Morgunblaðið - 13.05.1950, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.05.1950, Qupperneq 1
I 24 síður /37. árgangu 107. tbl. — La.igardagur 13. maí 1950. Prentsmíðja Morgunbiaðsin* l MARSHALLSTOFNUNIN LEGGUR FRAM 82,5 MILJ. TIL SOGS- OG LAXÁRVIRKJANANNA fryggð greiðsla og yiirfærsla á 77% al erlendum tilkostnaði S^MKVÆMT frjettatilkynningu frá ríkisstjórninni, hefur cfna-*1 hðgssamvinnustofnunin í Washington nú afráðið að veita Islend- ingum yfir 5.000.000 dollara, eða 82.5 milljónir íslenskra króna, tiT stækkunar á Sogsvirkjúninni og Laxárvirkjuninni. Tryggir framlag þetta um 45-% af stofnkostnaði þessara miklu fram- kyæmda og um 77% af erlendum kostnaði, en virkjunarkostnað- ui’; Sogsvirkjunarinnar er áætlaður um 140 millj. kr. og Laxár- virkjunarinnar um 44 milljónir. Frjettatilkynning ríkisstjórn- arinnar fer hjer á eftir: Ef nahagssamvinnust jóvn - in í VVashington samþykkti þann 10. maí umsókn' ríkis- stjórnarinnar um að veita 3,955,000 dollara eða 64,4 millj. krónur til stækkunar Sogsvirkjunarinnar og 1,110, 000 dollara eða 18,1 millj. kr. til stækkunar Laxárvirkj unarinnar. Þessi dollaraveiting gerir virkjununum fært að kaupa í Bandaríkjunum allar vjelar, rafbúnað og annað efni, sem stjórnir virkjananna, að fengn- um tilboðum frá ýmsum lönd- um, telja hagkvæmast að kaupa þar. Vjelar og efni komi næsta ár Aðalsamningarnir eru þegar tilbýnir til undirskriftar og gera þeir ráð fyrir að vjelar og efni komi til landsins sumarið og haustið 1951. Aðalsamningar Sogsvirkjunarinnar. um vjela- kaup þessi verða við rafmagns- firmun Westinghouse Electric International Co. og General Ele'ctric International Co., en aðalsamningar Laxárvirkjunar innar við Westinghouse Electric International Co. og túrbínu- firmað James Leffel & Co. Með þessum nýju virkjunum eykst vjelafl Sogsvirkjunarinn- í ar úr 16,000 kvv., sem nú eru í Ljósafossi, upp í 48,000 kvv. eða þrefaldast. Vjelaafl Laxárvirkj unarinnar þrefaldst einnig úr 4000 kvv. upp í 12,000 kvv. Taka væntanlega til starfa 1952 Samanlagt vjelaafl allra al- menningsrafveitna í landinu er nú 44,000 kw. Með hinum nýju virkjunum Sogs og Laxár, sem væntanlega taka til starfa á ár- inu 1952, bætast við 40,000 kvv. og verður þá samanlagt vjela- afl allra stöðva til almennings- þarfa 84,000 kvv. fyrir utan smærri stöðvar, sem bætast við á sama tímabili. Þetta þýðir, að vjelaaflið, sem næst tvöfaldast á næstu þremur árum. Virkjunarkostnaður Sogs- virkjunarinnar er áætlaður um 140 millj. kr. og Laxárvirkj- unarinnar um 44 millj. kr., eða samtals 184 millj. kr., en þar af Framh. á bls. 2. - Togarinn Efruria laus úr haldi LONDON, 12. maí. — Rússar hafa nú sleppt breska togaran- um Etruria, eftir að sektin, sem' skipstjórinn var dæmdur í fyr- ir landhelgisbrot, 300 rúblur, hafði veiáð greidd. Afli og veið arfæri voru gerð upptæk. Tog- arinn er þegar sigldur af stað áleiðis til Englands. Hann mun þó koma við í norskri höfn á leiðinni. — Reuter.____ 11 breskir fliupenn farasí náiægf Suez ISMAILA, Egyptalandi, 12. maí. — 11 menn týndust og eru nú taldir af í árekstri tveggja breskra hernaðarflugvjela yfir Sinai-skaga snemma í þessarri viku. Flugvjelarnar, sem rákust saman voru Vampire þrýstilofts flugvjel og Lincoln sprengju- flugvjel. Ekki er vitað um til- drög að árekstrinum. Einn mað ur var í þrýstiloftsflugvjelinni. en 10 í sprengjuflugvjelinni. — Reuter □---------------□ er 24 síður í dag. n-----------------------□ Raforkuframlciðsla Ljósafossstöðvarinnar er nú 16.000 kw., en þrefaldast og verður 48.000 kw. Rússi skipaður yfirmaður herformgjaráðs Tjekka Megináhersla lögð á hollustu hermanna við Rússland Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. LONDON, 12. maí. — Nýr yfirmaður hefur verið skipaður við tjekkneska herforingjaráðið. Hann heitir Prochazka og er rúss- neskur ríkisborgari. Áður hafa borist fregnir um að Cepicka tyrrum innanríkisráðherra hafi verið skipaður hermálaráðhefra i stað Svoboda hershöfðingja. Þessi mannaskipti þykja bera vott um að Rússar hafi í hyggju að herða mjög tökin á tjekkneska hernum. PRAG, 12. maí. í dag birt- ist í vikuriti kommúnista. sem út kemur í Prag yfir- lýsing Prochazka, hins nýa foringja tjekkneska hcrforingjaráðsins, þar sem hann átelur harðlega fjandskap við Sovjetríkin, sem sje megn meðal tjekk- neskra herforingja. Hann tekur það fram að hann muni svo sjá um að Rússa- hatur þróist ekki innan vjebanda hersins og lýsir því yfir að nauðsyn sje á gagngerum „hreingerning um“. Hlýða Moskva í blindni. Nýi hermálaráðherrann Cap- icke er að vísu tjekkneskur ríkisborgari, en hann tilheyrir þeirri manntegund, sem fram til þessa hefur hlýtt fyrirskip- unum Moskva í blindni. Hinn nýi yfirmaður herforingjaráðs Tjekkóslóvakíu er aftur á móti rússneskur ríkisborgari. Hann er tjekkneskur að ætt, en flutt- ist til Rússlands fyrir síðari heimsstyrjöld og gerðist rúss- neskur þegn. Frá stjórnmálaskóla. Vera hans í Rússlandi er hul- n skugga, en þó er það vitað, rð hann settist við nám í stjórn nálaskólum kommúnismans. ^að nám hefur þó. ekki gert hann hæfan til að gegna venju- 'egum störfum í herforingja- ráði. Bendir það því til þess að fyrst í stað sje það ekki ætlun Rússa að leggja svo sjerstak- lega mikla áherslu á hernaðar- þjálfun tjekkneska hersins, heldur ætli þeir fyrst og fremst að vaka yfir hollustu hersins við Moskvavaldið. Er búist við meifi ,,hreingerningum“ í tjekkneska hernum en nokkru sinni fyrr. Er ekki ósennilegt að það sje ætlunin síðar, að tjekkneskir hermenn vinni Rúss landi hollustueið. Rússar stjórna herjum Ungverja og Rúmena. Fregnir frá Ungverjalandi herma, að rússneska herfor- ingjaráðið í Budapest hafi ver- ið aukið mjög að undanföx-nu og þó að ungverskt herforingja ráð eigi að heita að vefa fyrir I hernum, þá sjeu það Rússarnir, sem öllu ráði. Fregnir frá Búkarest í Rúmeníu herma og | að þangað sje að koma rúss- neskt herforingjaráð. Kommúnistar útþurkaðir úr bæjarstiórnum Englands Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. IíONDON, 12. maí. Bæjarstjórnarkosningar fóru fram í hjer um bil þriðjungi fulltrúasæta á Englandi og Wales. Kosning- arnar sýna í heild stefnu til hægri, en það er sjerstaklega eftii*- takanlegt, að kommúnistar, sem hjeldu áður 35 fulltrúasæt- um fengu nú ekki einn einasta mann kosinn. Þriðjungur * bæjarstjórnarfulltrúa Kosið var til bæjarstjórna á víð og dreif út um England og Wales, en samtals hafa þessi kjördæmi V3 hluta allra bæjar- stjórnafulltrúa á Englandi og Wales. Ekki var kosið í London. Kommúnistar útþurkaðir Verkamannaflokkurinn tapaði 61 sæti, en íhaldsflokk urinn vann 211. En sjerstak- lega mikla þýðingu hefur það, að kommúnistar, sem áður höfðu í þessum bæjar- fjelögum 35 fulltrúa fengu nú ekki einn einasta full- trúa. — Fjellu öll þeirra fulltrúasæti til íhaldsflokks- ins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.