Morgunblaðið - 05.01.1946, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ.
Faxaflói:
ÆSKA Reykjavíkur mun
Vestan gola eða kaldi, snjójel,
en bjart á milli.
Laugardagur 5. janúar 1946
Ræðumenn ákveðnir
á fundum æskulýðs-
sambandanna
í Hafnarfirði
og Kefiavík
EINS og áður hefir verið
skýrt frá hjer í blaðinu halda
æskulýðssambönd stjórnmála-
flokkanna sameiginlega stjórn
máláfundi í Hafnarfirði og
Keflavík á morgun. Fundirnir
á báðum stöðunum hefjast kl.
2 e. h. — I Hafnarfirði verður
fundurinn haldinn í Bæjarbíó,
en í Keflavík í Alþýðuhúsinu.
Ræðumenn á fundunum hafa
verið ákveðnir. I Hafnarfirði
verða þeir sem hjer segir:
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn: —
Guðmundur Guðmundsson, Egg
ert ísaksson og Páll Daníelsson.
Fyrir Alþýðuflokkinn: Stefán
Júlíusson og Sveinn V. Stefáns-
son.
Fyrir Framsóknarflokkinn:
Ingólfur Geirdal, Kristján
Andrjesson og Haraldur Jó-
hannsson.
A fundinum í Keflavík verða
ræðumenn þessir:
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn: —
Jóhann Hafstein og Magnús
Jónsson, stud. juris.
Fyrir Alþýðuflokkinn: Helgi
Sæmundsson og Jón Emilsson.
Fyrir Framsóknarflokkinn:
Þórarinn Þórarinsson.
Fyrir Sósíalistaflokkinn: —
Guðmundur Vigfússon og Jón-
as Haralz.
Fundur æskulýðssamband-
anna á Akranesi verður hald-
inn sunnudaginn 13. jan.
Lisfi Sjálfsiæðis-
manna í Borgarnesi
Frá frjettaritara vorum í
Borgarnesi, föstudag.
LISTI Sjálfstæðismanna við
hreppsnefndarkosningarnar hér
sem fram fara hinn 27. þ. m.,
verður skipaður þessum mönn-
um:
Friðrik Þórðarson, verslunar
stjóri, Finnbogi Guðlaugsson,
forstjóri, Magnús Jónsson, gjald
keri, Ásmundur Jónsson versl-
unarmaður, Ólafur Klemensson
verkamaður, Daníel Björnsson
trjesmiður og Ólafur Þórðarson,
járnsmiður. Við sýslunefndar-
kosningarnar er í framboði Ari
Guðmundsson, verkstjóri.
Áramótakveðjur til
Forseía íslands
MEÐAL skeyta þeirra, sem
•forseta Islands bárust um ára
mótin, voru þessar kveðjur:
„íslendingafjelagið í Kaup-
mannahöfn flytur yður. herra
forseti og allri íslensku þjóð-
inni, hugheilar óskir um far-
sælt og blessunarríkt ár“.
„Vestra heit í vorum brjóstum
vakir norræn glóð.
iBróðurhugir brúa hafið
blessa land og þjóð.
Richard Beck“.
......
-—íiii. „.-dSaaaíafcííSiaasiáí
Efnahagsyfirlil
Búnaðarbankans
Búnaðarbankinn hefir sent út
efnahagsyfirlit pr. 1. jan. s. 1.
Verður hjer getið helstu niður-
stöður á yfirlitinu, með saman
burði á fyrra ári.
Aðalniðurstaða á efnahagsyf-
irliti allra deilda bankans hefir
lækkað úr 65.400 þús. í 64.642
þús. krónur.
Eignamegin hafa skuldabrjef
fyrir lánum, verðbrjef, víxlar
og lán í hlaupareikningi hækk-
að samtals um ca. 16 milj. kr.,
úr 32 milj. upp í 48 milj. króna.
Skuld hefir 'myndast hjá báð-
um kreppulánssjóðunum, er
nemur samtals kr. 830 þús. —
Bankainnstæða og peningar í
sjóði lækka um nærri 15.800
þús. kr. Ennfremur hverfur
skuld útibúsins við bankann
(ca. 900 þús.) og fasteignir
lækka um 800 þús. kr., (sem
mun stafa af sölu hússins nr.
10 við Kirkjustræti.
Skuldamegin hækka innstæð
ur í sparisjóði, hlaupareikningi
og á reikningslánum samtals
um kr. 500 þús., en innstæður
kreppulánasjóðanna beggja
hverfa, þar sem öll bankavaxta
brjef þeirra hafa nú verið inn-
leyst, (samtals ca. 1.600 þús.).
Ennfremur hverfa jarðræktar-
brjef í umferð (1062 þús.).
Skuldlaus eign hækkar um
ca. 1052 þús. úr 12.410.298,49
upp í 13. 465.276,55 og nýr sjóð
ur hefir myndast á árinu, fyrn
ingarsjóður fasteigna krónur
300 þús.
Framboðsiislar
á Akureyri
Akureyri, föstudag.
Frá frjettaritara vorum.
NÖFN efstu manna á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins til
bæjarstjórnarkosninga hjer,
hafa áður verið birt.Efstu menn
annara flokka eru: Framsókn-
arflokkurinn: 1) Jakob Frí-
mannsson, kaupfjelagsstjóri, 2)
Þorsteinn M. Jónsson skólastj.,
3) Marteinn Sigurðsson verka-
maður, 4) Guðmundur Guð-
laugsson forstjóri. Alþýðuflokk
urinn: 1) Friðjón Skarphjeðins-
son bæjarfógeti, 2-) Steindór
Steindórsson mentaskólakenn-
ari, 3) Bragi Sigurjónsson kenn
ari. Sósíalistaflokkurinn: 1)
Steingrímur Aðalsteinsson al-
þingism. 2) Tryggvi Helgason
sjómaður, 3) Elísabet Friðriks-
dóttir kenlsukona.
Lúðvíg Guðmunds-
son flyiur erindi um
Mið-Evrópuför sína
Lúðvík Guðmundsson skóla-
stjóri, mun flytja erindi um
ferð sína til Mið-Evrópu n. k.
sunnudag í Gamla Bíó.
Eins og kunnugt er fór Lúð-
vík í för þessa á vegum Rauða
Kross íslands til þess að veita
íslendingum, sem par höfðu
aðsetur í löndum Mið-Evrópu,
aðstoð.
Skildi og fjekk miijón
ÞAÐ liggur vel á henni þess
ari amerísku konu. Hún er að
koma úr rjettinum, þar sem
hún er búin að vinna skilnað-
armál gegn manni sínum, sem
á asbestverksmiðjur, og var
dæmdur til að greiða henni
miljón dollara.
Frásögn Koestlers
vekur mjög mikla
alhygli
LESBÓKIN sem fylgdi Morg
unblaðinu á fimmtudaginn var,
þar sem birtir voru kaflar úr
bók Arthurs Koestlers um Rúss
land, hefir vakið mjög mikla
athygli. Hvar sem menn hittast,
síðan þetta tölublað Lesbókar
kom út, hefir frásögn þessa
sósíalista verið umtalsefnið.
Margir hafa þó lesið þessa
bókarkafla lauslega ennþá. Því
menn þurfa að gefa sjer góð-
an tíma, til þess að kynna sjer
vel kafla þessa, sem varpa
skýru ljósi yfir ástandið í Rúss
landi, eins og það er í dag.
Hver maður, sem lætur sjer
stjórnmál nokkru skipta, les
með athygli þessa skýrslu hins
kunna manns, ekki síst eftir
að komið er á daginn, að Þjóð-
viljinn treystir sjer ekki til
þess að minnast á hana einu
orði.
Hörkufros!
í Englandi
London í gærkvöldi.
í NÓTT sem leið voru mikil
frost um allar Bretlandseyjar
og hefir ekki komið svo mikið
frost í London í meira en heilt
ár. Var frostið þar í borginni
11 stig, en í hálöndum Skot-
lands komst það upp í 16 stig.
Gas er enn ekki nærri nóg í
London til hitunar og er skamt
að mjög stranglega. Var borg-
arbúum þvi all-kalt þessa nótt
og einnig í dag — Mikið er
um skautaferðir víðsvegar um
Bretland. — Reuter.
tryggja sigur Sjálfstæðisstefn-
unnar. — Sjá bls. 7.
Stórfeldar framkvæmdir
í Vestmannaeyjum
MIKIÐ HEFIR verið um
framkvæmdir í Vestmannaeyj-
um upp á síðkastið, og margt
gert til að bæta atvinnu- og
j lífsskilyrði Eyjamanna. Hefir
’ meðal annars verið unnið að
j hafnarbótum, kúabúi komið á
I fót og verkamannabústaðir
bygðir. Þá er nú í smíðum ný
rafstöð, en sú gamla var orðin
of lítil fyrir þarfir Eyjanna, og
unnið'er að kappi við að full-
gera flugvöll fyrir sunnan
Helgafell. Er það í- raun og
veru fyrsta stórtæka flugvalla-
^ byggingin, sem landsmenn ráð
: ast í.
Morgunblaðið hefir haft tal
af Hinriki Jónssyni bæjar-
stjóra og spurst fyrir um
helstu framkvæmdir upp á síð-
kastið. Byggist það, sem hjer
fer á eftir, á frásögn hans.
Samgöngubætur.
Vinna hófst við flugvöllinn í
Vestmannaeyjum fyrir nokkru
og er búist við, að hann verði
fullgerður í maí. Er þetta mikið
verk, því jafna þarf þarna stórt
svæði. Eru stórvirkar vinnu-
vjelar notaðar til verksins, en
Vestmannaeyjabær leggur til
fje til framkvæmdanna, og
mun svo ríkissjóður endur-
greiða það samkvæmt fjárlög-
um.
Á árinu sem leið var hafin
bygging á garði milli Bæjar-
bryggju og svonefns „Bratta“.
Var myndaður þarna úm 150
metra langur grjóthryggur og
steypt fyrir utan hann, en síð-
an dælt inn sandi úr hafnar-
svæðinu. Myndaðist þannig
þarna nýtt land, um leið og
höfnin var dýpkuð. Þá er og
unnið að því að rífa gömlu fiski
húsin fyrir ofan þetta nýja
landssvæði og verður því vænt
anlega lokið að sumri. Er í ráði
að skipuleggja þetta svæði að
nýju og gefa útvegsmönnum
kost á að koma sjer þarna upp
góðum, fyrsta flokks fiskhúsum.
í desember 1943 var hafin
smíði á nýrri bryggju inni í
Botni. Er lengd hennar ca. 90
metrar, en hausinn í suður er
um 36 metrar. Lagðist fyrsta
skipið að þessari nýju bryggju
í mars 1944, þá að vísu ekki
fullgerðri, en gera má ráð fyr-
ir, að þennan mánuð verði lok-
ið við hana, eins og hún verð-
ur í bili. Bryggjan er aðallega
ætluð stærri skipum og hefir
réynst vel.
Af öðrum hafnarbótum má
geta þess, að undanfarin ár hef
ir verið gert mikið við hafnar-
garðana, sjerstaklega þann
syðri, og unnið hefir verið að
því að staðaldri að dýpka höfn-
ina. Er sandinum dælt. norður
fyrir Eyði og upp í þessa nýju
landmyndun, sem áður var get
ið um.
Vegagerð.
Mikið hefir verið um fram-
kvæmdir við vega- og holræsa
byggingu síðustu árin. 1943 var
steyptur ca. 150 metra kafli af
hinum svokallaða Strandvegi.
Er vegur þessi 10 metra á
breidd. Þá var Skildingavegur
steyptur á árinu 1944 og all-
langur spotti af annari götu síð
astliðið ár. Var jafnframt lagt
kapp á að ljúka að mestu við
holræsagerð bæjarins, þannig,
að nú er aðeins ólokið við
nokkra götubúta. Hefir kostn-
aður við vegagerð (ræktun og
viðhald vega, gerð gangstjetta
og holræsa o. fl.) numið um
950.000 krónum fyrir s.l. 3 ár.
Vænta má mikilla bóta í raf-
magnsmálum Vestmannaeyja-
kaupstaðar, þegar hin nýja raf-
stöð, sem nú er í byggingu, tek-
ur til starfa. Verður þetta
stærsta dieselrafstöð, sem bygó
hefir verið hjer á landi til
þessa. Búist er við vjelum stöðv
arinnar í apríl, en orka henrtar,
þegar búið er að koma þessum
vjelum fyrir, verður 26—28000
hestöfl.
Kúabú.
EITT af aðalvandamálum
Vestmannaeyinga til þessa hef-
ir verið mjólkurleysi. Hefir bor
’ið töluvert á mjólkureklu síð-
j ustu árin. Til þess að ráða nokk
,ura bót á þessu máli, rjeðist
| Vestmannaeyjabær í það fyrir
jtæpum tveim árum síðan, að
! koma upp kúabúi í Dölum. Var
stofnkostnaður um 650.000 kr.
| í búi þessu eru 50 kýr og
byggingar allar hinar myndar-
legustu. Taka hlöðurnar um
11600 hesta af heyi og auk þeirra
j eru geymslur og tvær súrheys-
gryfjur. Undir öllu fjósinu hef-
jir svo verið komið fyrir safn-
,þróm. Forstöðumaður búsins er
jÁrsæll Grímsson, og er þarna
mjög vel um gengið og hrein-
legt.
Framkvæmdir þessar, þó
miklar sjeu, hafa þó ekki með
öllu leyst mjólkurvandræði
Eyjamanna, enda margskonar
erfiðleikar, sem þarf að ráða
fram úr. Hefir meðal annars
þurft að kaupa mest allt hey úr
landi. Munu þeir, sem þessum
málum stjórna, hafa í hyggju
að gera tilraunir með notkun
þurrmjólkur.
Geta menn yfirleitt verið
sammmála um, að Vestmanna-
eyingar hafi tekið föstum tök-
um á þessu framfaramáli sem
öðrum, enda stefnt að því frá
upphafi,. að gera atvinnu- og
lífsskilyrði Eyjabúa sem best.
Stytta Lenins skemd.
LONDON: Myndastytta sú
af Lenin, sem stendur hjer í
horg, var stórskemd fyrir,
nokkrn. Var höggvið af stytt-
unni: nefið, hakan, eyrun og
nokkuð af vinstri' Öxlinni.
Tveir menn, sem voru við stytt
,una, er lögreglan kom, flýðui
og hafa ekki náðst.