Morgunblaðið - 29.04.1947, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.04.1947, Qupperneq 1
16 síður 34. árgangui 94. tbl. — Þriðjudagur 29. apríl 1947 tiafoldarprentsmiðj a h.f. Hafnarverbmenn í verkfalii í Londofi oy Glasyow London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. BRESKA atvinnumálaráðuneytið skoraði í kvöld á þá 14,000 hafnarverkamenn, sem eru í verkfalli í London og Glasgow, að taka upp vinnu á ný. í áskoruninni er meðal annars komist svo að orði, að verkfallið geti bakað þjóð- inni mikið tjón og aukið erfiði, sjerstaklega hvað mat- vælabirgðum landsmanna viðvíkur. -$> SAMKVÆMT skýrslu, sem landbúnaðarráðuneyti Banda- rikjanna hefir birt, hjeidu Bandaríkjamenn áfram tvo fyrstu mánuði þessa árs að ílytja út næstum jafn mikið af matx'ælum og 194,6. Matvæli þau, sem flutt voru út í janúar og febrúar, eru virt á 398 miljón dollara. Á sama tíma í fyrra var and- virði útfluttra matvæla 440 miljónir dollara. Hinni bð&nullar- framleiðsla Washington. LANDBÚNAÐARRÁÐU NEYTI Bandaríkjanna hefur tilkynt, að baðmullarfram- leiðslan þar í landi s.l. ár hafi verið minni en nokkru sinni síðan 1921. Framleiðslan 1946 var 8,640,000 ballar, mun minni en meðalframleiðsla á árunum 1935—44. f tilkynningu landbúnaðar- ráðuneytisins segir, að megin ástæðan fyrir framleiðslu- minkuninni hafi verið slæm veðurskilyrði og það, að færri ekrur hafi að þessu sinni ver ið teknar til baðmullarfram- leiðslu en áður. 1937 framleiðslan var 18,946 Alvarlegar afleiðingar. „Verkfallið í Glasgow hefir þegar haft í för með sjer óbæt- anlegt tjón“, segir ejmíremur. „Breiðist vinnustöðvunin út til annara hafna, mun það hafa al- varlegar aflei'ðingar fyrir við- skifti okkar“. í London hafði í dc!g verið lögð niður vinna í 76 skipum. Tuttugu og 7 skipa þessara eru hlaðin matvælum. Samúðarverkfall. Verkfalli hafnarverkamanna í London er gert í samúðarskyni við starfsbræður þeirra í Glas- gow, sen^ átt hafa'í verkfalli að undanförnu. Fyrir Lundúna- verkfallinu standa tvö tiltölu- lega smá verklýðsfjelög, en stærri fjelög hafa lagt að með- limum sínum að halda vinnu áfram. Forseii Isiands feer inn K.hafnar FORSETI ÍSLANDS lagði af stað kl. 11 f. h. í dag (mánu- dag) frá Keflavíkurflugvellin- um áleiðis til Kaupmannahafn- ar til þess að vera viðstaddur útför Kristjáns -tíunda, segir í fréttatilkjmningu frá útanrík- isráðuneytinu. 1 fylgd með honum var Agn- ar Kl. Jónsson skrifstofustjóri. Forseíafrúin, forsætisráð- herra og forsetaritari fylgdu forseta á flugvöllinn. ic Brela vanlar slál London í gærkvöldi. SIR Archibald Forbes, for- maður breska járn- og stál- ráðsins, sagði blaðamönnum í dag, að Bretar gerðu allt, sem þeir gætu, til að fá keypt stál utanlands, sökum þess -að kola- skorturinn í ár hefði komið í veg fyrir það, að eins mikið stál yrði framleitt heima fyrir og ætlast hafði verið til. Bretar framleiddu s. 1. ár um 12^4 miljón tonna af stáli. Flugvél sú, er flutti forseta Islands og Agnar Kl. Jónsson til Danmerkur, lenti kl. 5.04 í gærdag á Kastrupílugvelli við Kaupmannahöfn. Hafði flugvélin þvi verið sex klukku- stundir á leiðinni. I fjarveru forseta Islands fara með forsetavald í sam- einingu forsætisráðherra, for- seti sameinaðs Alþingis og for- seti Hæstaréttar. Forseti Sþ. stýrir fundum þeirra. Er á- greiningur veröur þeirra i milli, ræður meiri hluti. HÓFST GÆR Nýr sundbúningur í Suður-heimskautsleiðangri Byrds, var gerð tilraun með nýja tegund af sundbúning, sem nota á við björgunarsíörf í íshöfum. ost oð til órekstra omi i Moreti B«ndöríkjaþlngmaður um sambúð Bandarikjamanna og Rússa Washington í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. CHARLES Eaton, formaður utanríkismálanefndar full- trúadeildar Bandaríkjaþings, sagði hjer í Washington í dag, að hann fengi ekki sjeð hvernig Bandaríkin gætu komist hjá alvarlegum árekstri við Rússa í Kóreu. Eaton sagði þetta, er hann ^ flutti ræðu fyrir einni af nefnd- um fulltrúadeildarinnar. „I Kóreu“, sagði Eaton, „eig- um við við nákvæmlega sama vandamálið að stríða og í Grikk landi og Tyrklandi. Banda- ríkjamenn og Rússar hafa ekki I aðeins skift landinu í tvo hluta, heldur hafa kommúnistar allt ] frá upphafi haft í frammi á- : róður í bandaríska hlutanum. Hvernig við komust hjá alvar- legum árekstri við Rússa, fæ jeg ekki sjeð“. KVIKNAR I JÁRNBKAUTAR- I.EST LONDON: — Fyrir skömmu sið- an kviknaði i járnbrautarlest, sem störld var i iarðgöngum á leiðinni ! milli Osaka og Nara í Japan. Tutt- ugu og átta manns létu lifið og 81 særðust. Fjérar miljónir kvikfjenaðai dráp- usl í Bretlandi ÁÆTLAÐ er nú, að um fjórar miljónir kvikfénaðar hafi drepist í óveðrum þeim, er gengu yfir Bretland fyrir skömmu síðan. Er þetta yfir 20% af kvikfjárstofni lands- ins. Tom Williams landbúnaðar- málaráðherra, hefur tjáð blaða- mönnum, að þetta sé versta áfall í sögu bresks landbúnað- ar. Hefir stjórnin á prjónun- um margskonar áform um að- stoð til handa bændum. — Það á að ræða Palestínumálið AUKAÞING sameinuðu þjóðanna kom saman til fyrsta fundar síns í New York í dag, til að ræða til- lögu Breta um skipun rann- sóknarnefndar í Palestínu- málinu. Fyrsta verk fund- arins var að kjósa nýjan for seta og varð leiðtogi sendi- nefndar Brasilíu fyrir val- inu'. Hann kemur í staðinn fyrir Spaak, utanríkisráðh. Belgíu. 55. meðlima’þjóðin. Fyrsta verk hins nýkjörna forseta var að óska fulltrúa Síam velkominn á þingið, en Síam er 55. þióðin, sem ger- ist meðlimur í sameinuðu þjóð unum. Að þessu loknu voru fulltrú ar kosnir í dagskrárnefnd, en hún mun meðal annars taka til athugunar, hvort áukaþinginu beri að taka til meðferðar þá kröfu Arabaríkjanna fimm, að Bretar láti þegar í stað af um- boðsstjórn í Pálestínu. Þá mun nefndin og ræða kröfur ým- issa Gyðingastofnana um að fá að sendá fulltrúa á þingið. Bandarík j ablöðin. Dagblöðin í Bandaríkjunum geta setnir.gar fundarins með stórum fyrirsögnum. Virðist svo vera, sem Gyðingar eigi töluverðu fylgi að fagna með- al þeirra. Lýsa sum blöðin þvx yfir, að þau sjeu því fylgjandi, að Gyðingar fái þjóðarheimili í Palestínu, og skora á Truman forseta að beita sjer fyrir þessu. Enn önnur blöð komast að orði á þá leið, að Palestínu- málið sje orðið svo flókið, -að það hljóti að vera aðal úrlausn- arefni sameinuðu þjóðana. Einkaflugvjel hrap- ar við Kaupmanna höfn Frá fréttaritara voru-m. Kaupmannahöfn í gær. ÞAÐ SLYS vildi til við Kaupmannahöfn í gærdag, að einkaflugvél með þrem mönn- um hrapaði til jarðar og fórust allir, sem i vjelinni voru. Um orsakir að slysinu er ekki vitað með vissu, en talið að það geti haft stafað af mis- tökum flugmannsins, sem vjel- ' inni stjórnaði. — Páll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.