Morgunblaðið - 27.07.1946, Side 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
í DACHAU-FANGABÚÐUN
HÚSMÆÐRASKÓLI með dag-
heimili barna. B!s. 7.
Laugardagur 27. júlí 1946
UM. Grein eftir Sverri Þórðar-
son. BIs. 7.
Skip með Gyðingaiióttameníi.
Gyðingar reyna stoðugt að komast inn í Palestínu á ólöglegan hátt og veldur það Ar-
öbum miklum áhyggjum. Bresk herskip og fl '.gvjelar hafa eftirlit á Miðjarðarhafi til að
leita að skipum, sem kunna að vera að flytja Gyðinga til Landsins helga. Hjer sjest skip
með Gyðinga, sem var fastsett er það var ska nmt frá Haifa. í skipinu voru 1300 Gyðingar.
aukist í bæiiuai
VATNSSKORTURINN í bænum hefir aukist nokkuð
síðustu daga. Ástæðan fyrir þessu er sú að nú er verið að
vinna að nýrri kaldavatnsveitu frá Gvendarbrunnum,
og hafa Elliðavatnsengjar verið þurrkaðar, en það hefir
orsakað; að vatnsborðið í brunnunum hefir iækkað all
verulega.
Blaðið átti í gær viðtal við
Rögnvald Þorkelsson verkfræð
ing hjá Vatnsveitu Reykjavík
ur um þetta mál.
Hann kvaðst líta svo á, að
ekki væri ástæða til að óttast
frekari vatnsskort, en þ'egar
væri orðinn. Ástæðan fyrir
vatnsskortinum er sú, að eins"
og kunnugt er hafa Elliðavatns
engjarnar verið þurrkaðar,
vegna hinnar nýju kaldavatns-
leiðsíu, sem verið er að leggja
frá Gvendarbrunnum, vegna
þess að jarðvegí er þannig hátt
að að hraunbreiða er alstaðar
á milli Elliðavatns og Gvend-
arbrunna og talsvert vatns-
magn rennur í gegnum hraunið.
Við höfum þó gert allt til
þess að halda vatnsborðinu
sem hæstu, m. a. með því að
hlaða stíflugarða.
Jeg vildi gjarna nota tæki-
færið, 'segir verkfræðingurinn,
tiljoess að hvetja fólk að fara
eins sparlega mcð vatnið og
hægt er. Það gæti orðið til
þess, að hjálpa þeim, sem búa
í þeim hverfum bæjarins, sem
hærra standa.
Um hina nýju kaldavatns-
leiðslu sagði hann. — Verkinu
miðar sæmilega áfram. Skort-
ur er á verkfærum og tefur það
verkið nokkuð. Pantanir hefðu
| verið loftborar fyrir löngu síð-
j an, en þeir væru enn ókomnir.
!Nú vinna við veituna um 100
manns. Þessa viku voru 70
manns að vinna vegna sumar-
leyfa.
Þessa daga er verið að grafa
fyrir vatnsleiðslunni á Elliða-
vatnsengjum og uppi hjá Gvend
arbrunnum er verið að byggja
stíflugarð pg inntak.
fflnic wm
m
London í gærkvöldi
Einkaskeyti til Mbl.
OPINBERIR slarfsmenn í
Palestínu, en þeir eru flestir
breskir eða arabiskir, hafa sent
bresku stjórninni áskorun þess
efnis að róttækar ráðstafanir
verði gerðar til þess að tryggja
frið og öryggi í landinu, þar á
meðal að okma í veg fyrir
hermdarverk, slík sem það, er
Gyðingar frömdu nú fyrir
nokkrum dögum. Lögreglan í
Palestínu hefir nú hafist handa
um að taka menn fasta, sem
talið er að valdið geti óeirð-
um. ■— Reuter.
FYRSTA íslenska skipið,
jsem fer til Rússlands, fór
hjeðan í gærkvöldi. Þetta
íkip er Brúarfoss og er ferð-
inni heitið til Leningrad, með
viðkomu í Leith og Kaup-
mannahöfn. Einn farþegi
verður með skipinu alla leið
til Rússlands. Það er Har-
aldur • Björnsson. leikari.
Hann kvaðst ætla að reyna
að fá að fara þar í land og
komast sem lengst, eins og
hann orðaði það við tíðinda-
mann blaðsins, er hann hdtti
Harald um þao bil, er skipið
var að leggja frá hafnarbakk-
anum. Ef hann kemst í land
er það ætlun hans að heim-
sækja rússnesk leikhús.
Með skipinu voru samtals
Síl farþegar. Meðal þeirra
Árni Björnsson, píanóleikari,
sem fer í kvnnisferð til Sví-
þjóðar. Þá var meðal farþega
H. E. R. Edv/ards Group
Captain, sem verið hefir yf-
irmaður breska flughersins
hjer og kona hans.
Keppir DYKAMO
vi Horðurlðndin!
STJÓRN norska íþróttasam-
bandsins hafa borist fregnir
þess efnis, að miklar líkur sjeu
til, að rússneska knattspyrnu-
liðið „Dynamo/ komi til Norð-
urlanda til þess að heyja þar
keppni í knattspyrnu.
iúii er §1 sulto.
rúml 17 þús. tunnar
síldur
Um 15 skip fesia löndunar á Rauíartiifn.
LÍTIL SÍLDVEIÐI var í gær. Enda var norðan strekk-
ingur á miðunum. Mörg skip hafa komið til Raufaihaín-
ar og um 15 þeirra biðu löndunar í gærkvöldi. Til Siglu-
fjarðar komu síðastliðinn sólarhring um 50 skip, með
um 20 þúsund mál.
Búið er að salta á öllu landinu um 17500 tunnur síldar.
Siglufjörður.
Síðan í gær hafa komið til
Ríkisverksmiðjanna 53 skip,
með tæplega 20 þús. mál. Símar
frjettaritari blaðsins á Siglu-
firði í gærkvöldi.
Saltaðar hafa verið síðasta
sólarhring 1497 tunnur. Hafa
nú alls verið saltaðar hjer 13,-
858 tunnur. Á öllu landinu nam
síldarsöltunin 1 gær 17,539
tunnum.
Hjer inni er veður gott, en á
miðunum er ekki veiðiveður.
! Sjómenn telja útlit fyrir veið,
þegar veður batnar. I veðrinu í
gær urðu skip fyrir nokkru
tjóni á nótum, einnig skemdust
bátar nokkuð.
Raufarhöfn.
Frjettaritari blaðsins á Rauf-
arhöfn símaði í gærkveldi, að
allan síðasta sólarhring hafi ver
ið unnið það að löndun. Sagði
hann milli 10 og 15 skip bíða
löndunar þar. í dag var storm-
ur á miðunum, en fjöldi báta
var úti, en veiði mun hafa ver-
ið lítil. Gerðu menn sjer von-
ir um að veður færi batnandi,
því vindur var að ganga til
vesturs.
Til Raufarhafnarverksmiðj-
unnar hafa nú borist rúmlega
100 þús. mál. Á sama tíma 1
fyrra um 64 þús. mál.
Dagverðareyri.
Frjettaritari blaðsins á Rk-
ureyri símbði í gærkveldi, að
s. 1. sólarhring hefðu 9 skip
landað hjá síldarverksmiðj-
unni á Dagvarðareyri, samtals
7.803 málum. Skipin voru þessi:
Narfi frá Hrísey með 1.020 mál,
Fell frá Vestmannaeyjum, .með
1.464. Kxistján frá Akureyri 987
mál, Snæfell, Akureyri með
1.277 mál, Ingólfur frá Kefla-
vík 814 mál, Huginn frá Hafn-
arfirði landaði 528 málum,
færeyiska skipið Svinoy 428
mál, Þór frá Flateyri 718 mál
og Freyja frá Reykjavík, með
567 mál. Síldina fengu skipin
við Rauðunúpa og Sljettu.
Verksmiðjunni hafa nú bor-
ist samtals 24.918 mál. Á sama
tíma í fyrra 1.965 mál. Og til
gamans má geta þess að 26. júlí
1942 höfðu verksmiðjunni bor-
ist 33.758 mál. — H. Vald.
Hjalteyri.
Frjettaritari Mbl. á Hjalteyri
símaði í gærkveldi, að þangað
hefðu komið í . gærdág 7 skip
með um 7.874 mál. Skipin voru
þessi: Ólafur Bjarnason land-
aði 1.435 málum, íslendingur
1.210 málum, Farsæll 870 mál-
um, Rifsnes 686 málum, Haf-
borg 566 málum, Fagriklettur
1.107 málum og Sæfell með rúm
lega 2.000 mál.
Árshátíð Sjái'
stæðisfélaggpna
í Rangárvalia-
sýslu
Á MORGUN halda Sjál.fstæð
isfjelögin í Rangárvallasýslu
hina árlegu hátíð sína.
Hátíðin verður haldin að
Strönd á Rangárvöllum og hefst
kl. 4 e. h. Til alls undirbúnings
hefur verið vel vandað af hálfu
fjelaganna og er ekki að efa að
skemmtunin verður ánægjuleg
og fjölsótt eins og árshátíðir fje
laganna jafnan hafa verið.
Ræður flytja m.a. JóL. Þ. Jós
efsson, alþingismaður. Sungnar
verða gamanvísur, lesið upp og
dansað.
VRKsk þjóðnfftig
í Auslurríki.
AUSTURRÍSKA þingið hef-
ur með miklum meiri hluta at-
kvæða samþykt að þjóðnýta
aðalatvinnuvégina þar í landi.
Samkv. frumv.* verða yerk-
smiðjur, ið.juver og margskon
ar annar stóriðjurekstur tek
inn í hendur ríkisvaldsins. —•
Verði lögunum framfylgt eftir
efni þeirra, þá mun ríkið taka
í sínar hendur margskonar
eignir Þjóðverja í landinu, en
Jíússar hafa áður krafist þessr
að allar eignir Þjóðverja þar í
landi' verði fengnar þeim . í
hendur sem stríðsskaðabætur.
Yfirmaður rússnéska hernáms
liðsins í Austurríki heíur endur
.tekið þessa kröfu í brjefi, serri
hann sendi Viegel, forsætisráð-
herra landsins í dag. Hershöfð-
inginn óskar Austurríkismönn
um til hamingju með þjóðnýt-
inguna, þótt Rússar geti ekki
fallið frá kröfu sinni.
— Reuter.