Morgunblaðið - 20.09.1947, Side 2
2
MORCUPÍBLAÐIÐ
Nefíidarálitíö um húsa-
leigulögiu er enn tran-
aðarmál
Fadeignaeigefldafjelagið semur um hag-
kvæmar fryggingar á innhúi
Fasteignaeigendafjelagi Reykja
víkur hefur nýlega borist álit
þriggja manna nefndar, sem
samkvæmt ályktun Alþingis fyr
ir li/2 ári síðan skyldi falið að
rannsaka áhrif húsaleigulag-
anna og að endurskoða þau.
Nefndina skipuðu Baldvin
Jónsson hdl., formaður, Egill
Sigurgeirsson hrl. og Gunnar
Þorsteinsson hrl. Skiluðu þeir
áliti til ríkisstjórnarinnar í byrj
un febrúar s.l. Samkvæmt þings
ályktunartillögunni átti álitið
strax að leggjast fyrir Alþingi.
Var það ekki gert, en sem kunn-
ugt er fengu húsaleigumálin þá
afgreiðslu við síðustu þinglok
með sameiginlegu áliti allsherj-
arnefndar neðri deildar, að þeim
var vísað til ríkisstjórnarinnar
og henni falið að semja nýtt
frumvarp um málið og leggja
það fyrir í byrjun haustþings-
ins. Skyldi frumvarp þetta vera
byggt á niðurstöðum endurskoð
unarnefndarinnar.
Nefndurnlilið trúnaðarmál
Fasteignaeigendafjelagið leit
svo á, að almenningur í landinu
ætti rjett á að fá vitneskju
um niðurstöðu nefndarálitsins,
vegna þess að um er að ræða
athugun á máli, sem mjög snert
ir lífskjör flestra landsmanna.
Fasteignaeigendafjelagið hefur
mikið unnið að því að glæða
skilning löggjafans á skaðsemi
núgildandi húsaleigulaga, með
viðtölum við þingmenn Reykja-
víkur á s.l. vetri og með skýrslu
gerðum til endurskoðunarnefnd
arinnar, byggðum á athugunum
á áhrifum laganna hjer í höfuð-
staðnum. Af þessum ástæðum
lagði f jelagið mikla áherslu á að
fá nefndarálitið í hendur, þegar
sýnt var að ekki var tilætlun
ríkisstjórnarinnar að leggja það
fyrir síðasta þing. Margvíslegar
tilraunir fjelagsins til þess að fá
að kynna sjer álitið báru þó
ekki árangur fyrr en í þessum
mánuði, er fjelagsmálaráðuneyt
ið lánaði stjórn fjelagsins álitið
og ljet það fylgja að fjelaginu
væri sent það sem trúnaðarrnál.
Fjelagsstjórnin hefur svarað
ráðuneytinu á þann veg að hún
geti á engan hátt sköðað nefnd-
arálitið sem trúnaðarmál, þar
sem hún telji rangt að niðurstöð
um og tillögum nefndarinnaar
sje haldið leyndum fyrir þjóð-
inni. Mun fjelagsstjórnin þó
ekki sjá ástæðu til að birta álit-
ið opinberlega, ef sýnt þykir í
byrjun haustþingsins, að ríkis-
stjórnin verði við óskum þjóð-
ar og þings um að leggja laga-
frumvarp fyrir Alþingi, til af-
náms núgildandi húsaleigulaga.
V^rði ekkert við málinu hreyft
í byrjun þings, mun stjóm fje-
lagsins ekki treysta sjer til að
láta álitið liggja lengur í þagn-
flrgildi.
Hagkvœm innbústrygging
Á öndverðu sumri leitaði fje-
lagsstjórnin tilboða meðal vá-
tryggingarfjelaga um hagkvæm
ari innbústryggingar fyrir fje-
lagsmenn en þekst hefur áður.
Einkanlega var þess óskað að
hægt yrði að tryggja innbú gegn
tjóni af völdum vatns, t. d. ef
hitaleiðslur springju eða gleymd
ist að skrúfa fyrir vatnskrana
og vatn af þeim orsökum ylli
tjóni á innanstokksmunum.
Hafa nú náðst samningar við
vátryggingarfjelög um mjög
hagkvæmar tryggingar á innbúi
þeirra fjelagsmanna, er þess
kunna að óska. —■ Er innbúið
brunatryggt og einnig tryggt
gegn tjóni af völdum vatns. Þó
er iðgjaldið að mun lægra en
tíðkast hefur um brunatrvgg-
ingar einar.
Skrifstofa fjelagsins, sem ný-
lega er flutt að Laugavegi 10,
mun framvegis kl. 5—7 e. h.
taka á móti áskriftum fyrir
tryggingunum.
Páll Grikkjakonung-
ur fer í könminar-
ferð
Aþena í gær.
PÁLL Grikkjakonungur er
lagður af stað í könnunarferð
um óróasvæðin í Norðurhluta
landsins. Lagði hann af stað í
dag frá Korinthu með tundur-
spilli.
Fyrst mun hann sigla til
Saloniki og fara þar á land og
ferðast um óróasvæðin.
I gær vildi það til 60 km.
norður af Aþenu, að flokkur
skæruliða sat fyrir einni her-
deild stjórnarinnar, sem var
þar á ferð. Köm þar til bardaga
Hjelt stjórnarliðið velli, en
margir særðust alvarlega.
— Reuter.
Spánskur sfjórnmála-
maður á þingi S.í>.
París í gær.
PAUL RAMADIER, forsætis
ráðherra Frakklands, átti í dag
stutt viðtal við Alvaro de Al-
bornoz, forsætisráðh. spönsku
lýðveldisstjórnarinnar, sem er í
útlegð.
De Albornoz mun fljúga til
New York á sunnudaginn, til
þess að vera sem áheyrnarfull-
trúi lýðveldisstjórnarinnar á
þingi Sameinuðu þjóðanna.
— Reuter.
Ræða tollasamninga
LONDON: — Clayton, aðstoðar
fjármálaráðherra Bandar, er
kominn til London frá Genf til
viðræðna við Sir Stafford
Cripps um tollasamninga.
mát
Brefar verða að selja
meira af gulli
Frekari dollarakaup nauðsynleg
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reúter.
HUGH DALTON, fjármálaráðherra Breta, hjelt fund
með blaðamönnum í dag og tjáði þeim, að Bretland mundi
neyðast til að selja meira af gullbirgðum sínum, auk þess
sem svo kynni að fara, að þeir yrðu að kaupa fleiri dollarr.
hjá alþjóða gjaldeyrissjóðnum.
%----------------------------
* Ráðstefna í London.
Dalton sagði, að þetta benti
á ýmsar hættur, enda mundi
dollaraskorturinn halda áfram
Jenn um hríð. Áður hafði fjár-
málaráðherrann verið í forsæti
er ráðstefna bresku samveldis-
! landanna, sem kölluð hefur ver
ið saman í Londan vegna fjár-
j hagsörðugleika Breta, hófst í
dag. Á ráðstefnu þessari eiga
sæti fulltrúar frá Bretlandi,
jÁstralíu, New Zealand, Suður
1 Afríku, Irlandi, Suður Rhode-
Uíu, Indlandi og Pakistan.
Stuðningi heitið.
Flest samveldislandanna hafa
þegar heitið Bretum stuðningi
sínum. Endurtók þannig Chief
ley, forsætisráðherra Ástralíu í
dag það loforð áströlsku stjórn
arinnar, að hún mundi leggja
sig alla fram til að hjálpa Bret
um til að sigrast á erfiðleikun-
um. •
Bretar og Banda-
ríkjamenn munu
hjálpa ÞjóSverjum
Hamborg í gær.
DR. ERICH KÖHLER, for-
maður miðstjórnar efnahags-
ráðs bresk-bandaríska hernáms-
svæðisins, sagði á blaðamanna-
fundi í Frankfurt í dag, að það
væri engin ástæða til þess fvrír
þýsku þjóðina að vera svartsýn.
„Vegna fjölda viðræðna, sem
jeg hef tekið þátt í, þá er jeg
sannfærður um það, að hernáms
veldin tvö hafa fullan hug á að
hjálpa okkur eins mikið og
mögulegt er,“ bætti hann við.
5. þing Iðnnema-
sambandsins verður
selt í dag
FIMTA þing Iðnnemasam-
bandsins verður sett í Iðnskóla
húsinu í dag klukkan 2 e. h.
Gert er ráð fyrir að þingið siti
um 70 fulltrúar víðsvegar að af
landinu. Þingið mun taka fyrir
ýms mál sem varða hagsmuni
iðnnema. I dag mun þingið
taka fyrir skýrslu sambands-
stjórnarinnar, einnig verða í
dag kosnir starfsmenn þings-
ins og fastar nefndir. í þing-
setningarlok mun skólastjóri
Iðnskólans í Reykjavík sýna
þingfulltrúum teikningar hins
nýja Iðnskólahúss í Reykjavík.
Á morgun verða tekin fyrir
hagsmunamál iðnnema og mál
sem varða samtökin inn á við.
Gert er ráð fyrir að þinginu
ljúki annað kvöld.
I kvöld sitja fulhrúar þings-
ins samsæti, sem stjórn Skóla-
fjelags Inðskólans i Reykjavík
heldur þeim í Tjarnarlundi.
Abysslnía falar máli
Sudan.
New York í gær.
FULLTRÚI Abyssiníu á þingi
Sameinuðu Þjóðanna hefur
lýst því yfir, að hann muni
reyna að stuðla að því, að Sud
an búar fái hið fyrsta fullt
sjálfstæði.
Abyssiníumenn munu bera
tillögu þess efnis fram á þingi
Sameinuðu þjóðanna. — Reute
Bandaríkin, Belgía og
Ástralía m iðla málum
í Indonesíu
New York í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
• ÞRIGGJA manna nefnd, sem átti að reyna að koma á
samkomulagi milli Hollendinga og Indónesa hefur nú verið
að fullu skipuð.
Oddamaður.
Þannig er til nefndarinnar
stofnað, að Hollendingar og
Indónesar áttu hvor um sig að
tilnefna einn fulltrúa frá hlut-
lausu ríki, en síðan áttu þeir
tveir í sameiningu að koma sjer
saman um oddamann í nefnd-
ina.
Belgía og Ástralía.
Holland tilnefndi Belgíu sem
sinn fulltrúa og Indónesía til-
nefndi Ástralíu sem sinn.
Nú hafa Evatt utanríkisráð-
herra Ástralíu og Spaak utan-
ríkisráðherra Belgíu komið sjer
saman um að þriðji fulltrúinn
skuli vera Bandaríkin.
Laugardagur 20. sept. 1947! !
| Herbergi
| Gott herbergi til leigu í
= Vesturbænum. — Tilboð
I merkt „Ásvallagata—406“
i sendist afgr. blaðsins strax
; lllll'IIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIII 1111111111111111 Mlllllllllllllll
|Studebaker
í Stude Baker 1935 í ágætu
| standi til sýnis og sölu við
| Leifsstyttuna í dag kl. 2
E —4.
: immmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmii
1 óskast á veitingastofuna á
i Laugaveg 64 nú þegar. —
] Uppl. í kvöld kl. 7—8 á
I staðnum.
E ...........IIIIIMMIIIIMMIIII.ÍMIIMMMI
I Uppboð
| Opinbert uppboð verður
= haldið að Sólvöllum við
i Kleppsveg hjer í bænum,
I (á móts við flugskýlið í
= Vatnagörðum) laugardag
E inn 20. þ. m. og hefst kl.
] 2 e. h.
Í Seld verða allskonar hús-
jj gögn og búsáhöld, svo sem:
Í borðstofuhúsgögn, armstól
| ar, borð og stólar hentug
Í fyrir matsölur, fataskáp-
i ur, stór spegill, tvö járn-
I rúm með dýnum, útvarps
i tæki, leirtau, hnífapör,
i rafmagnseldavjel, mál-
| verk og margt fleira.
Í Greiðsla fari fram við
| hamarshögg.
Borgarfógetinn
í Reykjavík.
= iiMiiiiiiiiiiMiiiiiiHicMniiiMiiinnminmMiiiiiiiim)
| (biíð óskast
= Barnlaus hjón óska eftir
i 1—2 herbergjum og eld-
= húsi sem fyrst. Húshjálp
Í eða að líta eftir börnum 2
| kvöld í viku kemur til
Í greina. Tilboð merkt „G.
i A. —— 410“ sendist blaðinu
i fyrir mánudagskvöld.
i 3—5 herbergja
Íbú3 éskasl
f sem allra fyrst. Get látið í
] tje vinnu á trjesmíða-
I vinnustofu ef með þarf. —
] Þeir, sem vildu vera svo
| hyggnir að athuga þetta,
Í leggi tilboð inn á afgr.
É Mbl. fyrir 23. sept. n. k.
Í merkt: „Gagnkvæmt -—
] 379“.
Hvíít sandcrepe
(í fermingarkjóla).
= Rúskinsblússur.
i Bangsabuxur, margar
i stærðir, fyrir börn.
ÞORSTEINSBÚÐ
vefnaðarvörudeild
Sími 2803.
E
UIIIIMIIMMIIIIimilMlllMIIIIIMimiSMMlimillllUMIMIUMI
..............................................................................................................................................................................................1!!!t!I!I! 1 Sl!• 111CIIJI!!! 1!I! 11 • J!111111!IMIII!I! 1!Li 13!t!!(1M!3!S■ t IJIJUIIIIIBI!ISI!liUS9II!IMS!BSIII!!!KISIlilIEIÍ1!I!II9ISII!!IIMIIIfISIII!Il!S!ISll11IIIIIIISM3I!SIIIII!IlltU!!!llIIII!!l!El«l!I1I!Ut!I!I!l>11111 HlillULlllIIilllUl,