Morgunblaðið - 23.11.1952, Page 11
Sunnudagur 23. nóv. 1952
MORGUNBLAÐfÐ
n
Sjötugurs Leifur Theédór Þor-
Gísli Jakobsson, Hofssföðum leifsson - minning
XJTXTAT 1 A V* ri ** n Xí T
GÍSLI J AKOBSSON, bóndi á
Hofsstöðum í Garðahreppi verð-
ur sjötugur á morgun (24. nóv.).
Gísli er einn af elztu og merkustu
bændum í Garðahreppi, og tek
ég mér því það leyfi — sem sum-
ír kalla Bessaleyfi — til aS minn-
ast hans hér með fáeinum orðum.
Gísli er fæddur að Skáldabúð-
um í Gnúpverjahreppí í Árnes-
sýslu 24. nóv. 1882. Voru for-
eldrar hans hjónin Guðrún Ein-
arsdóttir og Jakob Ehríksson ,er
þá bjuggu á Skáldabúðum. —
Gísli ólst upp með foreldxum sín-
um við mikla fátækt á ýmsum
stöðum þar eystra. Þar til þau
fluttu sem leiguliðar að Hofs-
stöðum árið 1893. Jörðinra keyptu
þau litlu síðar og bjuggu þar
allan sinn búskap upp frá þvi.
Hofsstaðir voru ekki mikíl jörð
þegar foreldrar Gisla komu þang-
að. Túnið fóðraði víst ebki nema
eina kú og nokkrar kindur, og
um engjaslægjur er þar varla að
ræða, síst góðar. Það var því hörð
lífsbarátta, sem beið böndans að
austan fyrstu árin á Hofsstöðum.
En fjölskyldan var hraust og vön
vinnU og snemma gerðist Gísli
góður liðsmaður á húi foreldra
sinna. Héðan var styttra til sjáv-
arins en úr austursveitum og
eygði Gísli snemma þá möguleika
að draga björg í bú foreldra
sinna úr sjónum. Þá stóð skútu-
öldin með miklum blóma hér við
Faxaflóa sunnanverðan, og um
fermingaraldur réðist Gísli til
sjós og stundaði þá atvinnu um
20 ára skeið, við góðan orðstýr.
Þá þekktist ekki fast kaup eða
kauptrygging á vertíðum, svo
sem nú tíðkast, heldur átti hver
það undir sjálfum sér, dugnaði
sínum og árvekni við fiskidrátt-
inn, hvað hann bar úr býtum. Það
kom brátt í Ijós, þegar » fyrstu
vertíðinní, þó ekki væri Gísli þá
hár í lofti, að honum lét vel að
fást við þann gula. Hann var bæði
kappsamur og fylginn sér, og er
frá leið jafnan hæstur eða með
hæstu mönnum í drætti á sínu
skipi. Og það hefur sagt mér
gamall skipsfélagi Gísla, að und-
arlega hafi hann verið léttsvæf-
ur á þeim árum. Löngum hefði
það verið svo, að þó hann ætti
vakt í koju og svæfi, þá hefði
verið eins og hann vissi alltaf
hvað gerðist á dekkinu. Og þeg-
ar tregfiski var, en eitthvað
glæddíst drátturinn hjá þeim sem
á dekkinu voru, hefði Gisli óðar
verið kominn að færinu sinu. Var
honum þá ekki nóg að fara siá'f-
ur á dekk heldur ýtti hann jafn-
an við félögum sínum er sváfu
og lét þá vita hvað um væri að
vera, svo þeir gætu þá láka borið
sig eftir björginni ef þeir hefðu |
þrek og vilja til, og lýsir það
manninum nokkuð. — En. þó Gísii!
væri kappsamur við fiskidráttinn,
lét hann aldrei liggja upp á sig
önnur verk er á skipinu þurfti
að vinna, og varð af því óvenju
Vinsæll meðal félaga sinna.
Árið 1917 keypti Gisli jörð og
bú af foreldrum sínum og hóf þá
sjálfstæðan búskap á Hofstöðum.
Sama ár giftist hann Sigrúnu Sig-
urðardóttir frá Vífilsstöðum,
ágætri konu, og hafa þau síðan
búið á Hofstöðum við vaxandi
efnahag og hagsæld i hvívetna.
Þau hjón hafa eignast fímm dæt-
ur, er þau haf a mannað og mennt-
að vel. Og nú er svo komið, að
Hofstaðir eru með beztu og feg-
urstu jörðum í hreppnum. Þar
eru allar byggingar gerðar af
steini, traustar og vandaðar, og
tún rennislétt og kappræktað, því
Gísli leggur meiri áherzlu á að
rækta túnblettinn sinn vel, en
þenja hann út í allax áttir og
kalla tún þar sem eitt og eítt hálf
soltið ýlustrá æpir til annars úr
rótlausum flögum.
Gísli Jakobsson er hlédrægur
maður að eðlisfari, en hefur þó
ekki komist hjá því að gegna |
ýmsum opinberum störfúm í sveit
sinni. Umboðsmaður Brunabóta-
! félags Islands hefur hann verið
■ síðan hóf starfsemi sína hér í
| sveitinni, og í fræðslunefnd og
| hreppsnefnd hefur hann verið í
j niörg ár. En spyrji maður hann
að, hvað lengi hann hafi starfað
í þessum nefndum eyðir hann óð-
ar því tali, því hann er lítið gef-
inn fyrir að tala um sjálfan sig
eða sín verk. Hann sveigir þá
talið heldur að landsmálum, því
þar hefur hann fylgst vel með um
mörg ár og hefur ákveðnar skoð-
anir á þeim málum. Sjálfstæðis-
stefnan á þar óhvikulan fylgis-
mann. — Gísli er heilsteyptur
maður og traustur. Fáskiptinn um
annara hagi, en þéttur fyrir ef
á hann er leitað, Vinur vina sinna,
en nokkuð vinavandur, að sögn
þeirra sem þekkja hann bezt.
Gísli brá búi á s.l. vori, en við
búi og jörð tók Sveinbjörn Jó-
hannesson tengdasonur hans.
Enginn vafi er á því, að sveit-
ungar Gísla og gamlir vinir fjær
og nær munu minnast hans með
hlýhug og virðingu á þessum
tímamótum í ævi hans, og óska
þess, að hann megi enn um tugi
ára lifa ern og hraustur á hinni
fögru jörð sinni, — sem hann með
ævistarfi sínu hefur breytt úr
koti í höfuðból.
Nágranni.
HINN 14. þ.m. andaðist Leifur
Theodór Þorleifsson að sjúkrahús
inu Sólheimum eftir skamma legu
74 ára að aldri, og verður hann
jarðsettur í kirkjugarðinum við
Suðurgöiu á morgun. Virðist okk-
ur, er honum voru persónulega
kunnugir, að skylt sé, að hans
verði minnst.
Hann fluttist bingað til Reykja-
vikur með foreldrum sínum
tveggja ára að aldri, og dvaldist
hér alla tið síðan, eða rúm 70 ár.
Fæddur var Leifur heitinn 2. júlí
1878, ao Vörðufelli á Skógar-
strönd. Foreldrar voru þau Mar-
grét Marísdóttir og Þorleifur Jóns
son, barnakennari hér í bænum.
Leifur kvæntist 2. febrúar 1901
Jónínu Magnúsdóttir frá Miðseli,
og bjuggu þau saman í farsælu
hjónabandi í meira en 40 ára.
Jónína andaðist árið 1940. Þau
hiónin eignuðust 2 börn, Jónínu
Vigdísi er dó í æsku, og Eirík
koiisál Finna, sem kvæntur er
Ölmu Andersen dóttir Andersens
heitins klæðskerameisíara hér í
bæ.
SKAK
Eftir ÁRNA SNÆVARR og BALDUR MÖI.LER
Teíld í Saltsjöbaden 1S52
HVÍTT: Geller, Sovétríkin
SVART: Unzicker, Þýzkaland.
1. d2—d4
2. c2—c4
3. Rgl—f3
4. Rbl—c3
5. e2—e4!
d«—d5
c7—c6
Rg8—f6
d5xc4
b”—b5
Svartur getur nú haldið peð-
inu. Hvítur fær í þeii; stað
sterka peðamiðju og í flestum til-
fellum verður hvita peðið á e5
Þrándur í Götu svarts.
6. e4—e5
7. a2—a4
Rf6—d5
e7—e6
Hvorki 7........ Be6 8. axb
Rxc3 9. bxc cxb 10. Rg5 Bd5
e6! o. s. frv. með betra tafli fyr-
ir hvítan, né 7......Bf5 8. axb
Rb4 9. Bxc4! Rc2t 10. Ke2 Rxal
11. Da4! er álitlegt fyrir svart-
an.
8. a4xb5
9. b2xc3
10. Rf3—g5
11. Ddl—h5
Rd5xc3
c6xb5
Bc8—b7
S'—S6
Ef 11.....Dd7, þá 12.Rxh7!
12. Dh5—g4 BÍ8—e7
Svartur getur ekki leikið
12.....Ra6 í þeim tilgangi að
koma riddaranúm til c7 og d5,
því hvítur leikur þá 13. Hxa6!
Bxa6 14. Df3 og hótar máti á
Í7 og skák á c6.
13. Bfl—e2
Rb8—d7
irauð 0£j
leikar
BRAUÐ OG LEIKAR hrópaði
lýðurinn í Rómaborg hinni fornu,
— og auðvitað vildu keisararnir
ekki fá hann upp á móti sér með
því að neita svo lítilfjörlegri
bæn; enda var brauð og leikir
helzta leið keisaranna til þess að
afla sér vinsælda lýðsins og ná
hylli hans. Jæja, en hvað um það.
— Hitt er nefnilega öllu athyglis-
verðara, að enn í dag eru Italir
allir fyrir leikana og síðustu hag-
skýrslur sýna, að enda þótt þeir
eyði tiltölulega mjög litlu í bæk-
ur, þá sæki þeir alls konar
skemmtanir fyrir á 3. milljarð
ísl. króna a ári.
FÁEINAR SKRUDDUR |
Stórt ítalskt bókaútgáfufélag
hefur sent frá sér nýlega bækl-
ing, sem sýnir, að einungis mjög
fáar bækur séu til á venjulegu
ítölsku heimili. Segir þar, að þar
sjáist varla aðrar bækur en í
hæsta lagi ein bænabók, mat-
reiðslubók, almanak, spilabækur
og nauðsynlegustu skólabækur.
Enn fremur séu til á örfáum heim
ilum nokkrar leynilögreglusögur,
ljóðakver (sem fjölskyldan hefur
fengið við eitthvert sérstakt tæki
færi), símaskrá og e.t.v. eitthvað
fleira. — Er þá svona nokkurn-
veginn upp talinn bókakostur
venjulegs ítalsks heimilis, segir i
bæklingnum. — Því að ítalir nota
enn þá aurana sína í brauð og |
leiki, — ekki sí?ur en forfeður
þeirra. i
Foreldrar Leifs heitins dvöld-
ust bæði á heimili Jónínu og
Leifs siðustu æviár sín við gott
átlæti og aðbúð alla. Auk barna
þeirra hjóna ólst upp að mestu
leyti á heimili þeirra Margrét
Guðmundsdóttir, tannsmiður, og
Guðrún Sörensen systurdóttir
Jónínu heitinnar, gift Ólafi Páls-
syni, múrarameistara.
Ungur lafði Leifur stund á
verzlunarstörf, og starfaði hann
lengi við hina þekktu verzlun
Sturlubræðra hér í Reyltjavík, og
var löngum þekktur undir nafn-
inu: „Leifur hjá Síurla“. Siðar
varð hann aðalbókari og gjald-
keri Slippféiagsins í Reykjavík í
f jöldamöre ár. Rithönd hafði Leif
ur eina hina nrýðilegustu, með
afbrvgðum skýr og fáguð Leif-
ur heitinn var hið mesta prúð-
menni í framkomu allri og snyrti
menni. Hann var afskiptalaus um
anrara hsffi, en manna skemmti-
lefsstur í v'ópi vina og kunningja,
ræðinn, Uttlyndur og kíminn án
græsku. Var bví mörgum hlýtt til
hans, og því meira sem menn
kynntust honum betur. Feðgarnir
Leifur op Eiríkur voru jafnan
mjög samrýmdir, og starfaði Leif
ur heitinn síðustu 17 árin við
skóverksmiðiu bá er feðgarnir
ráku í Ingólfsstræti 21C hér í
bæ"um.
Vinir og ættingjar Leifs he't-
ins kveðia ha^n hinztu kveðiu,
op b'ðiá honum blessunar Guðs
og friðar.
Kr. Schram.
í þekktri skák milli Gellers
og Flohrs, lék Geller í þessari
stöðu 14. h4 og tapaði eftir 14.
.... h5 15. Dg3 Rb6 16. 0—0 a5!
þar sem svartur varð fyrri til
drottningarmegin. Geller hugsar
sér nú að endurbæta áfram-
haldið.
14. Be2—f3
15. Rg5—e4
16. Bel—h6
Dd8—c7
Rd7—b6
Hh8—g8
* Staðan er nú mjög erfið, sér-
staklega fyrir svartan. Til greina
kom einnig 16........Rd5 17. 0—0
a6 18. 18. Bg7 Hg8 19. Bf6 o.s.frv.
eða 16......Bxe4 17. Bxe4 0-0-0.
18. Df3 Bf8 19. Bg5 og hvitur
virðist hafa yfirhöndina.
17. Bh6—g5
18. Bf3xe4
Bb7xe4
Rb6—d5(?)
Nú var sennilega heldur betra
að leika 18. .. 0—0—0, en hvort
það hefði nægt til að halda
jöfnu er vafamál.
19. Be4xd5
20. Bg5xe7
e6xd5
Dc7xe7
Nú virðist í fljótu bragði að
svartur hafi yfirunnið mestu
örðugleikana, þar sem búið er
að skipta upp öllum léttu mönn-
unum. Það er því athyglisverðara
hvernig Geller notar sér veik-
leika svörtu stöðunnar á glæsi-
legan hátt.
21. 0—0 Ke8—f8
22. Hfl—bl a7—a6
23. Dg4—f3! De7—e6
24.......
25. f3—f4
ÐeS—c8
Prjónavérur
fyrir börn og fullorðna. —
Síðasti dagur ísienzku vik-
unnar. Gjöi ið svo vel og lít-
ið í gluggana.
Prjónastofan VESTA
Laugaveg 40.
■ tli
i.'$m '"wÁ j 'zm i
á wá m 1 *
wm. wm ., „ .
iiii mnfMk
IíMa’B ■
Big ■
m m wm
m jm w
mfm 'á m
flátt
BEZT AÐ AUGLtSA
1 MORClHSBLAÐIDill
24. Df3—f6!!
!Mjög fallegur leikur. Ef svart-
ur fer í drottningarkaup, missir
hann allt vald á peðastöðunni.
T. d. 24.....DxD. 25. exf g5
26. Hxb5 Hg6 27. Hxa6! Hd8 28.
Hxd5!
Til að sporna gegn g6—g5, sem
nú myndi svarað með f4—f5.
25....
26. Hal—a5
27. Hbl—al
DcS—b7 i
Kf8—e8 1
b5—b4 í
Nú er enga björgun að fá.
28. c3xb4 Db7xb4 í
29. Ha5xb5 Db4—b7 j
30. e5—e6! G e f i 8. \
Lokin gætu verið þessi: 30. ..
Dxd5 31. Dxf7t Kd8 32. e7f! og-
síðan DxD.
Síðara hluta þessarar skákar
teflir hvítur frábærilega vel.
(Aths. að nokkru þýddar eftöf
Stuttgarter Zeitung).
Skákþraut
O. N E M O, Wien ^
(W. Schachz, 1935)
■ WM. m, 'Wá ww
í 1 Wk I # 'M
j 1 | á líSr
wrn SH
W,
//áfá. wdm
//////, //y/ss. si'Ws
i
Wm
m,
® 8!
Hvítur leikur og mátar í 3. leifc.
Yfirlýsing ú! al full- ’
Irúakjörinu í SMF 1
AF GEFNU tilefni út af greia
um Fulltrúakjörið í Sambandi
matreiðslu- og framreiðslu-
manna, er birtist nýlega í Þjóð-
viljanum, vil ég taka fram eftir-
farandi:
Nokkrum dögum eftit að taln-
ingu lauk, fékk ég skilafccð um
að Haraldur Tómasson vildi tala
við mig og var ég beðinn um a3
hitta hann á Hótel Borg, en þar
vinnur hann. Kom ég á umrædd-
um tíma, erindi hans við mig var
ao spyrja um hvort rétt væri
um viðskipti okkar Böðvars Stein
þórssonar, eins og getið er um
í Þjóðviljagreininni. Var laus-
lega talað um þetta, hvað ég rétt
vera. Spurði Haraldur mig þá
hvort ég vildi kæra þetta. Neit-
aði ég því, en óskaði eftir að
fá tækifæri til að tala við Böðv-
ar ásamt Haraldi, og lofaði Har-
aldur mér að leiða hesta okkar
saman. Ég vil taka fram að
hvorugan þessara manna þekki
ég, hef aðeins einu sinni talað
við Böðvar og sá Harald í þetta
skipti í fyrsta sinn. Ég er ný-
kominn í S. M. F. og er að öllu
leyti ókunnugur málum þar off
mönnum. Eftir að hafa kynnt
mér betur fyrirkomulag kosn-
inga í sambandinu, tel ég ekkert
athugavert um viðskipti okkar
Böðvars. En ég mótmæli rétti
Haraldar Tómassonar til að birta
eftir mér það sem birt var án
minnar vitundar, og mótmæli að
Haraldur hafi ekki leitt hesta
okkar Böðvars og sín saman til
viðræðna um þetta efni, og einn-
ig mótmæli ég því, að Karaldur
hafi ekki látið mig vita um kosn-
ingafyrirkomulagið eins og það
hefur verið, en í þess stað birt
í heimildarleysi stutt og sund-
urlaust viðtal, er hann sjálfur
hefur óskað eftir hjá mér.
Hannibal Einarsson
Baugsveg 7.
RAGNAR JÓNSSON
bæstaréttarlögmaður
Lögfræðistörf og eignaumsýsla.
Laugaveg 8. Sími 7752.