Morgunblaðið - 11.12.1948, Síða 1

Morgunblaðið - 11.12.1948, Síða 1
16 síður 35. árgangur 293. tbl* — Laugardagur 11. desember 1948. Prentsmiðja Morgunblaðsins Róðsteina um Atlants Jaina ber deilumálin áður en haisbandalag hóist í Washington í gær Sfendur væntanlega yfir í fyær vikur Washington í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. 'UMRÆÐUR um hervarnabandalag hófust í Washington í kvöld niilli Bandaríkjanna, Kanada, Bretlands, Frakklands, Hollands, Belgíu og Luxemburg. Vegna uppskurðarins, sem gerður var á Marshall utanríkisráðherra fyrir nokkrum dögum, verður Robert I.ovett aðstoðarutanríkisráðherra aðalfulltrúi Bandaríkjanna á þessari ráðstefnu, en fyrir hönd hinna ríkjanna, að Bretlandi undanskildu, sitja ráðstefnuna sendiherrar þeirra í Washing- ton. Breski sendiherrann er þar ekki um þessar mundir, en aðstoðarmaður hans verður fulltrúi Breta. Takmark ráðstefnunnar er: 1) Að leggja fyrir stjórn Bandaríkjanna tillögur með- limalanda Vestur Evrópu bandalagsins um Atlantshafs- bandalag. 2) Að ganga frá samkomu- lagi um það, hvernig banda- lagsstofnunin best verði af- greidd og endanlega sam- þykkt. Næsta ár Búist er við því, að núver- andi ráðstefna standi yfir í um tvær vikur, og að hægt verði að undirrita bandalagssátt- málann snemma næsta ár. Hoifman í Cakutfa Calcutta í gær. HOFFMAN, aðalframkvæmda- stjóri Marshalláætlunarinnar, kom til Calcutta í dag á leið sinni til Shanghai. Iíann tjáði frjettamönnum, að ferð hans til Kína hefði verið ákveðin áður en kona Chiang Kai Shek fór til Bandaríkjanna til þess að leita eftir meiri aðstoð Banda- ríkjamanna. Hoffman mun að ciilum lík- indum fara til Jaþan og Koreu frá Shanghai. — Reuter. 9,400 mílur án lendingar New York í gærkvöldi. BANDARÍSK fjögurra hreyfla sprengjuflugvjel flaug nýlega 9,400 mílur án þess að lenda. Hún flaug frá Texas til Haiti og aftur til baka. — Reuter. Brcsluiv maður, Bond að nafni, hefur smíðað sjer þenna smá- bíl á þremur hjólum, sem sjest hjer við hliðina á strætisvagn- inum á götu í London. Hcfur vagn þessi vakið mikla athygli, Hann getur farið með 60 km. hraða á klukkustund og ekið 100 km. á 4 Vz lítra af bensíni. Allsherjarþingið samþykkir mannrjett- indaskrá S, Þ, — Vishinsky mótmælir ALLSHERJARÞINGIÐ sam- þykkti í kvöld með yfirgnæf- andi mcirihluta atkvæða al- þjóðlega mannrjettindaskrá. Greiddu 48 lönd atkvæði með gildistöku hennar en átta sátu hjá. — Rússar og leppríki þeirra, Suður Afríka og Saudi Arabía. Andrei Vishinsky lagðist eindregið gegn gildistöku mannrjettindaskrárinnar, en í hcnni cr meðal annars kom ist sv'b að orði. aö allir menn sjeu bornir jafn rjettháir, af hvaða kynflokki sem þeir kunni að vera. Þá er og gert ráð fyrir funda og málfrelsi. Vishinsky taldi, að í mann rjettindaskránni kæmu fram alveg óþolandi afskipti af innanlandsmálum meðlima- landa S. Þ., og um mál og fundafreisið hafði kommún- istaleiðtoginn það að segja, að slíkt yrði aðeins fasistum og striðsæsingamönnum til gagns. Rússor eignast atomsprengjuno Á þingi S. Þ. í París THOR THORS sendiherra, sem er fulltrúi íslands á þingi Sameinuðu Þjóðanna í París ræðir við Roy Atherson, ambassa- dor Bandaríkjanna í París. Þinginu verður frestað 14. þ. m. og cr ætlast til að framhaldsfundir allsherjarþingsins verði í Nevv York í apríl næstkomandi. SKRIÐDREKAÁRÁS Á GYÐINGANÝLENDU Barisl á Negevsyæðims * Tel Aviv í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter. FJNN.af talsmönnum ísraelshers skýrði frá því í dag, að Egypt- ar hefðu byrjað mikla árás á Kerim — Gyðinganýlendu í suð- vestur horni Negevsvæðisins. Sagði hann, að Egyptar styddust meðal annars við skriðdreka. 100 Egyptar falla Fregnir af bardögum á ofan- greindu svæði hafa verið að berast undanfarna daga, og halda Gyðingar því fram, að Arabar hafi átt upptökin. Fyr í dag hafði herstjórn Ísraelsríkis tilkynt, að um 100 Egyptar hefðu fallið fyrir þrem dögum síðan í bardögum fyrir norðvestan Kerim. Margir skrið drekar voru eyðilagðir, segja Gyðingar ennfremur. Ráðherrafundur í Washingfon Washington í gærkvöldi. TRUMAN forseti ræddi í dag við ráðherra sína og ýmsa aðra ráðunauta. Umræðurnar munu aðallega hafa snúist um' utanríkismál og' hervarnir 1 Bandaríkjanna. — Reuter. J Helsingfors í gærkvöldi. ÚTVARPIÐ í Moskvu skýrði frá því í dag, að rússneska stjórnin hefði sent finnsku stjórnarvöld unum harðorð mótmæli vegna „óvingjarnlegrav framkomu í garð Sovjet- ríkjanna“. Mótmælaorð- sending þessi er til kom- in vegna tveggja leikrita, sem rússneska stjórnin telur að hafi haft spill- andi áhrif á sambúð Rússa og Finna. Bæði leikritin voru leik in í ríkisleikhúsinu finska, og var annað rev- ya. — Reuter. Samvinna Vestur veldanna brýn nauðsyn Trausf vináftubönd enskumælandi þjóða London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. WINSTON CHURCHILL, fyr verandi forsætisráðherra Bret lands, lýsti yfir þeirri skoðun sinni í neðri deild breska þingsins í dag, að nauðsyn- legt væri að ganga frá stærstu deilumálunum við Rússa 1 meðan þeir ekki enn hefðu komist yfir leyndarmál atom- j sprengjunnar. Churchill sagði ’ þetta, er hann tók þátt í um- ræðum neðri deildarinnar um utanríkismál, en þessum um- ræðum lauk með ræðu, sem Hugh Dalton flutti fyrir hönd stjórnarinnar. Churchill fór annars ekki dult með það í ræðu sinni, að hann teldi sívaxandi samvinnu Vesturveldanna geysimikilsverða, ef veröld inni ætti að auðnast að komast hjá nýrri heims- styrjöld. En um deilumál austurs og vesturs sagði hann, að besta ráðið til að forðast styrjöld væri að Ieysa ágreiningsmálin áður en kommúnistar kæmust höndum yfir atomvopnin. Eina frelsisvonin Forsætisráðherrann fyrver- andi ljet í ljós mikla ánægju yfir samvinnu Breta og Banda ríkjamanna. Kvað hann von- ina um frelsi í heiminum og áframhaldandi sjálfstæði bresku þjóðarinnar fyrst og : fremst grundvallast á traust- um vináttuböndum hinna enskumælandi þjóða. Um önnur mál, sem Churc- hill drap á, hafði harin meðal annars eftirfarandi að segja: BERLÍN — Loftbrú Vestur- veldanna ætti að færa Þjóð- verjum beggja megin við járn- tjaldið heim sanninn um það, að þeir yrðu að byggja fram- tíð sína á samfjelagi við hinn vestræna heim. Hann vonaði, að Frakkar gengjust fyrir því, að Þjóðverjar tækju sjer á ný Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.