo skjótt, að jeg ei vart búinn að átta mig á því ennþá. — Nafn mitt er Adafn Belinski. Jeg er Pólverji — rithöfundur. En við ætlum til Bandaríkj- anna“. Það, sem maðurinn sagði, virtist mjög auðskilið, En Porr- itt. botnaði þó hvorki upp nje niður í því. „Hvar er hinn maðurinn?“ spurði hann loks. „Hr. Wilson — lyfsalinn? Jeg geri ráð fyrir að hann sje heima hjá sjer — í Friars Carmel“. „Jeg býst við, að hann hafi í raun rjettri verið lyfsali?“ spurði Porritt, órólegur á svip. „Já — það held jeg nú. Hr. Wilson er sennilega besti lyf- salinn, sem nokkru sinni hefir komið í nágrenni Friars Car- mel. Hann lærði við háskólann í Nottingham“. „Það var og“. Porritt dró djúpt andann. „Fyrir tveim dögum síðan kom hann hingað og kvaðst vilja giftast Cluny. Jeg gaf fúslega samþykki mitt til þess. — Tveim dögum seinna komið þjer, og segist ætla að kvænast henni. Það er erfitt að botna nokkuð í þessu“. v „Við getum ekki gert annað en tjá hr. Wilson samúð okk- ar“. „Auk þess —“, hjelt Porritt áfram. „Ef hr. Wilson er jafn eigulegur maður og 'þjer segið — og er það í raun rjettri al- veg í samræmi við álit það, sem jeg hafði á honum — þá getur stúlkan ekki verið með rjettu ráði, ef hún ætlar sjer að hrygg- brjóta hann. Jeg leyfi henni það aldrei. — Þjer getið beðið og fengið bita með okkur, en ef þjer kærið yður ekki um það, skulið þjer bara fara“. Aður en Belinski fjekk svig- rúm til þess að svara, rak Cluny höfuðið inn um dyrnar og sagði: „Arn — það getur ekki verið, að þú hafir borðað tólf egg á tveim dögum“. „Jeg gaf Öddu helminginn“, svaraði Porritt. „Það er til mikils að vera að senda þjer ný egg! Nú eru ekki nema fjögur eftir“. „Þú getur borðað þetta, sem umfram er“, sagði Porritt. „Jæja. Þú ættir að ná í bjór, meðan jeg er að taka til mat- inn“. „Mig langar ekkert í bjór“, hreytti Porritt út úr sjer. „Þá geturðu gefið hr. Bel- inski glas. Jeg er viss um, að þú hefir gefið Wilson bjór“, sagði Cluny þrákelknislega. ★ Það var næsta furðulegt, en það var engu líkara en Wil- son væri staddur þarna hjá þeim. Cluny var svo utan við sig, að hún lagði á borð fyrir fjóra. Porritt, sem hafði ber- sýnilega orðið meira en lítið hrifinn af Wilson, hjelt heil- langa lofræðu um hann, meðan þau sátu að snæðingi. Cluny gat ckki með góðri samvisku gert annað en samþykkja það, sem hann sagði og Belinski gat heldur ekki andmælt orðum hans. Það var ekki hægt að and mæla þeim. Hvernig, sem á var litið, var hr. Wilson fullkominn og gallalaus maður. „Hann sagði mjer, að umsetn ingin í lyfjabúðinni ykist um tíu af hundraði á ári hverju“, sagði Porritt. „Það líkaði mjer vel að heyra.-------Þar er ör- yggi“- „Já,hann er traustur. Og hann er mjög góður við móður sína“, svaraði Cluny. „Við töluðum lengi saman. Jeg held að mjer hafi aldrei fallið eins vel við neinn mann, við fyrstu sýn. Við komum okk- ur saman um hvernig þessu skyldi hagað, og . . .“. Cluny bauð Belinski fjórða eggið og þegar hann kvaðst ekki hafa lyst á því, borðaði hún það sjálf. Henni leið ágæt- lega. Hún var algjörlega á- hyggjulaus, því að hún fann hið innra með sjer, að nú var hún loks komin á rjetta hillu í lífinu. Hún átti heima hjá Adam Belinski. — Voru þau ástfangin hvort af öðru? í raun rjettri gat hún ekki svarað þeirri spurningu. Hún gerði að- eins ráð fyrir að svo væri. Hún vissi heldur lítið um ástina. Megnið af fróðleik sínum um þau efni hafði hún úr kvik- myndunum. En þar var fólkið sífelt að kyssa og kjassa hvert annað, þegar það var ástfangið og þau Belinski höfðu1 alveg leitt hjá sjer slíkar aðfarir. Sigurgeir Sigurjónsson hœstai éttarlögmaður Skrifstofutimi 10—12 og 1-6. Aðolstrœti 8 Sími 1043 Drukkinn maður spyr lög- regluþjón: — Segið þjer mjer, — hik, hvar er hinu megin á götunni. — Hvernig spyrjið þjer, auð- vitað þarha fyrir handan, — svarar lögregluþjónninn og bendir. — Skrítið, hik — jeg sem var einmitt að koma þaðan og þar var mjer sagt að það væri hjerna. ★ Maður, sem vanur var að smakka vín meira eða minna á liverjum degi, var spurður, nvernig honum hefði liðið á spítala, sem hann var nýkom- inn af eftir alllanga legu. — Það var hroðalegt — svaraði maðurinn — dögum saman lifði maður ekki á öðru en mat og vatni. ★ — Hvaðer að sjá á þjfer and- litið maður, alt bólgið og þrút- ið. — Jeg lenti í handalögmáli við náunga. — Því kallaðirðu ekki í lög- regluþjón? — Þess þurfti ekki, þetta var lögregluþjónn. ★ — Eiginkonan: — Hvað á 1 að að þýða að koma heim á pessum tíma? Eiginmaðurinn (drukkinn): Jeg flýtti mjer heim af því jeg hjelt kanske að þú værir ein- mana, en jeg sje, að þú hefir hana tvíburasyStur þína með þjer. Dómarinn: — Eruð þjer viss- ir um, að ákærður hafi verið drukkinn? Vitnið: — Fullkomlega. — Hvað hafið þjer fyrir yð- ur í því? — Jeg sá hann láta 25 eyr- ing inn í brunaboðann á Alþing ishúsinu, líta síðan á kirkju- klukkuna og segja: Herra minn trúr, jeg hefi þyngst um fjórtán pund! ★ — Segið mjer, herra minn, hvar er hornið? — Þjer standið á því. — Nú, það var ekki furða þó jeg gæti ekki fundið það. ★ — Ertu að fiska? — Nei, jeg er að drekkja ormum. ★ Eiginkonan (er að lesa í blaði): — Hjerna í blaðinu er verið að segja frá hænu, sem er með tvö hjörtu. Eiginmaðurinn (utan við sig): Já, jeg veit, jeg va'r að spila við hana bridge um dag- inn. ★ Ungfrúin (á hestbaki): Finst þjer ekki, að maður fái höfuð- verk af því að sitja á hestbaki? Meðreiðarsveinninn: — Nei, þvert á móti. | | | Alm. Fasteignasalan | = er miðstöð fasteignakaupa. = = Bankastræti 7. Sími 6063. s itiiTiiiiiiimniiimmuimumiiiiiiiniiiimiiiiiiiiminii"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.