Morgunblaðið - 10.05.1949, Blaðsíða 5
Þriðjudagur-10- maí 1949.
MORGV NBLAÐIB
5
I
* «»
Rúmlega 1800 Reykvíkingar dönsiaðri
á níu sföðum s.E. laugardagskvöid
ÍVFIR 1800 REYKVÍKINGAR um — það er að segja, við sá- irlitsmaður, sem var þarna á
voru á níu dansleikium hjer í
höfuðþorginni síðastiiðið laug-
ardagskvöld. Þeir dönsuðu
flestir hverjir til kl. tvö, og
að meðaltali má gera ráð fyrir,
að hver einstakur hafi greitt
20 ki'ónur í aðgangseyri.
Þetta er ekki of hátt áætl-
að. Aðgöngumiðar að dansleikj-
um kosta nú oft og jafnvel
oftastnær, 25 krónur stykk-
ið. En ef við gerum ráð fyrir,
að þeir 1800 Reykvíkingar,
sem siðastliðið laugardags-
kvöld dönsuðu í níu veitinga-
húsum, hafi að meðaltali borg-
að 20 krónur fyrir að fá að
reka nefið inn á skemmtistað-
ina, hafa þeir samtals greitt
36,000 krónur í aðgangseyri.
Ógerningur er að áætla,
hversu mörgum þúsundum
þetta sama fólk hefur eytt á
dansleikjunum, en að hjer sje
ekki um neina smáræðis upp-
hæð að ræða, má meðal ann-
ars sjá af því, að ein flaska
af appelsínu-límonaði kostar
þessa dagana kr. 3,50 á veit-
ingahúsum.
\! '
ÞAÐ ERU NÚ 55,000 íbúar í
Reykjavík, þegar til er tínt
hvert einasta mannsbarn. Síð-
astliðið laugardagskvöld var
því þrítugasti hver Reykvíking-
ur staddur á dansleik, eða að-
eins um 150 færri en allir íbú-
ar Keflavíkur. ,
Þó voru skemmtistaðirnir
ekki allir í notkun, og það var
ekki fullskipað á nær öllum
þeim níu dansleikjum, sem
haldnir voru. Á Flugvallar-
hótelinu mun aðsókn meir að
segja hafa orðið svo lítil að af-
lýsa varð ballinu þar, og á
þremur stöðum var ekki meir
en svo háift hús. Þetta var í
Iðnó, í Mjólkurstöðinni og á
Röðli. Sjálfstæðishúsið og Al-
þýðuhúsið voru fullskipuð, en
það fyrnefnda rúmar 350 gesti
og það síðarnefnda 230.
Samtals munu skemmtistað-
irnir níu, sem dansað var á til
klukkan tvö á sunnudagsmorg-
uninn síðastliðinn, geta tekið á
móti 2,400 gestum, eða að
minnsta kosti mun vera leyfi-
legt að selja það mörgum að-
göngumiða. íbúatalan á Akra-
nesi er nú um 2400, svo það
verður þegar ljóst, að við Reyk
víkingar getum, ef við kærum
okkur um, boðið Akurnesing-
um öllum á dansleik til okk-
ar, og þó enn átt eftir nokkuð
pláss handa reykvískum jitter-
búggurum eða hvað þeir nú
eru kallaðir.
t/
3EG ER MEÐ allar þessar fróð-
legu tölur í kollinum vegna
þess, að jeg eyddi rúmlega
tveimur klukkustundum síðast
liðið laugardagskvöld í ferða-
lag milli darftleikahúsanna.
Jeg var í fylgd með Óskari
Ólasyni lögregluþjóni, sem
fór í eftirlitsferð milli skemmti
staðanna og levfði mjer að
fljóta með. Við iitum á dans-
leiki í Alþýðuhúsinu, Breið-
firðingabúð, Gúttó, Iðnó,
Mjólkurstöðinni, Oddfellowhús-
inu, Röðli, Sjálfstæðishúsinu
og Þórscafé. Það var ,,fremur
rólegt“ á öllum þessum stöð-
um engan mann berja annan
mann þær tíu mínútur eða svo,
sem við stöldruðum við í
hverju húsi.
Á tveimur dansleikjanna
sást ekki vín á nokkrum manni.
Engum mun koma það á óvart,
að báðir voru haldnir á vegum
templara.
Á tveímur stöðum öðrum
munu aðeins örfáir ballgest-
. anna hafa verið algjörlega
þurrbrjósta. Þó ber ekki að
skilja þetta sem svo, að hver
einasti maður hafi verið drukk
inn. Það má fremur orða það
þannig, að ekki einn einasti
maður þarna að heita má, hafi
verið bindindismaður.
\/
ÞAÐ VAR ákaflega mislitt fje á
dansskemmtununum í heild. Á
sumum rjeðu unglingarnir ríkj-
um, á öðrum miðaldra fólk.
Tveir dansleikjanna voru haldn
ir á vegum stúdentafjelaga, en
engan stúdent sá jeg, þær ör-
fáu mínútur, sem jeg staldraði
þar við.
Mest regla var á öllum hlut-
um, þar sem miðaldra fólkið
var að skemmta sjeó
Unglingar um og undir tví-
tugt voru í miklum meirihluta
á að minnsta kosti fjórum
skemmtistaðanna. Á tveimur
þeirra voru þeir allsráðandi og
þar var ástandið verst. Á öðr-
um staðnum var ölvun mikil;
jeg gekk einu sinni í gegnum
aðalsalinn og rakst á tvo dauða
í þeirri ferð. Annar þeírra hall
aði sjer upp að píanói hljóm-
sveitarinnar og bærði ekki á
sjer. Hinn hafði lagt höfuðið
i kjöltu vinstúlku sinnar og
svaf svefni hinna rjettlátu.
Jeg mætti einum unglingi,
sem grjet. Hann stóð fyrir ut-
an einn af eldri skemmtistöð-
um bæjarins og sagðist hafa
týnt frakkanum sínum. Hann
sagði líka, að hann vildi ekki
fara „I svona ásigkomulagi"
heim til foreldra sinna.
Hann hafði hinsvegar við
orð að „fara í Tjörnina".
\l
EFTIR því, sem jeg komst r.æst,
fer tala eftirlitsmanna á hverj-
um skemmtistað talsvert eftir
því, hvernig orð húsið hefur
á sjer. Á einum stað voru eftir-
litsmennirnir fjórir en dansleik
ir þar hafa löngum þótt „harð-
ir“ og heldur stjórnlausir.
Eftirlitsmennirnir eru óein-
kennisklæddir og þeir hafa góða
gát á öllu, sem fram fer. Þeir
láta lítið bera á sjer, þegar
þeir geta. Þeir þekkja orðið
óróaseggina, fylgjast með
þeim líkt og læknar með sjúkl
ingum sínum, og eru orðnir
nasliir á sjúkdómseinkennin.
Á einum dagsleiknum, sem
jeg kom á, voru gæslumenn
farnir að hafa orð á því, að
tiltekinn maður væri órðinn
ískyggilega drukkinn og eigin-
lega kominn tími til að fara að
láta hann út. Þetta var hár,
þrekinn piltur um tvítugt, mik-
iil slagsmála naður, þegar hann
er kominn í þann ham. Hann
rölti þarna um salina, áberandi
drukkinn.
í þessu húsi voru vínveiting
ar, en glöggur og góður eft-
ferð um eittleytið, taldi, að
gestirnir væru orðnir auralitl-
ir og mundu varla hafa efni
á mikið meiri vínkaupum.
— Þessir krakkar látast vera
fullir, sagði hann.
sl
ÞAÐ VORU ENGAR vínveiting-
ar á sex þeirra níu staða, sem
jeg heimsótti í fylgd með eftir-
litsmanni lögreglunnar Á
þremur af ,,þurru“ stöðunum
mátti þó sjá vín á nokkrum
mönnum, og á þeim fjórða voru
„tveir eða þrír eitthvað undir
áhrifum, en ósköp rólegir“.
Það er erfitt að koma í veg
fyrir, að víni sje smyglað inn
á dansleikina. Þótt eftirlits-
mennirnir hafi sig alla í
frammi, tekst stöku gesti að
fela áfengið svo vel í vösum
sínum, að ekki kemst upp.
Litlu ginflöskurnar, sem um
skeið fengust í vínverslununum
tveimur, voru sjerlega hentug-
ar til þessara hluta.
Karlmennirnir fá líka kven-
fólkið stundum til að geyma
brennivínsflöskurnar í töskum
sínum.
Þetta smyglaða áfengi er svo
drukkið i laumi; á salernun-
um má oftast finna tómar
flöskur að dansleik loknum.
Á fagmálinu mun sú drykkja
vera kölluð vasapelafyllirí.
\!
— JÆJA, ÞÁ spilum >7ið hænsó,
sagði hljómsveitarstjórinn við
eftirlitsmanninn á einum
staðnum, — nú heimtar það allt
hænsnapolka. Svo hvarf hann
inn í salinn, þar sem pörin
dönsuðu gömlu dansana af
miklum myndarskap. Þarna
voru engir unglingar; þetta var
flest miðaldra fólk og sumt
ríflega það. Jeg minnist sjer-
staklega prúðbúins manns um
sextugt, með háan, harðan
flibba og svarta slaufu. Hann
dansaði eins og herforingi, ein-
arðlega og örugglega og í fullri
alvöru.
Mjer varð hugsað til hans,
þegar fylgdarmaður minn
sagði: — Hvað heldurðu að
myndi ske, ef eitt parið úr
gömlu dönsunum færi hjer út
á gólfið?
Við vorum komnir á þann
dansleikjanna, þar sem æsku-
lýðurinn rjeði og þar sem
gömlu dansarnir eru í álíka
miklu áliti og blankur Hafn-
arstrætisróni. Á þessum stað
dönsuðu sum pörin jitterbúgg
(það er ómögulegt að „íslenska“
þetta öðruvísi), en slíkur dans
er næsta furðulegur í augum
ókunnugra. Karlmaðurinn hopp
ar í kringum kvenmanninn, og
kvenmaðurinn hringsnýst í
kringum karlmanninn, og svo
fetta þau sig og bretta svolít-
ið í kaupbæti.
Mjer er ókunnugt um, hvers-
vegna þau fetta sig og bretta,
nema þau hafi þá sjeð það á
bandarískum kvikmýndum frá
Harlem í New York.
Harlem er negrahverfi í
þeirri stórborg.
\!
VIÐ ÓKUM í lögreglubíl ú
Framh. á bls. 12
Glæsileg 6 herbergja
ibúð
í hliðunum. á besta -iað, er ti! leigu nú þegar til 2ja
til 3ja ára. Tiiboð t’r greini leiguupphæð og fyrirfram-
greiðslu. sendist aigreiðslu blaðsins fyrir miðvikudags-
kvöld, merkt: „Hlíðin miri fríða — 312“-
Tek að mjer standsetningu nýrra lóða, einnig a3ra
skrúðgarðavirmu. Útvega þökur, mold, áburð, bk n-
plöntur og trjáplöritur.
AGNAR GUNNLAUGSSON,
garSyrkjumaður,
Samtúni 38, simi 81625.
pa«acBii*«sBBncBBC;rrsiiKKWB.Eu«»Kr**B:»*Ks«s»BiaiB«BBBBfiaaBrB»«*c«nRtritnr)t)a
Vörubifreið óskast
■
a
i Óskum eftir að kaupa nýjan eða nýlegan vörubíl 2V2-
j 3ja tonna. Upplýsingar á skrifstofu okkar.
a
j CJ^ert ~J\rístjjánsion CJo.
ifcmóóon
•niiiiiiiimiiiiiutriimi^criiiiiiiaH Kriiiiii'iiiiiiiÞiiiiiiDKMiniiHiiKniiiirrMiir
| i
| Til Eeigu j
| nú þegar ein stór stofa og |
r önnur minni, seni útbúín I
| er fyrir eldhús ef vi31. — j
í Sjer snyrtiherbergi. — j
| Hentar ekki íólki með }
= börn. Nánari uppl. á j
í Laugateig 26-
iniiiiiiiiiiimitriimi
iiiiiiiiiiiimiimiiiiMiiiitMmiimií
Laghenta stúlku vantar f
vellaunaða i
atvinmi
strax Til greina kemur !
kjólasaumur, sníða og j
taka mál. Tilfcoð ásamt !
upplýsingum um kaup og |
kjör, leggist inn á afgr. |
blaðsins fyrir n. k. mið- f
vikudagskvöld, — merkt: !
„M. N. 12—3Sl“.
iiiiiiiimiiimimmmmmimiiermiiRiiiittiimnnmtmriikT
„HEELH"
austur um' land í hringferð hinn
13- þ. m. Tekið á móti flutningi
til Fáskrúðsfjarðar, Reyðar-
fjarðar, Eskifjarðar, NorSfjarð-
ar, Seyðisfjarðar, Þcrshafnar.
Raufarhafnar, Kópaskers og
Húsavíkur í dag og árdegis á
morgun. Pantaðir farseðlar ósk
ast sóttir á morgun.
G68 gleraugu eru fyrir
öllu.
S
Afgreiðum ílest gleraugrta |
recept og gerum vi8 gler- f
augu.
1
Augun jþjer hvílið með !
gler'augu frá !
TÍTJ H.F. j
Ausíurstrseti 20.
................... 11111 ii1111 i iTiinriiianwvTi~~TrTT
:*i5»ii«u. miiiininri iiimih i mtM ■. ím : mDM'UMinmuirDJniMiMir'
r
ííörður ÖtafssoEi.
mátnutniögsskrifstofa, í
Laugaveg 10. sirni 80332. j
og 7673. •
fer áleiðis til Færeyja og Kaup-
mannahafnar í dag kl. 6 síðd.
Farþegar eru beðnir að koma
um borð kl. 5 síðd.
Skipaafgr. Jes Ziemsen.
Erlendur O- Pjetursson.
GEIR ÞORSTEINSSM
HELGIH. ÁRNASON
verkfrœðingcr
Járnateiknmgcr
MiðstÖðvcteikningar
Mœlingar o. ft.
TEIKNISTQFA
AUSTURSTRÆTi UJ.Iiœð
Kl. 5-7
vaniiimmiiHitiiiiimiiiiii'i.iii!9i:eigiiuiiu"iggtiiiiuh''iMHii!
gull
liæsta verði.
Sigurþór, Hafnartstmn 4
UUIUUUI»llltlll|riiii»tUI Ullli
uim!imii«iiiii{irmuiiu>iiiiiiiii:Di:Hiiriiri*'vurii!iniill