Morgunblaðið - 29.04.1947, Page 2

Morgunblaðið - 29.04.1947, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 29. apríl 19471 Samkvæmi umdsm- isþings Róarý- , klúbbanna EINS og skýrt var frá hjer í biaðinu var síðustu daga vik- unnar seni leið háð hjer í bæn um fyrsta umdæmisþing Rót- arýklúbbanna á íslandi. Var þingið haldið í Sjálfstæðishús- inu. A laugardag var efnt til mannfagnaðar í sambandi við þingið, og ýmsum gestum boð ið. Vilhjálmur Þór, forseti Reykjavíkurklúbbsins, stjórn- aði samkomunni og bauð gesti velkomna. Hann ávarpaði sjer staklega erindreka Aiþjóða- sambands Rótary, de Cock- Buning, sem mættur var á þinginu ásamt frú sinni. Umdæmisforseti, dr. Hélgi Tómasson, flutti því næst á- varp. Hann gaf yfirlit um starf semi Rótaryklúbbanna á land- inu, en þeir ei'u alls sjö. Verk- efr.in, sem klúbbarnir hafa tek ið fyrir, eru mörg. Dr. Helgi mintist einnig á Alþjóðasam- band Rótary og þá þýðingu sem það hefði fyrir ísland, að vera aðili í þeim samtökum. Þgssu næst flutti de Cock- Buning; erindreki Alþjóðasam- bands Rótary ávarp og kveðju frá forseta sambandsins. De Cock-Buning er Hollendingur. Hann lýsti því hvernig Rótary- klúbbarnir í Hollandi störfuðu á stríðsárunum, en eitt fyrsta verk Gestapó eftir innrás Þjóð verja var að bannfæra Rótary. En Rótaryfjelagar Ijetu þetta engin áhrif á sig fá. Þeir stör'f- uðu áfram, en leynilega. Og nú væru ýmsir Rótary-fjelag- ar mikils ráðandi í Hollandi. Rótary-hreyfingin hefði áreið- anlega mikið verkefni að vinna eins og ástatt væri í heimin- um nú, þar sem alt logaði í tortryggni og sundrung. En eitt aðal-stefnúskráratriði Rótary væri, að skapa bróður- þel manna og þjóða í milli. Á laugardagskvöld Var efnt til miðdegisverðar. Þar fluttu m. a. ávörp fulltrúar frá Rót- ary-klúbbunum utan af landi. De Cock-Buning ávarpaði einn ig samkomuna og færði um- dæmisþinginu að gjöf hollensk an fána. Dr. Helgi Tómasson þakkaði. Að loknu borðhaldi var stig- inn dans fram eftir nóttu. 100 Kínverjar far- asf í lofíárás London í gær. FREGNIR frá Nanking lierma að kínverska Stjórnin hafi borið fram mótmæli við frönsku stjórnina, vegna þess að yfir 100 kínverskir borgar ar liafi látið lífið í- sprengjuár ás í Indo-Kína. Atburður þessi mun hafa skeð í þorpi nokkru um 70 míl um fyrir sunnan Saigon. Held ur franska stjórnin því fram, þð loftárásin hafi verið gerð jtil að koma í veg fyrir það, þð miklar birgðir af skotfær þm fjellu í hendur uppreisn armönnum. — Reuter. 000 ballar. '•u«innni»iwnuniiuwa«i>iwm Gísli Sveinsson: Ragnar Lundborg sjötugur EINN mesti tryggðavinur íslands erlendis og málsvari I íslendinga í sjálfstæðisbar- áttu þeirra um tugi ára, Sví- inn Ragnar Lundborg dr. jur., verður sjötugur í dag. j Ragnar Lundborg er fædd- ur 29. apríl 1877, af góðum 1 ættum sænskum. Var faðir hans yfirmaður í her Svía og 1 gerðist einnig framkvæmda- maður í • ýmislegum stórræð- um. Er Ragnar hafði lokið I menntaskólanámi, stundaði hann lög- og stjórnfræði í i háskólanum í Stockhólmi, en tók jafnframt að gefa sig við I blaðamennsku. Þetta varð iil þess, hvors tveggja, að hann varð lærður í stjórnlagavís- indum og um liríð kunnur í blaðaheiminum sem ritstjúri og málafylgjumaður á iands- málasviðinu. Ragnar Luftdborg hefur um ævina samið og gefið út ýms merkileg rit um ríkis- og þjóðrjettarleg efni, bæði á sænsku og þýsku (Uppsölum, Stockhólmi og Berlín) og eru þau rit eigi veigaminnst, er fjalla um ríkisrjettindi ís- lands, því að hann tók snemma ástfóstri við land vort, sögu þess og þjóðrjett- indi, og reyndist þar örugg- ust hjálparhella, þegar sigl- ingin virtist erfiðust, eins og t.d. um 1908, þá er einnig Norðmaðurinn prófessor N. Mathias Gjelsvik hljóp drengilega undir bagga með íslendingum um rjett þeirra, en hann var kunnur fræði- maður í lögum. Ragnar Lund borg var um árabil handgeng inn frægum stjórnlaga- og þjóðrjettarfræðingum heima og erlendis, svo sem prófessor unum S. J. Boethius í Upp- sölum og Fr. von Liszt og G. Jellineck í Berlín og Heidel- berg. — Iíelstu rit Lund- borgs, er varða ísland og þjóðrjett þess, má telja Is- lands staatsrechtliche Stell- ung (Berlín 1908) og Islands völkerrechtliche Stellung (Berlín-Grunewald 1934), auk greinargóðra kafla í öðr- um stjórnfræðiritum um rjettarstöðu þess; svo og Is- land i forntid och nutid (Stockholm 1926). Yfirléitt var Ragnar Lund- borg óþreytandi í að halda fram fullveldisrjetti íslensku þjóðarinnar, hvar sem hann kom við sögu eða ritaði um slík mál, og urðu rit hans víða kunn. Má því óhikað télja hann einn af brautryðj- öndum fyrir sjálfstæðissigri vorum meðal annara þjóða og á hann hinar mestu þakkir skilið af hálfu íslendinga, sem munu, ef þeir gleyma eigi sinni eigin frelsisbaráttu, geyma nafn hans í heiðri meðal erlendra vildarvina þjóðarinnar, Mörgum íslendingum hefur þótt gott að kynnast Raghari Lundborg. Hann er maður o ) Ragnar Lundborg. glæsilegur á velli og fyrir- mannlegur og þó kurteis og alúðlegur. — Ilann heimsótti ísland 1919 ásamt konu sinni og tveim dætrum þeirra, en árinu áður, 1918, hafði bjóð- in, eins og kunnugt er, hlotið viðurkenningu fullveldis síns, sem honum var óblandið fagnaðarefni. — Eins og nærri má geta, hefur hann vafalaust síðar reynt marg- víslegt, sem sumt var með- streymt, en annað and- streymt, en þegar jeg löngu seinna, eða 1935, heimsótti hann í Stockholmi, mátti segja, að hann hafi lítt látið það á sig fá í framgöngu allri. Jeg flyt honum nú í fjar- lægðinni bestu heillaóskir á þessu merkisafmæli hans og bið honum blessunar á ókomn um ævidögum. KR vann drengja- hlaup Ármanns DRENGJAHLAUP Ármanns fór fram s. 1. sunnudag. Úr- slit urðu þau, að KR vann báð- ar sveitakeppnir hlaupsins. Þriggja manna sveitina með 12 stigum en fimm manna sveit- ina með 35 stigum. — Fyrstur í hlaupinu varð Snæbjörn Jóns son, Á. 35 drengir lögðu af stað í hlaupið, en níu þeirra heltust úr lestinni og komu ekki að marki. Tíu fyrstu menn urðu þessir: — 1. Snæbjörn Jónsson, Á, 7.29,6 mín. 2. Ingi Þorsteins- son, KR, 7.32,2 mín., 3. Einar H. Einarsson, KR, 7.33,0 mín., 4. Elínberg Konráðsson, Á, 5. Bjarni Guðnason, Vík., 6. Þórð ur Þorvarðsson, ÍR, 7. Magnús Jónsson, KR, 8. Jakob Zophoní- asson, ÍR, 9. Ásgeir Eyjólfsson, Á, og 10. Þórður Ólafsson, Á. I þriggja-manna sveitakeppn inni luku átta sveitir keppn- inni. Fyrst var A-sveit KR með 12 stig, önnur A-sveit Ármanns með 14 stig og þriðja A-sveit ÍR með 27 stig. — í fimm manná sveitakeppninni vann KR með 35 stigum, Ármann hlaut 45 stig og ÍR 53 stig. KR vann WaSfers- keppnina ÚRSLITALEIKUR Walters- keppninnar, sem fram fór s. 1. sunnudag, bar þess greinileg merki, að mikið vantar enn á að knattspýrnumenn okkar ísjeu komnir í góða þjálfun, enda ef til vill ekki við því að búast svona snemma sumars. Úrslit leiksins urðu þau, að KR vann Val með 1:0. Voru það ekki ósanngjörn úrslit, þótt lið- in væru mjög svipuð að styrk- léika og tilviljanir einar virt- ust æðioft ráða. Óli B. Jónsson skoraði fyrir KR, og gerði það með snöggu og óverjandi skoti, er 20 mínútur voru eftir af leiknum, en annars var lítið af hættulegum markskotum. Ekkert er hægt að spá um knattspyrnu sumarsins af þess- um leik, þar sem útiæfingar knattspyrnumanna eru tiltölu- lega nýbyrjaðar. Völlurinn var ekki sem best- ur, en veður gott og áhorfend- ur mjög margir. — Þ. Söngskemtun Guðna Albertssonar GUÐNI ALBERTSSON hjelt söngskemmtun í Gamla Bíó í vikunni sem leið. Á söngskránni voru flest lögin íslensk, en einnig' nokkur útlend. Guðni er það sem kallað er „náttúrusöngvari“. Ekki ber þó að líta þannig á, að slíkir söngv arar sjeu náttúrulegri en aðrir söngmenn, en það sem átt er við, er, að þeir sjeu með öllu ólærðir, og það gildir um Guðna, eins og berlega kom fram á þessari söngskemmtun. Það verður ekki um það deilt, að hann hefði átt að bíða með að koma opinberlega fram þar til hann hefir lært í nokkur ár. Því að sje alvara á bak við hjá söngvaranum, sem jeg dreg varla í efa, þá er ekki annað fyrir hendi en að leggja á sig langt erfiði til að ná settu marki. Jeg tel ástæðulaust að fara hjer út í einstök atriði á þessu stigi málsins, því hjer var um mjög frumstæða hluti að ræða. En bæta vil jeg því við, að Guðni hefir hlotið mikla rödd í vöggugjöf, og hefði ef- laust mátt gera mikið úr henni með góðri þjálfun. Carl Billich Ijek ágætlega undir. P. í. Heimsmel í 3x100 m sundi kvenna Á ALÞ J ÓÐ ASUNDMÓTI, sem haldið var í Arnheim í Hollandi í gærkveldi settu Hollendingar heimsmet x 3x100 m. sundi kvenna. Tími sveitarinnar var 3.42,4 mín. Á þessu sama móti vann Svíinn Loefgren 100 m bringu sund karla á 1.13,0 mín. — Hollendingurinn Koster vann 100 m. ski-iðsund karla á 1.02 ,6 mín. — 100 m. sla’iðsund kvenna vann van Schaich frá Hollandi á 1.10,5 mín. — Hollendingurinn Bonte vann 200 m. bringusund karla á 2.49,8 mín. — Reuter. Maður slasasl í Hvallirði Á SUNNUDAG vildi þa3 slys til uppi i Hvalfirði, að maður féll af bíl og slasaðist. Maður þessi heitir Jórt Marlcússon, til heimilis í Laug- arneslcamp 10. Hafði hantt fengið að sitja af-tan til á ó- yfirbyggðum bíl, sem Hval- veiðifélagið nýja á. Þegar ek- ið hafði verið góðan spöl, tókul menn, sem á bílnum voru, eftir því, að Jón var horfinn, Sneru þeir þá við og fundu hann liggjandi á götunni. Var Jón fluttur að Ferstiklu, eii þangað var hann sóttur í sjúkrabíl og fluttur heim til sín. Eldhúsumræðumar í gærkvöldi ELDHUSUMRÆÐUR hóf- ust á Alþingi í gærkvöldi. Af hálfu flokkanna töluðu þessir og i þessari röð: Brynjólfur Bjarnason (Sósíalistaflokkur), Stefán Jóh. Stefánsson (Al- þýðuflokkur), Jóhann Þ. .Tó- sefsson (Sjálfstæðisflokkur), og Eysteinn Jónsson (Framsokn- arflokkur). Fjármálaráðherra, Jóhamí* Þ. Jósefsson, gaf fróðlegt yfir- lit um afkomu ríkissjóðs á s. L ári og það sem af er þessa árs, Er ræða hans birt i heild n öðrum stað í blaðinu. Eldhúsumræðurnar halda á- fram í kvöld. 10 menn sklpaðir í landprófsnefnd MENTAMÁLARÁÐUNEYT! IÐ hefir nýlega skipað eftir- talda tíu menn í landprófs- nefnd til eins árs: Dr. Brodda Jóhannesson^ formann, ólaf Briem magisti er, Steingrím Pálsson magist er, Sveinbjörn Sigurjónssort magister, Guðmund Kjartans, son mag.sc., Jón Magnússoií fil. kand., Bjarna Jósefssoxt efnafræðing, ólaf Hanssoni mentaskólakennara, Steinþóc Guðmundsson kennara og Ágúst Sigurðsson magister. Innanfjelagsmóf ÍP. INNANFJELAGS-SKÍÐA- MÓT ÍR fór fram að Kolvið- arhóli s. 1. sunnudag. Verðué var a'gætt, en færi nokkuc? blautt. Guðmundur Samúels- son varð fR*-meistari í stökkl 1947, Guðni Sigfússon í svigi karla og Andrea Oddsdóttir j I svigi kvenna. Helstu úrslit urðu annarg þessi: Stökk karla: — 1. Guðnú Samúelsson 222,0 stig; 2< Magnús Björnsson 220,2 stig og 3. Ragnar ThorvaldsexS 154,8 stig. Svig karla: — 1. Guðni Sig- fússon 66,4 sek., 2. Grimur Sveinsson 68,7 sek. og 3. Haf- steinn Þorgeirsson 72,4 sek. —■ Bestum brautartíma, 31,2 sek.j náði Gísli Kristjánsson. Svig kvenna: ■—• Andreá Oddsdóttir 48,7 sek., 2. Elísai Kristjánsdóttir‘55,7 sek. og cju Nití Illíðdal 60,8 sek.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.