Morgunblaðið - 05.01.1946, Page 7
Laugardagur 5. jan. 1946
lOEðUNBUÐIÐ
%
Ritstjórn: Sambandsstjórnin.
Síða sambands ungra Sjálfstæðismanna.
Æska Reykjavíkur mun tryggja
sigur sjdlfstæðisstefnunnar
Sjálfstæðismenn eini flokk-
urinn með fulltrúa unga
fólksins í öruggum sætum
ÞAÐ kemur í Ijós við bæjarstjórnarkosningarnar, sem
nú fara i hönd, eins og endra nær, að Sjálfstæðisflokk-
urinn treystir fulltrúum yngra fólksins í Reykjavík og
æskan mun fylkja sjer um flokkinn.
Listi Sjálfstæðismanna er eini framboðslistinn við
bæjarstjórnarkosningarnar með fulltrúa unga fólksins í
öruggum sætum.
Formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, Jóhann
Hafstein, er í áttunda sæti listans, en það sæti tryggir
Sjálfstæðisflokknum áframhaldandi meirihluta aðstöðu
í bæjarstjórn Reykjavíkur.
Gunnar Thoroddsen hefir áður verið fulltrúi ungra Sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn og öruggar málsvari þeirra á Alþingi.
Hann skipar nú fimta sæti á listanum.
Þá er ungum Sjálfstæðismönnum mikið. gleðiefni að ganga
nú til kosningabaráttunnar undir glæsilegri forustu hins unga
borgarstjóra, Bjarna Benediktssonar, sem skipar fyrsta sæti
listans.
Unga fólkið hefir kunnað vel
að meta þá frjálslyndu lýðræð-
isaðferð Sjálfstæðismanna, að
láta frám fara almennar próf-
kosningar meðal borgaranna
um val manna á framboðslista
flokksins.
Slíkar aðferðir eru að geði
æskunnar.
Hún mun ekki reynast ýkj'a
ginkeypt fyrir þeim „aust-
rænu“ Starfsaðferðum, að
ákveða framboðin í sem þrengst
um hóp ,,sellufunda“, eða að
banna ‘ öðrum en einum flokki
að bjóða fram.
Reykjavík hefir bygst á
grundvelli Sjálfstæðisstefnunn-
ar. Margt er hjer enn ógert. —
Hitt vekur þó athyglina, hversu
margt hefir gerst hjer á
skömmum tíma.
Sjálfstæðismenn geta ótrauð-
ir gengið til kosninga í Reykja-
vík glaðir af verkum sínum.
Það, sem að baki liggur, er
öruggasta vísbendingin um það
fyrir æsku höfuðstaðarins,
hverjum hún á að trúa fyrir
stjórn sameiginlegra málefna
borgaranna í framtíðinni.
. * * * l
„Austræn"
knattspyrna
ÞAÐ er haft að gamní, að síð
an rússneski knattspyrnuflokk-
urinn, Dynamos, vann enska
knattspyrnuflokka í keppni, hef
ir ufn fátt fremur verið ritað
á íþróttasíðu Þjóðviljans en
knattspyrnukappa Rússa. Senni
lega verður þar senn farið að
metast um „austræna“ og „vest
ræna“ knattspymu.
Hafa valið sjer
títuprjóna
að vopni
ÞORGEIR SKORRAGEIR tók
við öxinni Rimmugýgi eftir
dauða Skarphjeðins í Njáls-
brennu. Bar hann hið mikla
vopn með karlmensku og gekk
rösklega að hefndunum með
Kára Sölmundarsyni.
Alþýðuflokkurinn hefir verið
í einskonar „brennu“ síðari ár-
in og þykir allskostar óvíst,
hversu veglegar muni reynast
leifar , flokksins eftir bæjar-
st j órnarkosningarnar.
Ungir Alþýðuflokksmenn
hafa gjörsamlega legið í dái,
þar til nú fór að hilla undir
kosningar. Hafa þeir fyrir
skömmu tekið sig til og birta í
viðlögum síður í Alþýðublað-
inu um „unga fólkjð og stjórn-
málin“.
Baráttupistill þessara ungu
jafnaðarmanna gengur undir
fyrirsögninni „títuprjónar“.
Lítur út fyrir, að hinir ungu
garpar hafi þó borið skyn á að
reisa sjer ekki hurðarás um
öxl, með því að velja sjer títu-
prjónana að vopni. Hitt þykir
orka meir tvímælis, hvort þetta
veglega vopn ungra jafnaðar-
manna sje til þess líklegt að
forða helför Alþýðuflokksins.
UNGIR SJÁLFSTÆÐIS-
MENN! — Eflið síðu ykkar. —
Sendið síðu S. U. S. greinar og
annað efni!
Kosningafundur ungra Sjálfstæð-
ismanna og kommúnista
Heimdallur býður Æskulýðs-
fylkingunni til umræðufundar
FJELAG ungra Sjálfstæðismanna í Reykjávík, Heimdallur,
hefir boðið Æskulýðsfylkingunni, fjelagi ungkommúnista, til
opinbers umræðufundar um stjórnmál.
Verður fundurinn væntanlega haldinn þann 15. janúar í Sjálf-
stæðishúsinu, en viðræður fara nú frám milli fjelaganna um
fyrirkomulag fundarins.
„Geðilf blað getur
ekki unnið
kosningar"
ÞAÐ FÝKUR nú heldur
kuldalega í skjólin hjá Þjóð-
viljanum á hinu nýbyrjaða ári,
— þrátt fyrir blessaða veður-
blíðuna.
Það hefði einhverntíma þótt
nokkur spásögn, að sjálfir for-
sprakkarnir væru farnir að
hrista höfuðið yfir skrifum
blaðsins.
En naglinn mun þó ekki hafa
verið hittur á höfuðið fyrr en
einum þingmanni sósíalista-
flokksins varð að orði, eftir
lestur Þjóðviljans:
„Geðilt blað getur ekki unn-
ið kosningar!“
Þetta eru víst áreiðanlega full
góð sannindi. Mundi því nokk-
uð á það reyna, hvort blaðið
reynist drýgra í að losa flokk
s|nn við kjósendurna eða sjálft
sig við geðvonskuna.
Oorgaraleg hrifning
„En hið borgaralega lýðræði
fór sigurför um hinn menntaða
heim, þrátt fyrir baráttu aftur-
haldsins, — og nú er hið borg-
aralega lýðræði talinn sjálfsagð
ur og helgur rjettur“.
Hvar stendur þetta skrifað?
Auðvitað í Þjóðviljanum, sem
altaf hefir verið svo hrifinn af
öllu „borgaralegu“.
Er trúin á ,,austræna“ lýðræð
ið farin að tapa sjer.
Æska höfuðstaðarins reyndist
hafa geysi mikinn áhuga fyrir
æskulýðsfundinum, sem hald-
inn var í Sýningarskálanum í
haust,
Þykir sjálfsagt ekki minna
um vert þegar nú er stofnað
til opinberra rökræðna milli
þeirra tveggja fjelaga ungra
stjórnmálamanna í bænum, er
öndverðust standa.
Ungir Sjálfstæðismenn sýna
áhuga og dugnað í því að fylgja
fast á eftir í kosningabarátt-
unni, og er þá ekki sennilegt
að þeir muni láta sinn hlut eft-
ir liggja.
Stjómmálafundir ungra
manna í Hafnarfirði og
Keflavík á morgun
Á MORGUN, sunnudaginn 6. janúar, verða haldnir stjórn-
málafundir ungra manna til undirbúnings þátttöku unga fólks- !
ins í kosningunum í Hafnarfirði og Keflavík.
Ágæt samkoma
Sjálfstæðismanna
í Rangárvaliasýsiu
SKEMTISAMKOMU hjeldu
Sjálfstæðisfjelögin í Rangár-
vallasýslu fimmtudaginn 3. jan.
í samkomuhúsi Holtahrepps hjá
Marteinstungu í Holtum. — Til
dagskrár var vel vandað.
Ræðumenn voru: Ingólfur
Jónsson, alþm., Hellu og Gunn
ar Helgason frá Hlíðarenda.
Stúlkur sungu með guitar und
irleik og töframaður sýndi list-
ir sínar. Samkoman fór mjög
vel fram
Á fundinum í Hafnarfirði
mæta þessir ræðumenn af hálfu
ungra Sjálfstæðismanna: Egg-
ert Isaksson, Guðmundnr Guð-
mundsson og Páll Daníelsson.
Eru þeir allir úr Hafnarfirði.
Á fundinum í Keflavík mæta
af hálfu ungra Sjálfstæðis-
manna: Magnús Jónsson frá
Mel og Jóhann Hafstein.
Sambönd fjelaga ungra stjórn
málamanna í fjórum flokkun-
um hafa haft forgöngu um
þessa fundi.
Ungir Sjálfstæðismenn munu
taka þátt í þeim af áhuga, enda
vel til þess fallið, þegar kosn-
ingar standa fyrir dyrum, að
æskumenn af öllum flokkum
leiði saman hesta s^na á mann-
fundum.
Kosningasúpa
EKKI ALLS fyrir löngu lagði
Þjóðviljinn sjerstakt kapp á það
í forystugrein blaðsins, að telja
lesendum trú um, að þeir þyrftu
ekki að óttast, þótt kommúnist
ar kynnu að vinna í bæjarstjórn
arkosningunni í Reykjavík. —
Sósíalisma yrði ekki á komið
þrátt fyrir það. Reykvíkingar
áttu sem sje að kjósa sósíalista,
ekki vegna sósíalismans, heldur
þrátt fyrir sósíalismann, —
þrátt fyrir stefnu þeirra.
I gær segir Þjóðviljinn:
„Forusta Sósíalistaflokksins í
bæjarstjórn Reykjavíkur þýðir
stórfeldari þátttöku stjórnar
Reykjavíkurbæjar í þeirri ný-
skcpun, sem alþýðan á afkomu
sina undir“. Nú eiga kjósendur
að hrinda bæjarstjórnarmeiri-
hluta Sjálfstæðismanna til þess
að verða þátttakendur í nýsköp
uninni með sósíalistum.
En vel á minnst? Eru það eigi
Sjálfstæðismenn sem hafa for-
ystu um nýsköpunarstefnu ríkis
stjórnarinnar?
Fyrri firran er góð. — Sú síð
ari naumast verri. Hún er ekki
bragðlaus, kosningasúpa Þjóð-
viljans, sem lesendum er boðin
til andlegrar næringar.