Morgunblaðið - 22.08.1948, Page 3

Morgunblaðið - 22.08.1948, Page 3
Sunnudagur 22. ágúst 1948. MORGTJISBLAÐIÐ » 1 Bitdómnr Guðmundar Kjartanssonar um Heklubók Guðmundar Einarssonar frd !. útg. af Miðdol Hjer birtist ritdómur Guðmundar Kjartanssonar, jarð- frœðings, um 1. útgáfu af Heklubók Guðmundar Einars- sonar. Er prentaður upp úr ý. hefti af 17. árgangi Nátt- úrufrœðingsins. Er hann birtur hjer samkvœmt tilmœlum G. K., svo lesendum blaðsins gœfist kostur á að kynnast fmí, sem Guðm. Einarsson var að svara hjer í blaðinu á dögunum. Vegna þess hve ritdómurinn var langur, hefur nokkuð verið felt úr honum hjer. En allt það, sem Guðm. Einars- son gerir athugasemdir við t grein sinni, er birt hjer orðrjett. Ritstj. Ritdómur Guðmundar Kjart- anssonar um 1. útg. aí Heklu- bók Guðmundar Einarssonar, tekinn upp úr Náttúrufræðingn um, 4. h. 17. árg. Vegna þess, hve ritdómurinn er langur, hefur nokkuð verið fellt burt úr honum. En allt það, sem Guðm. E. gerir athuga- semdir við í grein sinni, er birt orðrjett. Guðmundur Kjartansson: RITFKEGN Heklugos 1947 eftir Guðm. Ein- arsson frá Miðdal og Guðm. Kjartansson. — Reykjavík 1947, Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guð- jónssonar. Bók þessi kom út snemma í desembermánuði og var auglýst með óvenju mikilli viðhöfn. Daginn áður voru frjettámenn útvarps og blaða boðnir á fund ,,annars“ höfundarins, og þeir ljetu sannarlega ekki undir höf- uð leggjast að segja frá tíð- indunum og hældu öllu, bæði bókinni og Guðmundunum. Jeg rak upp stór augu dag- inn eftir, er jeg sá frjettirnar og auglýsingarnar í dagblöðun- Um: Þarna var þá komin út bók eftir mig, meira að segja góð bók, án þess að jeg hefði hugmynd um, að hennar væri von! Raunar var jeg ekki einn talinn fyrir bókinni, svo var að sjá, sem við Guðmundur Einarsson ættum svipaðan þátt í henni. Jeg skal nú í stuttu máli skýra, hvern þátt jeg á í þessari bók. Skömmu eftir að Heklugosið hófst, var auglýst í öllum dag- blöðum í Reykjavík, að í ráði væri að gefa út bók með mynd- um af Heklugosinu og myndu þeir Guðmundur Einarsson, Pálmi Hannesson, Sigurður Þórarinsson og Guðmundur Kjartansson skrifa í hana hver sinn kafla, en ágóði af sölu skyldi renna til þeirra, sem biðu tjón af völdum gossins. Guðjón O. Guðjónsson skyldi annast út- gáfuna, og eitthvað var Rang- æingafjelagið í Reykjavík einnig við þetta riðið. Jeg var fyrir austan fjall, þegar þessi auglýsing birtist, og mjer var ekki sýnd hún fyrr en löngu síðar. Jeg hirti hana ekki því miður, og er efni hennar birt hjer eftir minni. Ekki hafði jeg heyrt getið einu orði þessarar fyrirhuguðu bókar, og því síð- ur hafði nokkur maður beðið mig um að skrifa í hana, þeg- ar auglýsingin var birt. Ekki hef jeg heldur verið beðinn um það síðar, að því undanskildu, að seint í sumar eða í haust hringdi Sveinn Sæmundsson til mín á vegum Rangæingafjelags ins og mæltist til að fá efni í bókina, ljet sem sjer kæmi ó- kunnuglega fyrir, að jeg hefði ekki tekið að mjer að skrifa í hana. En jeg sagði honum sem var, að enginn hefði beðið mig þess, og það með, að jeg myndi aldrei skrifa einn stafkrók í þessa bók. Við það hef jeg stað- ið. í nóvembermánuði hringdi Guðjón Ó. Guðjónsson til mín. Hann sagði mjer, að nú ætti bráðum að koma út bók um Heklugosið eftir Guðmund Ein- arsson, og bað mig leyfis að taka mætti upp í hana kafla úr Heklubók minni, Árbók Ferða- fjelags íslands 1945. Jeg taldist undan í fyrstu, þóttist nú ekki eiga aðstandend- um þessa útgáfufyrirtækis neitt upp að unna, þeir hefðu með auglýsingu sinni í vor hermt upp á mig loforð eða a. m. k. vilyrði, sem jeg hafði aldrei gefið og hefði ekki getað efnt, og með því gert mig að svik- ara í augum þeirra, sem trúa því, sem í blöðunum stendur. En jeg hjelt nú (og held raun- ar enn), að þetta hefði fremur verið frumhlaup og óviljaverk en hrekkur og bæri ekki að erfa það, og þegar Guðjón benti mjer á, að ágóði af bók Guð- mundar Einarssonar ætti að renna til þeirra Rangæinga, sem tjón hefðu beðið af Heklugos- inu, gat jeg ekki synjað leyfis, því að Rangæingar heima í hjeraði eru alls góðs maklegir af mjer. Jeg tók þó skýrt fram í símtalinu — og þeirra orða minnist Guðjón Ó. Guðjónsson enn — að það, sem upp yrði tekið úr bók minni, skyldi birt innan tilvitnunarmerkja og heimildarinnar (Árbókar F. I.) getið í hverjum stað. Jeg hafði skilið svo, að Guðmundur Ein- arsson ætlaði að vitna í bók mína sem fræðirit, annaðhvort í gagnrýni skyni eða til upp- fyllingar því, sem hann hefði sjálfur að segja. Og myndi jeg raunar láta óátalið, þó að slíkt væri gert leyfislaust. Af þessu ætti að vera ljóst, að jeg á engan þátt í þessari bók og hef ekki skrifað einn stafkrók í hana. Það er rangt, sem stendur á titilblaðinu, að jeg sje annar höfundur henn- ar .... Um kaflann, sem tekinn er upp úr Heklubók minni (Ár- bók F. í. 1945, bls. 137—148), er þess hvergi getið, hvaðan hann sje tekinn, og því síður er hann birtur innan tilvitnun- armerkja...... Nýjasta bók Guðmundar Ein- arssonar, Heklugos 1947, skipt- ist í þessa kafla: I. Heklugos 1947 — Frá ferðum : ííFjalla- manna“. (bls. 5—40)", II. Úr sögu Heklu—Heklugos (bls. 41 —55, uppprentun úr Árb. F.Í.), lituð ljósmynd eftir Halldór E. Arnórsson'og 48 ljósmyndir aðr ar, prentaðar á myndapappír, ein á síðu. Þá er úrdráttur á ensku úr I. og II. kafla, gerður af Bjarna Guðmundssyni (bls. 105—130) og loks efnisyfirlit og skrá yfir höfunda ljösinynd- anna. Bókin er í drjúgum stærra broti en Náttúrufræð- ingurinn, en þó miklu minna lesmál á blaðsíðu, því að spássí- ur eru miklar og letur stórt. Á kapítulaskiptum eru hressilega teiknaðar vinjettur eftir G. E. og flúraðir upphafsstafir. Að undan skildum skýringum undir myndum er kafli G. E. (bls. 5—40) hið eina frum- samda lesmál í þessari bók .... Á bls. 8 lýsir höf. Heklu sjeðri „úr Skúmstungum við Þjórsá ofanvert við Búrfell og Stangarháls.“ Skúmstungur eru raunar ofanvert við Sandafell, og það er aftur um 15. km veg inn af norðurenda Búrfells. Stangarháls mun hvergi vera til á þessum slóðum, en höf. á sennilega við Stangarfjall. Það er ekki mjög langt frá Skúms- : tungum en þó er þar Sandafell á milli, svo að enginn .kunnug- ur maður myndi komast svo að orði, að Skúmstungur væru „ofanvert við“ Stangarfjall. Sú lýsing á útsýni til Heklu, sem fer á eftir staðsetningu Skúmstungna, er mjög skáldleg en afar torskilin. A. m. k. hef jeg ekki getað skilið hána, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og að- stoð málfróðra manna. í því panórama kemur Gráfell við sögu. En Gráfell sjest alls ekki úr Skúmstungum nje neinum ■þeim stað, sem ætla má, að G. E. haldi vera Skúmstungur. Á bls. 10 hefur G. E. það fyrir satt, að Heklugosið hafi byrjað um stundarfjórðungi fyr en það byrjaði í raun og veru Heimildarmaður er Alexander nokkur „að“ Djúpadal.. Hann sá Heklu skafheiða og misfellu- lausa um morguninn ^9. mars, áður en gosið hófst. Leit hann þá á armbandsúr um leið og hann spennti það á úlnllð- inn. Var það borið saman við símaklukku á Hvolsvöllum kvöldið áður, reyndist þá klukk an 6,20.“ Eftir setningaskipun og lestrarmerkjum segir raunar í þessari klausu, að kl. 6,20 hafi úr Alexanders verið borið sam- an við símaklukku. En það er út af fyrir sig svo lítil tíðindi, að ekki er að efa, að G. E. á við hitt, að á þessum tíma hafi Alexander litið út um gluggann. Þann skilning staðfestir enn fremur enska þýðingin (bls. 107). H. u. b. 2 mín. síðar hófst gosið samkv. þessari heimild. — Þess má geta, að næsta síma- stöð við Djúpadal er á Hvols- velli (ekki „Hvolsvöllum“. Eng- inn bær með því nafni er til í Rangárþingi). Á bls. 13: „Án mælinga var hægt að ákveða, að á fyrsta klukkutíma gossins hafði hið fræga eldfjall orpið gosfleygum sínum upp yfir gufuhvolf jarð- ar.“ Minna mátti nú gagn gera! — Dýpt gufuhvolfsins skiptir hundruðum kílómetra, en hæð gosmakkarins varð þó aldrei nema um 27 km. Gáum aftar í bókina og sjáum, hvernig þetta útleggst á ensku: „.... the venerable old volcano had belc- hed its smoke rigth out of the atmosphere.“ Var nú ekki nóg að prenta þetta á íslensku? Þarf að auglýsa á fjöllesnustu tungu mannkynsins mestu vitleysurn- ar í íslenskum bókmenntum? Þessi staðhæfing, að gosmökk- ur Heklu hafi náð upp úr gufu- hvolfinu, er endurtekin á næstu blaðsiðu og aftur snúið á ensku. G. E. vill vissulega ekki draga úr mikilleika þeirra fyrirbæra, sem hann segir frá, en þessi skissa hans stafar þó ekki af metnaði nje gorti, heldur af því, að hann veit ekki, hvað gufu- hvolf er, ruglar því saman við trópósferuna, sem er hið neðra lag gufuhvolfsins og nær h. u. b. 10 km. upp frá jörðu, en þar fyrir ofan tekur við stratósfer- an.... Þessi misskilningur um gufuhvolfið, sjest af því, að ann- ars staðar í bókinni er hæð gos- makkarins (rjettilega að kalla!) talin 25 km..... Á bls. 15: „Þegar gamla Næf- urholt eyddist, var hitinn frá hraunstraumnum svo mikill, að þekja baðstofunnar sviðnaði. Selsundsbærinn var nálega um- flotinn hraunstraumnum. Allar uppsveitir Rangárvallasýslu ör- foka.“ — Gamla Næfurholt eyddist í Heklugosinu 1845, er hraun rann þar heima á tún. En ekki veit jeg, hvaðan G. E. kem- ur sú viska, að baðstofuþekjan hafi sviðnað af hitanum. Hitt veit jeg, að það er ekki satt. Og það ætti G. E. að vita líka. Hin afbragðsgóða kvikmynd, sem hann hefur tekið af hraungosi og hraunrennsli ,sannar, að hann hefur komið mjög nærri rennandi hrauni. Óbrunninn kom hann þaðan og lítt sviðinn eða ekki. Sú reynsla hefði átt að kenna honum, að hiti frá rennandi hrauni svíður ekki við, torf, nje gras fyrr en um það bil, er sjerstaklega heit hraun- brún fellur yfir þessi efni. En tættur gamla Næfurholtsbæjar- ins standa á að giska 100 m. frá hraunjaðrinum.... Á bls. 27 er komið fyrir furðu mörgum skekkjum í þremur lín- um. Jeg leyfi mjer að slíta til- vitnunina í sundur með athuga- semdum minum innan horn- klofa: „Til dæmis óku þeir Hellu menn og Ragnar Jónsson [Har- aldur Runólfsson í Hólum var þó einnig með og þeirra lang- kunnugastur] annan gosdaginn [þetta gerðist fyrsta gosdaginn] alveg upp í Markhlíðirta [þeir fóru fyrir ofan (norðan) Mark- hlíð, en ekki upp í hana] að Haf- urshorni (388 m.) [Hafursliorn er 368 m. y. sjó samkv. Herfor- ingjakortinu, en hæð 388 er miklu innar og nafnlaus] og gengu upp að hraunstraumnum [þeir gengu nokkuð áleiðis að næsta hraunstraum, en komu ekki að honum. Morguninn eft- ir kl. 8,45 kom Haraldur fyrst- ur manna í þessu Heklugosi al- veg að rennandi hrauni, en þá voru aðrir menn í för með hon- um], sem þeir Galtafellsmenn og Jón Eyþórsson heimsóttu.“ Jón Eyþórsson og samferðamenn hans frá GaltaZœfc fóru aðra leið og komu að öðrum hraun- straumi en þeir Haraldur. Víðar í bókinni en á þessum stað er bærinn Galtalækur uppnefndur „Galtafell“, en þó sums staðar kallaður rjettu nafni. — Sjö línum neðar á sömu bls. er „spaklega skráð“ (þessu orða- lagi stel jeg frá G. E., bls. 14): „Tuttugu metra þykkur og sex- tán kílómetra breiður hraun- straumur gefur ímyndunarafl- inu meira að starfa en gosstrók- ar sjeðir úr fjarlægð“. Þessu treystist jeg ekki að mótmæla. Jeg hef aldrei sjeð sextán kiló- metra breiðan hraunstraum og nafni minn varla heldur. Mestur hluti af grein G. E. fjallaar um viðburði fyrstu tveggja eða þriggja viknanna framan af gosinu, en 5 síðustu blaðsíðurnar eru eins konar við- auki, saminn sex mánuðum síð- ar, um helstu viðburði gossins í sumar og haust. Þessi viðauki er ekki síður morandi af mis- hermum og vitleysum en það, sem á undan var komið. — Jeg tek aðeins eitt dæmi, þar sem feitt er á stykkinu: „í annan stað er furðulegt, hvernig hraunbrúnin stöðvaðist í svokölluðum Kór ofan við Bjólfell [Milli Kórsins og Bjól- fells er um 3 km. breitt sljett- lendi]. Eins og nafnið bendir til, var helgi á þeim stað [Hvað skyldi nú benda til þess annaö en nafnið? Og nafnið gerir það raunar ekki heldur] og er þar einn fegursti blettur við Heklu- hraun, dalkvos vaxin víðikjarri lágu. Skjólsælt er þar og dásam- legt [Kórjnn er smákriki milli hraunbrúnar og móbergsfells. Allur er hann eitt flag, þakinn vikri og hraunurð. Ekkert víði- kjarr er þar, en eitthvað af mjög lágu og kræklóttu birti vex í hraunbrúninni ásamt mosa og lyngi, en litlu grasi]. Þarna hef- ur áður stöðvast hraun og mynd ar brúnin háan kamb þversum milli hlíðanna. Nú stöðvaðist hraunstraumur, litlu minni [Nýi hraunstraumurinn er miklu stærri], rjett á brún gamla hraunsins (frá 1845) [„Gamla hraunið“ (Efrahvolshraun) rann mörg hundruð árum fyrir 1845]. Enginn hraunsteinn valt fram í Kórinn.“ — Hvoru á nú að trúa, upphafinu eða endin- um? Stöðvaðist hraunið í Kóm- um, eða valt enginn hraunsteinn fram I kórinn? Hið síðara er rjett. Þeim, sem heldur fram tveimur andstæðum, ratast satt á munn í annað skiptið. Á ferðum sínum til Heklu hef- ur Guðmundur Einarsson að öll- um líkindum sjeð margt það, sem enginn sá annar, en fengur væri í að fá að vita um fyrir Frh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.