Morgunblaðið - 08.06.1947, Side 1
12 síður og Lesbók
34. árgangur 126. tbl. — Sunnudagur 8. júní 1947 ísafoldarprentsmiðj a h.f.
MÞœegsbrús&armenn greiða atkvæ&i um þa&
Hvoi
n sjáífir eigi að ráða í fjelag
jelagið eigi að verða áróðurs-
kommúnistaflokkinn
Kommúnistar á Siglu-
firði búast til
óhaefuverka
Á FÖSTUDAGSKVÖLD
hjeldu kommúnistar á Siglu-
firði fund, til þess að reyna að
koma í veg fyrir, að fjelags-
meún í Þrótti greiddu- atkvæði
við þá allsherjaratkvæða-
greiðslu sem fer þar fram.
Kommúnistar á Sigiufirði
vita að meginþorri verkamanna
vill ekkert verkfall þar. En þeir
reyna, að ónýta atkvæðagreiðsl
una( sem sáttasemjari hefir fyr
irskipað, með því að r.eita hon-
um um fjelagatal í Þrótti og
með öðrum lagaleysum.
Þegar þeir sáu, að atkvæða-
greiðslan myndi fara fram hvað
sem þeir segðu, þá kölluðu þeir
saman fundinn og heimtuðu
þar af flokksmönnum sínum, að
þeir samþykktu, að efna til ó-
löglegs verkfalls, hvernig sem
atkvæðagreiðslan færi. Sam-
tímis báru þeir upp tillögu um
að votta fjelagsstjórninni traust
Þó kommúnistar hefðu gert
alt sem í þeirra valdi stóð, til
þess að smala flokksmönnum
sínum á fundinn, fengu þeir þar
ekki nema um 100 atkvæði með
sjer. En alls munu vera um 600
manns í fjelaginu.
Þar ganga kommúnistar
lengst í frekju sinni, er þeir á
Siglufirði, og eins hjer í Reykja
vík, telja að það sje brot á vinnu
löggjöfinni, er verkamönnum
er gefinn kostur á að greiða at
kvæði um fjelagsmál sín. Þeg-
ar kommúnistar óttast aö at-
kvæöagreiöslan gangi þeim
sjálfum í óhag, þá telja þeir at
kvœðagreiðsluna ólöglega.
Meiri ótta við slæma útreið
geta kommúnistar ekki sýnt,
en með slíkri framkomu.
Dönsku prentarana
skortir fje
Kaupmannahöfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
PRENTARAR þeir, sem eru
í verkfalli, sækja nú um lán,
sökum fjárskorts. Alþýðusam-
bandið danska lýsir því yfir, að
önnur iönfjelög muni styðja
prentarana, en fjársöfnun verði
ekki hafin.
Gjaltarhornið var þarflaust þeir
fenp ekki hálft hús
SÚ varð raunin á eins og við
var að búast að verkamenn
ljetu sig yfirleitt engu skifta
æsingafund þann er kommúnist
ar boðuðu til í Gamla bíó í gær,
Það var áform kommúnista
er til fundarins boðuðu að safna
þar saman sem flestum fjelags-
mönnum Dagsbrúnar svo þeir
gætu þar talað við þá.
Þeim datt ekki í hug að allir
þeir sem kæmu til að hlýða á
mál kommúnistanna á þessum
merkisdegi myndi komast inn í
Gamla Bíó. Þess vegna höfðu
fundarboðendur tryggt sjer að
þeir gætu fengið gjallarhorn
utaná húsið til þess að þeir sem
á götunni væru gætu hlýtt _á
ræðumenn.
En gjallarhornið og allur út
búnaður utan um það mátti
hvíla sig að þessu sinn. Því
kommúnistar fengu aldrei
nema hálft hús áheyrenda að
máli sínu.
Þeir sem vilja Dagsbrún fyrir
verkamenngreiba atkvæði með
midlunartidögu sáttanefndar
Atvlnníiöryggið fyr-
ir mesfu
ÞAÐ vekur sjerstaka eftir-
tekt að í miðlunartillögum sátta
nefndarinnar að þeir tímakaups
menn sem unnið hafa eitt ár
eða lengur hjá sama atvinnu-
rekenda eiga rjett á þeirri
vinnu er til fellur hjá honum,
hafi þeim ekki verið sagt upp
starfi með eins mánaðar fyrir
vara.
En hvað eftir annað hafa þeir
verkamenn sem tekið hafa til
máls út af hinu pólitíska verk-
falli lagt áherslu á að einsog
nú horfi við í atvinnulífi lands
manna er það atvinnuöryggið
sem þeim er fyrir mestu.
Járnbraufarsam-
göngur feppast
í París
París í gær.
JÁRNBRAUTARSAMGÖNG-
UR í París hafa nú teppst að
mestu leyti. Einungis lestir, er
flytja mjólk og önnur matvæli
eru enn í ferðum. Veldur þessu
verkfall starfsmanna við járn-
brautirnar. Matvælaflutningar
til borgarinnar hafa einnig
mjög minnkað vegna verkfalls-
ins, og er ríkisstjórnin nú að
gera ráðstafanir til þess að
tryggja borgarbúum matvæli
næstu daga. Stjórnin kveðst
ekki munu hefja viðræður um
lausn vinnudeilunnar, fyrr en
þeir hverfi aftur til vinnu sinn
ar. — Reuter.
Undir umsjá borg-
ardómara
Rjett er að taka það fram að
atkvæðagreiðslan um miðlun-
artillöguna, sem fram fer í Mið
bæjarbarnaskólanum er undir
umsjá borgardómara.
MÞaffshrwnarmemm
ver&a að sjá mm, að
ailir ijelagsmenn
taki þá§i í atkvæða-
epreiðslunni
HAFI NOKKUR, sem las Þjóðviljann í gær, efast um, að verk-
íall það, sem kommúnistar hafa efnt til í Dagsbrún, sje pólitískt,
þá hlýtur sá efi að hafa horfið'við lestur blaðsins.
Það er talað um varnarbaráttu gegn þeirri launalækkun, sem
skollin sje á. En Þjóðviljamenn gleyma því, að það eru þeir,
sem hafa með sífeldri viðleitni sinni til að auka á dýrtíðina og
útgjöldin, horfið frá því sem þeir sögðu í fyrra, ei þeir vildu
eða þóttust vilja auka kaupmátt launanna.
Nú auglýsa þeir, að svo fremi sam kaup Dagsbrúnarmanna
verði hækkað að krónutali, þá eigi að hefja nýja baráttu fyrir
aukinni dýrtíð, og allsherjar lækkun á kaupmætti launanna. —
Dagsbrúnarmenn eiga að vera verkfæri þeirra til þess.
Þetta segja Þjóðviljamenn, um leið og þeir þykjast vera að
vinna fyrir heimilin í landinu fyrir verkamennina og fyrir at-
vinnuöryggi þeirra.
Komniúnistar eru vitandi vits að hefja hækkun á dýrtíðinni,
með það beinlínis fyrir augum að atvinnuleysisbölið geri sem
fyrst vart við sig á heimilum verkamannannaa.
Kommúnistar hafa reynt að ginna verkamenn til að vera með
verkfallinu, með því að segja að verkfall standi aldrei nemg
nokkra daga.
En í Þjóðviljanum í gær er auglýst að járniðnaðarmenn heiti
Dagsbrún stuðningi sínum, en ekki fyrr en þann 16. júní. Svo
þar er búist við að verkfallið geti orðið nokkuð langt.
Með því að sáttanefndin hefir gengist fyrir því, að allir fje-
lagsmenn í Dagsbrún geti sagt álit sitt, um það, hvort þeir vilja
verkfall eða ekki, er fjelagsmönnum lögð í hendur ákvörðunin
um það, hvort verkamannafjelagið Dagsbrún á að hverfa frá
hlutverki sínu, og yfir í það, að þjóna valdagræðgi kommún-
ista, — ellegar fjelagið á að vorða framvegis til þess að hálda
á málefnum verkamanna, án tillits til þess hvort kommúnistum
líkar betur eða verr. Þetta er vilji verkamanna.
Dagsbrúnarmenn skilja þetta ekki síður en aðrir íslendingar.
Þess vegna má hiklaust vænta þess, að þeir Dagsbrúnarmenn,
sem ekki greiddu atkvæði sitt í verkfallsmálinu í gær, þeir
geri svo í dag.
Því það eru verkamenn en ekki kommúnistar, sem eiga að ráða
málefnum verkamannafjelagsins Dagsbrún.
Munið það, Dagsbrúnarmenn og greiðið því atkvæði með miðl-
unartillögu sáttanefndarinnar.