Morgunblaðið - 18.03.1948, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 18. mars 1948
F. H.
H. K. R. R.
í. S. L ■
! Handknattleiksmeistaramót I
: ^ ;
Islands
:
heldur áfram í kvöld kl. 8 í íþróttahúsinu að Há-
logalandi. — Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
Meistarafl. karla:
3. fl.
F.H. : l.B.A.
Fram : K.R.
Haukar : K.R. Úrslit.
Bílferðir frá' Ferðaskrifstofunni og bifreiðastæðinu við
Álfafell, Hafnarfirði.
Handknatíleiksnefnd F.H.
Herrabuxur
stakar — nýkomnar.
Laugaveg 48.
Sími 7530.
Mandólínhljómsveif Reykjavíkur heldur hljémleik
Sundmót K.R.
verður haldið í Sundhöllinni kl. 8,30 í kvöld.
Spennandi keppni!
Allir upp í Sundhöll!
i*•••«■■■■^p■■■■■■■■■■■p■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■,,■■■■■■■■■■■■■■■■
Sjálfstæðisfjelögin í IJafnarfirði halda
Sameiginlegan fund
í húsi sínu á morgun (föstudag) kl. 8.30 síðd.
FUNDAREFNI:
Lagabreytingar- Fjárhagsáætlun bæjarins.
Allir sjálfstæðismenn og konur velkomin.
Fulltrúaráðið.
Bakarasvein
vantar til Akureyrar. Allar nánari upplýsingar gefur
Reinhard Lárusson
c/o Columbus h.f., Sænsk ísl. frystihúsinu. Simi 66C0
eða Brauðgerð Kristjáns Jónssonar, Akureyri. Símar 74
og 41.
4ra—5 herbergja íhúð
óskast. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Tilboð sendist
afgr. Mbl. fyrir föstudag, merkt: ,,4ra—5 herbergja
íbúð“.
AUGLÝSING E R GULLS ÍGILDI
ÞAÐ er orðinn viðburður í
hljómlistalífi höfuðstaðarins, er
Mandólínuhijómsveit Reykjavík-
ur heldur hljómlejk. Sú íegund
tónlistar er hún flytur, hin ljett-
klasiska tónlist, hefir aflað sveit-
inni mikilia vinsælda. Hljóm-
sveitin hefur áður haldið 4 hljóm
leika við góðar undirtektir.
Sveitin hefur aldrei áður ver-
ið jafn fjölmenn og nú, enn í
henni eru 20 starfandi meðlim-
ir, er skiftast þannig á hljóð-
færin: 9 mandólín, 2 mandólur,
mandó-celló, 7 gítarar og kontra
bassi, stjórnandi er Haraldur
Guðmundsson. Mjög hefur verið
vandað til efnisskrárinnar, leikur
hljómsveitin 8 lög enn M.A.J. trí-
óið leikur þrjú.
Efnisskráin er þannig: Sourire
D’Amour eítir Billi, Piccolino,
eftir Sjögren, Vögguvísa eftir
Möhring með mandó-celló ein-
leik Karls Sigurðssonar og’Zig-
aunamarz eftir Oscheit. — Þá
leikur M.A.J. trióið 3 lög, fyrst
Serenade eftir Haydn. Þá Loin
Du Bal eftir Gillet og að lokum
Moment Musicol eftir Schubert.
Þá leikur hljómsveitin aftur
Serenade eftir Toselli, Pizzicati
eftir Delibes, Plaisier D’Amor,
eftir Martini og að lokum Tyrk-
neskan mars eftir Mozart.
Hljómsveitin verður fimm ára
í haust og er þegar hafinn und-
irbúningur undir afmælistón-
leika, er reynt verður að vanda
til eftir föngum.
Gamla Bíó:
BANDARISKUM myndum er oft
ast flokkað í þrjá flokka (A, B,
C), eftir gæðum. Þó er það vafa-
mál að sú hörmung, sem Gamla
Bíó hefur á boðstólum þessa dag-
ana komist í nokkurn þeirra. —
Það virðist sem öllu því illa, sem
fylgt getur kvikmyndagerð hafi
viljandi verið safnað í þessa
mynd. Leikurinn, leikstjórnin og
efnið, hafa það eitt í sameiningu,
að vera ljelcgt.
Myndin sjálf gengur út á að
sýna hvernig fjórir vísindamenn,
þrír karlmenn og ein Stúlka, Dr.
Wotters, (Farncis Gifford) reyna
að bjarga fimta starfsbróð.ur sín-
um frá því, að vera rekinn úr
stöðunni fyrir þá fáheyrðu bí-
ræfni að sækja um 20,000 dollara
styrk til þess að geta haldið á-
fram vísindastarfsemi sinni. —
Þetta, að því er virðist, á að gera
með því að veðja á hestana, sem
um þetta leyti eiga að hlaupa á
Santa Anita-veðbrautinni. Taka
vísindamennirnir alt til athugun-
ar, er þeir reyna að reikna út
hvaða hestur muni vinna--------
vindstöðu, úrkomu, sálarástand
hestsins o. s. frv. Mestum vanda
veldur þó taglskerðing hestins, en
vísindamennirnir komast að
þeirri niðurstöðu að slík aðgerð
muni Ijetta honum mikið hlaup-
in. —
Aðalhlutverkið Steve Canfield,
leikur James Craig. Þó hlutverk
hans geri ekki kröfur til mikilla
leikhæfileika, þá tekst honum
vendilega að eyðileggja þær. Er
hann bæði stirður og líflaus í
framkomu og tekst einna best að
horfa skilningssljógum augum á
stúlkurnar sem leika á móti hon-
um. — Mótleikendur hans eru
Francis Gifford og Ava Gardner.
— 'Höfðu þær báðar unnið sjer
nokkuð til frama áður en þær
ljeku í kvikmyndum. Sú fyrr-
nefnda sem tísku-„módel“, en
hin bæði sem fyrverandi eigin-
kona Mickey Rooney og „model“.
Leikur þeirra er í senn óeðlileg-
ur og tilþrifalaus. Hafa þó báðar
nóg tækifæri til að gera betur,
þar sem hlutverk þeirra ,að dómi
leikstjóra, gefa tilcfni til alls-
konar sálarástands, alt frá al-
gjörri hamingju niður í djúp ör-
væntingarinnar, vonleysisins og
elskhugamissisins. — A. B.
Eýðsfjefðtfs ákraness
AÐALFUNDUR Verkalýðsfje-
lags Akraness, var haldinn 15.
febr. s.l. Stjórn fjelagsins var
sjálfkjörinn þar sem aðeins einn
listi kom fram við stjórnarkjör,
þ. e. listi trúnaðarmannaráðs.
Stjórnin er skipuð þessum
mönnum: — Form. Hálfdán
Sveinsson, ritari, Arnmundur
Gíslason, gjaldkeri Guðm. Krist-
inn Ólafsson. Varaíorm. Svein-
björn Oddsson, vararitari Ing-
ólfur Runólfsson, og varagjk.
Ársæll vfaldimarsson. Auk þess
skipa stjórnina formenn hinna
ýmsu deilda fjelagsins, en kosn-
ingu þeirra er ekki að fullu lok-
ið.
Sjóðir fjelagsins ukust um kr.
17.310.74, á árinp, og námu kr.
78.146.33, þar af er húsbygging-
arsjóður kr. 52.956.32.
Gagnkvæml hernað-
arbandalag Bret-
fands og Transjórdan
London í gærkvöldi.
SA.MNINGURINN sem undir-
ritaður var s.l mánudag milli
Bretlands og Transjórdan í
Amrrian, höfuðborg Transjor-
dan, kveður svo á, að þessi
tvö lönd skuli styðja hvort ann-
að hernaðarlega ef til styrjaldar
komi. Ákvæði það í samningi
þessara þjóða, sem gerður var
1946, og mælir svo fyrir að Bret
ar skuli hafa nær ótakmarkað-
an rjett til þess að hafa her í
Transjórdan, er fellt niður í
hinum nýja samningi. En ef
stríð skellu1" á, getur hvert land-
ið um sig haft her í hinu eftir
þörfum. Þangað til útlitið í
heiminum verður betra, leyfir
Transjórdan, að Bretar hafi
áfram flugher í Amman og á
Mafrak-flugvellinum.
—Reuter.
Verkfall í Banda-
ríkjunum
New York City í gærkvöldi.
í DAG gerðu 55 þúsund námu-
menn verkfall í viðbót við þá
210 þúsund sem að skipun John
L. Lewis, leiðtoga námumanna,
gerðu verkfall í gær. í Suður-
ríkjunum gerðu námuverka-
menn einnig verkfall þegar
námueigendur neituðu að sam-
þykkja kröfur þeirra um 100
dollara mánaðarleg eftirlaun.
Þá hafa einnig 100 þúsund starfs
menn sláturhúsa gert verkfall
og krafist 29 centa hækkunar á
tímakaupi sínu. Er búist við að
verkfall þetta stofni alt að því
helming kjötframleiðslunnar í
voða. — Reuter.
Landssfjóra Indo Kína
sýnt baLatilræÓi
París í gærkvöldi.
EMILE BOLLAERT, lands-
stjóri Indo Kina, slapp nauðug-
lega í dag þegar handsprengja
sprakk aðeins 15 metra frá hon-
um. Hann var í heimsókn hjá
háttsettum embættismanni þeg-
ar honum var sýnt tilræðið.
— Reuter.
Ferðalög breskra
skemfiferðamanna.
London í gærkvöldi.
ÞAÐ er nú talið líklegt að Sví-
þjóð og Júgóslavía verði meðal
þeirra landa, sem Bretum verð-
j ur leyft að ferðast til sjer til
, skemtunar. Standa samningar
! um það núna í báðum löndunum.
Vera má að Spánn komi einnig
til greina. Annars fara breskir
skemtiferðamenn mestmegnis til
Frakklands og Svisslands í frí-
um sínum og er búist við mikl-
um breskum ferðamannastraumi
þangað á sufri komanda og er
þegar hafinn undirbúningur i
sambandi við það, — Reuter.