Morgunblaðið - 26.11.1947, Side 6

Morgunblaðið - 26.11.1947, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 26. nóv. 1947 Útg.: H.f. Árvakur. Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. , í lausasölu 50 aura eintakið. 75 Sura með Lesbók. _—————— Verkfall járniðnaðarmanna UM ÞAÐ ríkir áreiðanlega enginn ágreiningur hjer í Reykja- vík að bygging eimtúrbínustöðvarinnar við Elliðaár sje ein þarflegasta framkvæmd, sem nú er á döfinni í bænum. Hinn öri vöxtur Reykjavíkur hefur þrátt fyrir stórfeldar vatns- virkjanir skapað mjög aukna raforkuþörf. En einnig af ann- ari ástæðu er bygging stöðvarinnar nauðsynleg. Áformað er, að hún verði tengd hitaveitunni á þann hátt, að í henni . verði heita vatnið hitað upp í suðumark og bannig skapað mikið aukið öryggi í hitun húsa í bænum. Það er t. d. full- víst, að í kuldakastinu undanfarið hefði hitaveitan algerlega fullnægt hitaþörfinni, ef eimtúrbínustöðin hefði verið tekin til starfa. „ Það er þessvegna mjög illa farið að vinna við þetta nauð- synlega mannvirki skuli nú um margar vikur hafa legið niðri. En hvernig stendur á því og hverjir bera ábyrgðina á því? Reykvíkingar eiga rjett á að vita það, vegna þess, að það er að verulegu leyti orsök þess, að þá skortir nú raforku og hita og bíða við það ýmiskonar óþægindi. Þegar járnsmiðaverkfallið hófst um miðjan október stöðv- aðist öll vinna við varastöðina, en þá var eftir 4—5 vikna járnsmíðavinna. Hefði verkfallið ekki skollið á, væri stöðin nú um það bil að taka til starfa, einmitt þegar hennar er mest þörf. Borgarstjóri hefur gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá undanþágu frá verkfallinu, svo að vinna gæti haldið áfram við varastöðina. Fyrst fór hann fram á það við aðilja að þeir veittu undanþágu á þeim grundvelli að greitt yrði það sama og áður var, í bili, en bærinn lofaði að gera kaupgjaldið síðan upp á þeim grundvelli, sem samningar næðust síðar á milli aðilja deilunnar. Járnsmiðirnir svcruðu þessari málaleitan neitandi. Smiðj- urnar tjáðu sig reiðubúnar til þess að ganga að þvi, en settu hinsvegar skilyrði, sem ekki var á valdi bæjarins að full- nægja. S.l. laugardag hjelt fjelag járnsmiðameistara fund og gerði bænum það tilboð að halda áfram og ljúka vinnu við vara- stöðina, án álagningar, í þeirri von að slíkt yrði aðgengilegra fyrir járnsmiðina. Borogarstjóri átti þá þegar fundi með stjórn fjelags járniðnaðarmanna og fór fram á, að járn- smiðir leyfðu vinnu við varastöðina. Eins og kunnugt er, er krafa jámiðnaðarmanna sú, að grunnkaup þeirra á viku hækki úr 158 krónum í grunnlaun í 170 krónur. En allar samkomulags- og málamiðlunartil- raunir hafa strandað á því að járnsmiðir neita að hvika í nokkru frá ítrustu kröfum sínum. Frá þeirra hendi er það ófrávíkjanlegt skilyrði að bærinn greiði það kaup, sem þeir hafa krafist, 170 krónur á viku í grunnlaun. Blað konnmúnista, Þjóðviljinn, heldur þvi fram að það sje bæjarstjórnarmeirihlutinn, sem hafi stöðvað vinnu við vara- stöðina og að hjá honum vanti allan vilja til þess að sem'ja við járnsmiðina. Tilraunir borgarstjóra til þess að miðla málum, sýna og sanna það gagnstæða. Það lýsir litlum sam- komulagsvilja að taka öllum sáttaumleítunum með því einu að berja í borðið og krefjast þess að fyllstu kröfur sjeu tekn- ar til greina. Á slíkum grundvelli eru ekki miklar líkur til að lausn finnist í þessu deilumáli. Málið stendur þá þannig, að borgarstjóri hefur reynt hverja málamiðlunina á fætur annari, en ekkert orðið ágengt. Vinnan við varastöðina ligg- ur niðri og bæjarbúa vantar aukið rafmagn og heitara vatn til þess að lýsa og hita híbýli sín. En kommúnistar halda áfram að vinna gegn því, að sættir takist í deilunni. Það er þeirra leikur. En hversu lengi tekst þeim að leika brögð sín? Almenningur í bænum sjer, hvað er að gerast, það mega , foringjar kommúnista vera fullvissir um. Þeir geta einnig , verið vissir um annað, það, að Reykvíkingar munu næst þegar tækifæri gefst, launa þessa skemmdarstarfsemi gagn- vart bæjarfjelagi þeirra á þann hátt, sem verðugur er. verfí ÚR DAGLEGA LÍFINU í kirkju. ÞAÐ VERÐUR víst ekki sagt um Reykvíkinga almennt að þeir sjeu kirkjuræknir menn. Ef beir væri það myndu kirkj- urnar okkar vera altof litlar fyrir jafnstóran bæ og Reykja- vík er. En það er víst svo, að margir höfuðstaðarbúar koma ekki nema tvisvar á ævinni í guðshús, þegar þeir eru fermdir og begar þeir kveðja mannlífið í hinsta sinni. En þeir, sem aldrei fara til guðsþjónustu vita ekki af því, að það er stór hópur borgar- anna, sem sækjir kirkjurnar á hverjum sunnudegi og öðrum helgidögum og sækja þangað styrk og staðfestu. • Ungt fýlk og gamalt. YFIRLEITT mun það stafa af kæruleysi fyrir trúmálum, að menn sækja ekki kirkjurnar. Aðrir láta sjer nægja að hlusta á útvarpsmessur, sem þó aldrei verða nema skuggi af sjálfum guðsþjónustunum og eru ekki nema fyrir sjúka og gamla og loks eru hinir, sem halda að það sje ekki lengur fínt, að fara í kirkju. Síðasti hópurinn yrði forviða að koma í kirkju og sjá söfn- uðinn. Því þar er ungt fólk og gamalt, virðulegir borgarar og menri, sem enginn veit hvaðan koma. Fyrir guði eru allir jafnir. Truflanir í guðs- húsum. ÞEIR, SEM EINGÖNGU hlusta á útvarpsmessur gætu haldið, að söfnuðurinn væri ekki annað en kvefaðir vesa- lingar, sem helst ættu að vera heima hjá sjer. Hóstakjöltið og ræskingarnar yfirgnæfa stund- um orð prestsins í útvarpinu. En bað er nú svo að með fleiri samkomur hjer á landi, því það er eins og fólk haldi, að það sje skylda að ræskja sig og kræmta og snýta sjer duglega á meðan það hlustar á ræður. En hóstinn er ekki versta truflunin í kirkjunum heldur rápið og óstundvísin. Það er eins og mikill hluti kirkjugesta við hverja einustu messu hjer í bænum hafi ekki ákveðið að fara í kirkju fyr en langt var liðið á messutímann. • Og loks blessuð börnin . . . LOKS ER ÞAÐ einn siður, sem .truflar mjög messur hjer og það er, að koma með ung börn í kirkju, sem ekki vita hvað fram fer. Venjan er sú, að þegar komið er fram í miðja messuna fara blessuð litlu börn in að ókyrrast. Það er fallegur siður að venja börnin á að sækja guðs- þjónustur. en hvorki börnunum nje neinum öðrum er greiði gerður með því að fara með ung börn í guðshús, sem ekkert vita hvað fram fer. En þessu eiga prestarnir bágt með að amast við, því sagði ekki sjálfur meistarinn: ,,Leyf- ið börnunum að koma til mín . . . “ Vinsæl nýjung. BÓKMENTAKYNNING Helga fellsútgáfunnar á sunnudögum hefir farið vel af stað og er vin- sæl nýjung. Helgafell fær bestu listamenn þjóðarinnar til þess að lesa upp úr sínum eigin verk um og annara. Flestir höfðu víst haldið, að upplestrar í sam komuhúsum væru búnir að vera og heyrðu fortíðinni til. eftir að útvarpið kom á hvert heimili. En nú hefir reynslan sýnt annað, því fáar skemtanir, að kvikmyndunum undanteknum, eru eins vinsælar, eins og bók- mentakynning Helgafells í Aust urbæjarbíó í sunnudögum. Því var spáð hjer í dálkun- um, er bókmentakynningin byriaði að hún myndi verða vinsæl og það hefir reynst rjett. Það er menningarauki að þessu fyrir bæjarfjelagið. • Undirbúningur undir Hekluferðir, MÖNNUM ER ráðlagt að búa sig vel undir Hekluferðir — og ekki veitir af, að minna menn á slíkt. En það vill svo vel til að síðustu vikurnar hafa menn getað æft sig vel að að ganga á hrauni hjer í bænum. Borið hefir verið ofaní ýms- ar götur stórgrýtishraun og yf- ir þetta verða menn að klöngr- ast, ef þeir vilja komast leiðar sinnar. Hraunið hefir ávalt þótt ófjetis ofaníburður. Jafnvel þegar það var smámulið, hvað þá nú þegar stórir hnullungar fylgia með. Og þó það sje gott fyrir þá, sem ætla að ganga í Hekluhraun að æfa sig á þessum ofaníburði á Reykjavíkurgötum, þá er það ekki eins holt fyrir skófatnað manna, sem ekki er of mikið af um þessar mundir. • Margir sárfættir. ANNARS ER ÞAÐ vandamál út af fyrir sig hvernig menn eiga að bjarga sjer með skófatn að. Karlmannsskór eru ekki til, þótt boðið sje rauðagull og skömtunarseðill í ofanálag. Um jólaskó fyrir karlmenn- ina verður víst ekki að ræða og hætt við að margir verði orðn- ir sárfættir áður en skórnir koma, ef ekkert verður að gert. MEÐAL ANNARA ORÐA .... --- j Ejtir g. /. A. |-— -----—-—------ Fundur utanríkisráðherra ijórveldanna ÝMSIR telja, að ráðstefna utanríkisráðherra fjórveldanna, sem hófst í London í gær, kunni að ráða úrslitum um það, hvort rofni með öllu samvinna Rússa og vestrænu lýðveld- anna. Ósamkomulag er nú um svo mörg og stór mál, að við það verður vart búið öllu leng- ur, enda haldið fram, að Mar- shall utanríkisráðherra hafi farið til London staðráðinn í því að láta til skarar skríða að þessu sinni —1 að krefjast þess að lögð verði á það öll áhersla að ákvörðun verði tekin í stór- málum eins og t. d. friðarsamn ingunum við Austurríki. • • Austurísku samningarnir. Annar eru hinir væntanlegu samningar við Austurríki aðal- ágreiningsefni Rússa annars- végar og Frakka, Breta og Bandaríkjamanna hinsvegar. I Vilja þeir.síðarnefndu, að samn ingarnir gangi fyrir öðrum I málum á utanríkisráðherrafund inum, en Rússar vilja ræða þá síðast allra mála. • • Vilja ekki fara. Afstaða Rússa til málsins er ákaflega ljós. Þeir kæra sig ekki hót um að flytja her sinn frá Austurríki og meðan ekki er gengið frá samningum við Austurríkismenn, geta rúss- nesku hermennirnir látið eins og beir vilja í landinu. • • Óvinsældir. Mjög er þó vafasamt, hvort það sie yfirvöldunum i Moskvu Hann vill ekki samninga við Austurríki i hag að hafa hermenn sína í Austurríki. Austræna „lýðræð- ishreyfingin" hefir ekki náð til landsins, og kommúnistar eru þar ákaflega áhrifalitlir. Hefir það síst hjálpað þeim, hversu Rússar eru óvinsælir í landinu, en framkoma þeirra öll' hefir verið á þann veg, að langt er frá því að Austurríkismenn hafi orðið hrifnir af stjórnar- háttum -Moskvumanna. Tveir heimar? Hvort Marshall, Bevin og Bidault fá því framgengt í London, að austurrísku samn- ingarnir verði teknir til am- ræðu, er enn með öllu óvíst. Á fundum fulltrúa utanríkisráð- herranna lögðust Rússar ein- dremð gegn þessu. og ekki er líklegt að Molotov gefi sig fyr en í fulla hnefana. En fundur- inn, sem nú er hafinn, getur þó haft ákaflega mikilsverðar af- leiðingar — hann ætti að minsta kosti að sýna það í eitt skifti fyrir öll, hvort sam- vinnudögum störveldanna er með öllu lokið; hvort þessi skift j ing verahlorinnar í tvo heima, | eins og altaf er verið að tala 1 um, sje orðin að raunveruleika.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.