Morgunblaðið - 22.08.1948, Side 6

Morgunblaðið - 22.08.1948, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 22. ágúst 1948, ! 6 fH * Ötg.: H.Í. Arvakur, Reykjavík.. Framkv stJ.; Sigíús JónssoB. 'utstjóri: Valtýr Steíánsson (ábyrgðsrm.). i'rjettaritstjóri: ívar Guðmundasow Auglýsingar: Árni Garðar Kristinæssa. Ritetjórn, aifglýsingar og afgreiðai* Austurstrseti 8. — Sími 1600 Áskiiftargjald kr, 10,00 á mánuði, fnnaaiands, í laiisasölu 60 auia etntakið. 75 aura m«*3 L<rsbðk. kr. 12.00 utanlands. Eyðilegging ÞAÐ er ekki aðeins á fundum allsherjarþings Sarneinuðu Þjó ranna og Öryggisráðsins, sem fulltrúar stórveldanna eru fundvísir á deiluefni. Á velflestum hinna mörgu ráðstefna, sem haldnar eru um margskonar málefni rísa harðar deilur cg togstreitur, jafnvel um smáatriði. Eitt dæmi þess er útvarpsráðstefnan, sem staðið hefur yfir í Kaupmannahöfn síðan í júní í sumar. Hlutverk þessarar ráðstefnu var að ræða og komast að samkomulagi um ýms útvarpsmálefni, þar á meðal skiftingu bylgjulengda milli út- varpsstöðva hinna ýmsu þjóða. Á þessari ráðstefnu hefur farið á svipaðan hátt og á mörg- um öðrum ráðstefnum, djúptækur ágreiningur hefur risið milli þjóða Austur-Evrópu og hinna vestrænu lýðræðisríkja. Fyrst var deilt um fundarsköp ráðstefnunnar. Greindi menn fyrst og fremst á um það, hvernig haga skyldi atkvæða greiöslum um mál. Rússar gerðu þá kröfu að til þess að til- laga teldist formlega samþykt þyrftu allar þjóðir ráðstefn- unnar að greiða henni atkvæði. Ef einhver ein þjóð greiddi hinsvegar atkvæði gegn henni skyldi tillaga teljast fallin, enda þótt ailar hinar þjóðirnar væru henni fylgjandi. Með því að fá slik fundarsköp samþykkt hugðust Rússar skapa sjer aðstöðu til þess að hafa öll störf ráðstefnunnar í hendi sjer. Fyrir þeim vakti bersýnilega að fá þarna neit- unarvald gjörsamlega hliðstætt því, sem þeir hafa notað til þess c.ð gera samtök Sameinuðu Þjóðanna svo að segja óvirk. En þessi tillaga Rússa um fundarsköp var felld. En „lýð- ræðisvinirnir“ að austan voru ekki af baki dottnir við það. Þá lýstu þeir því yfir að þar sem tillaga þeirra hefði ekki verið tekin til greina, gætu þeir ekki talið þessa samþykkt gilda. Meirihluti ráðstefnunnar taldi málið hinsvegar af- greitt. Næsta krafa Rússa var sú að Eystrasaltslöndin, sem þeir hafa u.idirokað, fengju að hafa sjerstaka fulltrúa á ráðstefn- unni, jafnvel að finnska Karelína yrði skoðuð sem sjerstakt riki. Þessar kröfur settu Rússar fram til þess að reyna að auka a, kvæðamagn sitt á ráðstefnunni. Ef til vill sýnir fátt betur en framkoma fulltrúa Sovjet- stjórnarinnar á þessari útvarpsráðstefnu, hversu lítt stefna kommúnista á skylt við það, sem þjóðir Vestur-Evrópu kalla lýðræði. Fulltrúar kommúnista stjórnarinnar rússnesku á alþjóðaráðstefnum geta aldrei sætt sig við það að meirihlut- inn ráoi eins og tíðkast í öllum lýðræðislöndum. Þeir krefj- ast þess alltaf að fá neitunarvald, vald til handa örlitlum minnihluta til þess að koma í veg fyrir að vilji yfirgnæfandi meirihlut þjóðanna fái að ráða. Það er þessvegna mjög hæpinn vinningur að þátttöku Sovjet Rússlands í alþjóðasamvinnu. Kommúnistar líta r.efni- lega ailt öðru vísi á slíka samvinnu en aðrir. Þá varðar ekkert um það, hvort tillögur til lausnar vandamálunum hafa meirihlutafylgi að baki sjer eða ekki. Ef þeir sjálfir eru. þeim mótfallnir er ólöglegt að samþykkja þær og þá er Sovjet Rússland ekki bundið af þeim!! Framkoma Sovjet fulltrúanna á útvarpsráðstefnunni í Kaupmannahöfn er aðeins lítið dæmi um óskammfeilni Moskvamanna og fyrirlitningu fyrir lýðræðisreglum. En hún er í fullkomnu samræmi við hegðun þeirra á öllum þeim alþjóðaráðstefnum, sem haldnar hafa verið síðan friðarráð- stefnan í París var haldin sumarið 1946. Aldrei hafa þjóðir heimsins byggt jafn mikla von á því að traust samvinna tækist á meðal þeirra um sköpun friðar og öryggis en einmitt eftir síðustu heimstyrjöld. En þessar vonir eru farnar að fölna. Hver ráðstefnan á fætur annari hefur runnið út í sandinn vegna rifrildis um neitunarvald svipaðs eðlis og fulltrúar Rússa kröfðust á útvarpsráðstefnunni. Það er sannarlega engin furða þótt sú skoðun verði al- mennari að kommúnistastjórnin rússneska sje með fram- komu sinni í alþjóðamálum að vinna markvíst að því að evðileggja alla viðleitni til þess að byggja upp nýjan heim úr rústum styrjaldareyðileggingarinnar. Til þess bendir einnig hin tryllta andstaða kommúnista allra landa gegn viðreisn yestur-Evrópu á grundvelli Marshalllaganna. t-ar: VíLverii ibrifa ÚR DAGLEGA LIFINU Skcmmdarstarfsemi. I ÞAÐ liggur grunur á, að það hafi verið fyrir skipulagða skemmdarstar'fsemi af hálfu á-, kveðinna manna, að ekki tókst að ganga frá stofnun fegrunar- | f jelagsins á afmæli Reykjavikur, í vikunni sem leið. Á fundinum komu fram ræðu-1 menn, sem ekki er vitað um, að hafi borið fegrun bæjarins fyrir brjósti til þessa, frekar hitt. —' Þeir voru þarna með fíflalæti; og billega brandara til þess að: reyna að gera starfsemi íorystu- manna fjelagsins hlægilega. Það má allt af búast við að slíkir gikkir, eins og hjer voru á ferðinni stingi upp kollinum. En áhrifa þeirra gætir ekki lengi og þeim tekst ekki að; tef ja fyrir framgangi góðs mál- efnis til lengdar. Fegrunarfje- lagið verður stofnað og það á eftir að láta margt gott af sjer leiða fyrir Reykjavík og Reyk- víkinga. • Sífellt þversum. ÞAÐ eru allt af nokkuð margir menn, sem eru þversum í öllum fjelagsskap. Til þess liggja ýms ar ástæður. Stundum er það vanmáttarkend, sem kemur til greina, stundum valdafýsn, eða bara hrein og bein illgirni. Það er ekki nokkur vafi á, að það vakir fyrir nokkrum mönn- um, að reyna að nota hugmynd- ina um stofnun fegrunarfjelags ins til þess að ná sjer niðri á andstæðingum, eða til að upp- hefja sjálfa sig. En forgöngumennirnir að stofnun fjelagsins höfðu og hafa aoeins eitt takmark og það er að borgararnir bindist sam- tökum um að fegra borgina sína, gera hana fallegri og bjart- ari borg. . • Ekki gegrn — heldur fyrir. FEGRUNARFJELAGIÐ á ekki að nota gegn neinum heldur fyr- ir borgarana. Það er hinn göfugi tilgangur þess. Það er nóg til af fjelögum í þessum bæ, sem stofnuð eru gegn einhverjum á- kfeðnum mönr.um og til fram- dráttar fámennum hópum. Fegrunarfjelagið á ekki að verða slíkt fjelag. Það á að vinna að hag allra borgaranna og taka íegins hendi þeirri hjálp sem menn vilja I einlægni láta fjelagsskapnum í tje til þess að tilgangi hans verði náð. Það er sama hverrar trúar menn eru, hvort þeir eru kaþólskir, eða mótmælendur, sjöunda dags að- ventistar, eða úr Filadelfíusöfn- uðinum. Þeir geta allir orðið liðgengir í fegrunarfjelaginu og tilbeðið sinn guð fyrir því. En. skemmdarverkamer.n hafa þar ekkert að gera. • Iíeflavíkur- flugvöllur. ÞAÐ þykir flestum heldur illa búið að farþegum, sem koma til Keflavíkurflugvallar með flug- vjelum. Eins og gengur koma flugvjelarnar á öllum tímum dags á Keflavíkurflugvöll, en þaðan eru engar fastar bifreiða- ferðir til Reykjavíkur í sam- bandi við komu flugvjelanna og kemur fyrir, að farþegar verða að húka suður frá í margar klukkustundir til að bíða eftir að ferð falli með áætlunarbíl, eða kaupa leigubíl frá Reykja- vík, sem kostar stórf je. Þetta hefur mörgum, sem von er þótt óþolandi ástand og litt við undandi. • Farþegabiðsalur sæmilegur. FA RÞEGASALURINN í Kefla- vík er hinsvegar sæmilegur og von er á öðrum betri, ef fyrir- ætlanir Bandaríkjamanna stand ast um að lokið verði byggingu hinnar nýju flugstöðvar í sept- embermánuði eins og ráðgert hefur verið. Veitingastofan er einnig stór- lýtalaus nú orðið, þótt betri mætti hún vera. H'vað Iíður landkynningunni? OG hvað líður landkynning- unni þarna suður frá? Hán er víst jaín lítil og Ijeleg og hún hefur ávallt verið. Það er ekki hægt að búast vio að Ameríkan- ar taki það verk að sjer að kynna lar.dið og þjóðina þeim erlendu mönnum, sem á völlinn koma, en þeir skipta þúsundum á mánuði hverjum. Þaö er verkefni, sem Islend- ingar verða að taka að sjer og sjá um. Það er víst komið á annað ár síðan ákveðið var að setja upp fallegar Ijósmyndir í íarþegabiðsalinn. Þær eru ekki komnar enn. Minjagripasalan er heldur ekki til fyrirmyndar, því minja- gripir, sem á boðstólum eru kosia stórfje og ekki hægt að búast við að verðið hæfi pyngju venjulegra flugíarþega. Geta hænsni lifað á fslandi? EINA sögu um fáfræði erlendra flugfarþega, sem koma til Kefla víkur kann jeg að segjá. Það var í maí í vor. Flygvjel var að koma vestan frá Amer- íku. Meðal farþega var gömul kona af finnskum ættum. Eftir tveggja stunda viðdvöl var hald- ið áfram til Norðurlanda. Er flugvjelin var komin upp í loft- ið sagði gamla konan: — Þetta er ömurlegt land. En Við feng- um þó egg að borða. Ætli það geti lifað hænsni á þessu landi? Það þykir mjer ekki trúlegt. Sennilega flytja þeir inn egg frá Ameríku!! 1 þetta skipti voru íslendingar í vjelinni til þess að segja gömlu konunni, að landið væri ekki eins ömurlegt og hún hjelt eftir að hafa aðeins sjeð Reykjanes- skagann úr lofti. En hvað ætli fari mörg þús. útlendingar um Keflavíkurflug- völl, sem engar upplýsingar fá? I MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . 1 iiimimimiii mmmimmmm immmmmmmimmmii mmmmmmmmmiiia Leilað að örfcinni hans Nóa ÞAÐ hefur lengi verið ein æðsta von bókstafstrúarmanna, sem trúa á óskeikulleik þess, sem "í biblíunni stendur, að finna leyfarnar af örkinni hans Nóa. Ef einhverjar slíkar leyfar fyndust yrði það eitt sterkasta sönnunargagn, sem þeir hefðu í höndum sjer um óskeikilleik biblíunnar. Suður í Norður Karólína í Bandaríkjunum er prestur einn að nafni Dr. Aaron Jacob Smith kólastjóri biblíuskólans í Green boro, sem trúir því, að innan skamms tíma verði hægt að gera von þessa að veruleika. Hann hefur sótt um leyfi hjá tyrknesku stjórninni ög verið veitt það um að fá að senda leiðangur upp á fjallið Ararat, sem er um það bil 4000 metra yfir sjávarmál. Þar heldur hann að örkin sje enn. HVEKJAR ERU LIKURNAR. Ýms rök, sem Dr. Smith finnst hníga að því, að örkin muni vera þarna eru kunn úr biblíunni, en Dr. Smith hefur og viðað að sjer athugunum frá síðari tímum, svo sem sögum fjallgöngumanna, síðustu alda um að uppi á háfjallinu sjeu leyfar af stóru trjeskipi. Merkilegust er frásögn rann- . sóknarflokks, sem sendur var i upp á fjallið 1883. Þeir sögðust; hafa sjeð einkennilega bygg- j ingu úr trje á fjallinu. A síð- j asta tug aldarinnar fór Nouri prestur í Nestorísku kirkjunni upp á fjallið og sagðist hafa sjeð örkina. Svo var það fyrir skömmu að rússneskur flugmaður, sem var á flugi um Kákasusfjöllin, segist hafa sjeð mikla byggingu úr timbri á Ararat. Það varð til þess, að gamall rússneskur flug- maður, Vladimir Roskovsky, sem nú er í Bandaríkjunum en í fyrri heimsstyrjöldinni var flugmaður í flugliði sarsins fór að rifja upp fyrir sjer, að einu sinni, þegar hann var á flugi á j þessum sömu slóðum, sá hann ’ í fjallinu eitthvað, sem líkt- J ist stóru skipi. Auk þess man hann eftir því, að skömmu síðar sendi rússn- eska stjórnin rannsóknarleið- angur, tvær deildir hermanna, sem fundu skipið. Sögðu þeir, að það væri á stærð við orustu- skip, byggt úr Oleander við, sem aldrei fúnar. Að innan var því skipt í mörg hundruð smá klefas sumt var auðsýnileg; herbergj fyrir menn, en annai var búr fyrir dýr, Tneð járn rimlum fyrir. Roskovitsky, seg ir, að vegna byltingarinnar Rússlandi hafi þessar rannsókn ir og þessi fróðleikur fallið gleymsku. 0 0 EINN SEGIR AÐ ÖRKIN SJE EKKI TIL. En tyrkneskur liðsforing: sem nýlega gekk á hæsta tini Ararat lýsti því nýlega yfir, a þar væri engin örk. Því svar bókstafstrúarmennirnir, að tin; ar Ararats, sjeu ekki eins o e'j,nn punktur heldur allstói svæði og ekki sje hægt að segj um nema með nákvæmri rann sókn, hvort örkin sje þar. Bent er á, að sjerkennileg sje, að Ararat sje hjerumbi nákvæmlega jafnlangt fr Kaspíahafi og Svartahafi. 0 0 SAGAN ER TIL í ÞREMUR ÚTGÁFUM. Sagan af Nóa og örkinni e ekki aðeins í Gamla Testament inu, heldur er hún einnig þekk í gömlum babýlonskum sögnur Framh. á bls. 1:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.