Morgunblaðið - 16.08.1945, Síða 1
32. árgangur.
182, tbl. — Fimtndagur 16. ágúst 1945.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
„Zletjan Irá Verdtsn“
dæmd tii dauða
í París
En dómnum verður ekki fullnægt
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
DÓMURINN yfir Philippe Petain marskálki var kveðinn upp
í nótt sem leið, og var niðurstaða hans sú, að kviðdómurinn kvað
upp-dauðadóm yfir „Hetjunni frá Verdun“, sem árið 1916 stöðv-
aði sókn Þjóðverja og var talinn hafa bjargað Frakklandi. I
dómnum var lagt til, að dauðadómnum yrði ekki fullnægt vegna
hins háa aldurs Petains. Ds Gaulle tekur ákvörðun um það,
hvort dómnum skuli fullnægt, og er talið víst, að.hann leggi til,
að það verði ekki gert.
Petain, sem nú er 89 ára gam
all, tók dauðadómnum með
mikilli ró. Áður en dómendur
drógu sig í hlje, til að berá sig \
saman, og rjettinum var lokað,
fjekk marskálkurinn að mæla
nokkur orð. Hann sagði meðal
annars:
„Það eina, sem fyrir mjer
vakti, var að yfirgefa ekki föð-
urland mitt, til þess að geta
reynt að lina þjáningar þess.
Og hvað sem annars kann að
ske, þá mun franska þjóðin ekki
gleyma þessu“.
Dauðaþögn var í rjettinum,
meðan Petain mælti þetta og
sást að margir komust við. Að
þessu loknu krafðist hinn opin-
beri saksóknari enn, að mar-
skálkurinn yrði dæmdur til
dauða.
Petain var í dag fluttur í flug
Vjel til fangelsis eins suður í
Pyreneafjöllurr , þar sem hann
mun eiga að sitja til æfiloka.
Uranium finst
á Nýja-Sjálandi
London í gærkveldi.
Á TVEIM stöðum á Nýja-
frjálandi hafa fundist urani-
umnámur. Er þetta mjög mik-
iivægur fundur, því að urani-
wii er éitt mikiisverðasta efn-
ið við framleiðsiu atóm-
Sprengna. — Reuter.
ASvarley átök
íKína
London í gærkvcidi.
áÍA'ARTjEG deila liefir kom
ið upp í Kína milli ríkisstjórn-
arinnav og'stjórnar kommiín-
ista í norðvesturhlnta lands-
ins. Chu Te, foringi kommún-
istahersveitanna, neitar að
láta hermenn sína nema stað-
ar í sókninni til Mansjúríu.
Qhjákvæmilega hlýtur til á-
rekstrar að koma, ef hersveit
ir Chu Te*fa.ra yfir landamæri,
Mausjúríu og taka þar til við
afvopnun japanskra hermanna
Til þess að reyna að miðla
málum hefir Cliiang Kai-shek
boðað Mao Che Tung, leiðtoga
kommúnista á sínn fnnd.
Reuter.
Knud Zimsen
fyrv. borgarstjóri á sjötugs af-
mæli á morgun. í tilefni þessa
afmælis hans birtist grein í
næsta blaði.
7 milj. hermanna
leysiir úr hemum
Washington í gærkvöldi.
liTRT hefir verið í Washing-
ton tilkynning þess efnis, að
7 miljónir Bandaríkjameim
verði leystir úr herþjónustu á
næsfa ári. — Reuter.
JtfiorgmtbíaMþ
VEGNA ÞESS, að vinna
fellur niður í prentsmiðj-
unni í dag, kemur blaðið
ekki út á morgun.
Athygli auglýsenda skal
vakin á því, að auglýsing-
ar, sem birtast eiga í blað-
inu á laugardag eða sunnu-
dag, þurfa að hafa borist
augiýsingaskrifstofu blaðs-
ins fyrir kl. 19 á föstudag.
Enn er barist í Mansjúríu,
Burma og á Luzon
Fulltrúi japönsku her-
stjórnarinnar fer til
móts við IVflacArthur
á föstudag
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
í AÐALSTÖÐVUM MacArthurs hershöfðingja er talið,
að dregist geti fram í miðja næstu viku að uppgjafarskil-
málar Japana verði undirritaðir. MacArthur, sem á að
undirrita skilmálana fyrir hönd bandamanna, hefir skip-
að yfirherstjórn Japana að senda fulltrúa til þess að ræða
iilhögun uppgjafarinnar. Fulltrúinn hafi umboð frá Jap-
anskeisara til þess að undirrita sáttmálann, og í för
með honum verði sjerfræðingar í her- og flotamálum
Japan. Fulltrúinn leggi af stað á föstudag með hvítmálaðri
flugvjel frá Japan áleiðis til smáeyjar í grend við Okin-
avva, en þar taki amerísk flugvjel við honum og flytji
hann til aðalstöðva MacArthurs.
Á fyrri sigurdegi sínum í gær
hylltu Bretar ákaft Georg kon-
ung og drotningu hans. Urðu
þau að koma þrisvar fram á
svalirnar á Buckinghamhöll-
inni, því að mannfjöldinn
heimtaði svo ákaft að fá að sjá
þau og hylla.
Rýmkað um sköml-
un í Bandaríkjunum
Washington í gærkveldi.
VEGNA ÞESS að heimsstyrj-
öldinni er lokið, hefir verið á-
kveðið að hætta nú þegar í stað
skömtun á bensíni, 'ljósaolíu,
niðursoðnum mat og grænmeti.
Rýmkað verður um skömtun
á ýmsum nauðsynjavörum öðr-
um. — Reuter.
Þakkarguðþjónustur
Elutiar á sunnudag
Biskupinn yfir íslandi hefir
farið þess á leit við alla þjón-
andi presta landsins, að þeir
flytji þakkarguðþjónustu í
kirkjum sínum n. k. sunnudag,
í tilefni alheimsfriðar.
De Gaulle til fundar
við Truman
London í gærkveldi.
J)E öAULLE hersliöfðingi
mun innan skarns Teggja af
stað til Washingtón til við-
ræðna við Truman forseta.
Forsetinn bauð fyrir alllöngu
síðan De Gaulle að koma til
Washington og ræða við sig;
ýms aðkailandi mál.
Á leiðinni til Washington
mun De Gaulle koma við í
Kanada, fneðal annars í borg-
unum Ottawa og Montreal.
— Renter.
Verslunum bæjar-
ins lokað i dag
ÖLLUM VERSLUNUM
bæjarins og skrifstofum
þeirra verður lokað í dag
vegna þess að friður hef-
nú verið saminn á Kyrra-
hafsvígstöðvunum. — Er
þetta samkvæmt upplýs-
ingum, sem blaðið fjekk
hjá Verslunarráðinu í gær.
Síðasta herstjórnartilkynn
ingin frá aðalstöðvum Mac
Arthurs var gefin út í dag.
Segir þar, að herir banda-
manna hafi hætt sókn á öll-
um vígstöðvum, en skærur
sjeu þó ennþá á nokkrum
stöðum á Norður-Luzon.
í herstjórnartilkynningu
Rússa, sem gefin var út í
kvöld, segir að Rússar haldi
áfram sókn sinni í Mansjúr-
íu, og frá aðalstöðvum
Mountbattcns lávarðs er til-
kynt, að skærur geisi á
nokkrum stöðum i Suður-
Burma.
Mansjúría.
í tilkynningu frá Anton-
ov, yfirmanni herforingja-
ráðs Rússa, sem lesin var í
útvarpi frá Moskva í kvöld,
segir, að Rússar muni halda
áfram sókn sinni, þar til Jap
anar leggi niður vopnin. Jap
önsku herirnir, sem Rússar
eigi í höggi við, hafi enn ekki
fengið neina skipun um að
gefast upp. í herstjórnartil-
kynningu Rússa er sagt', að
rússnesku hersveitirnar
sæki fram á Öllum vígstöðv-
um og hafi tekið mikinn
fjölda borga og bæja, enda
þótt mótspyrna Japana hafi
verið hörð sumsstaðar.
Burma.
Smáskærur geisa enn í
Suður-Burma, og stafar það
Framh. á bls. 8.
0