Morgunblaðið - 14.09.1945, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.09.1945, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 14. sept. 1945 (7e9 er JÓNATAN SCRIVENER Cftir Ctaude JJoacflitovi 23. dagm ,,Þeir eru aðeins í essinu sínu, þegar þeir eru eitthvað að starfa og reynast því prýði- lega, þegar í harðbakkann slær. Vegna þess, hve heiðar- legir þeir eru, verða þeir oft trúgjarnir. Æfintýraþráin, sem blundar í brjóstum þeirra, ger- ir það að verkum, að þeir skapa heil heimsveldi í hjáverkum sínum. Þeir kunna að sigra, en þeir kunna ekki að neyta sig- ursins. Þeir geta ekki stjórnað, og þess vegna spilla lýðskrum- arar og skriffinnar stjórnar- fari þeirra. Menn af þessu tagi dóu þúsundum saman í styrj- öldinni, meðan tækifærissinn- ar náðu völdunum, með svik- um og undirferlum. Þessir menn eru sviknir, blektir og fyrirlitnir af þeim tungu- mjúku, sem geta fengið aðra á sitt band með fagurgala sín- um. Jeg er á því, að þjer eigið heima í hópi þessara manna“. Hann horfði nú á mig með samskonar undrunarsvip og lítið barn horfir á sjónhverf- ingamann. Það, sem hann sagði, var svo einkennandi fyr- ir manntegund þá, sem jeg hafði verið að lýsa, að jeg var rjett búinn að skella upp úr: „Hjerna — þjer fáist ekki við ritstörf eða neitt því um líkt?“ ,,Nei“, svaraði jeg. „Jeg skrifa ekki. Jeg er sneyddur öllum hæfileikum í þá átt“. „Og þjer segið, að enska þjóðin skilji þessa menn ekki?“ „Nei — hún gerir það ekki“, svaraði jeg, „og allra síst þess- ir rithöfundar, sem þykjast vera að lýsa þeim í bókum sín- um. Menn af þessu tagi eru sjaldan ætlaðir vera hug- sjónamenn og ljóðahneigð sú, sem þeim er runnin í mesrg og bein, er oftast virt að vettugi. Hugsjónir þeirra fá ekki að líta dagsins ljós, af því að þeir eru fámálugir og ljóða- hneigð sú, er leynist með þeim, er ekki viðurkend vegna þess, að hún kemur aðeins í ijós í gjörðum þeirra. En til þess að Þúka þessari skilgreiningu minni, verð jeg að viðurkenna,- að jeg hygg, að manntegund þessi sje að deyja út. Þeir, sem ekki fjellu á vígvellinum hafa orðið. . . . ‘. „Eins og jeg“, tók hann fram í. „Þeir hai'a með öðrum orðum sieð : gegnum alt saman“. „Eí það voru ekki köld rök, sem opnuðu augu þeirra“, hjelt jeg áfram. „Menn, eins og þjer, læra aðeins af reynslunni. Jeg held, að þjer hafið ætlað að segja mjer frá einhverri reynslu sem þjer hafið orðið fyrir'1. Hann reis á fætur og náði sjer í wiský. „Það var sannleikskorn í því, er þjer sögðuð", sagði hann því næst. „Jeg hefi ekki hugmynd um, hversvegna þjer eruð svo margfróður. En jeg á heima í þessum hópi manna, sem þjer voruð að lýsa. — Jeg ætla að segja yður frá því, sem fyrir mig hefir komið, síðan jeg kom heim úr stríðinu. Þjer skulið ekki eiga von á miklu, svo að þjer verðið ekki fyrir vonbrigð um. — Er jeg ekki annars að halda fyrir yður vöku?“ „Nei — auðvitað ekki“. „úetta er dálítið undarlegt — finnrt yður það ekki?“ hjelt hann áfram. „Hjer sitjum við, í íbúð Scrivener, og eigum hon- um það að þakka, að við skyld- um noKkurn tíma hittast“. ,,C g þjer hafið hitt hann einu ,-iuni — en jeg hefi aldrei sjeð hann“, bætti jeg við, eftir stutta þögn. „Hefir ungfrú Mandeville þekkt hann lengi?“ „Tvo eða þrjá mánuði, að því fer mjer hefir skilist“. Middleton sagði ekkert. Hann horfði á mig, og augna- ráð hans var þungbúið. Jeg vissi, að hann hafði aðeins minst á Scrivener til þess að tefja tímann. Það var nærri því grátlegt að sjá, hve hræddur hann var um að verða að at- hlægi. Hann reis snögt á fætur og tók að ganga um gólf. Svo sett- ist hann aftur. „Mikil blessuð guðsgjöf er vínið“, hrópaði hann. „Það leysir hlekkina af sálunum — hjálpar mönnunum til þess að finna sjálfa sig. Brennivínslaust er ekki hægt að þreyja í þessum heimi“. Hann þagði andartak og hjelt síðan áfram: „Þegar stríðinu var lokið, var jeg alveg í öng- um mínum. Hafði ekkert fyrir stafni. Þjer vitið, hvernig á- standið var þá. Svo fjekk jeg atvinnu í Kanada. Jeg dvaldi einnig um nokkurt skeið í Bandaríkjunum. Vann þar dag- launavinnu. Síðan flæktist jeg aftur heim til Englands. Þá kom tvent fyrir“. • Hann þagnaði skyndilega og krampadrættir fóru um andlit hans. Það leið góð stund áður en hann hjelt áfram: „Mjer bauðst góð atvinna í Suður-Ameríku og jeg varð ástfanginn. Það hafði ekki komið fyrir mig áður. Ástin hafði verið mjer eins og hvert annað óþekt hugtak. Svo varð hún alt í einu lífið sjálft. Skilj- ið þjer mig?“ „Já“, svaraði jeg. „Jeg varð ástfanginn á rjett- um tíma. Jeg var tekinn að þreytast á lífinu og tilverunni. Það var farið að renna upp fyrir mjer, að alt það, sem jeg hafði trúað á, væri aðeins hje- gómi, og það, sem jeg hafði gengið út frá sem gefnu, væri blekking. Þá kom hún alt í einu, og gaf mjer trúna á ný. Jeg get ekki skýrt það betur. Þjer eruð ef til vill fær um að geta í eyðurnar?" „Jeg held að jeg skilji yð- ur“, sagði jeg. „Þjer gátuð aft- ur trúað á lífið, þrátt fyrir ef- ann í sál yðar“. „Já. Mjer fanst einhvern veginn, að þrátt fyrir alt stæði lífið á styrkum grunni, sem ekki væri hægt að hagga. Jeg get ekki gleymt þessum vik- um. Mjer verður oft hugsað til þeirra núna. Jeg naut þess eins að lifa — vera til. Það var mjer nóg. Mjer fanst alt svo hreint og ósnortið — ef þjer skiljið, hvað jeg á við. — Við hjetum hvort öðru heitorði. Jeg held, að ættingjar hennar hafi ekki verið neitt sjerlega hrifnir af þessum ráðahag, en við feng- um samþykki þeirra. Og jeg tók þessa atvinnu í Suður-Amer- íku“. Hann þagnaði. Það var eins og hann hefði gleymt mjer. Hann sat álútur og horfði í eldglæðurn^r, eins og minn- ingarnar, sem hann var að segja frá, öðluðust líf þar. And- litssvipur hans var gjörbreytt- ur — eins og oft vill verða, þegar menn taka að rifja upp ljúfar endurminningai*. Rödd hans var lág og raddblærinn var einnig breyttur. „Þessi kona var mjer alt. Vera má, að henni hafi fundist jeg leiðinlegur. Jeg veit það ekki. En nærvera hennar ein gaf mjer eitthvað. Hvað var það? Getið þjer sagt mjer, hvað það var?“ „Ef til vill hefir hún gefið vonum yðar byr undir báða vængi“. , Já“, sagði hann, nærri því eins og hann væri að tala við sjálfan sig. „Þetta er ef til vill góð skilgreining á hamingj- unni“. Eftir stutta þögn spurði hann, og glotti við: „Þjer get- ið máske gert ógæfunni jafn góð skil?“ „Alt, sem ýtir undir ótta mannanna, skapar ógæfu. En við skulum ekki skeyta neitt um skilgreiningarnar. Þjer skuluð halda áfram“. Eftir stundarkorn tók hann aftur til máls: „Jeg get ekki skýrt yður frá því, sem jeg lifði þessar vikur, af því að jeg kanr^ ekki að nota orð. Jeg hafði oft heyrt talað um fólk, sem var ástfangið. Jeg hafði aldrei vitað af eigin raun, hvað það orð fól í sjer. Jeg hygg, að veigamesta þýðingin, sem ást- in hafði fyrir mig, hafi verið sú, að hún fól alt í sjer. Hún tengdi saman í eina heild alla þætti lífs míns. Hún varð upp- haf heims míns — drottnari veraldar minnar. — En hvern fiandann varðar okkur um alt þefta! Það er framhaldið, sem r/æst.u máli skiftir“. Hann hleypti brúnum. Svip- ur hans varð reiðilegur á ný. Hann hreyfði sig órólega í sæt- mu og fálmaði með höndunum út i loftið. Það hafði djúp áhrif á mig að sjá, hve sambandið milli tilfinninga hans og svip- brigða var náið. Endurminn- ingarnar höfðu náð að gjör- breyta honum andartak. Svo náði nútíðin aftur valdi á hon- um og meitlaði hann í mót sitt. Augun JeghyÐI með GLERAUGUM frá TÝLI LISTERINÉ TANNKREM i*- -«■ A A A A .♦» .♦« .♦» i*. i*i A A é*. .*• > ■« « « « * Fyrirliggjandi: Ranaslípivjelar j IMHIHNHIHUIHIHI t " $ NOKKRAR Jötun- Lensidælur — sjálfsjúgandi tannhjóladælur — óvenjulega traustbygðar og kraft- miklar — úr kopar og ryðfríu stáli. með fastri og lausri reimskífu og á undirstöðu. — Eru nú loksins fyrirliggjandi. Vjelsm. Jötunn h.f. Hringbraut. — Sími 5761. | Matsvein og háseta i X vantar. Upplýsingar í Fiskhöllinni $ eftir kl. 2 í dag. y y H4*******?*** *> •>*> *♦**»»•**> •> *«* ♦***> *> ♦> *> •> ♦♦*♦> *> *> ****** *»»»»«* •:•« Cutex fegrar hendur ~ yðac Lakkið sem end- ist, gljáir og er auðvelt að bera á —■ í hvaða lit sem þjer óskið. 4—5 CLTEX ALT TIL IIAND- SNYRTINGAR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.