Morgunblaðið - 10.07.1948, Page 4
r«
MORGUNBLAÐID
Laugardagur 10. júlí 1948.
fííSl
! „Arsm gamla er syíjuií“
lagið, se rtt Steíj Islandi söng syo eftirminnilega, er
til í smá xxáisH^étta hefti ætti að vera á hverju hljóðfæri.
j: ^JJljóÍ^œt'a ueró iuu
ÁÁicjt'Áat' -JÁelcj.aclóttLit'
Lækjargötu 2-
nrauuxnnaaKVMMj
■■■■■■■
■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■'■■~M'**nnr)fionoiW'r
S;
■
D
15'
STÚLKUR
Okkur vantar nokkrar stúlkur til síldarsöltunar i sum
ar á Siglufirði. Trygging eftir taxta þar- Fríar ferðir
báðar leiðir. Fyrsta flokks húsnæði. Rafmagnsupphitun
Fullkomin hreinlætistæki. —
Uppl. gefu Jón Guðmundsson, Bræðraborgarstíg 4
mini kl. 6—8 næstu daga, sími 6403-
^JJ.ji. ^yJócf.eit' Ujetut'óóon
Siglufirði.
íbúar í Langholti
Nýtt brauðgerðorhús
1 dag, laugardaginn 10. júlí, kl. 8 árdegis, opna jeg
nýja brauða- og kökugerð í Skipasundi 57 í Langholti.
Vandaðar og góðar vörur.
^JJiimat' aJJucL
UlCfóó
Otl
5 herbergju íbúð I
■
til leigu í nýju húsi. Sá sem getur útvegað nýjan amer- :
ískán fólksbíl á sanngjörnu verði, gengur fyrir. Tilboð •
merkt: „Matsleiga — 165“ sendist afgr. Mbl. fyrir mið ■
vikudagskvöld. :
Byggingarlóð
óskast sem næst miðbænum. Tilboð merkt: „Bygginga- •
lóð — 166“, sendist afgr. Mbl- fyrir miðvikudagskvöld. ■
Unglingu vantur
til þess að bera út Morgunblaðið í Keflavík.
AFGREIÐSLUMAÐURÍNN I KEFLAVlK.
PELSASKINN
Danskt fyrirtæki, sem framleiðir pels’a, óskar eftir sam-
bandi við útflytjanda á gærum, lambaskinnum, selskinn
um og „Whitecoats“. Sendið umsóknir til B. 6758 Wolffs
Box, Köbenhavn. K.
^2) a a t ó t
Keillaráð
192. dagur ársins. í
Árdegisflæði kl. 9,05
Síðdegisflæði kl. 21,25.
Næturlæknir er í læknavarðstöf-1 g|
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki, jsími 1616.
Næturakstur annast Litla t ílstöðin
sími 1380.
Messur á morgun:
Dómkirfejan. Messa kl. 11, s.r
Sven Nielsien sóknarprestur við Páls
kirkjuna í KauPmannahöfn.
Frífeirkjan. Messað kl. 2 e.h. sr.
Árni Sigurðsson.
Hallgrímsprestakall. Messa í Aust
urbæjarskólk kl. 11 f.h. sr. Jakob
Jónsson.
Nesprestakall. Messa í kapellu
Háskólans kl. 11 árd. — Fólk er
beðið að athuga hreyttan messutíma.
Sr. Jón Thorarensen.
Laugarnesprestakall. Messa kl. 2
síðd. sr. Garðar Svavarsson. Að lok
inni guðsþjónustu verður fundur i
kvenfjelagi safnaðarins.
Söfnin.
LandsbókasafniS er opið kl. 10—
12, 1—7 og 8—10 alla virka dega
aesna laugardaga, þá kl. 10—12 c-g
1—7. — Þjóðskjalasafnið kl. 2—7
«lla virka daga. — Þjóðminjasafuið
kl. 1—3 þriðjudaga, fimtud&ga ot,
Bunnudaga. — Listasnfn Eiiara
Jónssonar ki. í,30—3,30 á sunnu-
dögum. — Bæjarbékasafnið kl
10—10 alla virka daga nema laugar-
daga kl. 1—4. Náttúrugripas&fnið
opið svmnudaga kl. 1.30—3 og þriðju
daga og fimtudaga kl. 2—3.
Gengið.
Sterlingspund___________
100 bandarískir dollarai
100 kanadiskir dollarar
100 sænskar krónur _____
100 danskar krónur______
100 norskar krónur _____
100 hollensk gyllini____
100 belgiskir frankar __
1000 franskir frankar
100 svissneskir frankax _
26.22
650.50
650.50
181.00
135.57
131.10
245.51
14.86
. 30,35
, 152.20
Þegar kemur aS því, að bera
skuli rabarbaragrautinn á borð í
þriðja sinn í röö, er hætl viS að
heimilisfóikin sje farið að þykja
nóg um. Er þá gott að fara aö á
eftirí’arandi hátl:
Eggjarauður eru hrærðar með
sykri þar til þær eru orðnar mjúk
ar. Síðan eru þær settar í litlar
skálar (eða glös, eins og sýnt er
hjer á myndinn) rabarbaragrautur
látinn ofan á, þeyttur rjómi notað
ur til skreytingar. Gott er að bera
smákökur með .
Brúðkaup.
1 dag verða gefin saman 5 hjóna-
band ungfrú Ingunn Eimrsdótt'r,
Týsgötu 1, og Brynjólfur Árnason,
fulltrúi í stjórnarráðinu. Heimili
ungu hjónanna verður að Blönduhl. 7
Hjónaefni.
S.l. laugardag opinberuðu trúlofun
sína, ungfrú Sigurbjörg Kristinsdóttir
frá Ólafsfirði og Franz Pjetursson,
Njálsgötu 60.
Nýlega opinberuðu trúlofun sina
Ingibjörg Pálsdóttir frá Litlu-Reykj-
um, Hraungerðishreppi og Gísli
Ágústsson, rafvirki, Selfossi.
Dr. Vig^go Zadig
Dr. Viggo Zadig fyrverandi há-
skólakennari frá Málmey, var meðal
farþega er komu með Drotningunni
siðast. Hann er hingað kominn í boði
nokkurra vina sinna, ætlar að vera
hjer á landi fram um miðjan ágúst.
Meðan hann dvelur hjer í bænum,
verður hann á heimili frú Guðrúnar
Erlings í Þingholtsstræti 33. Dr.
Zadig kom hingað í fyrsta sinn haust
ið 1904 og var hjer þá fram á næsta
sumar. Þá lærði hann íslensku hjá
Þorsteini Erlingssyni. Tókst með
þeim hin besta vinátta, er hjelst með
au Þorsteinn lifði. Dr. Zadig þýddi
nokkur kvæði Þorsteins á sænsku og
það svo, að höfundi þótti vel hafa
tekist.
Dr. Zadig kom hingað öðru sinni
sumarið 1930. Svo þetta er þriðja
heimsókn hans. Allt fra því hann
kom hingað í fyrsta sinni, hefir heim
ili hans í Svíþjóð staðið mörgum Is-
lendingum opið, og hafa þeir notið
þar frábærrar gestrisni hans. Dr
Zadig er mikill Islandsvinur og hefur
hann unnið mikið að hverskonar
kynningastarfsemi fyrir Island í
heimalandi snu. , j
Gróítuferð
Ferðafjelag templara efnir til
skemmtiferðar vestur að Gróttuvita, ‘
á sunnudaginn. Staðnæmst verður á
Valhúsahæð og þar skýrir kunnugur
maður frá örnefnum og gefur staðar
lýsingu. — Farið verður frá góð-
templarahúsinu.
Nýtt brauðgerðarhús
í Skipasundi 57
Hilmar Luðvigsson, hakarameistari
hefir sett á stofn brauða- og kökugerð
i húsi sínu, Skipasundi 57 í Lan'
holti. 1 dag opnar hann þetta nýja
brauðgerðarhús sitt.
Handknattleiksmót
íslands
sem hefjast átti í gærkvöldi varð að
fresta vegna veðurs og var þá ákveð
ið það það skyldi hefjast kl. 3 í dag.
Skipafrjettir.
Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss fer
frá Reykjavík annað kvöld, 10. júlí
kl. 20,00 vestur og norður og til út-
landa. Goðafoss fór frá Antwerpen
Jeg er að velta því
fyrir mjer —
hvort blöfekumaSur geti ver
ið græningi.
5 mínutna krossqáta
SKÝRINGAR
Lárjett: 1 selir — 6 fugl — 8 frið-
ur — 10 tenging — 11 safnaði sam-
an — 12 hjólðstafir — 13 fangamark
— 14 elska — 16 fuglar.
LóSrjett: 2 fæddi — 3 land í
Evrópu — 4 eins — 5 ástæða — 7
stirða — 9 hljóma -— 10 tenging ■—•
14 verslunarmál — 15 ósamstæðir.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárjett: 1 gular —• 6 man — 8 ÁÁ
— 10 mi — 11 stúlkan — 12 K.A.
— 13 rá — 14 ögn — 16 ósatt.
LóSrjett: 2 um — 3 laglega — 4
an — 5 háska — 7 einar — 9 áta —
10 mar — 14 ós — 15 N.T.
7. júlí til Reykjavíkur. Lagarfoss fer
frá Réykjavík í kvöld 9. júlí kl. 20,00
til Leith, Rotterdam og Kaupmanna
hafnar.Reykjafoss kom til Hull í
morgun 9. júlí Selfoss er á Siglufirði.
Tröllafoss er í New York. Horsa fór
frá Leith' 5. júlí til Reykjavikur.
Madonna er að lesta í Hull.
Southemlánd lestar í Antwerpen og
Rotterdam 16.20. júlí. Marinier lest
ar i Leith 8. júli og lestar siðan £
Hull til Reykjavíkur.
Cltvarpið.
8.30 Morgunútvarp. — 10,10 Veður-
fregnir. 12,10—13,15 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp. — 16,25 Veður
fregnir. 19,25 Veðurfregnir. 19,30
Tónleikar: Samsöngur (plötur). 19,45
Auglýsingar. 20,00 Frjettir. 20,30
Upplestur og leikrit (Anna Borgi,
Poul Reumerl og Mogen Wieth): a)
Ávarp og íslensk ljóð (Anna Borg)
b) Ævintýri eftir H. C. Andersen og
Johannes V. Jensen (Poul Réumert)
c) Kvæði: „Alt for Norge“ eftir Leif
Rothe (Mogens Wieth), d) Þriðii
þáttur úr „Dauðadansinum" eftir
August Strindberg (Anna Borg, Poul
Reumert og Mogens Wieth). e)
Kveðjuorð (Anna Borg). Auk þets
tónleikar af plötum. 22,00 Frjettif.
22,05 Danslög (plötur) — (22,30
Veðurfregnir). 24,00 Dagskrarlok.
fer .vsentanlega hraðferð vestur
um land til Akureyrar fimtu-
daginn 15. júlí. Pantaðir far-
seðlar óskast sóttir á mánudag,
verða annars seldir öðrum. —
Vörumóttaka á þriðjudag,
lls. Herðubreið
Vegna vjelbilunar fellur Vest-
fjarðaferðin niður, en Súðin fer
væntanlega í hennar stað til
Vestfjarða í lok næstu viku. —
Hinsvegar er gert ráð fyrir, að
Herðutareið geti farið áætlunar
ferðina austur um land hinn 15.
þ.m., og verður tekið á móti
flutningi í þá ferð næstkomandi
þriðjudag. Pantaðir farseðlar
óskast einnig sóttir á þriðjudag.
.s. uronmng
fer til Færeyja og Kaupmanna-
hafnar 22. júlí n.k. Þeir, sem
fen"ið hafa loforð fyrir fari
sæki farseðla mánudaginn 12.
júlí n.k. fyrir kl. 5 síðd., annars
seldir öðrum. Þeir erlendir far-
þegar, sem hafa farseðla frá
Kaupmannahöfn sýni þá einnig
samn daga.
NÆSTU TVÆR FERÐIR
frá Kaupmannahöfn verða 16.
og 30. júlí. Flutningur tilkynn-
ist sem fyrst til skrifstofu Sam
einaða í Kaupmannahöfn.
Sldpaafgreiðsla
Jes Zimsen.
— Erlendur Pjeíursson. —