Morgunblaðið - 12.09.1946, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 12. sept. 1946
Er ekki rétt nð rjnfa þögninn?
ÞAÐ ER MÁSKE einkamál
mitt og öðrum óviðkomandi,
að fyrir fullum 8 árum fann
jég til lasleika. Tók jeg að
þjást af svefnleysi, kendi
þreytu, meira en ástæður
voru til, ef allt hefði verið
eðlilegt. Leið þannig nokkur
tími án þess jeg ljeti á þessu
bera eða leitaði mjer bóta
þessara meina minna. Jeg
fann að þetta ágerðist. Loks
kom þar að, að jeg hafði fyr-
ir alvöru tekið ógleði, mist
starfsþrek, starfsvilja og
fannst jeg vera að verða leið
ur á lífinu. Jeg var í þann
veginn hættur að elska lífið
og er slíkt órækt merki um
hrörnun og fulkomna van-
líðan.
Jeg rjeði af að ieita lækna.
Skoðuðu mig alls fjórir lækn
• ar. Eru þessir menn óefað
ágætlega lærðir í sinni grein,
hafa góðan starfsferil að baki
sjer, standa í fylkingarbrjósti
stjettarbræðra sinna og hafa
allir óskorað álit almennings.
Þeim d^dist ekki að jeg var
vanheill og þurfti að fá bót
meina minna. Þeir vildu mjer
allir vel. Til úrbótar þessu
ástandi mínu beittu þeir með-
alafræði sinni, en öll þeirra
góða viðleitni reyndist sein-
virk, og fann jeg því miður
litla framför hjá mjer. Að
vísú virtist mjer bati meina
minna aðra stundina, en fljótt
vildi síga aftur á ógæfuhlið-
ina. Gekk þetta svona lengi
til.
Vorið 1939 rjeði jeg af að
hætta vinnu, yfirgefa heim-
ili mitt og láta fyrirberast
uppi í sveit yfir sumarið og!
sjá hverju fram yndi. Töldu
læknar, sem með höfðu að
gera, að jeg gæti haft gott
af því, Jeg fann að allveru-
lega var orðið bogið við á-
standið og ekki var eðlilegt
að yfirgefa starf og heimili
og að nokkru leyti að yfir-
gefa eða flýja sjálfan sig, en
hvað um það. Þetta skýldi
ske. Leið sumarið og leitaðist
jeg við að lifa heilsusamlega,
njóta sólar, heitra og kaldra
vatnsbaða o. s. frv. en lítill
var batinn. Kom jeg heim,
er hausta tók, en með Htinn
bata. Leið svo fram til hausts
og vetrar, að ársól lífsins rann
ekki upp fyrir mjer. Hjelt jeg
áfram að leita á fund minna
ágætu lækna, sem vildu mjer
gott gera, en viðreisnin gekk
illa.
Spurði jeg læknana að því
hvað að mjer gengi, en þeir
gáfu mjer lítil og óákveðin
svör. Hafa víst álitið að jeg
hefði ekki gagn af að vita það.
Það ijek þó ekki á tveim tung
um, að jeg var þjáður og nídd-
ist niður fyrir aldur fram. Nú
kom óvænt atvik fyrir. — í
byrjun ársins 1940 lætur Jó-
nas Kristjánsson, læknir á
Sauðárkróki af hjeraðslækn-
isembætti, flytur til Revkja-
víkur, stofnar Náttúrulækn-
ingafjela^ íslands og tekur
til starfa hjer í bæ. Gekk jeg
í fjelagið þegar við stofnun
þess, kynntist Jónasi og bar
mig upp við hann útaf þessu
| vandræða ástandi mínu. —
sHann tjáði mjer, að hjer væri
|um að ræða hrörnunarsjúk-
dóm, sem kæmi af óhollri og
! dauðsoðinni fæðu. Af þessu
jsagði hann að margir þjáð-
'ust að meira og minna ieyti.
^Hjer dygðu meðul lítið. Það
1 eitt væri til úrbóta að breyta
|um lifnaðarháttu. Sýndi hann
mjer fram á, með mÖrgum
jfögrum orðum, hvað jeg
, þyrfti sjálfur að gera til að
öðlast bata og batinn fengist,
ef jeg vildi fylgja ráðum sín
um. Þegar hann hafði iokið
máli sínu fannst mjer jeg vera
orðinn talsverður heilsufræð
ingur. Að minsta kosti var jegj
sannfærður um, að jeg væri
orðinn sá skottulæknir, að
jeg gæti talsvert hjálpað mjer
sjálfur og jeg var staðráðinn
í að bjóða þeim sjúkleik byrg
inn, sem þjáði mig.
Næsta skref mitt var nú að
fara að ráðum Jónasar eftir
því, sem framast var unnt.
Leið ekki á löngu þar til jeg
fann til bata. Jeg tók gleði
mína, starfsþrek og starfs-
vilja og eftir að jeg hafði hlýtt
hans fyrirmælum um tveggja
ára sHeið var jeg orðinn heilsu
góður, og nú er jeg mun yngri
líffræðilega sjeð, en jeg var
fyrir átta árum, enda þótt
jeg sje komin á efri ár.
Gaman hefði verið, að til-
færa hjer leiðbeiningu Jó-
nasar orðrjett, en hjer* er
Sjölugsahnæli
Nokkrir verkamenn
geta fengið atvinnu. — Upplýsingar á skrif-
stofunni. — Ekki svarað í síma.
M. HAMHR
<$>
Þvottasódi
fyrirliggjandi.
|| ~J4\riótján65oii (Jo.
hvorki tími nje rúm til þess.
Hitt vil-jeg segja. Það er gott'
og gagnlegt að tala við Jónas
Kristjánsson. Hann talar von
litlum kjark og traust á því'
máli, sem hjartað skilur. —J
Hann er fyrirferðarlítill og|
látlaus í.háttum, en stærri í
lærdómi og stærstur þó í vilj
anum til hins góða.
Jeg er þeim læknum þakk-
iátur, sem beittu meðala-
tækninni mjer til bata. Meðul
in hafa sjálfsagt átt sinn þátt
í að tefja fyrir veikinni og
varna því að jeg fjelli dýpra
í haf ógæfunnar, en raun
varð á. Þó þykist jeg standa
í mestri þakklætisskuld við
Jónas Kristjánsson, sem beitti;
róttækari aðgerðum studdum
af þekkingu hans í manneld-
is- og naéringarfræði, enda
snerist þá alt við til hins
þráða bata.
Það er sannfæring mín að
Jónas Kristjánsson sje ágæt-
lega lærður manneldis- og
næringafræðingur, og þó jeg
geti ekki rökstutt þessa sann-
færingu fræðilega, þá verður
hún ekki tekin frá mjer, svo
er hún rótgróin. Jónas Krist-
jánsson er þrumuguð nýs
tíma og nýrrar stefnu í heil-
brigðismálum í iandi hjer. —
Hann er sífelt önnum kafinn.
Hann er að leggja hornstein
að framtíðarhöll náttúru-
iækninganna hjer hjá oss. —
Hann lifir ekki í árum held-
ur öldum og hugsar ekki um
að fá dagkaupið að kvöldi.
Hann er langsýnn og fram-
sýnn og í framsýninni fyllir
hann snildarmagn vilja síns
og hugsjóna. Til hans leita
ungir og gamlir, ríkir og fá-
tækir, vitrir og einfaldir og
allir hafa eitthvert gagn af
að finna hann. Hann er gædd
ur mikilli náðargáfu. Sagan
segir, að þar sem meistarinn
frá Nazaret fór, fjekk öll
mannleg eymd mál og gat
komið framfyrir hann með
kveinstafi sína og hann veitti
öilum einhverja úrlausn. ■—
Líkt er farið með Jónas Krist
jánsson, ef rjett er að gáð.
P. Jak.
Arabarlkin andyíg
skipHngu Palestínu
FORSETI sýrlenska þingsins,
sem situr Palestínuráðstefnuna
í London, flutti í dag ræðu, þar
sem hann gerði grein fyrir af-
stöðu Arabaríkjanna til Pal-
estínu. Hann kvað Arabaríkin
sammála um það, að ekki kæmi
til mála, að Palestínu yrði skipt,
til að þjónkast innflytjendum,
sem enga kröfu ættu til lands-
ins. Arabar litu svo á, að hinir
rjettmætu íbúar landsins ættu
að geta lifað frjálsu og öruggu
lífi, en allur Arabaheimurinn
vildi stuðla að rjettlátri lausn
þessa erfiða máls.
Gyðingavandamálið, sagði
sýrlenski forsetinn að væri
vandamál alls heimsins, og sem
slíkt ætti að leysa það. Hann
bætti því við, að Arabaríkin
vildu meir en gjdrnan hafa
samvinnu við Breta, svo lengi,
sem það væri öllum aðilum í
hag. — Reuter.
HELGA ÞORÐARDOTTIR,
Brjánsstöðum, Skeiðum, á
sjötugsafmæli 12. þ. m.
Helga er fædd í Þrándar-
holti, Gnúpverjahreppi, dóttir
Þórðar bónda þar Oddssonar frá
Austurhlíð, Biskupstungum, og
Önnu Pálsdóttur Jónssonaf,
Brúnastöðum, Flóa. Á hún til
merkra að telja i báðar ættir.
(Einn ættfaðir hennar sjera
Sveinbjörn Þórðarson átti 50
börn eftir því sem annálar
herma).
Víst er um það að Helga ber
öll merki góðrar ættgöfgi, við-
mót allt og dagfar á sjer fáa
líka, enda er heimilisbragurinn
eftir því, og munu svo allir
mæla er þangað koma og því
heimili kynnast.
Helga giftist 1903, Jóni Sig-
urðssyni, Teitssonar, bónda í
Skáldabúðum Jónssonar, og
Guðríðar Jónsdóttur bónda í
Haga, Halldórssonar, mesta
ágætismanni, og ólu þau sinn
búskap á Brjánsstöðum. Mann
sinn misti Helga 20. apríl 1934,
eftir ástríkt hjónaband, svo
orð var á gert. Byrjuðu þau
búskap blásnauð, en urðu brátt
rík, það er að segja af börn-
um, því þau urðu 18 talsins auk
fóstursonar. 14 komust upp, 5
stúlkur og 9 piltar, er reynd-
ust þeim gulli betri, því sam-
eiginlega erjuðu þau svo vel
jorðina og gerðu henni til góða,
að frá því að vera grýtt leigu-
jörð, er hún nú i fremstu röð
býla á Skeiðum og þó lengra
væri leitað, búin öllum tækjum
inni sem útifyrir, vel húsuð og
orðin sjálfseignarjörð. Stöðugt
er grætt út og bætt við bú-
stofninn. Búið hefir Helga ann-
ast með börnunum síðan maður
hennar ljest, en næstelsti sonur
hennar, stendur fyrir búinu, og
er henni traustasta stoð, enda
búforkur mikill, hagsýnn mjög
og mesti framfaramaður.
Jeg ætla að segja hjer frá
Smáatviki, því það lýsir vel
hversu Guðmundur metur móð-
ur sína mikils. — Við hjónin
vorum þar í heimsókn sem oft-
ar fyrir nokkrum árum. Þetta
var í byrjun túnasláttar og sól
hátt á lofti. Við sátum úti á
túninu, en systkinin voru í óða
önn að snúa. Alt í einu gerir
hellidembu og Guðm. ræður
fólkinu að taka saman í flug-
hasti, en 1 því kemur móðir
hans út og segir: „Guðmund-
ur minn, jeg held að enn nauð-
synlegra sje að forða ullinni, því
hún má við svo litlu, en hún
var öll útbreidd“. „Æ, held-
urðu það mamma,“ segir Guð-
mundur, því honum var sárara
um heyið. Hugsar sig um augna
blik en hleypur svo í snarkasti
að bjarga ullinni.
Mjer fanst þetta svo fallegt
af honum að það festist mjer
í minni, en slík er öll sambúð
þeirra og systkinanna.
Helga varð fyrir þeirri sorg
að missa dóttur sína Jóhönnu
1938, mestu eftirlætisstúlku um
tvítugt, er var hugljúfi allra.
Kom það sjer þá vel að Helga
er trúarsterk og treystir því
alveg, að þeir látnu lifi og sjeu
með manni eftir sem áður. —
Hún ann sálarrannsóknunum af
heilum hug, er þar vel 'lesin
og telur þar sitt hálfa líf, og
ekki standa börnin þar á móti,
en styrkja hana í því sem öðru
Helga er margfróð um marga
hluti, gamansöm og hnyttin.
Hjartagæsku hennar er við-
brugðið og telur hver sjer það
lán að koma börnum sínum
til hennar og kalla þau öll hana
ömmu, hvort sem þau eru skyld
henni eða ekki, og þar á meðal
dóttir mín.
Rausnarleg og gjöful er
Helga og ætíð er hún veitir, er
sem henni sje stór greiði gerð-
ur, og er eins um alt hennar
fólk.
Jeg er ekki eins viss um neitt
og það að Helga á góða og langa
lífdaga fyrir höndum í orðsins
fylstu merkingu. Því svo góðu
fræi hefir hún sáð um dagana
að uppskeran þar getúr ekki
brugðist.
S. M. Ó.
3x$><^<3><3><$><§x§><$^><§><$><3><$x^<$><$><$x$*^<$><§K§>3>3><$>3><$k$><$><$><^<$><3><$><§><§><$x$><$><§><$^
írá iðnskólanum á Akranesi
IÖnskólinn verður settur þriðjudaginn 1. okt. I
I Ný nemar sendi umsöknir sínar til Magnús-
| ar Jónssonar, Vallarstræti 13, fyrir 25. þ. m.
Skólastjórinn.
Bifreið
I 6 manna Hudson 1937, til sýnis og sölu á |
| „Hótel ísland“-torginu, eftir kl. 1 í dag. —
Tækifæriskaup.
& í
^$*^<£<$,<$><$><^^<§>'$><$>3><$><$x$><$x$><$><^<$x$^<£<$><s><$><$x$><$><^<^<^<$><^<$><$><$><§k$><$><$><^<$><$x$x$><$><$h
Sendisveinar
Vantar tvo sendisveina, nú þegar.
Samband íslenskra samvinnuf jelaga. |
<S>