Morgunblaðið - 23.04.1950, Side 12

Morgunblaðið - 23.04.1950, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Sunnuílagur 23. apríl 1950. Venlunarsamningar Rússa og Spán- verja! Ingvorsson bóndi í Borgnr- eyrum — Minningururð MADRID, 22. apríl: — Talið er, að á næstunni muni fram fara umleitanir um viðskipta- samninga miili Spánar og Rúss- lands. Er búist við, að Spán- verjar muni selja Rússum vol- fram og kvikasilfur m. a., en kaupi £ staðmn korn. Það skal þó tekið fram, að aðeins hafa heyrst lausafregnir um undir- búning slíkra viðskipta. — Reuter. Örugg! ssmsfarf demó- krafa og republikana í ufanríkijmáSum WASHINGTON, 18. apríl. — Truman forseti gaf í dag yfir- lýsingu um að sjerfræðingum republikanaflokksins í utanrík- ismálum yrði skýrt frá öllum meiri háttar atriðum í utanrík- isstefnu Bandaríkjastjórnar og auk þess leitað álits þeirra. Er þessi ákvörðun einn þátturinn í tilraunum til að koma á flokkasamvinnu demokrata og republikana í utanríkismálum. Bæði forset'nn sjálfur og Ache- son, utanríkisráðherra, munu sitja ráðstefnur með republik- önum varðandi utanríkismál. — Reuter. — Ferming Framh. af bls. 10. Sigrún Jóhannsdóttir, Samtún 38. Sólveig Jónsdóttir, Skúlagötu 78. Sæunn Kolbrún Steingríms- dóttir, Efstasundi 37. Valdís Ólafsdóttir, Kirkjuteig 16. ★ Fermingarskeyti skulu hafa borist ritsímastöðinni í síðasta lagi kl. 3 í ilag. — Símar, sem skeytin eru tekin upp í eru: 1020 —6411 81998 og 81902. iVHnBr^wniiiiiuiiiiiuiiiuitiHiiiuiHnHuaaaHa ( F@Egur I 2 nýjar 19 tomniu teina-felgur, ; 1 með krómuoum skjöldum ás'imt i I z i nýjum dekkjum og slöngum til i | sölu. Verðuiboð merkt: „Felgur \ | — 900“ sendist afgr. blaðsins : 5 fyrir þriðjndagskvöld. HINN 9. mars síðastliðinn and- aðist Jón bóndi Ingvarsson að Borgareyrum í Vestur-Eyjafjalla hreppi. Hafði hann um nálega fjögur ár verið gerþrotinn af heilsu og löngum rúmfastur þann tíma, oft úr sárustu þjáningum. Hann var jarðsunginn að Stóra- Dalskirkju 23. mars að viðstöddu miklu fjölmenni. Jón Ingvarssort fæddist í Neðra Dal í Vestur-Eyjafjallahreppi 28. september 1872 og dvaldist á þeim slóðum allan aldur sinn, nema nokkur ár, er hann var orð inn fulltíða, sem hann átti heim- ili að Hlíðarenda í Fljótshlíð. — Hann ólst upp með foreldrum sínum í Neðra-Dal og var frá öndverðu haldið fast til vinnu, eins og títt var um drengi í þá daga. Uxu þeir þar saman upp bræðurnir, Auðunn Ingvarsson í Dalsseli, og Ingvar Ingvarsson, fyrrum bóndi í Neðra-Dal, nú í Vestmannaeyjum. — Kornungir tóku þeir, og þá ekki hvað síst Jón að vinna að ræktun og jarða- bótum í Neðra-Dal, svo að orð fór af. Mun ekki fjarri, áð jörðin búi að sumum þeim handtökum enn þann dag í dag, því að þar var enginn ósljettur blettur í túni er þeir bræður fóru þaðan. Hitt er svo annað, að Jón var aldrei heilsuhraustur maður alla æfi. Barnlúinn tók að segja til sín snemma, og ekki þykir mjer ó- líklegt, að glíman við þúfurnar í Neðra-Dal hafi orðið hinum ungu og óhörðnuðu kröftum hans að sumu leyti ofviða. Eins og áður er sagt eignaðist Jón heitinn Ingvarsson heimili að Hlíðarenda í Fljótshlíð, sem ung- ur lausamaður. Dvölin í Fljóts- hlíð varð honum til varanlegrar hamingiu, því að þar gekk hann að eiga konu sína, Bóel Erlends- dóttur, árið 1900. Hófu þau síðan búskap í Neðra-Dal og bjuggu þar í þrjú ár. Harmsár atvik ollu því að þau fluttust aftur að Hlíð- arenda. Ingibjörg Erlendsdóttir, systir Bóeiar, gervileg stúika, varð bráðkvödd 18 ára að aldri. Fluttu þau Jón þá aftur að Hlíð- arenda, meðfram til aðstoðar og huggunar við aldurhnigna for- eldra Bóelar, en börn þeirra önn- ur voru þá komin víða vega. Þar bjuggu þau í þrjú ár, en fluttust síðan að Borgareyrum í Vestur- Eyjafjallahreppi og bjuggu þar ætíð síðan 1907. Jón Ingvarsson var greindur maður, Ijúfmenni í allri kynn- ingu og prúðmenni hið mesta, enda tóku þeir allir við hann ó- rofa tryggðum, er honum kynnt- ust. Hann hafði yndi af bókum og einkum fögrum ljóðum og kunni mikið af þeim. Ætla jeg að hann hafi kunnað mestmegnis utan að ijóð Jónasar Hallgríms- sonar og Þorsteins Erlingssonar, og gjörkunungur var hann skáld- skap Hallgríms Pjeturssonar og unni honum mjög. Oft var hon- um erfitt um að ná í bækur, eins og einatt hefur verið hlut- skipti íslenskra alþýðumanna, en þar hjálpaði það honum drjúg- um, að hann tók ungur að binda bækur í tómstundum sínum og komst þannig yfir að lesa margt það, sem honum hefði annars ekki veri kostur. Borgareyrar voru lítil jörð, er Jón fluttist þangað og gaf túnið t.d. ekki af sjer full tvö kýrfóður og í flestum árum mikið minna. Jón vann ötullega að því að bæta jörðina á meðan kraftar og heilsa entust og varð mikið ágengt í því efni. Bæði voru þau hjón gest risin og greiðasöm í besta lagi, enda þurfti þess oft við, því að bærinn lá í þjóðbraut að kalla um tugi ára, þangað til brú var gerð á Markarfljót, ‘en ill vötn á báðar hliðar. Þótti í þá daga rríörgum hröktum manni gott að koma á Hólmabæina. Jeg hef að einskis manns rekkju komið hjer í prestakall- inu, sem mjer hefur fundist eiga við þyngri þraut að stríða, þessi ár, síðan jeg kom hingað en Jón Ingvarsson í Borgareyrum. Svo liðu ár, að hann var að kalla mátti sárþjáður hvern dag, en hjelt þó andlegum kröftum furð- anlega. En við þenna erfiða sjúkrabeð sýndi það sig best, hví- líka konu hann hafði fengið þar sem Bóel Erlendsdóttir var. Með frábæru þreki, ástúð og þolin- mæði hjúkraði hún manni sínum daga og nætur og vjek að kalla má aldrei frá rúmi hans. Hún fór að jeg ætla aldrei dagstund að heiman í öll þessi ár, en var jafnan viðbúin að láta að öllum óskum og verða við hverri bæn hins sjúka manns. Þó að sjálf væri hún orðin þreytt og lúin af erfiðu æfistarfi, var sem henni yxi alltaf nóg þrek, ef um það var að ræða að lina þjáningar hans. Er þó fátt, sem meira reyn- ir andlegt og líkamlegt þrek, en horfa þannig upp á þjáningar ástvina sinna og fá lítíð að gert. En í þessari raun reyndist Bóel eins og hetja, og það er henni mikill sæmdarhlutur hversu frá- bærlega hún leystí af hendi þenn an erfiðasta hluta æfistarfs síns. Kærleiki hennar, þrek og bjart- sýni í þessari þungu raun mun jafnan verða þeim í minni, og jafnan verða þeim aðdáunarefni, sem því kynntust. Með Jóni Ingvarssyni í Borg- areyrum er á brott genginn góð- ur drengur og sómamaður, sem á einskis manns óvild, en allra þeirra vinarhug, sem honum kynntust og samskipti áttu við hann á lífsleiðinni. Hæli, 29. 3. 1950. Sigurður Einarsson. — Selfoss Framh. af bls. 9. irbúningi samkomu þessarar. Dansað var að síðustu og fór skemtunin í alla staði mjög vel fram og var víns eigi vart á samkomu þessari. Ungmennafjelagið á Selfossi vinnur af alhug að því að koma upp íþróttavelli og er hann mjög langt kominn og þess vænst að hægt verði að taka hann til afnota á sumri kom- anda, enda má segja að slíks sje mjög mikil þörf fyrir íþrótta lífið bæði á Selfossi og í sýsl- unni allri að fullkominn íþrótta völlur rísi miðsvæðis þar sem hin ýmsu fjelög gætu háð kappmót sín á milli. Samkomugestur. — Þjóðleikhúsið Framh. af bls. 2. hann hafði ort við þetta tæki- færi. Að því búnu ljek hljóm- sveitin forleik eftir Karl Ó. Runólfsson tónskáld, undir stjórn Róberts Abrahams. Að leikslokum voru leikstjóri og leikendur kallaðir fram mörgum sinnum og ákaft hyllt- ir af áhorfendum. Sigurður Grímsson. — Bruninn Framh. af bls. 1. Að lokum skýrði fram- kvæmdastjórinn frá því að í verksmiðjunni, sem var stærsta sápuverksmiðja landsins, hafi að jafnaði unnið milli 25 og 30 manns. Verksmiðjuhúsið var fram til ársins 1938 skinnaverksmiðja KEA, en þá var þar sett á stofn sápuverksmiðjan „Sjöfn“. iwnnnininiiiJwiiiimnmtwnHiimmnmmmiwi A A A Eftir Ed Dodd smmiiiiiiiniui;^' /fe«3MciKimiiiMmiiii*M*ii*MMi*ti*!s*Mi«»*’ 1 I3HJ* — Jæja, jeg sje, að þið eruð komin aftu ■■ til baka. —- Já, þa< ber ekki á öðru. En þú veist ví: best sjálfur, fant- urinn þinn, hvernig á því stend ur. — Markús, ætlar þú ekki að fá þjer kaffisopa með okkur? — Nei, þakka þjer fyrir, Davíð, jeg má ekki vera að því. Jeg þarf að fara út í skemmu og setja nýja magaól á hnakkinn minn. Hin er orðin gömlu og getur slitnað við Vís- undaveiðarnar á morgun. — Ha, hvað sagðirðu? Vís- undaveiðar? Kröfuharfoir utanfari ÞANN 13. þ. m birtist í dag- blaðinu Vísi smáklausa, er mjer skilst að eigi að lýsa ókurteisi eins vagnstjóra hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur. Jeg er nú ekki vanur að skrifa í blöð og satt að segja tel jeg það tæp- lega ómaksins vert að eltast við slíka hugaróra, sem í umræddri grein. En jeg ætla að slá til í þetta sinn og verð þá fyrst að lýsa samúð minni með þessum landa mínum, ef svo er, sem mjer skilst, að hann hafi glatað móð- urmálinu þau árin, sem hann dvaldist erlendis. í skiltakassa framan á vagn- inum, sem hjer um ræðir, stendur „Hraðferð11 og enn- fremur hverfi það, sem vagn- inum er ætlað að aka farþeg- um til og frá. Þá eru samskon- ar skilti á hliðum vagnsins og ennfremur er mni í honurr. hvítt spjald, sem á,er letrað „Hrað- ferð. Engin peningaskipti. 1 kr. fyrir fullorðna, 50 aura fyrir börn“. Jeg tel hverium farþega borgið með þessum leiðbeining- um. Vilji hann þá nokkuð bjarga sjer sjálfur. Annars er það svo skrítið, að mjer finnst oft sem snúist hafi við „tungan“ í þeim mönnum, sem eitthvað hafa dvalið erlendis og vilja svo fara að ségja okkur til syndanna hjer heima. í ofangreindri grein er vagn- stjórinn sakaður um ókurteisi. Þetta get jeg ekki viðurkent. Hann fylgir aðeins þeim regl- um, sem fyrir hann hafa verið lagðar af yfirboðurum hans. Þó finnst mjer sem farþeginn, sem gefið hefur tilefni til þessa greínastúfs, geri svo miklar kröfur til vagnstjórans, að hann eigi jafnvel að siá það á hverj- um farþega, að hann sje búinn að dvelja erlendis og skilji því hvorki upp nje niður í regl- unum hjer heima. Umræddur farþegi talar í greininni um stauk þann, sem peningarnir eru látnir renna í, þegar fargjaldið er greitt, og líkir honum við hrákadall. Já, stórir hljóta dallarnir að vera utanlands, eða að minnsta kosti á þeim slóðum, sem greinar- höfundur hefur komist á. Þá hælir farþeginn sjer mjög um af því, að hann hafi komið með -farþegum sínum til að brosa og þar með gert vagnstjórann að athlægi. En hefir hinn marg -umtalaði farþegi þá ekki gert sjálfan sig að ennþá meira at- hlægi, er hann fer með klögu- mál sitt í blöðin og reynir með því að kasta rýrð á heila stjett manna? Að lokum þetta- Farþegan- um, sem kvartar undan ókurt- eisi strætisvagnastjóra er ráð- legast að merkja sig á einhvern hátt og gefa með því til kynna, að hann sje nýkominn úr er- lendri langferð. Að öðrum kosti geta hvorki strætisvagnastjór- ar nje aðrir áttað sig á bví, að maðurinn hefur glevmt íslensk- um háttum og siðavenjum og þarf sjerstakrar umönnunar og eftiriits með. Vagnstjóri. iiiiiiiriiiMiiiitmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiHHiiiiiiiiiiHii SigurSiir Rcynir Pjetursson málflutningsskrifstofa Laugaveg 10. — Súni 80332 uiiuiiiiimuuimmiuiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiiiiuui

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.