Morgunblaðið - 11.12.1948, Blaðsíða 5
Laugardagur 11. des. 1948.
MORGU * BLAÐ19
Gísli Sigurðsson hreppstjóri Víðivöllum
Dáinn 27 nóv. 1348.
Hann var fæddur á Víðivöllum
í Skagafirði 26. febr. 1884. Voru
[foreldrar hans Sigurður bóndi
á Víðivöllum f. 1851, d. 1914 og
Jrona hans Guðrún Pjetursdótt-
ir f. 1851, d. 1933. Faðir Sigurð-
ar á Víðivöllum var Sigurður
eldri á Víðivöllum Jónatansson-
ar bónda á Úlfstöðum Þorfinns-
sonar lögrjettumanns á Víði-
rnýri og Brenniborg Jónatansson-
ar. Voru þetta góðir bændur og
máttarstólpar sveitar sinnar
mann fram af manni. Kona Sig-
urðar eldra á Víðivöllum var Sig-
urlaug Gísladóttir frá Kálfstöð-
i.un í Hjaltadal, en móðir hennar
og kona Gísla var Þórdís Eiríks-
dóttir prests Bjarnasonar frá
Djúpadal, síðast prests á Staðar-
bakká í Miðfirði af hinni kunnu
Djúpadalsætt.
Móðurfaðir Gísla á Víðivöllum
var Pjetur bóndi á Reykjum á
Reykjaströnd og síðar á Reykj-
um í Tungusveit Bjarnasonar
hreppstjóra á Hraunum í Fljótum
Þorleifssonar hreppstjóra s. st.
Kárssonar, alt orðlagðir atorku-
menn. Bróðir Pjeturs Bjarnason-
ar var Jón Bjarnason á Eyhildar-
holti, síðar á Reykhólum og Ólafs
dal og þingm. Dalamanna um
bkeið. Kona Pjeturs á Reykjum
var Guðrún Pjetursdóttir bónda
6 Geirmundarstöðum Arngríms-
sonar, systir Jóhanns hreppstjóra
n Brúnastöðum, en bróðir Arn-
gríms bónda var Jón Einarsson
hreppstjóri á Sauðá orðlagður
víkingur til starfa, bæði á sjó
og landi. Kona Pjeturs á Geir-
mundarstöðum og amma Guðrún
ar'á Víðivöllum var Björg Árna-
dóttir frá Dúki Jónssonar og Guð
rúnar Jónsdóttir frá Skeggstöð-
um er var ein hinna kunnu
Skeggstaðasystra. Af þessari
stuttu ættfærslu er ljóst að Gísli
var af góðu bergi brotinn, að
honum stóðu merkar skagfirskar
bændaættir og að auki Skegg-
staðaættin úr Húnaþingi.
MIIMNIIMG
Víðivellir voru um langt skeið
einn af helstu gististöðum lang-
ferðamanna á þjóðleiðinni um
hjeraðið, rjeði þar mestu rúm-
góð húsakynni á þeirra tíma
mælikvarða, samfara rausn og
gestrisni húsbændanna. Þessi um
ferð fór stöðugt vaxandi og varð
svo mikil siðustu árin, áður en
lartgferðabifreiðarnar gjörbreyttu
öllum langferðalögum norðan-
lands, að jeg hygg að búið á
Víðivöllum hafi sökum hinnar
frábæru gestrisni húsbændanna
oft borið skarðan hlut. frá borði
á þessurn árum. Þótt nú sje nokk
uð um liöið og slíkt fyrnist fljótt,
þá eru þeir margir ferðamenn-
irnir bæði innlendir og útlendir
er minnast enn hlýjunnar og
hinnar miklu rausnar pg gest-
risni er þeir áttu að mæta á
Víðivöllum á ferðum sínum, er
það engum efa bundið að Víði-
vallaheimilið jók með þessu hróð
úr lands vors í augum þessara
manna, og gerði íslenskri bænda-
stjett jafnframt mikinn sóma.
----o----
Eins og vænta mátti hlóðust á
Gísla margvísleg störf. Hann sat
mörg ár í hreppsneínd, varð
ireppst.ióri Akra’nrepps 1929 og
sýslunefndarmaður 1937 og
?engdi báðum þessum störfum
;il dauðadags. Auk þess hafði
rann á hendi margvísleg trún-
iðarstörf fyrir sveit sina og
jýslu, sem hjer verða ekki talin,
ið öllum þessum störfum vann
rann af mikilli alúð.
----o----
Gísli á Viðivöllum var hygginn
naður og tillögugóður, ákveð-
mn í skoðunum en þó hófsamur,
frábitinn erjurn og iliindum, og
sættir marma þar sem hann
mátti því við koma. 1 vinahóp
var hann oft spaugsamur og glett
inn, og fann vel hvar feitt var
á stykkinu, sem kallað er, en
hann hafði lag á að segja þann-
ig frá að það varð sárindalaust
þótt svo hefði ekki orðið hjá
mörgum öðrum. En það sem jeg
hygg að okkur vinum hans og
samverkamönnum verði minnis-
stæðast í fari hans, er dreng-
skapur hans, hjartahlýjan og góð-
girnin, sem orkaði því að mönn-
um leið vel í návist hans, og
tóku 'aftur gleði sína' þótt eitt-
hvað hefði gefið á bátinn, enda
var hann manna vinsælastur.
---------------o----
Gísli kvæntist 8/6. 1935 eftir-
lifandi konu sinni, Helgu1 Sig-
tryggsdóttir oddvita á Framnesi,
glæsilegri konu og skörungi er
reynöist manni sínum ágætur
förunautur. Þeim varð ekki barna
Framh. á bls. 3 9
Gísli ólst upp með foreldrum
BÍnum á Víðivöllum, var það góð-
ur skóli, því Víðivallaheimilið
yar í tölu bestu heimila hjeraðs-
ins. Hann gekk í Bændaskólann
á Hólum og útskrifaðist þaðan
vorið 1906. Vorið 1908 tók hann
við bústjórn á Víðivöllum er fað-
ir hans hætti, bjó hann fyrst með
móðir sinni og síðar með systrum
sínum, þar til hann kvæntist
1935. Hann hafði því búið á Viði-
völlum í rúm 40 ár, og þar hafði
hann dvalið allan sinn aldur að
undanteknum tveim vetrum er
hann var í Hólaskóla og vetrar-
parti er hann dvaldi á Sauðár-
krók vegna lasleika konu sinn-
ar.
Þegar Gísli tók við Víðivöllum
voru þar mikil hús og' rammleg
að þeirra tíma hætti sem standa
enn. Hann sneri sjer því, að jarð-
ræktinni, sljettaði og færði út
íúnið svo nú mun þar lítið eða
ekkert heyjað öðruvísi en á rækt
uðu landi.
Aðrar framkvæmdir á Víði-
völlum á búskaparárum Gísla
vöktu þó meiri athygli^en það
var trjáræktin og þó Lilja syst-
Sr Gísli væri þar upphafsmaður
og hefði forustuna í þeim málum,
yar það með atbeina Gísla eftir
Joví sem þörfin krafði hverju
ginni. Trjáreiturinn nyrst í tún-
jjaðrinum og garðurinn sunnan
við Víðivallabæinn, mun lengi
halda á lofti nafni þeirra syst-
kinanna Lilju og Gísla á Víði-
yöllum og það að maklegleikum.
iVíðivállaheimilið varð jafnframt
brautryðjandi og fyrirmyndin að
Blíkri heimilisprýði víðsvegar um
Skagafjörð.
ásli Sigisrðsson
Dáinn 27. nóvember 1948.
Fjell þar sá, er góðgjarnastur
gekk að starfi í vorri byggð. —
Maður, — sem að agg og illska
var öllu fremur viðurstyggð.
Hann, — er svo á hverju máli
hjelt að gætti rjetts og sanns.
Hann, — er aldrei henda mundi
að halla sóma nokkurs manns.
Fæ jeg ei — með harm í huga —
hafið ræðu um verkin hans.
Þau voru unnin hlýjum höndum
úr hjartaþeli kærleikans, »
og eru þáttur þjóðarsómans, —
þess hins besta, er eigum vjer. —
Þú hefir Gísli garðinn frægan
gert svo langt af öðrum ber.
Drjúpa höfði Víðivellir. —
Vetrarregnið líkist grát. —
Skagafjörður fáskrúðugur,
finnst mjer, eftir þetta lát.
Gísla vinir — við skulum standa
á verði um fallinn höfðingsmann.
Aldrei hafa okkar sveitir
alið betri dreng en hann.
Fagur var þinn dánardagur. —
Dapur leit jeg, vinur minn,
sólarflóð í suðri lauga
. sögúríka bæinn þinn.
Það var eins og sólin syngi
.. sálumessu æðra hreims. —
Þá reið Gísli á Víðivöllum
vafurloga betra heims. «
Sigurður Sigurðsson frá Yigur.
Það er í dag,
«em jólabókin
eftir Ármann Kr. Einarsson
kemur í
i'Í3ó!?alú& Í^t'acju iHrip ijólfi
óóonar
Helgafell hefur
skemiun fyrir Mri
Upplestur, gamanvisur o. fl. í Austurbæjarbíó á morgun
kl. 1,30.
Bestu skemmtikraftar bæjarins.
.. Allir krakkar í Austurbæjarbíó á morgun-
Aðgöngumiðar á kr. 3,00, kl. 11—12 og eftir kl. 1.
i FasteignaeigendsfleSag
Reykjavíkur
heldur almennan fjelagsfund i Oddfellowhúsinu sunrm
daginn 12. des. kl. 2 e.h.
UmræSuefni:
1. Húsaleignlögin.
2. Efnisþörf fjelagsmanna til viðhalds húsrnn simnn,
3. Skipulagsmál o. fíi
Nauðsynlegt er að sem allra flestir fjelagsmenn see ki
fundinn. — Kvittanir fyrir greiðslu fjelagsgjalda áiið
1948 gilda sem aðgöngmniðar. Fjelagsmenn, sem enn þá
eiga ógreidd fjelagsgjöld, geta greitt þau á fimdinum.
Einnig geta nýir fjelagar gengið í fjelagið á fundimim.
J Ó L A B Ó K f N
3
!
eftir Armann Kr. Eiitarsson
kemur í dag í
»»
3ÆKUR OG RiTFONG
f 5
Kenni
I Upplýsingar í síma 80361. |
*MOBtMt)mnmttu»iniuitttiututimm;»u»ujtuiim»w
Milim
á upphlut til sölu
Höfðaborg 69.
**HiRtK»rt(mrmrt(fir'niiir»riiiiii»i«iitriktiiiqnH:i i n u mium
|SANDUR
I Sel pússningasand, ;ít>-
| oús.«n.ingasand og skeij&~
\ sand.
i SIGURÐUB GÍSLASCihl
Hvaleyri.
Sími 9239.
aamtmr»nmmmrmiiniumi»i»Mi»miiiinirnranwuiu«Mi:.l
n«ut»Htiin> 11 mitttintit.*i»tKi3tii9!t(iii»iMnoc«oeK é
Dai,nas,ów;>
j i \ ásamt dýnu og b;v na-
| kerra til sölu við ý-eki-
| færisverði á Hreínugotu
l 6. 1. hæð í dag og á roorg
£ un. Uppl. í síma 80772.
i(Mii(ttttftiiiiit»mitmmiiriim«»M'’mrr«Mt> u>»rm»t»«mk»*t»tmr»mii»>!rrirriiiMM«i»rsi»i>iimi'ii.vt< Mt<»ni«