Morgunblaðið - 28.01.1948, Síða 6
6'
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 28. jan. 1948.
Úí?r.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Ám. Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Simi 1600.
Áskriftargja'lá kr. 10,00 á mánuði inncUiLands,
kr. 12,00 utanlands.
f lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók.
Lækkun frankans
FRANSKA STJÓRNIN hefur nú ákveðið að lækka gengi
frankans um rúmlega 44 af hundraði. Breytist gengi frank-
ans þar með gagnvart sterlingspundi þannig að eftir hinu
nýja gengi verða 864 frankar í pundinu í stað 480 áður, en
það var hið opinbera sölugengi hans.
Gagnvart íslensku krónunni verður breytingin sú að nú
verða 30,35 krónur í 1000 frönkum í stað- 54,63 áður.
Þessi gengislækkun hins franska gjaldmiðils er ein rót-
tækasta gjaldeyrisráðstöfun, sem um getur hin síðari ár í
fjármálalífi þjóðanna. Hefur hún að vonum vakið mikla
athygli og umræður.
Frakkar hafa átt í miklum örðugleikum í efnahagsmálum
síðan að styrjöldinni lauk. Verðbólgan hefur vaxið óðfluga
og skapað útflutningsverslun þjóðarinnar vaxandi vand-
kvæði.
Tilgangur frönsku stjórnarinnar með gengislækkuninni
er því fyrst og fremst sá að styðja útflutningsverslunina og
bæta samkeppnisaðstöðu Frakka á heimsmarkaðinum. En
afleiðing hennar hlýtur jafnframt að verða minnkandi inn-
flutningur.
Gengislækkunin hefur sætt mikilli gagnrýni, einkum af
hálfu Breta, sem telja að með henni skapi frönsk útflutnings-
verslun sjer aðstöðu, sem leiði til óhagræðis fyrir breskt
viðskiptalíf. En franska stjómin hefur ekki talið sjer fært
að mæta óskum Breta í þessu efni. Forsætisráðherrann hef-
ur jafnvel látið í veðri vaka að stjórnin myndi-ekki taka til-
lit til ráðlegginga alþjóða gjaldeyrissjóðsins í þessum efnum,
ef þær hnigu gegn gengisfellingunni. En samkvæmt reglum
hans þurfa þau ríki, se_m aðiljar eru að stofnuninni að fá
leyfi hennar til svo stórfelldrar breytingar á verðskráningu
gjaldeyris síns.
Raddir hafa verið uppi um það að þessi felling frankans
gæti torveldað endurreisnarstarf það, sem Marshalláætlunin
miðar að. Almennt mun þó ekki talið að þær háfi við rök
að styðjast. Sú hætta kynni þó að vera fyrir hendi, ef fleiri
þjóðir færu að dæmi Frakka og kapphlaup hæfist milli meg-
inlandsþjóðanna um slíkar ráðstafanir. En það hlyti að leiða
til aukinnar verðbólgu, sem torveldaði endurreisn. Hvaða
áhrif felling frankans hefur á viðskiptalíf Islendinga og
Frakka er óvíst. En eðli sínu samkvæmt gæti hún torveldað
sölu á íslenskum afurðum til Frakklands, en af framleiðslu
áranna 1946 og 1947 af hraðfrystum fiski var selt töluvert
magn þangað. Verð á þeirri vöru mundi eins og á annari inn-
fluttri vöru til landsins hækka verulega og þar með ríra
sölumöguleika.
Dagsbrúnarkosningin
STJÓRNARKOSNINGUNNI í verkamannafjelaginu Kags-
brún er lokið. Með þvi að beita hverskonar bolabrögðum í
kosningarhríðinni hefur kommúnistum tekist að halda svip-
uðu fylgi og við síðustu kósningar. En það, sem athyglis-
verðast er við kosningaúrslitin er hinn mikli fjöldi verka-
manna, sem ekki tók þátt í atkyæðagreiðslunni. Af á fjórða
þúsund fjelögum taka aðeins 1700 hundruð þátt í stjómar-
kosningunni. Á 14. hundrað sitja heima eða um það bil 200
fleiri en þeir, sem kjósa lista kommúnista.
Kommúnistar vilja nú láta líta svo út, að allir stjórnar-
flokkarnir hafi staðið að A-listanum. Þetta er hrein blekk-
ing. Sjálfstæðisverkamenn stóðu ekki að þeim lista. En fylg-
isaukning hans var þó miklu meiri en kommúnista-listans.
Af þeirri aukningu má ráða að fylgi stjórnarflokkanna í
Dagsbrún fer vaxandi á sama tíma, sem fylgi kommúnista
stendur í stað.
Sjálfstæðisverkamenn hafa borið fram kröfuna um aukið
lýðræði í verkalýðsfjelögunum. Þeir hafa krafist þess að
hlutfallskosningar yrðu teknar þar upp. Kosningaúrslitin nú,
sem fært hafa 1100 hundruð af á fjórða þúsund f jelagsmönn-
um, alger yfirráð í stærsta verkalýðsfjelagi landsins, sýna
greinilega að gegn þeirri kröfu verður ekki staðið til lengdar.
Víkverji áhrifar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Krókloppnir
skíðagarpar.
BLÖÐIN SKÝRA frá því, að
skíðafólk bæjarins kunni illa
að klæða sig úf í Þorraveðr-
áttuna á fjöllum. Hefir kom-
ið fyrir, að það hefir Verið
leitað til Slysavarnafjelagsins
vegna fólks, sem hefir verið
að krókna í kulda í skíðaferð-
um.
Þá er það áberandi, að skíða-
fólk tekur ekki með sjer nesti
í fjallaferðir, svo að ef eitthvað
verðijr að, eða” ferðin tefst,
liggur nærri, að skemtiferða-
fólkið sálist úr hungri.
Ófagrar lýsingar að tarna og
enn ein sönnun þess, að kapp
er best með forsjá.
•'
Tískutildur á fjöllum.
ÞEIR, SEM hafa verið með
í ferðum skíðafólks á fjöll hafa
oft veitt því eftirtekt, að í
klæðaburði skíðafólksins ber
oft meira á tískutildri en hinu
sem. heppilegt er og holt. Eink-
um er það blessað kvenfólkið,
sem gengur á undan í þessu
efni. Það vantar ekki að þær
eru nógu skrautlegar í skíða-
pússinu sínu. En það híalín
verður þunt þegar komið er á
fjöll um hávetur.
Slíkir búningar eru ekki til
annars en að sýna sig í þeim
í upphituðum salarkynnum, eða
til þess að láta taka af sjer ljós-
myndir í.
•
Hvar er hollustan?
SKÍÐAFERÐIR og fjallgöng
ur yfirleitt er holl skemtun og
góð, en þó því aðeins, að skíða
fólkið klæði sig það vel gegn
vetrarveðráttuni, að það bíði
ekki tjón á heilsu sinni. Því þá
fer mesti glansinn af hollust-
unni.
Forystumenn fjelaga, sem
gangast fyrir fjallaferðum ættu
að brýna fyrir meðlimum sín-
um, að klæða sig vel utast sem
innst, án tillits til tískunnar og
minna þá á að hafa með sjer
mat, jafnvel þótt um stuttar
ferðif sje að ræða.
Annað er hættulegt og of
seint að taka fyrir það, eftir
að slys hafa orðið.
•
Brunarústir.
BJARYFIRVÖLDIN hafa til
kynnt, að þau muni ekki leyfa
að hvggt verði að nýju á grunn
um húsanna Kirkjustræti 4
og 6., en þau hús eyðilögðust
af eldi daginn fyrir gamlárs-
kvöld. Bæjarbúar munu ekki
hafa neitt við þá ráðstöfun að
athuga, enda er gert ráð fyrir
því á skipulagsuppdrætti bæj-
arins_ að þarna komi breið gata
alla leið suður að Tjörn.
En úr því, að þetta er ákveð-
ið, liggur ekki annað fyrir en
að rjfa niður, það sem enn
stendur uppi af þessum húsum
og það ætti að gera hið fyrsta.
Það er alls ekki nein prýði að
þessum þrunarústum, frekar en
öðrum, heldur þvert á móti.
•
Nýtt bílastæði.
ÞAÐ ÆTTI að gera gangskör
að bví hið fyrsta, að rífa rúst-
irnar og gera þarna bílatorg
til bráðabirgða að minsta kosti.
Það veitir hreint ekki af.
Það vill meira að segja svo
til, að einmitt þarna í Kirkiu-
strætinu er þörf fyrir bíla-
stæði. Undanfarin ár hefir
mergð bifreiða staðið beggja
megin götunnar og það svo
þjett, að oft hefir varla verið
hægt að komast áfrarh á göt-
unni fyrir bílum.
Einstakt tækifæri, sem ekki
ætti að láta ónotað. Og það
hið fyrsta.
•
Onnur bæjarskömm.
ÞAÐ ER bæjarskömm að
rústunum við Kirkjustærti, en
ennbá meiri skömm er þó að
klukkuturninum á Lækjar-
torpi. Klukkan þar hefir verið
í ólagi í marga mánuði og eng-
inn virðist vilja hugsa um
hana. Turninn sjálfur er í nið-
urníðslu, glerin í honum brot--
in og málningin á því, sem eft-
ir stendur öll skálduð.
Ekki hefir tekist að fá upp-
lýst hver er eigandi að þess-
um turni og klukku, sem einu
sinni var. Fyrir mörgum árum
var þarna auglýsingaskilti fyr-
ir þekkta hreinlætisvöru, en
þær auglýsingar voru afmáðar
fyrir löngu.
•
Annað hvort eða —
ÞAÐ ER heppilegt að hafa
rjetta klukku á Lækjartorgi,
sem vegfarendur geta haft not
af. Einkum á meðan það fyrir-
komulag er haft á strætisvagna
ferðum, að þeir hefja og enda
ferðir einmitt á Lækjartorgi.
En eins og búið er að klukk-
unni og turninum á Lækjar-
torgi er það ekki nema til þess
eins að vekja gremju.
Það verður að gera annað-
hvort, að hafa þarna klukku,
sem. er rjett, og hægt er að
reiða sig á, eða rífa ólukkans
turninn.
MEÐAL ANNARA ORÐA . .77 j
— —j Eftir G. J. Á. ■—~——“—"———.—
„Litli Cæsar" og hljómlisfarcnennimir
EF ÞIÐ heyrið lítið af nýj-
um danslögum í útvarpinu
næstu mánuðina, getið þið að
nokkru levti kennt það banda-
rískum ,,verklýðsleiðtoga“, sem
hefur skrifstofur í Chicago og
stjórnar þaðan 215.000 hljóm-
listarmönnum. Þessi maður hef-
ur lagt bann við því, að banda-
rískir hljómlistarmenn leiki
inn á plötur, nema að fjelög
þau, sem standa fyrir plötu-
framleiðslunni, greiði fjelags-
mönnum hærri prósentur af
söluágóða.
e o
OFT KÆRÐUR
Hann heitir James Caesar
Petrillo, þessi maður, sem frá
skrifstofu sinni í Chicago get-
ur haft áhrif á það. hverskonar
hljómlist íslenskir útvarpsnot-
endur heyra á því herrans ári
1948. Hann er lítill og feit-
ur, þykir frábærilega vel klædd j
ur og hefur margoft verið kærð
ur fvrir brot á verklýðslöggjöf
inni.
o o
TEKJURNAR
Árstekjur „Litla Cæsars“,
eins og hann er of• kallaður, fyr
ir að gæta hagsmuna 215.000
hljómlistarmanna, eru táldar
nema um 46,0001 dollurum. —
Hann er betur launaður en
formaður verklýðssambandsins,
sem íjelag hans er í, hefur mun
hærri tekjur en þektir verk-
lýðsleiðtogar, eins og John L.
Lewis. Petrilld ér sannast að
segja það vel launaður, að hann
hefur talið borga sig að kaupa
sjer 25,000 dollara brynvarinn
bíl og hafa um sig hvorki
meira nje minna en fimm líf-
verði. Fjelag hljómlistarmanna
borgar raunar lífvörðunum
hans, alveg eins og það fyrir
fjórum árum síðan ,,gaf“ hon-
um sumarbústað, sem virtur er
á talsvert yfir 100,000 dali.
e •
„NIÐURSOÐIN
TÓNLIST“
Ppnn Petrillos við því, að
hljómlistarmenn leiki inn á
plötur, byggist á því, að hann
.telur þá og fielag þeirra ekki
fá nógu háa þóknun fyrir fram
lag sitt. Hljómlist á plötum
kallar Petrillo „niðursoðna tón
list“, og hann vill halda því
fram, að með þvl að fara að
vilja plötuframleiðendanna hafi
hljómlistarmenn í raun og veru
til þessa verið að vinna gegn
eigin hagsmunum.
• •
ÁHRIFAMIKILL
Enda þótt „Litli Cæsar“ hafi
með aðgerðum sínum hvað eftir
annað vakið reiði almennings,
virðist áhrifum hans í fjelagi
tónlistarmanna engin takmörk
sett. Því nær allir þekktir
hljómlistarmenn j Bandaríkjun
um hafa sjeð þanr. kost vænstan
að ganga í fjelag Petrillos, og
Svo valdamikill er þessi ein-
ræðisherra bandaríska hljóm-
listarlífsins, að hann hefur
hvað eftir annað komið í veg
fyrir það, að hljómsveitir skóla
kæmu fram í útvarpinu. Pet-
rillo heldur því fram, að leik-
ur slíkra skólahljómsveita,
mundi reynast þeim mönnum
hættuleg samkeppni, sem hafa
atvinnu sína af hljómlist.
e e
FJÁRHAGSLEGT
TJÓN
Ýmsir af þekktustu tónsnill-
ingum og söngvurum Banda-
ríkjanna verða þessa dagana fyr
ir stórtjóni af plötubanni Jam
es Petrillos. Bing Crosby er
einn þeirra, auk þess sem tjón
plötuframleiðendanna ætti með
tímanum að nema miljónum
Frh. á bís. 8.