Morgunblaðið - 25.08.1950, Page 6

Morgunblaðið - 25.08.1950, Page 6
6 MORGUNBLAÐIO Föstudagur 25. ágúst 1950 JHttgisiiHðMfe Útg.: H.f. Árvakur, Reýkjavík. M Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar GuSmundsson. Auglýsingar: Árni GarSar Kristinsson. Ristjórn, auglýsingar og afgreiSsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Askriftargjald kr. 14.00 á mánuSi, innanlands. 1 í lausasplu 60 aura eintakið. 85 aura með Lesbók. Togaraverkfallið . SÍÐAN 1. JÚLÍ s. 1. hefur staðið yfir verkfall á íslenska í- togaraflotanum. Mestan hluta þess tíma hefur meginhluti þessara glæsilegustu framleiðslutækja þjóðarinnar legið í höfn. Frá nokkrum stöðum, svo sem Akureyri og Neskaup- stað hafa togararnir þó gengið á karfaveiðar, sem samn- ingar hafa náðst um við samtök sjómanna á viðkomandi stöðum. Um það þarf engum blöðum að fletta að þessi langa stöðvun togaranna veldur þjóðinni hinu mesta tjóni. Mark- aðir fyrir mjöl og lýsi er sæmilegur og hafa karfaveið- t arnar því bæði gefið skipshöfnum og útgerð þeirra skipa, • sem gengið hafa, þolanlegan arð. ' Því ber ekki að neita, að stjórn Sjómannafjelags Reykja- víkur hefur í þessu máli látið gerðir sínar stjórnast af , skammsýni og misskilningi. Hún hefur hvatt sjómenn til þess að segja samningum upp á mjög óhentugum tíma fyrir þá. Hún hefur hindrað að samið yrði sjerstaklega um kaup og kjör á karfaveiðum og þar með svipt þjóðarbúið milljóna gjaldeyristekjum. Svo kemur Alþýðublaðið og telur daga togaraverkfalls- ips í daglegum rammagreinum, um leið og það kennir ríkis- stjórninni um stöðvun skipanna!!! Bæjarstjórn Reykjavík- ur samþykkti fyrir skömmu áskorun til ríkisstjórnarinnar um að vinna að lausn togaradeilunnar. Það er góðra gjalda yert. En fyxst og fremst verða deiluaðiljar að taka upp samninga sín á milli. Æskilegt væri e. t. v. að ríkisstjórnin skipaði sáttanefnd til aðstoðar sáttasemjara ríkisins. Hefur slíkur háttur oft verið hafður á í erfiðum deilum. Kjarni málsins er að togaraverkfallinu verður að Ijúka. Það er þegar orðið alltof langt. Vígbúnaðarkapphlaupið ÞAÐ ER staðreynd, sem ekki verður gengið á snið við að fyrstu árin eftir að síðustu heimsstyrjöld lauk afvopnuðust hin vestrænu stórveldi, Bretland og Bandaríkin, hröðum skrefum. A sama tíma og þetta gerðist, Ijetu Rússar fimmtu herdeildir sínar, kommúnistaflokkana, brjótast til valda í hverju landinu á fætur öðru í skjóli rússneskra herja. Með þessari aðferð tókst örfámennum klíkum kommúnista að leggja fjötra örgustu kúgunar og ógnarstjórnar á þjóðir Austur Evrópu, sem engum vörnum gátu komið við undir hæl hins rússneska herveldis. Fyrir því liggja nú sannanir, að Rússar hafa allt frá styrj- ‘ aldarlokum haldið hervæðingu sinni áfram. Vopnafram- ' leiðslan hefur verið aukin og höfuðkapp lagt á eflingu allra greina rússneska hersins. , Það er fyrst þegar að hinar vestrænu lýðræðisþjóðir hafa skilið þessa staðreynd, sem að þær fara að ugga að sjer. Þá er svo komið, að þjóðir meginlands Evrópu horfa fram t algert öryggisleysi. Fyrsta sporið til varnarsamtaka þess- ara þjóða eru varnarsamtök Beneluxlandanna, Hollands, Belgíu og Luxemburg, sem Frakkland og Bretland síðan gerast aðiljar að. Næsta skrefið er svo stofnun Atlantshafs- bandalagsins. Þá er hinum vestrænu lýðræðisþjóðum orðið það ljóst að aukin samtök þeirra um öryggismál sín er þeim lífsnauðsyn. Síðan að lýðræðisþjóðirnar stofnuðu varnarbandalag sitt hafa þær hafist handa um auknar varnir sínar. Raunveru- lega er því hafið stórfellt vígbúnaðarkapphlaup í heimin- ■v m, e. t. v. stórfelldara en nokkru sinni fyrr. Rússar og lepp- ríki þeirra hafa vígbúist frá styrjaldarlokum. Lýðræðisríkin hafa ekki uggað að sjer. Þau hafa ekki haft árás í huga og < því dregist aftur úr um hervæðingu sína. En þau hafa neyðst til þess að setja vopnaverksmiðjurnar í gang að nýju. Þau munu ekki beita vopnum sínum til árása og of- beldis, heldur til varnar friði og rjettlæti í heiminum. Almenningi allra landa hrýs hugur við hinu ægilega víg- ( búnaðarkapphlaupi. Þjóðirnar þrá frið en hata styrjaldir. Kommúnisminn, arftaki nazisma og fasisma, hefur skap- , að þá hættu, sem nú grúfir yfir mannkyninu. Hann hefur f ieitt hið tryllta vígbúnaðarkapphlaup yfir þjóðirnar. Fyrir enda þess leiks er ekki sjeð. ÚR DAGLEGA LÍFINU SEILST í PYNGJU NÁGRANNANS EINHVERNTÍMA í vor var vikið að því í þess- um dálkum, að langt væri nú orðið seilst í pyngju náungans. Menn gætu ekki hreyft sig, án þess að vera með sjóðinn á lofti. Nefnd voru nokkur dæmi um auragræðgi á mörgum svið- um. — Benedikt Ólafsson, Miklubraut 16, skrifar um berjaferð, sem hann fór um síðustu helgi með fjölskyldu sína í Kjós og þar sem gengið var fulllangt í að taka toll af þessum ferðamanni og fólki hans. Niðurstaðan, sem Benedikt kemst að í lok' brjefs síns er hárrjett. — Eigendur einkavega ættu að gefa það til kynna á ótvíræð- an hátt, fef þeir heimta toll af vegfarendum. En hjer ér sagan: FARIÐ Á BERJAMÓ „SÍÐASTLIÐINN sunnudag fór jeg til berja iheð fjölskyldu minni upp í Kjós og keypti tínsluleyfi að Eyjum, en til þess að komast í berjaland Eyja, þurfti jeg að aka vegarspotta, sem meSal annars lá að bænum Sandar. I berj«mónum gerðist ekkert markvert, en þegar jég fór heimleiðis og ók sömu leið til baka og um fyrr nefndan vegarspotta, ók bifreið á undan mjer og þegar við komum þar að hliði, sem lokaði veginum, stóðu þar tveir menn frá Söndum, og höfðu þeir tal af bílstjóra fyrri bílsins og veit jeg ekki hvað þeim fór á milli, og ók sá.bíll á brott. • DÝR VEGARTOLLUR „NÚ KOM AÐ MJER. Þegar jeg ók af stað og gerði mig líklegan að halda áfram, lokuðu menn irnir hliðinu fyrir framan mig og annar kom til mín og 'bauð gott kvöld, spurði um hvernig tínslan hefði gengið og stundi síðan upp erindi sínu og virtist frekar vandræðalegur. „Ja, þetta er eiginlega einkavegur, sem þjer eruð á og það kostar 10 krónur fyrir bílinn að aka eftir hon- um. Hinn maðurinn stóð við hliðið á meðan, eins og sá, sem valdið hefur, og opnaði það ekki fyrr en gjaldið var greitt, eftir þó nokkuð þóf. • GILDRA „EN ÞAÐ, sem mjer finnst athugavert við þetta, auk ef til vill einhverrar meinbægni, er að að- ferðin er alröng. Það er ekki rjett að veiða menn eins og dýr í gildru. Umferðin er frjáls inn en kostar 10 krónur að fara út. Mjer finnst að þessir heiðvirðu menn ættu að standa við hliðið, þegar ekið er inn eða setja upp skilti um einkaveg og svo gjaldið, til þess að menn geti gert upp við sig áður en inn er farið, hvort þeir vilji sæta þessum afarkostum eða ekki. Það er, ekki hægt að ætlast til að menn úr Reykjavík viti um alla eingavegi á íandinu og þekki þá frá sýslu- og hreppavegum, en það er ástæða til að vara menn við slíku. Mjer fannst nóg að vera búinn að greiða 8 krónur fyrir tinsluleyfið fyrir hvern mann í bílnum“. • YANDRÆÐAÁSTAND FYRIR NOKKRUM dögum kom kona í skrif- stofu Morgunblaðsins til að leita liðsinnis í vandræðum sínum. Hún var með bunka af happ drættismiðum, nokkur hundruð krónur að nafn- verði. Nú bað hún um aðstoð til að vita, hvort búið væri að draga í þessum happdrættum, sem voru um bíla, heimilisvjelar, húsgögn, bóka- söfn og hamingjan má vita hverju var ekki lofað í vinninga á seðlum þessum, ef heppnin væri með. Allir miðarnir höfðu verið gefnir út á þessu ■ ári og drætti lofað á ákveðnum tíma. sem lið- , inn var. • ÖLLU FKESTAÐ ER VIÐ FÓRUM að kynna okkur málið nánar kom í ljós, að ekki var búið að draga í einu einasta happdrætti ennþá. í einu, sem draga átti 1. júlí, hafði verið frestað til 1. október og svo framvegis. Happdrætti geta verið góð og gagnleg fyrir þá, sem þau halda og ef menn vilja kaupa miða og freista gæfunnar er ekkert við því að segja- En hitt er ekki þolandi, ef ekki er staðið við gefin loforð um að dregið sje á rjettum og auglýstum tíma. Enn einu sinni er farið fram á, að yfirvöldin — stjórnarráðið, sem hefur þessi mál í hendi sinni, leyfi aldrei frestun á drætti happdrættis og geri það að skyldu, að vinningaskrá sje birt í Lögbirtingablaðinu. • ÚR POKAHORNINU ÚR BRJEFI frá nýjum húseigenda: „Þú hvetur okkur húseigendur til að lagfæra lóðir okkar. Sannleikurinn er sá, að margir okkar erum skuj,dum vafðir og lánstraustið farið þegar kof- inn er komirin upp og ekkert afgangs, nema tvær hendur tómar til að dytta að úti við, þótt ekki vanti viljann. — En ef bærinn aðstoðaði okkur ofurlítið, t.d. með því að lána okkur jarðýtur afnotagjaldslaust, væri það mikil hjálp. Bærinn leggur í svo margt, sem ekki er bein- línis arðberandi til að fegra bæinn, að þetta yrði varla stórt atríði“. — Tillögunni er hjer með komið á framfæri. Margir gera ósann- gjarnari kröfur til bæjarins en þessa. Mýr liður í líknarstarf- semi Hjálpræðishersins 27 þús. kr. varið tii aðsfoðar fólki í afvinnuleit. HJÁLPRÆÐISHERINN hjer á landi. hefur, sem kunnugt er, látið sjer umhugað um öll líknarmálefni. Hefur deildin unnið kappsamlega að því að afla fjár, sem síðan er varið til þess- arar starfsemi. — Tíðindamaður frá Morgunbl. átti í fyrradag viðtal við. Bernhard Petersen, en hann er leiðtogi Hjálpræðis- hersins hjer á landi. Komst hann m. a. að orði á þessa leið. ® ' -........ — Líknarstarfsemin Líknarstarfsemi Hjálpræðis- hersins hefur verið með líku sniði og iindanfarið. — Mikil áhersla hefur verið lögð á að aðstoða peningalaust fólk utan af landi, isem kemur hingað í _ f _ _• Lydia Niclasen atvinnuleit. Hefur því verið veitt húsaskjól og aðstoðað á annan hátt eftir megni, þar til því hefúr tekist að afla sjer atvinnu. Til þessarar aðstoðar var á s. 1. varið samtals kr. 27.000. í þessu sambandi, segir Pet- ersen, langar mig að geta þess, að fólk sem vill verða aðnjót- andi slíkrar hjálpar, getur snú- ið sjer til skrifstofu Hjálpræð- ishersins í Reykjavík. Nýr þáttur í starfseminni En nú hefst hjer nýr liður í líknarstarfsemi fjelagsskapar- ins. í fyrrakv. komu hingað til lands tveir kvenforingjar. — Önnur er færeysk, hin norsk. Þær heita Lydia Niclasen Og Elleh Andersen, Starf þeirra verður í því fólg ið að annast, ef um er beðið, heimilisstörf ef skyndileg og snögg veikindi stinga sjer nið- ur. Hversu lengi þær dvelja á heimilunum fer eftir því, hve langvarandi sjúkdómurinn er. Starf þetta er unnið endur- gjaldslaust, eins og önnur að- stoð, sem Hjálpræðisherinn lætur i tje. Líknarstarfsemi sem þessi, hefur verið reynd víða um heim einkum í Noregi og hvarvetna orðið mjög vinsæl. Stúlkurnar, sem hingað koma og eiga að hafa þetta starf með höndum, eru báðar vanar slík- um störfuum. Verði mikil eftir- spurn eftir þessari aðstoð verð- ur starfsliðinu fjölgað, ef unnt verður. Frh. á bls. 8 Ellen Andersen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.