Morgunblaðið - 22.07.1953, Page 12
Veðurúfli! í dag:
Norðan kaldi og léttskýjað
162. tbl. — Miðvikudagur 22. júlí 1953
Wiily Göffling
fórnardýr ofbeldisins.
Sjá grein á bls. 7.
Hvalveiðibátur dró straud-
ferðaskip 1000 mílna leið
frá Grænlandi til Rvíkur
í GfflRMOKGUN komu tvö skip Grænlandsstjórnar til Reykja-
víkur. Komu þau rakleiðis frá Julianehaab í Grænlandi og fór
minna skipið, hvalveiðibáturinn Sonja Kalogtok fyrir hinu stærra,
strandférðaskipinu Tikarak.
ENGINN iSLIPPUR NÓGU
NETÓR
iStrandferðaskipið hafði bilað
út' fyrir vesturströnd Grænlands.
Vita menn ekki gerla hver ibilun-
in er, en hún mun vera á skrúfu
skipsins og stýrisúbbúnaði. En þar
sem Tikarak er um 500 smálest-
•ir á stærð og enginn slippur svo
Slór í Grænlandi, var það ráð
tekið að láta hvalveiðibátinn draga
það til Reykjavíkur.
Heyskapyrinn
1000 MÍLNA LrEIÐ
Hvalveiðibáturinn Sonja Kaleg-
'tok er aðeins milli 100 og 200 smál.
áð stærð, og ekki sérlega lagaður
ttil dráttar. Var lagt af stað frá
‘Juiianehaab sunnarlega á vestur-
slrönd Grænlands, á fimmtudag-
'ttin. Leiðin til Reykjavíkur er
*»iærri 1000 sjómílur, en ferðin
'gckk að óskum og tók 514 dag.
SNÝR AFTUR A HVALVEIÐAR
JSonja Kalegtok sneri aftur til
Grænlands í nótt og heldur áfram
'h.valveiðum. Skipverjar kváðu
þaer ganga heldur stirðlega um
þessar mundir. Grænlandsstjórn
heldur veiðunum uppi til þess að
géfa Grænlendingum kost á hval->
kjötinu, en hagnaður mun ekki
vera af rekstrinum.
Hásetahlutur kemst
upp í 1090 kr. í róðri
KEFLAVÍK, 21. júlí: — Atta
bátar eru gerðir út héðan á rek-
netjaveiðar og auk þess leggja
allmargir aðkomubátar upp afla
sinn.
Hefur veiði hjá þeim verið ágæt
undanfarið. Sem dæmi má nefna,
að einn daginn var hásetahlutur
1000 krónur í einum róðri.
1 dag voru bátar með sæmileg-
an afla frá 50 og upp í 106 tunn-
ur. Aflaihæztur var Jón Guðmunds
son héðan úr bæ. Síldin er fryst
tii útflutnings.
Mjög erfitt er 'hér að fá menn
á sjóinn, þar sem mikil eftirspurn
er eftir fólki í landi. Veður hefur
verið gott hér undanfarið og gef-
ið á sjó hvern dag. — Ingvar.
Vatnsskortur
á Vopnafirði
VOPNAFJÖRÐUR, 21. júlí. —
i Almennur skortur er nú orð-
1 inn hér í kauptúninu á neyzlu
vatni. — Ástæðan til þess er
bæði þurrkarnir undanfarna
daga svo og að s.I. vetur var
hér með afbrigðum snjólétt.
Flestir brunnar í kauptúninu
eru þornaðir og hefur fólk því
orðið að sækja vatn á bílum
8 km Ieið. — Kolbeinn.
ákurnesingar sigr-
uðuáísafirði
I. flokks lið Knattspyrnufélags
Akraness fór til ísafjarðar um
síÖustu helgi ásamt nokkrum
meistaraflokksmönnum félags-
ins. Lék liðið þar tvo leiki. •—
Fyrri leikurinn við úrval úr
Herði og Vestra og sigruðu Ak-
úrnesingar með 4:2. Siðari leik-
urinn var við Hörð og sfgruðu
Akurnesingar einnig það með
4:1.
Akurnesingar láta mjög vel af
móttökum þeim, er þeir fengu
á fsafirði og hafa beðið blaðið
að færa ísfirðingum beztu þakk-
ir fyrir hinar ágætu móttökur.
Gágóður þorskafli Norð-
fttanna íyrir ausfan
SEYÐISFJÖRÐUR, 21. júlí. —
Norskir þorskveiðibátar hafa
komið hér í höfn af og til að
kaupa sér vistir. Eru þeir á veið
um fyrir austan land og láta all-
Vel af aflanum. Flestir þeirra
veiða á línu, en nokkrir eru þó
tneð þorskasnurpur.
— Benedikt.
22 feta háhyrning-
ur dreginn á land
KEFLAVlK, 21. júlí: — f dag
kom mótorbáturinn Andvari úr
hvalveiðiför. Hafði hann verið úti
í 2 sólarhringá. Fékk hann einn
háhyrning, er var 22 fet á lengd,
stór og mikil skepna. Báturinn
fer strax aftur á veiðar í kvöld.
Þetta er fyrsta hvalveiðiför
Andvara, en ibáturinn, sem er 52
smálestir verður gerður út á hval
veiðar í sumar. — Ingvar.
Fyrir börnunum er heyskapurinn leikur, en gleðistundir þeirra
eru þó mestar, þegar hirðing fer fram. Til vinstri á myndinni sést
á heyhleðsluvél, en heyvagninn er til hægri. Frásögn af heyskapn-
um í sumar er á bls. 1.
AusiavDbræla á vclðisvæðinu:
Flest skipin lágu í höfn
en von um að veður batni
FÁEIN skip fengu slatta af síld í fyrrinótt, en eftir það kom austan
bræla, svo að engin síld að ráði veiddist í gær. Lágu flestir bát-
arnir í höfn, tóku olíu og vistir. Telja menn þó horfur á að veður
batni aftur og vonast þá eftir áframhaldandi síldveiði. Nota menn
þetta hlé sem á hefur orðið til að búa í haginn fyrir frekari síldar-
verkun. Hafa tunnur og salt verið flutt á þær söltunarstöðvar, sem
voru að komast í þrot.
Fjölmennasia íslands
méfiS í golfi heíst
á fösludag
ÍSLANDSMÓTIÐ í golfi hefst á
föstudaginn kl. 4 e. h. og verður
fjölmennasta landsmót í golfi,
sem hér hefur verið haldið —>
eru keppendur um 30 talsins víðs
vegar að af landinu, m. a. ís-
landsmeistarinn Birgir Sigurðs-
son frá Akureyri. Meðal þátttak-
enda eru flestir beztu kylfingar
landsins.
Samhliða landsmótinu fer Golf
þingið 1953 fram. Hefst það kl.
10 árd. á fimmtudaginn.
Þá verður og efnt til keppni í
öldungaflokki, en þar er kylfing-
um eldri en 50 ára heimil þátt-
taka. Sú keppni fer fram á
fimmtudag og þá á sama tíma
keppni milli Reykvíkinga og ut-
anbæjarmanna. Verða leiknar 18
holur.
SIGLUFJÖRÐUR
Fréttaritari Mbl. á Siglufirði
símaði í gær að sólarhringinn
næstan á undan hefðu 8000 tunn-
ur verið saltaðar þar. Unnið var
nótt sem nýtan dag, að því að
Söltun á Vopnaflrði
nemur 2200 iunnum
VOPNAFJÖRÐUR, 21. júlí. —
Síldarsöltun hófst á Vopnafirði
14. júlí og er nú búið að salta I
2200 tunnur. Einnig hafa verið
frystar 300 tunnur.
Síldin hefur verið stór og feit
og full af átu. Telja skipstjórar
síldarhorfur góðar á þessum slóð
um.
Það er eingöngu heimafólk,
seiri unnið hefur við síldarsölt-
unina. Hefur verið vöntun á
fólki. Þá brugðust bændur hér í
nágrenninu vel við og leyfðu
fólki sínu að vinna við söltunina.
Tveir vélbátar og 5—6 trillu-
bátar hafa róið héðan, en afli
verið mjög tregur. Trillubátarn-
ir hafa því hætt róðrum og vinna
skipverjar Við síldarsöltunina.
ftlorðmenn hafa aflað vel
á snurpinótaveiðunoim
Danirnir leika við
Akurnesinga í kvöld
•JÍOKKRIR norskir Síldveiðibátar
háfa komið við á Raufarhöfn und
ahfarna daga og hefur fréttarit-
ari Mbl. á staðnum rætt iauslega
við þá um afla Norðmanna.
Norsku snurpunótahátarnir
'fóru af stað frá Noregi kringum
5. júlí. Þeir hafa mikið haldið sig
djúpt á austursvæðinu, þannig að
íslénzku bátarnir sem dýpst hafa
vciið út af Langanesi, hafa orðið
'iíra varir þar. Þeir láta mjög
vel af aflanum, eru sumir komnir
með yfir 1000 tunnur og sumir
hafa haldið heim á leið með full-
fermi úr fyrstu ferð.
Reknetjabátarnir fengu ekki að
leggja af stað fyrr en 15. júlí. j
Hafa þeir verið að koma á miðin j
undanfarna daga. Nokkrir þeirra
komu inn á Raufarhöfn á vestur-
leið. Létu þeir reka á mánudag
vestúr af Grímsey, en öfluðu lítið
þar. Kenndu þeir um hirtu sutnar 1
:nastu£innar.Jiér, aó síldia sæi net-
in og forðaðist þau. — Einar. 1
Poul Andersen
í KVÖLD leika dönsku knatt-
spyrnugestimir þriðja leik sinn
hér á landi að þessu sinni. Leika
þeir við Akurnesinga og hefst leik
urinn kl. 8.30.
í danska liðinu eru 3 landsliðs-
menn Dana. Hafa þeir sett sinn
svip á leik liðsins, en mesta at-
hygli hefur þó vakið leikur Pouls
Andersens, miðframvarðar, en
hann er fyrirliði danska landsliðs
ins. iSóknarleikmönnum íslenzku
liðanna hefur ekki gengið sem
bezt í viðureigninni við lnnn, og
má óefað telja að hann hafi bjarg
að danska markinu margsinnis í
þessum tveimur leikjum sem lið-
ið hefur leikið hér.
lesta skip tómum síldartunnum,
sem fara á ýmsar söltunarstöðv-
ar á norðausturlandi.
RAUFARHÖFN
Frá Raufarhöfn simaði frétta-
ritarinn að 15 skip hefðu fengið
slatta síldar á austursvæðinu að-
faranótt þriðjudagsins, en eftir
það kom norðaustan-bræla, rign-
ingarsuddi var þar í gær og 4
vindstig, en alveg sjólaust. Milli
20 og 30 skip voru þar í höfn
og var verið að ljúka söltun á
þeirri síld, sem borizt hafði í
gærkvöldi.
Þrjú af strandferðaskipunum
komu til Raufarhafnar í gær með
tómtunnufarma, — Esja með 3000
tunnur, Skjaldbreið hlaðin upp
í hálft mastur og Oddur.
DAGVERÐAREYRI
Frá Akureyri er símað, að
fyrsta skipið með síld til Dag-
verðareyrar hafi komið um helg-
ina. Varð það Súlan með 978 mál,
síðan komu Tryggvi með 232
tunnur í salt og 433. mál í
bræðslu, Jón Valgeir með 90 tn.
í salt og 125 mál. í gærdag voru
á leiðinni þangað tvö skip með
síld, bæði í bræðslu og salt. í
gær hafði verið landað á Dag-
verðareyri 2298 málum í bræðslu
og 981 tunnu í salt.
HÚSAVÍK
Á Húsavík voru 2000 tunnur
saltaðar á mánudaginn og var
söltun þar með komin upp í 8000
tunnur. Aðeins eitt skip kom inn
í gær, var það Vörður frá Greni-
vík með 450 tunnur.
Sölfun og síldar-
bræðsla á Seyðisfirði
SEYÐISFJÖRÐUR, 21. júlí. ‘ —
Saltað hefur verið hér á Seyð-
isfirði milli 1 og 2 þús. tunnur
síldar. Og í bræðslu hafa farið
um 2000 mál.
Rifsnesið kom inn fyrir þrem-
ur dögum með um 600 mál. Fór
skipið aftur út í fyrrakvöld en
sneri við til Seyðisfjarðar eftir
16 klst. og þá með 400 tunnur af
glænýrri síld. Fór hún öil í sa.lt,
enda mjög falleg með 20% fitu-
magni.
Valþór hefur líka komið við
og við inn með þetta 100—20Ó
tunnur í ferð. Bárust frégnir af
i því að hann væri á leið inn í
I dag með eitthvað yfir 100 tunn-
— Benedikt.
Husgagnaverzlun
opnuð á Akureyri
AKUREYRI, 21. júlí: — Um miðj
an júlímánuð var opnuð í Hafnar
stræti 96 á Akureyri, húsgagna-
verzlunin Valbjörk h.f. Er þetta
fyrsta húsgagnaverzlunin, sem
opnuð hefur verið á Akureyri.
1 gærkveldi buðu forstöðumenn
fyrirtækisins fréttamönnum að
skoða húsgögn þau, sem. verzlunin
hefur til sölu. Eru þau með ný-
tízku sniði og mjög þægileg.
Húsgögnin eru framleidd hjá
húsgagnaverksmiðjunni Vilbjörk
h.f. Framkvæmdastjóri fyrirtækis
ins er Jóhann Ingimársson, eri
verzlunarstjóri Kristján Aðal-
steinsson, húsgagnameistari.
— H. Vald.
Frá Heimdali!
í KVÖLD kl. 8,30 verður
haldinn fundur í Ferðadeild-
inni í litla salnum í Sjálfstæð-
ishúsinu. •— Áríðandi að sem
flestir mæti.
ítalir slyðja
Veshirveldin
RÓMABORG, 21. júlí. — De
Gasperi, forsætisráðherra Ítalíu,
sagði í dag í ræðu í ítalska þing-
inu að ítalir myndu hér eftir sem
hingað til styðja Atlantshafs-
bandalagið, Evrópuherinn og
aðra samvinnu Vesturlanda.