Morgunblaðið - 15.09.1948, Síða 2
2
MORGUJSBLAÐIÐ
Miðvikudagur 15. sept.
<
Danirætlaaðmóf-
mæla fiugi rússn-
Aiutjanir effir 6 ár
FYRIR NOKKRUM dögum,
*íðan fóru þeir upp í Þjórsárdal
f-Tákon Bjarnason skógræktar-
*t»óri, og Steindór Steindórsson
•uenntaskólakennari. Voru þeir
Jbar í tvo daga, til þess að rann
saka hvernig gróðri hefir farið
þnr fram á síðustu sex árunum.
Fyrir sex árum síðan völdu
þeir sjer reiti á söndum og
,,viknnn“ í dalnum, þar sem
gróður var einna minstur og
nnnarsstaðar, þar sem meira
var gi’óið. í þeim tilgangi. að
reitir þessir yrðu rannsakaðir
rneð vissu millibili, svo hægt
væri að fylgjast með því, hver
langan tíma það taki, frá því
dalurinn var friðaður, að land
sena var lítt sem ekki gróið yrði
klætt gróðri.
Á söndutjum þar sem gróður
>nn var einna minstur fyrir 6
fifum, náði gróðurinn yfir hálf
en þriðja prósent af yfirborð-
*nu. En þar hafði gróðurinn
tvöfaldast, þakti nú um 5%.
Gróðurinn þarna er að lang-
mestu leyti túnvingull, eða af-
brigði hans, sem kallaður hefir
verið sandvingull. En auk þess
melagróður svo sem fálkapung
U) og melskriðnablóm.
Þar sem eltíng vex á mold-
um hefir hún e'kki aukist mik-
>ð á þessum undanförnu sex.
fir um. Enda fer vöxtur hennar
evo rnikið eftir tíðarfari árlega.
En þar sem landið var gróio
é aíhugunarreitunum að fjórð-
ungi fyrir 6 ánun síðan, þar
fiefir gróðurinn að tiltölu auk-
*st eins og á söndunum. gróður
topparnir sem þöktu þá fjórð-
ung, þekja nú helming lands-
ins-
Þeir fjelagar, Hákon og Stein-
dór hafa gert sjer ákveðna að-
ferð til þess að mæla eða telja
saman hve mikill hundraðs- ^
hluti lands er gróinn. og hafa (
gert sjer sjerstakt mæli-áhald
til þess.
Athugunarreitirnir stm þeir(
hafa víðsvegar um dalinn eru
samtals um 500 fermetrar að
flatarmáli.
Þjórsárdalsgirðingin er alls
13,500 hektarar að stærð. Svo
mjög var landssvæði þetta blás,
ið, þegar það var girt fyrir 10
árum síðan að mjög lítið gagn
var að þvi til beitar. F.ftir því
hve gróðri hefir farið fram, er
auðsætt, að dalurinn grær að
mestu upp eJf friðuíiin fær að
haldast.
I girðingu þessa kemur eng
in skepna allan ársins hring,
nema þegar fjársafnið er rekið
heim af afrjettunum á haustin.
Þá verður að gista með það eina
nótt innari girðingarinnar. Ef
gangnamenn nátta sig með safn
ið ofan við girðinguna, þá ná
þeir ekki með fjeð niður að
fjallskilarjettum á næsta degi.
En þá fyrst væri vel, ef hægt
j rði að koma því við, að gióð
ursetja nytjaskóg á friðlandi
þessu, svo um munaði. Nokkuð
hefir birkikjarr breiðst út nið
ur með Rauðá, og eins í hlíð-
um Búrfe'lls, sem síðar meir
yrði hægt að nota til skjóls fyr
ir annan nytsamari skógargróð
ur.
flugvjeið yfir
Bornhólin
Kaupmanahöfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTID
hefur til athugunar, að senda
mótmæli til Moskva vegna þess
að rússneskaf' flugvjelar flugu
yfir Bornholm. Búist er við, að
í mótmælum Dana verði bent á,
að Danir leyfi ekki erlendum
hernaðarflugvjelum að fljúga
yfir danskt land, án sjerstak".
leyfis.
í seinna skiptið, sem rúss-
neskar hernaðarflugvjelar flugu
yfir Bornholm voru þær 65
saman og flugu þær yfir eyna í
björtu veðri ög því ekki um
neinn misskilning að ræða, eða
villu flugmanna.
Flotamálaráðuneytið danska
hefur skyndifega aflýst fyrir-
hugaðri ferð freigátunnar Niels
Ebbesen til Odense og hefur
ekki gefið neina skýringu á
þessari breytingu á ferðum
skipsins.
Blöðin segja, að Niels Ebbe-
sen sje kominn til Bornholn-
og sje koma skipsins þangað
sennilega í sambandi við flug
rússneskra flugvjela á þessum
slóðum og æfingar rússne^ka
flotans í Eystrasalti.
Berlingske Tidende segir, að
ríkisstjórnin hafi í undirbún-
ingi frumvarp að lögum um
byggingu stórra neðanjarðai-
byrgja úr járnbendri stein-
síeypu. — Páll.
setti íslandsmet í
Sigurður Björnsson
íslandsmeislari
í lugjiraul
4x1500 m. boðhlaupi
Stefán Sörensson vann meislaramóls-
bikarinn
MEISTARAMÓTI íslands í frjálsum íþróttum lauk í gærkvöldi
með keppni í 4x1500 m. boðhlaupi. Sveit ÍR bar þar sigur úr
foýturn og setti nýtt íslandsmet. Tími sveitarinnar var 17.30,6
mín., og bætti hún fyrra íslenska metið, sem Ármann setti 1945,
um 22 sekúndur. íslandsmeistarar og methafar ÍR eru: Orn
Eiðsson, Sigurgísli Sigurðsson. Pjetur Einarsson og Óskar Jóns-
TUGÞRAUT meistaramótsirs
fór fram um síðustu helgi við
mjög óhagstæð veðurskilyrði
íslandsmeistari varð Sigurður
Björnsson, KR. Hlaut hann 5081
stig. Er þetta fjórða meistara-
stigið, sem hann vinnur á þessu
móti.
Annar í tugþrautinni var Pád
Jónsson, KR, með 4765 stig, 3.
Kári Sólmundarson, Skalla-
grími með 4734, 4. Bjarni Linn-
et, Á, með 4681 stig, 5. ísleifur
Jónsson, ÍBV. 4639 og 6. Kol-
beinn Kristinsson, Selfossi
4551.
son.
Önnur í boðhlaupinu var
oveít Ármanns á 18.09,2 mín.
og þriðja sveit KR á 18.13,0.
Stefán Sörensson vann
im eistaramótsbikarinn.
Meistaramótsbikarinn, sem
vcittur er fyrir besta afrekið
urmið á mótinu, hlaut Stefán
Sórensson. ÍR, fyrir þrístökk
4>itt, 14,88 m., sem gefur 912
ötig. Annað besta afrek móts-
ins var spjótkast Jóels Sig-
nrðssonar, sem gefur 898 stig,
jþciðji besti 1500 m. hlaup Ósk-
ars Jónssonar, sem gefur 896
ntig og fjórði besti 100 m. hlaup
Finnbjöms Þorvaldssonar, sem
*gefur 872 stig.
ÍK h: auf flesta meistara,
Ails var keppt í 20 greinum
á meistaramótinu. Meistara-
stigin fjellu þannig á fjelögin,
að ÍR hlaut 9, KR 8, UMSK
2 og Ármann eitt.
Guimar Kordahl
„seldur" fyrlr 75
þús. sænskar kr.
ÞAÐ hefur opinberlega verið
tilkynnt í Stokkhólmi, að Gunn
ar Nordahl hafi undirritað at-
vinnusamning við franska knatt
spyrnufjelagið Stade Francaise.
Samningurinn gengur í gildi 1
október, og fær hann borgaðar
75 þús. krónur sænskar.
, — G. A.
Árangur Sigurðar í einstök-
um greinum þrautarinnar va:
sem hjer segir: 100 m. hlaup
11,5 sek., langstökk 5,87 m.,
kúluvarp 9,44 m., hástökk 1,55
m., 400 m. hlaup 54,2 sek.,
110 m. grindahlaup 16,7 sek.,
kringlukast 28,97 m., stangar-
stökk 2,90 m., spjótkast 33,14
m. og 1500 m. 5,02,4 mín.
Þrír þeirra, sem byrjuðu
keppni luku henni ekki, Ás-
mundur Bjarnason, KR, Þor-
steinn Löve og Sigfús Sigurðs-
son. Ásmundur, sem var lang-
stigahæstur eftir fyrri daginn,
hafði þá hlotið 3133 stig, meiddi
sig í grindahlaupinu, sem var
fyrsta grein seinni dagsins og
varð að hætta. Sigfús meiddi
sig einnig, en Þorsteinn var ó
heppinn í langstökkinu, þar sem
hann gerði öll stökk sín ógild.
Fjölmenn! kirkju' 01 söng-1
kérainót Snæfellsness- |
prófastsdæmis !
Stykkishólmi, þriðjudag.
Frá frjettaritara vorum.
KIRKJU- og söngkóramót
Snæfellsnessprófasídæmis var j
haldið í Stykkishólmi laugar-
dag og sunnudag 11. og 12. sept.
Hófst það á laugardaginn kl (
8,30 með guðsþjónustu í kirkj-
unni.
Upphaflega var gert ráð fyrir.
að sjera Magnús Guðmundsson
prestur í Ólafsvík prjedikaði.
en sökum veikinda gat hann
ekki sótt mótið, en ræðu hans
flutti sr. Þorsteinn Sigurðsson
Staðarstað, en sóknaroresturinn
í Stykkishólmi þjónaði fyrir
altari.
Á sunnudagsmorgun var f jöl -
sótt barnaguðsþjónusta, sem sr
Þorgrímur annaðist, en sr. Sig-
urbjörn Á. Gíslason, sem heim-
sótti mótið, talaði e.innig við
börnin. Hámessa var eftir há-
degi og steig sr. Sigurbjörn í
stólinn í stað prófastsins, sr.
Jósefs Jónssonar, Setbergi, sem
ekki gat mætt vegna veikinda.
Þeir sr. Þorsteinn L. JónsSon, |
Söðulsholti og sr. Sigurður Lár- *
usson þjónuðu fyrir altari, en
auk þess tók sá síðarnefndi
gesti til altaris, og var altaris-
gangan fjölmenn.
Síðar um daginn flutti si.
Þorsteinn L. Jónsson erindi í
samkomuhúsinu um bænina, en
hún var aðalviðfangefni móts-
ins. Var þar húsfyllir.
Kl. 6 um kvöldið hófst svo
söngmót kirkjukóranna. Setti
formaður Kórasambandsins, sr.
Þorgrímur Sigurðsson, mótið og
bauð gesti velkomna. — Sjó
kórar tóku þátt í mótinu, Kirkju
kór Stykkishólms, organisti
frú Guðríður Magnúsdóttir
Kirkjukór Ólafsvíkur, organisti
Kristjana Siðþórsdóttir, Hellna
kirkjukór, organisti Finnbogi
Láruss., Laugarbrekku, Kirkju
kór Kolbeinsstaðarsóknar, org-
anisti Teitur Búason, Brúar-
fossi, Kirkjukór Miklaholts-
sóknar, organisti Þórður Krist-
jánsson, Miðhrauni, Búðar-
kirkjukór, organisti frú Björg
Þorleifsdóttir, Hólakoti, og
Kirkjukór Staðarstaðarsóknai
organisti Kristján Erlendsson.
Mel. Söngstjórar voru Bjarni
Andrjesson, kennari, Stykkis-
hlmi, sr. Þorgrímur Sigurðsson.
Staðarstað, sr. Þorsteinn L. Jóns
son, Söðulsholti, og fíú Björg
Þorleifsdóttir, Hólakoti. Hver
kór söng þrjú lög og síðan
sungu allir kórarnir saman und
ir stjórn hvers söngstjóra. Fór
söngmótið hið besta fram og
vakti söngurinn mikla ánægju
meðal áheyrenda, sem voru
fjöldamargir.
Kl. 9 um kvöldið söfnuðust
mótsgestir og þoipsbúar saman
í samkomuhúsinu til þess að
kveðjast. Var þar almennur
söngur og síðan töluðu þar sr.
Sigurbjörn Á. Gíslason og sr.
Sigurður Ó. Lárusson, en sr.
Þorgrímur Sigurðsson sleit mót
inu með bæn, og mannfjöldinn
söng „Ó þá náð að eiga Jesús“.
Mót þetta tókst í alla st.aði
vel og var mótsgestum til hinn-
ar mestu ánægju og uppbygg-
ingar og aðstandendum þess til
hinnar mestu prýði og sóma.
VÖRUSKIFTAJÖFNUÐURINN
fyrir mánuðina janúar til ágúst
loka er óhagstæður um 10,7
miljónir króna. Vöruskiftajöfn-
ur ágústmánaðar varð óhagstæð
ur um 11,5 milj. kr.
Hagstofan hefur nú lokið við
útreikning vöruskifta fyrir
ágústmánuð, en verðmæti inn-
fluttrar vöru nam í ágúst 33,9
milj. kr., en útfluttrar 22,0 milj,
-. -'
í ár og í fyrra.
Þá átta mánuði sem liðnir erU|
af árinu, nemur verðmæti inn-
fluttrar vöru 270,6 milj. kr., og
útfluttrar vöru 259,9 milj. kr„
Á sama tíma í fyrra nam heild-
arverðmæti útfluttrar vöru
156,0 milj. kr. og innfluttrar
303,6 milj. kr. Hefur því við-
skiftajöfnuðurinn verið óhag-
ur um 147,6 milj. kr.
Utflutningurinn.
Stærstu liðir útflutningsins
eru sem hjer segir: Isvarinn
fiskur fyrir 6,7 milj. Hann fór
því nær allur til Þýskalands,
eða fyrir 5,8 milj. kr. Þá var
seldur freðíiskur til Hollands
og Tjekkóslóvakíu, aðallega,
fyrir 6,3 m:ij. Lýsi var selt til
Bandaríkjanna fyrir 1,4 milj.
einnig fór lýsi til Póllands,
Tjekkóslóvak í Rúmeníu. Búlg
ariu og Tricste, en þetta lýsi
mun hafa vtn’i sent til þessara
landa á vegum Barnahjálpar
S. Þ. Einnig "f r lítilsháttar af
lýsi til Ástralíu. um 6 smál.
Síldarolía fór óskipt til Bret-
lands, fyrir 1,9 milj., og fiski—
mjöl var selt fvrir 1,3 milj. kr.
Það fór að mertu til Finnlands
o.g einnig nokki’ð til Palestínu,
Innflutningurinn.
Stærsti liður innflutnings-
verslunarinnar i ágúst, voru
timbur og rafmagnsvjelar og
áhöld, en þessir póstar námu
2,5 milj. kr. hvor. Næst kemur
svo ýms verkfæri og járnvörur
fyrir 2,3 milj. og veiðarfæri fyr-
ir 2,1 milj. Aðrir liðir eru svo:
Tóbak fyrir l’,2 milj., pappír
fyrir 1,3 milj., álnavara fyrir
1,4 milj. sement. 1.1 milj. og
vagnar og varahlutar til þeirra
fyrir 1,3 milj. kr.
iúkana í London
London í gærkveldi.
JÚLÍANA Hollandsdrottning
og Bernhard maður hennar
komu í heimsókn til Londoh í
dag. Hjónin stóðu aðeins við í
nokkrar klukkustundir og flugu
að því loknu aftur heim tif
Hollands. — Reuter. j