Morgunblaðið - 14.09.1951, Blaðsíða 12
Ycðurúflil í dag:
NA-kaldi. Ljcttskýjað.
Smáíbúðirnar
Sjá grein á blaðsíðu 2.
209. tbl. — Föstudagur 14. scpt. 1951.
Fækkað í bæjarvinn-
unm i
EFTIRFARANDI tillaga frá bæj-
arráði Hafnarfjarðar var sam-
þ-ykkt á bæjarstjórnarfundi
þriðjud. 11. þ. m.:
„Með tilliti til þess, að nú hef-
irr verið að mestu leyti unnið
fyrir hið áætlaða fje til vega,
vatnsveitu, holræsa o. f 1., og telja
verður atvinnuástandið í bæn-
um eftir atvikum, með betra
móti, samþykkir bæjarráð að
leggja til við bæjarstjórn, að
fækkað verði mönnum í bæjar-
vinnu nú þegar að all-verulegu
leyti, þannig að ekki verði unn-
in önnur verk en þau, sem brýn-
asta nauðsyn kallar á.
Jafnframt samþykkir bæjar-
stjórn að fela VinnumiðlUnar-
‘skrifstofunni að greiða fyrir þeim
mönnum, er sagt verður upp í
bæjarvinnunni.“
Kaupgjaldstíðindi
komin út
KAUPGJALDSTÍÐINDI, sem gef
in eru út af Alþýðusambandi Is-
lands eru komin út og verða seld
á götum bæjarins næstu daga. •—
Flytja þau m. a. kaup og kjara-
samning milli atvinnurekenda og
verkalýðssamtakanna er gekk i
gildi 1. júní s. 1. Þar birtist og
lágmarkskaup karla og kvenna í
almennri vinnu á hinum ýmsu
stöðum ásamt lágmarkskaupi ung-
linga, tímakaupi í skipavinnu og
kaupi ýmissa annara starfsstjetta.
ifish (ouncil
býður styrki
BRITISH COUNSIL hefur ákveð
ið að veita tvo eða þrjá náms-
styrki á háskólaárinu 1952 til
1953 til íslenskra námsmanna,
karla eða kvenna. Aldur þessa
námsfólks á að vera 25 til 35 ára
og verður það að hafa lokið há-
skólaprófi. Aðeins kandidatar
með góða enskukunnáttu koma
til greina.
Umsóknir sendist breska sendi
ráðinu, Templarasundi, Reykja-
vík, og verða að hafa borist þang
að fyrir 30. nóvember 1951.
Maginn var fullur
af hári
I FRJETTABRJEFI um heil-
brigðismát, ágústhefti, sem út
kom í gær er skýrt frá því að í
Landsspítalanum hafi nýlega ver
ið skorinn heljarmikill hárvönd-
ull út úr maga ungrar stúlku.
Hann var rúmlega mannshandar
stór, í laginu eins og afsteypa af
fiaganum og virðist alveg hafa
fyllt út í maga stúlkunnar. Síð-
an segir í ritinu að stúlkan sem
er andlega heilbrigð, hafi tekið
upp á þeim ósið að eta af sjer
hárið uns það fyllti á henni mag-
ann.
Á Kon-Tiki er enn
metsölubék
ÁRI eftir að bók Thor Heyer-
dalhls um Kon-Tiki leiðangurinn
yfir Kyrrahaf kom út, er hún
enn metsölubók í Bandaríkjun-
um, og er slíkt næsta fátítt. Bók-
in kom út þar 5. sept. í fyrra og
ennþá beljast að jafnaði 500—-
600 eintök á dag. Alls hafa verið
Beld 441.800 eintök.
Kvikmyndin af leiðangrinum
hefur og gengið forkunarvel. Hef
ur hún m. a. verið sýnd fyrír
fullu húsi í einu kvikmyndahúsi
í miðbiki New York um firnni
mánaða skeið.
Voru á námskeSðrnu
Nemendur á kjötiðnaðarmanna- og slátraranámskeiðinu, sem nú er lokið, en tveir danskir sjerfræð-
ingar voru kennarar og fór kennsla fram í húsum Sláturfjelags Suðurlands. — Fyrir nokkrum kvöld
um tók Vignir þessa mynd, en á henni miðri er líkan af nauti, sem einn nemendanna gerði. Utan á
grind steypti hann tólg. Var tólgarnautið til sýnis í glugga matardeildar Sláturfjelagsins í Hafnar-
stræti og vakti athygli vegfarenda. Kennarar standa sinn til hvorrar handar fremst á myndinni.
Oúist við miklum árangri af kjöt
ibnabarmaimanámskeiðiiui
Mikkelsen, kjöfmaísmaður, ræðir við blaðamenn
ÞEGAR fram líða stundir og tekist hefir á ný að koma fótunum
undir fjárstofn landsmanna, gæti framleiðsla kindakjöts orðið
álíka mikilvæg fyrir ykkur, eins og svínakjötsframleíðslan er
okkur. Þetta er því skilyrði bundið, að kjötið fái rjetta meðferð.
Það var hinn danski kjötmatsmaður Mikkelsen, sem þannig komst
að orði í gær, er hann ræddi við blaðamenn.
„Sugar" Ray Robin-
son vann Turpin
B AND ARÍK J AMAÐURINN
„Sugar Ray“ Robinson hreppti
aftur heimsmeistaratitilinn í
millivigt í keppni við Bretann
Randolph Turner í fyrrakvöld.
Bardaginn fór fram í New York
og voru áhorfendur 60 þús. að
tölu.
NÆSTI fundur fjelagsmálaráð«
herra Norðurlanda verður að for«
fallálausu haldinn hjer í Reykja*
vík eftir tvö ár.
Forsætis- og fjelagsmálaráð-
herra, Steingrímur Steinþórsson^
kom í gær með Gullfossi frá
Kaupmannahöfn, en ráðherrana
satt 12. fund norrænna fjelags-
málaráðherra, er haldinn var í
Helsingfors. — Skýrði ráðherr-
ann frá störfum fundarins í út-
varpinu í gærkvöldi. Þetta er S
þriðja sinn sem íslenskur ráð-
herra sækir slíkan fund, en á
sviði fjelagsmála hefur norræn
samvinna vaxið mjög hin síðari
í lok ráðherrafundarins bauð
Steingrímur Steinþórsson, í nafní
ísl. ríkistjórnarinnar, að næstí
fundur skuli haldinn í Reykja-
vík, ef aðstæður leyfa. Var því
boði tekið. Það er venja að fund-
ir þessir sjeu haldnir til skiptis
í höfuðborgum Norðurlandanna.
Var röðin nú komin að íslandi.
Meðan forsætisráðherra dvaldi
í Kaupmannahöfn, ræddi hanns
við ráðherra í dönsku stjórninni
og bar handritamálið þar m. a»
á góma.
Mikkelsen hefur veitt forstöðu
slátrara- oð kjötiðnaðarmanna-
námskeiði því er hjer hefur staðið
yfir í bænum að undanförnu.
í ÝMSU ÁFÁTT
Það var fróðlegt að heyra
Mikkelsen segja álit sitt á kjöt-
framleiðslunni. 1 ýmsum mikilvæg
um atriðum við framleiðsluna hef-
ir skort allverulega á. Mikkelsen
var þó vægur í dómum sínum. Gat
þess að sig hefði undrað það, hve
kjötiðnaðarmenn hjer kynnu vel
til síns starfs, þegar það væri haft
í huga, að þeir hefðu aðeins lært
hver af öðrum og reynslunni.
Kjötiðnaðarmenn telja þetta
námskeið hafa orðið þeim ómetan-
legur skóli og fóru miklum lofs-
orðum um Mikkelsen og kunnáttu
hans á sviði kjötframleiðslunnar.
FYRIRLESTRAR OG
VERKLEGT NÁM
Námskeiðið hefur staðið yfir í
nær fjórar vikur. Kjötiðnaðar-
menn hafa verið í 90 kennslu-
stundum og slátrarar 35. Hefur
námið verið fólgið í fyrirlestra-
haldi og verklegu námi og var þá
unnið að ýmiskonar kjö.tfram-
leiðslu, söltun, reykingu, pylsugerð
og meðferð kjöts og slátrun.
Verður þess vonandi ekki langt
að bíða að húsmæður verði áhrif-
anna frá námskeiðinu varar, með
því að á boðstólum verður meira
úrval ýmiskonar kjöts og áskurðs
og fleiri tegundir af pylsum.
SVÍNAKJÖTIÐ SLÆMT
Við pylsugerðina er notað svína-
kjöt og taldi Mikkelsen það ekki
vera gott, hvorki til pylsugerðar
eða matar. Mætti rekja ástæðurn-
ar til ljelegs fóðurs, eða jafnvel
skyldleikaræktar.
VERÐUR AÐ HRAÐ-
FRYSTAST
Lambakjötið og kjöt af ám er
gott, en frysting þess er ekki rjett.
—• Það þarf að hraðfrysta það við
35—40 stiga frost, en geyma það
við 18—20 stiga kulda. — Með
þessari hraðfrystingu kjötsins
verða gæði þess meiri og mætti
skapa því markaðsmöguleika er-
lendis álíka mikla og eru fyrir t
■danska svínakjötið. — Við slátrun
dilkanna hefur það tíðkast hjer
að þeim er difið ofaní vatn. — |
Það taldi Mikkelsen mjög skað- !
legt og var á honum að heyra að
of mikið vatnssull væri í slátur-
húsum.
EGGJAHVÍTA ÚR BLÓÐI
Mikkelsen sagðist hafa undrast
það hve miklu af hlóði væri hent '
í sláturhúsunum hjer, en í Dan- j
mörku er því safnað saman og 1
flutt á ákveðinn stað og þar unn- !
ið úr því eggjahvítuefni. — Eins
sýndi hann nemendum sínum,
hvernig hagnýta megi garnir úr
stórgripum, ekki til manneldis,
heldur til iðnaðar.
Rætt var um kjötbúðirnar hje)'
í bænum og sagðist Mikkelsen
undrast það, að í þeim væri leyfð
meðfram sala á ýmiskonar varn-
ingi, svo sem kálmeti, niðursuðu
vörum og fleiru. í Danmörku er
kjötbúðum bannað að selja -ann-
að en kjöt.
Að lokum sagði Mikkelsen kjöt-
matsmaður, að það væri von sín
að upp úr þessu námskeiði mætti
verða til stjett kjötiðnaðarmanna
og slátrara. Þar með verða gerð-
ar þær kröfur til þeirra manna
er ætla að gera þetta starf að æfi-
starfi, að þeir hafi áður lært hin
rjettu handtök af mönnum sem
kunna þau. Sagðist hann vera
þeirrar skoðunar að landbúnaðar-
málaráðuneytið og iðnaðarmála-
ráðuneytið, myndu vilja styðja að
framgangi þessa máls.
Á laugardaginn fer Mikkelsen
aftur heim til Danmerkur.
„Við giftum okkur"
í Iðnó
FRÚ GUÐRÚN BRUNBORG hef
ir hafið sýningu á norsku kvik-
myndinni „Við giftum okkur“ í
Iðnó og er hún nú sýnd þar á
hverju kvöldi kl. 9.
Þeir, sem leggja leið sína í
Iðnó næstu kvöld, skemmta sjer
áreiðanlega vel, því að myndin
er bráðsmellin.
'Vi
„Sugar“ Ray Robinson
í 2. lotu kom Robinson þungu
höggi á Turpin og var hann í
vörn út lotuna, en virtist hafa
náð sjer að fullu í þriðju lotu.
Leikurinn var síðan mjög jafn
þar til í 10. lotu, að Turpin kom
miklu höggi á augabrún Robin-
sons, svo að sprakk fyrir og
blæddi mikið. Hafði nú Robin-
son tvo kosti — að Ijúka bar-
daganum sem fyrst eða tapa ella.
Hóf hann þegar mikla sóknar-
hríð að Bretanum, sem innan
stundar fjell fyrir þungu höggi
Ameríkumannsins. Turpin reis á
hnje er talið hafði verið upp að
4 og stóð upp er dómarinn taldi
9. Robinson ljet ekki á sjer
standa og höggin dundu á Bret-
anum, sem gat engri vörn við
komið. Voru þetta sýnileg enda-
lok leiksins, og er 8 sek. voru
eftir af lotunni stöðvaði dómar-
inn leikinn. Robinson hafði sigr-
Fótstaílur undir minnis-
merki í Eyjum
NÝLEGA er byrjað að hlaða fót-
stallinn undir minnismerki
drukknaðra sjómanna og fjall
hrapaðra, sem reisa á í Vest-
mannaeyjum. Er skýrt frá þessu
í Vestmannaeyjablaðinu „Fylki“
Reykjavík fundar-
sfaður næsfa ráð-
herrafundar
u
Mýja skip Eimskip ]
skírf „Reykjafoss" !
EINS og áður hefir verið skýrt
frá, hefir H.f. Eimskipafjelag ís-
lands fest kaup á vöruflutninga-
skipi í Ítalíu. Skipið var afhent
fjelaginu í gær (12. september)
í Genúa, og var því um leið gef-
ið nafnið „Reykjafoss".
Mun m.s. „Reykjafoss" hafa
farið frá Genúa í gær áleiðis til
Séte eða Port de Bouc í Suður-
Frakklandi (nálægt Marseilles),
og taka þar fullfermi af málm-
grýti, sem flutt verður til Hol-
lands. Þaðan fer skipið til Ham-
borgar, þar sem nokkrar breyt-
ingar og viðgerðir á því verða
yramkvæmdar.
Má búast við að hinn nýi
Reykjafoss" komi hingað til
lands í lok næsta mánaðar. 1
Skipstjóri á m.s. „Reykjafoss“
er Sigmundur Sigmundsson
(áður skipstjóri á e.s. „Fjall-
foss“), I. stýrimaður Eyjólfur
Þorvaldsson, I. vjelstjóri Ágúst
Jónsson, loftskeytamaður SigurfS
ur Baldvinsson. .