Morgunblaðið - 08.12.1948, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 08.12.1948, Qupperneq 5
Miðvikudagur 8. des. 1948. MORGIílIBLAÐIÐ blauðsyn samræmdrar áætiunar um framt kvæmdir og endurbætur í símamáium ÞAÐ er mikið talað og ritað um Marshallaðstoð þessa dag- ana bæði hjer heima og er- letndis. Bandaríki Norður- Ameríku bjóða fjárhagslega, hagfræðilega, skipulags- og verkfræðilega aðstoð þeim þjóð um, sem þes þarfnast og vilja taka á móti henni. íslenska ríkisstjórnin hefur birt óskalista um framkvæmd- ir í sambandi við Marshallað- stoðina, miklar stórhuga endur bætur til lands og sjávar. En það er ekki einu orði minst á stærsta þjóðnýtta fyrirtæki ríkisins Landssímann, sem þó þarfnast endurskipunar, senni lega meira en nokkurt annað fyrirtæki landsins til þess að geta fylgst með þeirri þróun, sem nú á sjer stað á öllum sviðum. Landssiminn „misti af strætisvagninum“ þegar önn- ur fyrirtæki og einstaklingar rjeðust í nýsköpun og hjakkar þess vegna í sama farinu og fyrir styrjöldina með úrelt og ónóg tæki og mannfrekt og af- kastalítið fyrirkomulag. Reikningsfyrirkomulagið er að mestu eins og það var fyrir 40 árum með blýanta og strok leður, sem aðaláhöld skrif- stofufólksins að viðbættum nokkrum samlagningar- og rit- vjelum. Að vísu hefur verið tekin upp ný aðferð við reikn- ingsfærslu langlínuafgreiðsl- unar hjer í Reykjavík, ísa- firði, Vestmannaeyjum og Siglufirði, aðferð, sem jeg kynti mjer í Kaupmannahöfn haustið 1945 og hefur reynst vinnusparandi, fljótvirkari og ábyggilegri en gamla tvíritun- arfyrirkomulagið. Er þetta spor í rjetta átt, en nauðsyn- legt væri að alt bókhaldskerfi Landssímans væri endurskoð- að og nýtísku vjelabókhaldi komið á laggirnar. Talssímaþjónustan i heild þarf að endurbæta. Þær fram- kvæmdir, sem gerðar hafa ver ið á því sviði síðan styrjöld- ínni lauk eru algjörlega ónóg- ar og þannig skipulagðar, að bundið er mikið fje í þeim án þes að notfærðir sjeu mögu- leikar til þess að fá einhverjar tekjur af þessum framkvæmd- um. Það var á sínum tíma keypt mikið af misjafnlega góðum jarðstrengjum af setuliðunum, sem þau skildu hjer eftir í jörðini þegar styrjöldinni lauk. Einnig heíur verið lagður jarð strengur mikið umtalaður frá Hvalfirði til Holtavörðuheið- ar. Nú er það sameiginlegt með jarðstrengina að sje um veru- lega vegalengd að ræða þarf magnara í sambandi við þá til þess að gott talsímasamband fáist í þeim. Annað veigamikið atriði er að til sjeu skiftiborð 'á símastöðvum þeim, sem jarð strengirnir liggja að svo hægt sje að starfrækja þessi talsam- bönd. Það er því augljóst að þetta alt þarf að fylgjast að, talsímalínur og jarðstrengir, magnarar og skiftiborð til þess að hagnýta talsamböndin Eftir Guðmund Jónm og þar með möguleikana á að fullnægja einhverju af hinni gýfurlegu símatalaeftirspurn og um leið að afla tekna fyrir Landssímann. En þetta er því miður ekki tilfellið. Magnara- lausum línum er demmt inn í úr elt og yfirfull skiftiborð, eða þær liggja ónotaðar í jörðinni. Það heyrist þarafleiðandi ver ó þessum nýju jarðstrengssam böndum en á loftlínunum. — Undirbúningur símtalanna vegna úreltra og ónógra tækja i og hve illa heyrist, óeðlilega ’ langur, alt að 3 til 5 minútur, j í staðin fyrir 30 sekúndur með nýtísku tækjum og hæfilegu álagi. Simanotendur eyða meiri tíma í símtalið vegna þess hve illa heyrist og eru óánægðir.'■ Starfsfólkið þreytist og afköst þess minka Qg Landssíminn tapar stórfje. i Þá er ekki nóg með að Lands- símann vantar skiftiborð, held ur haf orðið óskiljanleg mis- tök með þau fáu skiftiborð, sem komið hafa til landsins eftir styrjöldina. Eru t.d. skifti borðin, sem sett hafa verið upp á símastöðvunum í Keflavík, Akranesi, Neskaupstað og Vest mannaeyjum gamaldags, óá- byggileg 'og seinvirk klaffa- borð, sem engin ástæða er til að nota á þessum stöðum þar sem næganlegt rafmagn er fyr ir hendi og hefðu þar átt að koma nýtísku skiftiborð með ljósaútbúnaði. Landssíminn hefur enn sin aðalviðskipti á skiftiborðum og símatækjum við Noreg og Svíþjóð og virðist vera mjög erfitt að fá það sem hann van- hagar um frá þessum löndum og ýmsar kvaðir settar af þeirra hálfu, virðist, minsta kosti hvað skiftiborðunum við víkur, að þeir óliti að landið sje ennþá upplýst með olíu- lömpum og grútartýrum og þarafleiðandi henti okkur best það gamla. Finst mjer ótrúlegt að ekki hafi verið farið fram á annað og betra frá Landssímans hálfu. Virðist ennþá loða við, að upphaflega keypti Lands- simin alt sitt efni og áhöld frá Noregi og Svíþjóð vegna þess að viðskifti Islands voru á þeim tíma aðallega við þessi lönd og Danmörku kjötið, síld- in og saltfiskurinn, en síðan hafa tímarnir breytsts og við höfum nú aðstöðu til þess að beina okkar viðskiptum þang- að sem haganlegast er. Þá er ósamræmi það, sem nú er milli hjeraðssíma eða sveitasíma og aðallínukerfi Landssímans mjög svo athuga vert. A síðari árum hafa mjög margir sveitabæir fengið síma, og á stundum hefur litið út sem um væri að ræðá kapp- hlaup um hvort takast mætti að leggja síma að bænum áður en hann legðist í eyði. Mikið af þessum símum koma ekki bændum að fullum notum vegna þess að sambandið við aðalkerfi Landssímans er ófull nægjandi eða slæmt. — Væri nauðsynlegt þegar sveitasímar eru fyrirhugaðiiN að um leið væri endurbætt aðalkerfi Landssímans i hlutfalli við fjölgun símanna, svo full not yrðu af þeim og um leið fengi Landssiminn tekjur af lang- línusímtölum. Eins og sveita- lagnirnar eru framkvæmdar nú eru þær stórkostlegur út- gjaldaliður fviir Landssímann og tekjumöguleikar sáralitlir eða engir. Endurbætur og nýsköpun at vinnuveganna útheimtir fljót- virka og ábyggilega talsíma- þjónustu og það er nauðsyn- legt fyrir þjóðarbúskapinn að Landssíminn heltist ekki úr lestinni. Það þarf að gera 5 til 10 ára samræmda áætlun um fram- kvæmdir Landssímans, en það er því miður mín reynsla eftir tæpt 8 ára starf sem eftirlits- maður með talsimaafgreiðsl- unni, að slik framtíðaráætlun verði ekki gerð og framkvæmd eins . og nú er skipað málum hjá Landssímanum virðist því ekki annað fyrir hendi en að leytað verði aðstoðar utan frá og þá náttúrlega þar sem síma málin eru með nýtísku og arð- berandi fýrirkomulagi. Þetta mun kosta mikð fje og mikla vinu en gefa aftur mikið i aðra hönd, þar sem tekjumögu leikarnir biða eftir því að vera hagnýttir. Landssími Islands, ásamt pósti, flugþjónustu, íirðtækja- þjónustu, sjerleyfisferðum o. fl., er það mikið bókn að hag- kvæm yerkaskifting er nauð- synLeg. Nú eru þær tillögur, sem borna eru fram, til úrbóta tal- símaþjónustuni að minsta kosti, annað hvort alls ekki teknar til greina eða smávægi legar ívilnanir gerðar, eins og til þess að friða þann, sem til- löguna bar fram, en mólin aldrei krufin til mergjar svo hægt sje að komast að ákveð- inni niðurstöðu. Jeg vil taka það fram að hjer er ekki ráðist á einstakl- inga eða stjórn Landssímans, heldur á skipulagsleysið. Það er mjög sennilegt að hugsunar háttur minn falli ekki inn í þann, sem ríkir hjá Landssím- anum, en sennilega hefur vera mín meðal annara þjóða.í 12 ár átt sin þátt í því, en þar var í hávegum höfð hin gullna setning „hver maður á sínum stað“ með sjálfstæð verkefni og sjálfstæða hugsun og á- byrgðartilfinningu, en hjerna virðist það vera „allsstaðar og hvergi og aðrir hugsa fyrir þig“. Það má segja um Landssím- ann að hann sje stærsta þjóð- bera veggir talklefanna venju- iega þess vitni. Biðstofur I.andg simans, minnsta kosti í nýbygg ingum hans, ættu að vera vi;;t- legar með nægum þægiiegum sætum, snyrtiklefa og talklof- arnir loftgóðir og bjartir ineíf litlu skrifborði stól og ritföng- um eins og tíðkast víða er'iendis. nýtta verslunarfyrirtæki rikis- ins, með einkarjett á sölu mjög aðgengilegrar vöru, sem sje sím tala, símskey.ta, loftskeyta- tækja, talsímatækja o.. s. frv., og verðið undanþegið öllu verð- l^mnig væri ekkert á moti. þyi lagseftirliti og .eftirspurn stöð- ugt vaxandi. .Þao liggur í aug- um uppi að þessa möguleika þarf að hagnýta sem best með hag Landssímans og viðskifta- vinanna fyrir augum, Sjerstak- lega þarf að bæta aðstöðu þeirra mörgu sem ekki haía síma. Er sennilega engin borg.eða oar í heimi með vfir 50,000 ibúa nema Reykjavík sem ekki hef- ur nema eina símstöð og eitt pósthús. Eru símalausir sima- notendur illa settir þeir sem fjarst búa og verða þeir annað hvort að vera upp á liðligheit nágrannanna komnir ,um simaaf not eða fara langar vegalengd- ir á símstöðina og biða þar máske klukkutímunum saman. Eru það mörg símtöl sem Lands síminn verður af sökum erfið- leika á þessu sviði. Þá eru bið- stofurnar á Landssímastöðvun- að .Landssíminn gæfi sim.a.n.o.t- endum, með síma, kost á a«5 .velja litinn á símaáh öidi ina þeirra þar sem á heimsmarkaðtt una er úrval í ýmsum ututn. Það eru ábvggilega margir en* eru leiðir á svörtu tækjunum. Virðist mjer að meiri áher:;lt» ætti að leggja á það a5 'gora viðskiftavini Landssimsns á- nægoa. Þjóðnýtt fyrirtær.i yiir- leiít ættu að standa .bitur aíí vígi en einstaklingsfrarntat'iíl um hagnýtingu nútíma tfíii'U* og s»ttu að vera vel vakar.di fyr ir öllum nýungum se:" starfræksluna einfaldari. f.ljót- virkari og ódýrari. Landssíminn hefur . tis starfsfólki á að skipa og me3 góðri þjálfun, nútíma tækjum, vel skipulagðri verkaskiftingt* og góðum vinnuskilyrðun* •mundi hann geta orðið vinsajl- um yfirleitt leiðinlegar vægast asía og í fremstu röð arðbe-nndJ sagt, með hörðum og venjulega fyrirtækja ríkisins. ófullnægjandi sætum, talklef-1 Sex milljónir doUara af arnir eru ennþá árið 1948 loít- Marshallaðstoðinni hafa mriíf litlar langlokur af þeirri gerð iegðar tií hliðar til teknisi;rar þar sem símanotandi verður að -aðstoðar í þeim löndum sen* standa upp á endann meðan á.gerst hafa aðilar. Vona jeg aO símtalinu stendur, engin rit- eítthvað af heirri aðstoð eet» föng eða pappir til að- notera kemur i hlut Islands, veroi £ tl— hjá sjer atriði úr símtalinu, enda uð Lanössímanum. I.isti yfir nýjar útlendar bækur hjá Finni F.inar->yni. tíávallagötu 41 The joui rial of I.ugene Ðelacrpix Hemleík van Loon: iReport of St. Peter. Thomas >fann: Buddenbrooks Thomas Mann: Stories of Three Decades Thomas Afaim: Essays of trhee Decades. Lin Vutang: The Gay Genius Galsworthy: The For.syte Saga. þrjú bindi í ejnu. GaUworthy: A Mouerne Comedy. þrjn hindi í eim Cordell Hull: Tre Memoirs Herbert Weiiistock: Tchaifeovsky Mclntire: Twelve Year? vvith Roosevelt Colonel W ehster: Ti te History of the Olimpic gfaines, og margar fleiri. Ávallt viðlátinn frá 2—7 .eSa eftir samkomulagi. h'innur Einar&sfm Hátfúlafíötu 41. Sími 4281. inngangur um kjallarady-r í vesturenda hússins. Höftuii fyrirliggjandi hessian 50 og 72 tommu 8 oz. öíafur Cjíóíaóou & Co. L f,; > Sími 81310. BEST AB AUGLtSA i MORGWBL4B1IW

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.