Morgunblaðið - 24.01.1946, Blaðsíða 16
VEÐURUTLITID. Faxaflói:
Gengur til SV-áttar, lygnir. —
Rigning eða slydda.
UNGA FOLKIÐ streymir
hundruðum samait í Heimdall.
— Sjá bls. 7.
Fimtudagur 24. janúar 1946
„Fíni" fundurinn hjá
kommúnistum varð
þeim gagnslaus
Þá skorti bæði rök
og kjaftorku
Ungir Sjálfstæðismenn
fylkja liði til sigurs
• j i r • •• i •
Geysiiegt fjölmenni
á fundi þeirra í
Sjálfstæðishúsinu
MENTAMANNAFUNÐUR
kommúnistanna í Listamanna-
6kálanum í gærkvöldi kom
Jseim ekki að tilætluðum not-
um. Boðun fundarins kom illa
við margan alþýðumann, er
sagði sem svo:
Er þetta þá orðið úr hinum
stjettlausa flokki. Nú er það
ekki nema „fínu“ mennirnir,
með mentahrokann, sem fá að
tala. Það var mikið að óbreyttir
verkamenn skyldu fá náð til að
hlusta á þessa „fínu“, marg-
þjálfaða úr kommúnistasellum
Svíþjóðar og komnir víðar að.
Listamannaskálinn var fullur
áheyrenda. Það vantaði ekki. —
Menn af öllum flokkum komu
þar, af forvitni, til þess að sjá
©g heyra hvernig „mentamenn
©g doktorar“ kommúnista tala.
Og þeir forvitnu fóru með þá
hugsun efst i huga, að segja
mátti um þenna fund að þar
lijeldu „öll hrökin að þau væru
tromp“.
Fyrstur talaði Björn Sigurðs-
son. Kiljan átti að byrja. En
kom of seint. Björn var hóg-
vær. En hann ljet niður falla
að minnast á Nasistadekur Þjóð
viljans og kommúnista, þegar
sem vei-st var útlitið fyrir lýð-
ræðisþjóðunum. Kannske hefir
hann gleymt því.
Þá kom Kiljan. Hann var tíg-
ulásinn í spilinu. Hann spilaði
riöló, svo ásinn varð lægstur.
Hann sagði m. a. að þeir, sem
skrifuðu illa um Rússa í Morg-
unblaðið væru allir barnamorð
ingjar og þjófar(!)
Dr. Hermann Einarsson komst
að þeirri niðurstöðu, að fjölga
þyrfti togurum í bænum. Var
helst á honum að heyra, að
hann hjeldi að hann hefði gert
þessa uppgötvun þarna á fund-
inum, og væri einn um hana.
Þorvaldur Þórarinsson dr.?
upplýsti fundarmenn um það
að allir athafnamenn þjóðfje-
lagsins væru í Sjálfstæðis-
fíokknum. Honum fanst það
vera flokknum til minkunar.
Sigurður H. Pjetursson sagði
m. a. að Sjálfstæðisflokkurinn
traðkaði á lýðræðinu með því
að meina sósíalistum afnot af
Listamannaskálanum. Hann gat
þess ekki að Sjálfstæðisflokkur-
inn lánaði sósíalistum skálann
til þessa fundarhalds.
Sigurður Þórarinsson dr.
sagðist ekki hafa verið komm-
únisti meðan hanh var í Sví-
þjóð. En er harsn kom heim og
sá hve Revkjavík hafði breyst
á meðan hann var ytra, þá varð
hann kommúnisti(!)
Sölvi Blondal hagfræðingur
sagði að framfarir Reykjavíkur
hefðu komið af sjálfu sjer. —
„íhaldinu" hefði ekki tekist að
hindra það(!)
Og síðastur lalaði Jónas Har-
alz, og klykti út með því, að
þjóðskipulagið hjer á landi væri
gersneytt allri mannlegri skyn-
semi(!) Það er gott að menn
skuli vita hvert þessi ungi
maður ætlar að sækja „skyn-
semina“.
Þar með var lokið fundi
„mentamanna" kommúnista og
munu margir í þeirra hóp, hafa
óskað þess í fundarlokin, að sú
samkoma hefði aldrei verið
haldin.
Annars er rjett að geta þess,
að þetta „mentamanna fundar-
tiltæki" er engin nýbóla hjer
í Reykjavik. Alþýðuflokkurinn
var með svona mentahroka fyr
ir einum 20 árum. Allir vita
hvernig komið er fyrir honum.
Aðalfundur Fjelags
pípulagningameist-
ara
AÐALFUNDUR Fjelags
Pípulagningameistara var
haldinn s.l. sunnudag í Iðn-|
aðarmannahúsinu. í stjórn
voru kosnir: Formaður Grím-
ur Bjarnason, ritari Runólf-
ur Jónsson, gjaldkeri Loftur
Bjarnason og meðstjórnend-
ur Jóhann Valdimarsson og
Óskar Smith.
Mikill áhugi ríkti á fundin-
um fyrir lögglildingu fjelags-
manna til vatns- og hitalagns
og einnig um ákvæðisvinnu- j
taxta.
Efnisskortur hefir verið til-
finnanlegur undanfarið til >
pípulagningarvinnu, og er út
lit fyrir, ef eigi rætist fljót-j
lega úr, að ýmsar nýbygging'
ar stöðvist af þeim sökum.
inn kemur en nokkru sinni
fyrr. #
nfsr meeninsr ganga i
EINN glæsilegasti stjórnmálafundur ungra manna
og kvenna í Reykjavík, var haldinn í Sjálfstæðis-
húsinu í gærkvöldi.
Heimdallur, Fjelag ungra Sjálfstæðismanna, boð-
aði til fundarins, og voru hin stóru og miklu húsa-
kynni í Sjálfstæðishúsinu þjettskipuð og þurftii
fjöldi manns að standa inni og úti.
387 inntökubeiðnir voru bornar upp til samþykkt-
ar á fundinum og hefir allt þetta mikla lið sótt um
inngöngu í fjelagið um og eftir æskulýðsfundinn,
þar sem kappræðurnar við kommúnistana fóru
fram, og nú fyrir og á fundinum í gærkvöldi.
Heimdallur er nú lang stærsta stjórnmálafjelagið í Reykja
vík, næst Landsmálafjelagi Sjálfstæðismanna, Verði. Ekk-
ert æskulýðsfjelag hinna flokkanna kemst nokkuð í nám-
unda við Fjelag ungra Sjálfstæðismanna, Heimdall, að
meðlimatölu, eða þrótti og vexti í starfsemi.
Ludvig Hjálmtýsson, for-
maður Heimdallar, setti fund
inn og stýrði honum.
Fulltrúar ungra Sjálfstæð-
ismanna fluttu ávörp og stutt
ar ræður og tóku þessi til
máls:
Frú Auður Auðuns,
Magnús Jónsson frá Mel,
Már Jóhannsson,
Sveinbjörn Hannesson,
Valgarð Briem,
Geir Hallgrímsson,
Gunnar Helgason og
Jóhann Hafstein.
Var öllum ræðumönnum
óspart fagnað af fundarmönn
um, enda mæltist þeim djarft
og skörulega. — Hljómsveit
Sjálfstæðishússins Ijek ís-
lensk þjóðlög eftir hverja
ræðu, en fundarmenn risu úr
sætum sínum og sungu.
Fundurinn fagnaði sjerstak1
Kjósið D - listann
lega Jóhann Hafstein, sem*
skipar nú áttunda sæti á lista
Sjálfstæðismanna. Er einsýnt
að ungir Sjálfstæðismenn
hafa þjappað sjer með þeim
áhuga og krafti um kosningu
hans, að hún er þegar örugg.
Baráttan stendur um níunda
sætið á lista Sjálfstæðis-
manna.
Á fundinum ljet mikill^
f jöldi ungra manna og kvenna
skrá sig til sjálfboðaliðsstarfa
á kjördaginn.
Sjálfstæðisæskan í Reykja-|
víkgengur ötulli og sterkari;
til kosninganna á sunnudag-i
Hvað dvaldi full-
Irúa Rússa svo
lengi!
London í gærkveldi:
VISHINSKY, aðstoðarutan
ríkisþjóðfulltrúi Rússa er nú
kominn til London, rjettum
12 dögum eftir að ráðstefna
sameinuðu þjóðanna hófst,
þar sem hann átti að vera
aðalfulltrúi Sovjetríkjanna.
Hefir mikið verið um það
rætt, hversvegna hann hafi
dregið komu sína til London
svo mjög, og telja sum blöð
Bretlands þetta benda til
þess að Rússar beri ekki
mikla virðingu fyrir starfi
hinna sameinuðu þjóða og
bandalaginu' nýja. — Mjög
mikil eftirvænting er ríkj-
andi eftir að heyra fyrstu
ræðu Vishinskys, sem líklega
verður haldin á morgun.
í FYRRINÓTT var framið
innbrot í Viðtækjasöluna í
Lækjargötu. Innbrotsþjófur-
inn hafði farið inn um glugga
á bakhlið hússins. Hann hafði
á brott með sjer hvítt lítið
útvarp. En kassinn utanum
það var sprunginn. Þá stal
hann einnig handsnúinni
samlagningavjel. Stafir let-
urborðsins* voru rauðir.
Kviknar í stórhýsi
á Akureyri
Akureyri, miðvikudag.
Frá fjrettaritara vorum:
LAUST EFTIR miðnætti í
nótt sem leið, varð elds vart
í Hafnarstræti 96, Akureyri,
stórhýsinu París. — Reynd-
ist hann vera í stórum skúr,
sem er áfastur við aðalhúsið,
og í er bókbandsvinnustofa
og prentsmiðja Björns Jóns-
sonar h.f.
Var mikill reykur kominn
um efri hæð skúrsins, er
slökkviliðið kom að, en eld-
urinn ekki magnaður. Tókst
fljótt að ráða niðurlögum
hans, en stórmiklar skemdir
urðu af vatni og reyk í bók-
bandsstofunpi og ennfremur
í vörugeymslu bókaverslun-
arinnar Eddu, er stóð við hlið
hennar og í húsgagnavinnu-
stofu Kristjáns Aðalsteins-
sonar og Jóns Björnssonar,
er var í kjallara skúrsins.
Meiri hluti af matvörum
Vöruhúss Akureyrar eyði-
lagðist af vatni. í aðalhúsinu,
sem að mestu er eign Þor-
steins M. Jónssonar varð
mikill reykur, en enginn eld-
ur. Var reykurinn sjerstak-
lega mikill í forlagageymslu
hans. en vegna þess að bæk-
urnar voru innpakkaðar,
munu þær ekki hafa skemst.
Lögreglan og fleiri báru út í
annað hús hið dýrmæta og
mikla bóksafn Þorsteins M.
Jónssonar og telur eigandinn
það nær óskemt.
Olíusalar handtekni/
London í gærkveldi:
BRETAR hafa tekið fasta
nokkra eigendur þýskra olíu-
vinslustöðva á hernámssvæði
sínu í Þýskalandi, og munu
þeir verða dregnir fyrir dóm.
Verður þeim gefið að sök,
að þeir hafi framleitt olíu
og selt hana þýsku herstjórn-
inni og hafi olía þessi verið
notuð gegn bandamönnum í
styrjöldinni.
— Reuter.
Reyklaust eldsneyti.
LONDON: Breskt eldsneyO
isframleiðslufjelag, hefir til-
kynt, að á næsta ári sendi þaði
á markaðinn margar tegundir
af algjörlega reyklausu elds-
neyti. Hafa nokkrar tegundih
þegar verið sýndar opinbeiu
lega.
Listi Sjálfstæðismanna í Reykjavík er D-listi