Morgunblaðið - 24.12.1948, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.12.1948, Blaðsíða 4
Föstudagur 24. des. 1948. 'e<$ f° z 2 t « $ <> <y 4 <■> 2 é> 2 2 1 4 é é < 4 4 J Ó L A G A N Sænsk-islenska verslunarfjelapiö h.f., Trjesmiðjan Raiíðará. RafUekjavershin Eiríks Mjartarsonar & Co. Laugaveg 20 B. ZJ----j r-. Verslunin Brynja• j| ÞAÐ VAR farið að nálgast jólin og börnin voru altaf að tala um þau og hlökkuðu svo til. Sum þeirra óskuðu sjer að fá í jólagjöf sleða eða skauta, en ein stúlknanna sagði: — Hvaða gagn er að fá skauta, ef það kemur ekki frost, — þá kemur enginn ís á tjörnina. Og sleða er ekki hægt að nota, nema það snjói einhver ósköp. — Nei, þá vildi jeg helst óska mjer að fá rúllu skauta. Anna litla var farin að halda það sama. Aitaf þegar hún vaknaði á morgnana. ljet hún verða sitt fyrsta verk að hlaupa að glugganum og horfa út, — en, nei. Altaf var þar sama rigningin og rokið. Einu sinni, þegar hún var nýbúin að klæða sig, sagði mamma þennar: — Vilfu fara fyrir mig að sækja mjólkina, jeg hefi svo mikið að gera, að jég má ekki vera að því. Auðvitað fór Anna að sækja mjólkina fyrir hana mömmu sína. Hún gerði það svo oft. Nú flýtti hún sjer í mjólkurbúð- ina, en þegar hún kom til baka, fór hún hægara, því að brús- inn, sem var fullur af mjólk, var svo þungur. En alt í einu stansaði hún og varð alveg hissa. Því að við stofuglugg- ann heima hjá henni, sá hún lítinn, skrítinn mann standa og vera að mála á rúðurnar. . — Finst þjer blómin mín ekki vera falleg? spurði ó- kunni maðurinn og sneri sjer að Önnu. — Þau eru eins og burknar, sagði hún, — nema þau eru bara hvít og glampa eins og spegill. Hvernig ferðu að . því að mála þau svona. — Jú, svaraði maðurinn og hló. — Það er mín list. Jeg hefi líka norðanvindinn til að hjálpa mjer. Finnurðu ekki hvemig hann blæs hjer við hornið? Anna sagðist finna það. Það var svo kaldur gustur, sem stóð á móti henni. En hvernig get- ur vindurinn hjálpað þjer? i — Nú skal jeg sýna þjer, hvernig jeg fer að því. Jeg þarf að mála langtum fleiri rúður og engar tvær mega verða eins. Sjáðu bara. Og hann fór að mála og mála og hann var fljótur eins og leiftur. Aldrei hafði hún Anna sjeð eins flínkan málara. Hann gerði burkna, og krist- alla og alskonar yndislegar rós- ir, og engar tvær voru nákvæm lega eins. Anna stóð lengi og horfði á hann. Þá mundi hún eftir, að hún var að sendast fyrir mömmu sína og mátti ekki slóra. Þegar hún kom inn í eldhús, mætti hún mömmmu sinni. — En hvað þú ert orðin rauð á kinnunum og nebbanum, hrópaði mamma hennar. Varð þjer kalt. — jú, það er að koma norðanátt og frost. Og komnar frostrósir á rúðurnar. — Já, sagði Anna. jeg sá litla karlinn vera að mála þær. Norðanáttin hjelst lengi, það Karlinn, sem máiabi frostrósir K I var frost og dálítil snjókoma. Og getið þið nú hvað af jóla- gjöfunum henni Önnu fanst vænst um! Auðvitað skautana sína, — það voru spegilfagrir skautar með hvítum skóm. — Alt jóla fríið sitt var hún að fara nið- ur á tjörn til að renna sjer á nýju, góðu skautunum. Óteljandi jóialjós Kristján, kallaður Kiddi, var kominn í fínu fötin sín — nýjar stuttbuxur, rauðan jakka og hvíta skyrtu. Svo var hann með nýja lakkskó á fótunum. En hann fjekk ekki að koma inn í stofu. Það var harðbann- að. Hann vissi nú, hvað verið var að gera þar — eða að minsta kosti grunaði hann það. ---Það var verið að skreyta jólatrjeð. Mikið væri nú gaman að sjá trjeð. — Hvernig skyldi það annars vera? Með alskonar stjörnum og með kertum? —• Ja, hver veit? Ætti jeg að kíkja í gegnum skráargatið? hugsaði Siggi. — Já, sagði hann og svo læddist hann yfir forstofuna. Hvað skyldi hann nú sjá? Og svo kíkti hann — en — ó! hann sá ekkert. Eitthvað hafði verið sett fyrir skráargatið, svo að ekkert sást inn. Hann varð að bíða og bíða, svo óralangt fanst honum. — Hann fór út að glugganum, sett ist á hnjen upp á stól, sem þar var, og horfði út. Það var snjór yfir öllu og blæjalogn. Himininn var heið- stirndur. Hvað skyldu stjörn- urnar annars vera margar? hugsaði Kiddi. Og hann fór að telja. — En þær voru svo marg ar, að það var ekki hægt að telja þær. — alsstaðar á himn- inum voru stjörnur. Alt í einu var kallað: •— Kiddi, nú máttu koma. Stofu- hurðin opnaðist og þar inni mátti sjá annarlegan ljósblæ. Kiddi þokaðist hægt nær og nær. Og svo stóð hann í stof- unni með alla dýrðina fyrir framan sig. Trjeð náði hátt upp í loftið og á því glömpuðu marglitar stjörnur, jólapokar og bjöllur. gull, Þar voru fánar og silfurbönd og gullborðar. Og jólaljósin! Hann Kiddi stóð fyrir fram an alia þessa dýrð og lengi mælti hann ekki orð af vör- um. Loks sagði hann: — Jeg hugsa að jólaljósin sjeu eins mörg og stjörnurnar á himninum. Jólakötturinn er varasamur Siggi litli, sjö ára, sem átti heima í gula húsinu við göt- una, var ekki kurteis drengur. Á jólakvöld gaf mamma hans honum svo fallega prjóna húfu og vettlinga, en hvað hald ið þið að hann Siggi geri? Hann setur upp á sig snúð, snýr nef inu beint upp í loftið og segir: — Jeg vil ekki svona húfu og svona vettlinga, jeg vil fá bíl og járnbrautarlest, sem hægt er að trekkja upp. — Jæja, sagði mamma hans, þú vilt þá fara í jólaköttinn, Siggi. Það er enginn jólaköttur til, sagði Siggi. — Hann ljet húf- una og vettlingana liggja eft- ir á gólfinu. Svo skokkaði hann út úr stofunni fram ganginn, opnaði útidyrahurðira og gekk út í snævi þakinn garðinn, sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.