Morgunblaðið - 29.04.1947, Page 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
Bjart-
LYGNIR í dag.
viðri. —
_ELDHÚSRÆÐA Jóhanns I*.
Jósefssonaír, fjármálaráðLerra,
birtist í heild á bls. 9, 10 og 11.
Þriðjudagur 29. apríl 1947
Sami9 um viðskifti
miili Svíþjóðar og
Islands
EFTIRTALDIR menn hafa
verið skipaðir í nefnd til að
ræða við samninganefnd frá
Sviþjóð um viðskipti milli ís-
lands og Svíþjóðar:
Finnur Jónsson, alþm, og er
hann formaður nefndarinnar,
Ásgeir Sigurðsson, skipstjóri,
Eggert Kristjánsson, stórkaup-
maður, Jón L. Þórðarson for-
stjói i. Rjartan Thors, forstjóri,
Oddur Gitðjónssori, formaður
Viðskiptaráðs, og Vilhjálmur
Þór. forstjóri.
Ritari uefndarinnar er Þór-
hallur Ásgeirsson fulltrúi í út-
anríkisrá ðuney tinu.
Fofmaður sænsku nefndar-
innar er Otto Johansson, sendi-
herra, en aðrir nefndarmenn
eru:
fil: dr. G. Widell, Statens
livsmedelskommision, K. B. Ut-
bult, þingmaður, S. Cornelius-
son. l'ástfiskarnas Centralför-
bund, fil. dr. A. Molander,
Islandsfiskarnar Förening, G.
Et. von Matern, Sveriges Sill-
cch fiskimportförening, Nv-
blad, Statens livsmedelskom-
mission.
Charles de Gaulle heldur ræðu
ikl í bragga
vesiur í hæ
I GÆRDAG kom upp eldur
i geymslu í bragga vestur við
Víðimel og. er talið að kveikt
hafi verið í honum. Slökkvi-
liðinu var gert aðvart um eld-
inn klukkan langt gengin eitt.
Er komið var á vettvang var
eldurinn orðinn talsvert magn-
aður, en slökkviliðinu tókst
fljótlega að ráða niðurlögum
hans.
I þessum skúr var talsvert
mikið af mótatimbri og mun
það hafa orðið fyrir nokkrum
skemdum.
Charles de Gaulle hefir á ný Iátið á sjer bera með því að stofna flokk manna í Frakklandi,
sem hefir það á stefnuskrá sinni að vinna gegn þjóðhættulegu starfi kommúnista. Nýlega hjelt
hann ræðu í Strassbourg og voru þá þessar myndir teknar af honum í ræðustóli.
Svíþjóðarferð rii-
stjóranna
í SKEYTI frá Valtý Stef-
ánssýni ritstjóra, sem sent er
frá Gautaborg á laugardaginn
var, segir á þessa leið um
ferðalag ritstjóranna um Sví
þjóð:
„Við komum til Gautaborg
ar á föstiidagskvöld eftir
mjög lærdómsríka og skemti
lega ferð um Skán.
Hjeðan förum við á morg-
un í ferðalag um Vermaland.
Alstaðar þar sem við komum
er okkur tekið af hinni mestu
gestrisni og allir keppast um
að gera ferðina sem ánægju-
ríkasta fyrir okkur“.
Tveiiri einkaflugvjelum
á vii
hlekkist
A SUNNUDAG hlekktist tvéim einkaflugvjelum á aust-
ur við Múlakot í Fljótshlíð. Annari þeirra hvoldi í lend-
ingu, en hin sökk í moldarflagi og urðu á henni litlar
ckemdir. Slys urðu ekki á mönnum.
Um 60% af síldveiðiflotanum
hefir samninga fyrir næstu
síldarvertíð
HVERNIG eru horfur með kaupsamninga fyrir síld-
veiðina?, spurði tíðindamaður blaðsins Jakob Hafstein,
framkvæmdastjóra Landssambands ísl. útvegsmanna í
gær.
— Láta mun nærri, að. 60%
af síldveiðiflotanum hafi þeg-
ar samið um kaup og kjör á
komandi síldarvertíð, segir Ja-
kob. Samningar hafa verið
gerðir á eftirtöldum stöðum: í
Reykjavík, Hafnarfirði, Kefla
vík, á' Akranesi ög ísafirði.
IVTur. vera nálægt 60% af síld-
vaiðiflotanum frá þessum stöð
um.
— En hvar er eftir að semja?
— Eftir er að semja á Siglu-
ficði, Akureyri, h Vestmanna-
eyjum, Sandgerði og á Aust-
4-
fjörðum.
— Eru samningar byrjaðir á
þ'essum stöðum?
— Já, viðræður hafa fyrir
nokkru hafist og fara þær fram
hjer í Reykjavík. Standa að
þeim viðræðum Landssamband
ísl. útvegsmanna og Alþýðu-
samband íslands.
— Hvernig eru horfur?
— Um það er ekkert hægt að
segja á þessu stigi. En senni-
lega verður fljótlega skorið úr
um, hvort samningar takast.
Var í prófflugi.
Flugvjelin T. F. — B. B. C.
sem er' tvíþekja lagði af stað
hjeðan af Reykjavíkurflugvelli
laust fyrir hádegi. Sá er flaug
vjel þessari var eigandi hennar,
Karl J. Brand garðyrkjumajður.
Var hann að taka A-próf í þess
ari flugferð og var einn í flug-
vjelinni. Laust fyrir kl. 12,30
ætlaði hann að lenda á túnun-
um við Múlakot í Fljótshlíð,
en í lendingunrii varð hann svo
óheppinn að reka flugvjelina í
túngarð, sem er að vestan Verðu
við heimatúnið. Við árekstur-
inn stakst flugvjelin fram yfir
sig og kom hún á hvolfi niður.
Vængur flugvjelarinnar skemd
ist nokkuð, svo og stýri og
hreyfill.
Önnur flugvjel fer til hjálpar.
Karl J. Bjand tilkynti Reykja
víkurflugvelli þegar hversu
farið hefði. Fór nú önnur flug-
vjel hjeðan af flugvellinum. —
Henni stjórnaði einn eigandi
hennar, Lárus Óskarsson stór-
kaupmaður. Með honum var við
gerðarmaður og átti hann að
gera flugvjel Karls loftfæra.
Þegar Lárust ætlar að setjast
J á túnið við Múlakot, lenti flug-
: vjel hans í moldarflagi, en við
það hallaðist hún fram yfir sig
og tók þá ,,skrúfan“ niðri og
skemmdist nokkuð. Þeir Lárus
og viðgerðarmaðurinn sluppú
ómeiddir.
í gær var verið að vinna að
því, að taka flugvjel Karls í
sundur þar eystra og verður
hún flutt í stykkjum til Reykja
víkur. Hægt verður að gera við
flugvjel Lárusar, því ekki þarf
annað að gera, en setja nýja
skrúfu við hreyfilinn.
Valdimar Sfefánsson
jVEjöy ósæmileg
framkoma viií
forseta Islands
Frá frjettaritara vorunS
í Keflavík.
í GÆRMORGUN, er for-
seti fór frá Keflavíkurflug-
velli áleiðist til Kaupmanna-
hafnar, til þess að vera við-
staddur útför Kristjáns X,-
voru allar móttökur á flug-
vellinum mjög ósæmilegar,
bæði af hálfu yfirm'anna lög
reglunnar og starfsliðs flug-
vallarins.
Lögreglan hafði engin fyrií
mæli fengið um að veita for-
setanum tilhlýðilega vernd og
leiðsögn um flugvöllinn.
Ekki ljet flugvallarstjóri
eða starfslið hans sjá sig.
Ekki hefur flugvallarstjór-
inn komið því í verk ennþá
að koma upp flaggstöng á
flugvellinum o gvar þar því
enginn fáni við hún.
air
FORSETI íslands hefur
skipað Valdimar Stefánsson í
embætti sakadómara. Æn svo
sem kunnugt er, liefir Valdi-
mar Stefánsson gegnt því st.arfi
sem settur síðan að Bergur
Jónsson fyrv. sakadómari sagði
embæTtinu upp. Embættið var
svo auglýst og var Valdimar
Stefánsson eini umsækjandi.
Valdimar Stefánsson saka-
dómari er fæddur að Fagra-
skógi við Eyjafjörð 24. sept.
1010. Hí^nn útskrifaðist úr
Mentaskóla Akureyrar árið
1930. Embætisprófi í lögum
lauk liann 1934.
Fulltrúi bæjarfógetans í
Hafnarfirði var hann um
skeið, en lengst af var hann
fulltrúi lögreglustjóra, síðan
sakadómara, er það emcætti
var stofnað 1940. Hefur Valde-
mar oft gegnt störfum saka-
dómara í fjarveru hans.
Hinn nýskipaði sakadómari
er starfsmaður mikill og er
hann mjög vel látinn.
sínu.
Árbóh Ferðafje-
lagsins um Skaga-
fjörð
ÁRBÓK Ferðafjelags fs-
lands fyrir árið 1946 er ný-
komin út. Að þessu sinni en
árbókin um Skagafjörð og er,
eftir Hallgrím Jónasson kenn
ara, en flestar myndir í henni
eru eftir Pál Jónsson.
Lýsingu Skagafjarðar ei’
skift í 12 meginkafla.
Verslunum og
shrifsfofum
vegna
Krisljáns
Ríkisstjórnin tilkynti í
gærkvöldi, að skrifstofum
stjórnarráðsins yrði lokað
frá kl. 12 á hádegi til kl.
fjögur eftir hádegi er út-
för Kristjáns hins tíunda
Danakonungs fer fram, á
morgun 30. þ. m.
I tilkynningu sinni
mælist ríkisstjórnin til
þess, að öðrum skrifstof-
um svo og verslunum
bæjarins verði lokað n
þessum sama tima.
Þá tilkynti mentamála-
ráð, að kensla yrði látin
falla niður þennan dag í
öllum skólum landsins.
Fyrir forgöngu ríkis-
stjórnarinnar verður
haldin minningarguðs-
þjónusta um hinn látna
konung í Dómkirkjunni.
Hefst hún kl. 1,30.