Morgunblaðið - 22.02.1947, Side 2

Morgunblaðið - 22.02.1947, Side 2
2 MORGUNbLAÐIÐ Laugardagur 22. febr. 1947. ______j_________________- Stórvítaverð vanræksla verðlags- yfirvaldanna í heildsalamálunum IMýr dómur Hæstarjettar * HÆSTIRJETTUR kvað í gær upp dóm í einu hinna svonefndu Tímenningskepni heildsalamála, þ. e. gegn eigendum firmans G. Helgason & Mel- £ted h.f., þeim Páli B. Melsted, Elínu G. Melsted og Pjetri Eggerz Stefánssyni. í undirrjetti fjell dómur þannig, að Elín G. Melsted var sýknuð af ákæru rjettvísinnar •og valdstjórnarinnar, en Páll B. Melsted var dæmdur í 60 þús. kr. sekt og Pjetur E. Stefánsson í 25 þús. kr. sekt. Hin ákærðu voru dæmd til að greiða rikis- sjóði hinn upptæka ólöglega ágóða, kr. 158.684,27, auk máls kostnaðar. Dómsniðurstaðan í Hæstarjetti varð sú, að Páll B. Melsted var dæmdur til að greiða 45, þús. kr. sekt, Pjetur E. Stefáns- son 15 þús. kr. og Elín G. Mel- sted 5 þús. kr. sekt. Ákvæði hjeraðsdóms um upp töku ólöglegs ágóða og greiðslu sakarkostnaðar skuli óröskuð. Ennfremur greiði þau Páll og Elín Melsted skipaðs verjanda þeirra ;í Hæstarjetti, hrl. Einars B. Guðmundssonar 2500 kr. og Pjetur E. Stefánsson skipaðs verjanda síns, Magnúsar Thor- lacius 1000 kr. Allan annan áfrýjunarkostnað. þar með talin málflutningslaun skipaðs sækj- anda, Guttorms Erlendssonar, greiði öll hin ákærðu in solid- um. Onnur úlgáfa af Skíðahandbókinni komin út Önnur útgáfa af Skíðahand- bókinni er nýlega komin út all- mikið aukin frá fyrri útgáfu, er kom út 1940. í þessari handbók eru leik- reglur Skíðasambands Islands um skíðamót. Skiftast þær í þrjá aðalkafla: Almenn ákvæði, skipulag skíðamóta og um leik- ina og starfsmenn þeirra. Þá eru leiðbeiningar og athuga- semdir við ýmsar greinar, reglu gerð um skíðamót íslands, reglu gerð um skíðamót Rvíkur, reglu gerð um skuldbindingu skíða- dómara, skíðadómarar löggiltir af I.S.I., flokkaskipan skíða- manna, Skíðamót Islands 1937 ■*—46 og lög Skíðasambands ís- lands. B. R. UNDANRÁS í tvímennings keppni Bridgcfjelagsins hefur verið spiluð í báðum riðlum. Þessi 12 pör komust í úrsljta- keppnina: Oddur Rögnvalds- son og Jón Þorsteinsson. Þor- steinn. Þorsteinsson og Ragn- ar Jóhannesson. Árni M. Jóns son og Jón Guðmundsson. Einar Þorfinnsson og Hörður Þórðarson. Lárus Karlsson og; Benedikt Jóhannesson. Jón Þorsteinsson og Sveinbjörn Angantýsson. Guðmundur Guðmundsson og Gunnar Guð mundsson. Brynjólfur Stefáns son og Stefán Stefánsson. Örn Guðmundsson og Sigurhjört- ur P.jeturssön. Guðmundur Ólafsson og Hclgi Guðmunds- son. Gunnar Möller og Zoph- ónías Pjetursson og Stefán Þ. Guðmundsson og Edwald Berndsen. Á sunnuda,ginn kemur held ur keppnjn áfram. Einnig verður spflað n.k. mánudags- kvöld. Spilað verður í Breið- firðingabúð. Búist er við að kcppninni Ijúki sunnudaginn 2. mars. n.k. Um ákærðu Elínu G. Mel- sted. sem undirrjettur sýknaði, segir í foi’sendum dóms Hæsta- rjettar, að hún hafi verið ein sr stjórnarmönnum h.f. G. Helgason & Meisted. „Verður að gera þær kröfur til hennar, að hún aflaði' sjer vitneskju um rekstur fjelagsins í höfuðdrátt- um“, segir í foi’sendunum. — „Átti henni því að vera kunn- ugt um verðlagsbrot fjelagsins, sem fi’amið hafði verið að stað- aldxi um langan tíma“. Hæstii’jettur lækkaði veru- lega sekt hinna ákærðu frá undirrjettardómnum. Um þetta segir svo í forsendum dómsins: „Það ber að meta hinum á- kærðu til refsilækkunar, að verðlagsyfirvöld, er fengu vitn- eskju um anmarka á verðlagn- ingu vara af hálfu h.f. G. Helga son & Melsted síðsumars 1943, virðist ekki hafa Iátið málið á neinn hátf til sín taka gagnvart fyrirsvarsmönnum fjelagsins. fyr en í árslok 1944, er opin- berar rannsóknar var krafist“. Þessi umsögn Hæstarjettar er mjög athyglisverð. — Og spyrja mætti, hvort þeir trún- aðai’menn ríkisins, sem hjer eiga hlut að máli, hafi ekki með hirðuleysi sínu gerst brotlegir við landslög. Er hægt að gapga fram hjá umsögn Hæstarjettar um þetta atriði? FLEÍRI FRAKKAR í VERKFALLI PARÍS: — Franskir bensín- afgreiðslumenn hafa gert verk fall og krefjast kauphækkun- ar. Pi’entaraverkfallinu í Frakk landl er ekki enn lokið. i\leðri deild samþykkir að veita ll mönnum ríkisborgararjett í GÆR fór fram í neðri deild atkvæðagreiðsla um frumvarp- ið um veitingu ríkisborgara- rjettar, ásamt breytingartillög- um við það, sem fyrir lágu. Meiri hl. allsherjarnefndar lagði til að 16 mönnum 'yrði veittur ríkisborgai’arjettur, og voru þeir allir samþyktir sam- hljóða. Auk þess voru 5 menn samþyktir sem minni hl. nefnd- arinnar hafði lagt til og einn, sem St. Jóh. Stefánsson flutti tillögu um. Meirihlutinn hafði tekið upp þá reglu að veita þeim einungis ríkisborgararjett, sem annað hvort eru af íslenskum ættum eða hafa dvalið hjer .á landi frá barnæsku. Minnihl. í nefndinni (komm- únistinn) vildi ekki fylgja þess ari reglu og bar fram breyting- artillögu um að veita nokkrum mönnum í viðbót ísl. í’íkisborg- ararjett. Þessir menn voru í gær sam- þyktir við 2. umr. málsins: Emil Als, námsmaður, fæddur í Danmörku. Ásgeir Ingimundarson, vegg- fóðrari, fæddur á Islandi. Baldur Arent Nielsen-Edvin, listmálari, fæddur í Danmörku. Bendt Dahlblern Bendtsent, verslunarm., fæddur í Dan- mörku. Björn Malmfred Björnsson, skrifstofum., fæddur í Noregi. Steinn Jónasson Dofri, ætt- fræðingur, fæddur á íslandi. Hans, Joachim, Gunnar, Theo dór, Magnus, Hinz, vjelvirkja- nemi, fæddur á Islandi. Robert John Jack, settur sóknarprestur, fæddur í Skot- landi. Laufey Einarsdóttir, Jedli- chova, ekkja, fædd á íslandi. Jóhann Páll Björnsson, lax- veiðimaður, fæddur á íslandi. Jóhann Stefán Thorarensen, fyrv. bóndi, f. á íslandi. Bent Bjarno Jörgensen, versl unarm., f. í Danmörku. Katrín Ólafsdóttir Mixa, frú, f. á íslandi. Lárus Sigurjónsson, skáld, f. á íslandi. Gabriel Syre, verkamaður, f. á Islandi. Ingibjörg Einarsdóttir, Vest- mann, iðnmær, f. í Kanada. Robert Louis Eugen Abra- ham, söngstjóri, f. í Þýskalandi. Albert. Gerhard Ferdinand Klahn, hljómsveitarstjóri, f. í Þýskalandi. Albert Volker Lindemann, for- stöðumaður í Varmahlíð í Skagafirði, f. í Þýskalandi. Ole Olsen, verkamaður, f. í Færeyjum. Aage Laurits Petersen, full- trúi, f. í Danmörku. Ernst Wilhelm Beckmann, myndskurðarmaður, f. í Þýska- landi. . Var frv. síðan afgreitt til 3. umræðu. Yanoisky-mótið heist á morgnn -------- ■ i 6 bestu skákmenn bæjarins taka þátt í því ■ FYRSTA millilandakepnin í skák, sem tefld hefir verið hjen á landi, hefst hjer í bænum á morgun, sunnudag. Nokkrir bestu skákmenn landsins keppa við Yanofsky skákmeistara Kanada og fyrrum Nýsjálandsmeistarann, Wade. Þeir fjelagar komu hingað í gærmorgun með leiguflugvjel-. inni frá Prestvík. í gær ræddu blaðamenn við skákmeistarana, að viðstöddum Árna Snævarr, formanni Skák sambandsins og Guðmundi S. Guðmundssyni. „Á morgun hefst Yanofsky- I skákmótið, eins og skákmenn i bæjarins kalla þetta fyrirhug- aða mót“, sagði Árni Snævarr. — Þátttakendur verða als 8. Tefldar verða 7 umferðir. Þátt takendur eru Ásmundur Ás- geirsson, Guðmundur S. Guð- mundsson, Guðmundur Ágústs son, Baldur Möller, Eggert Gilfer og Árni Snævarr og þeir Wade og Yanofsky. Hver umferð keppninnar er bundið við 4 klst., 36 leiki á hverju borði á tveim tímum. Skákir þeirra Yanofsky og Wade verða sýndar»öllum við- stöddum á sýningarborði. Fyrsta umferð mótsins fer fram í samkomusal nýju mjólk urstöðvarinnar og hefst kl. 1.30. Önnur umferð verður tefld að Röðli og hefst kl. 7.45 á mánudagskvöld. Á þriðjudag verða biðskákir úr fyrstu og annari umferð tefldar. Á mið- vikudagskvöld verður þriðja umferð tefld einnig á Röðli og hefst hún kl. 8. Fjórða um- ferð verður tefld sunnud. 2. mars í Mjólkurstöðvarsalnum og hefst hún kl. 1.30 síðd. — Fimta umferð á mánudagskv. kl. 8 í Röðli. Á þriðjudag verða biðskákir úr fjórðu og fimtu umferð tefldar. Sjötta umferð verður einnig tefld í Röðli á miðvikudagskv. kl. 8. — Sjö- unda og úrslitaumferðin hef- ur ekki enn verið ákveðin. Þá hefir verið ákveðið, að þeir Yanofsky og Wade tefli fjölskákir hjer í Reykjavík og nágrenni. Gert er ráð fyrir að þeir dvelji hjer í alt að þriggja vikna tíma. Yanofsky. Fullu nafni heitir skákmeist ari Kanada Daniel Abraham Yanofsky. Hann er 21 árs að aldri. Níu ára gamall vann hann skákmeistaratitil drengja í Kanada og 16 ára varð hann skákmeistari Kanada. Næsta ár varð hann Norður Ameríku meistari. ■Yanofsky var einn af kepp- en<Jum Kanada á alþjóðaskák- mótinu í Buenos Aires árið 1939. Þá tefldi hann við ís- lending í fyrsta skifti. Það var Ásmundur Ásgeirsson. Yan- ofsky vann þá skák. Þá var hann 14 ára að aldri. í sumar hefur hann tekið þátt í fimm alþjóðamótum. Á Spáni, í Sviss, Hollandi, Dan mörku og á Hastingsmótinu í Englandi og. nú hjer í Reykja- vík. Yanofsky ljet í ljós þá skoð- un sína, að Guðm. S. Guð- mundsson hefði verið mjög glæsilegur skákmaður á Hast- ingsmótinu og sýnt mikla leikni. — Jeg tel árangur Guð mundar ekki vera að þakka neinni sjerstakri hepni, held- ur þvert á móti. Hinu góða sæti náði Guðmundur með öruggri taflmensku, sagði Yanofsky. Wade. , Robert Wade heitir fyrrum Ný-Sjálandsmeistarinn. Hanrs er nú 25 ára og er fædur þar, Hann var skákmeistari þar til í janúar s. 1., er kepni fór fram um meistaratitilinn en þá var hann hjer í Evrópu og gat því - ekki varið hann. Hann hefur tekið þátt í tveim alþjóðakepn- um hjer í Evrópu í sumar. Fyrst í Englandi. og síðar á Spáni. Þeir fjelagar eru á leið til Kanada og munu fara hjeðan um New York með skipi. — Handrifin Framh. af bls. 1 er hægt að hafa meiri not af handritunum fyrir vísindin í Reykjavík en í Kaupmanna- höfn. „Þróun flugtækninnar veldur því, að erlendir vísindamenrs eiga auðvelt með að ferðast til Reykjavíkur. „Danir eiga að halda eftir ljós myndum af handritunum. „Þegar borin eru saman rök. Islendinga og Dana í þessu máli þá hlýtur óhlutdrægur lesandi að dæma þannig, að íslendingar berjist fyrir máli, sem hefir mikla vísindaíega þýðingu og mikinn þjóðernislegan og sið- ferðilegan stuðning. „Með því að afhenda hand- ritin veitum við hinum unga. Háskóla íslands og gömlum vís- indum verðugan sóma og þakk- læti fyrir þá fjársjóði, sem mentalíf Islendinga hefir veitfc öllum heiminum". —Páll. PÓLSK VERSLUNARNEFNB LONDON: — Pólsk verslun- arnefnd hefur dvalið í Bret- landi að undanförnu til við- ræðna við bresku stjórnipa um pólsk-bresk viðskifti. Þá hafa verslunarnefndir frá Póllandi einnig verið í Svíþjóð og Suð- ur-Ameríku. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.