Morgunblaðið - 11.10.1953, Blaðsíða 11
Si-nnudagur 11. okt. 1953
MORGVN BLABI&
11
- Reyfcjavikurbréf 75 í,rí' á morgun:
, Frainh. af bls. 9. I
Kommúnistar
°g dönsk æska
I KOSNINGUNUM, sem
fram fóru til danska þings-
jns bættust um 200 þús. nýir kjós
endur við vegna þeiriar breyt-
jngar stjórnarskrárinnar að færa
kosningaaldurinn niður úr 25
árum i 23ja ára aldur. Þrátt fyrir
þessa fjölgun kjósenda töpuðu
kommúnistar 5 þús. atkvæðum.
Þeir virðast því ekki eiga mikið
fylgi meðal danskrar æsku.
Sannleikurinn er sá, að á Norð-
Urlöndum er alls ekki lengur lit-
ið á kommúnista sem stjórnmála-
flokk . í almenningsálitinu eru
þeir þröng klíka ofsatrúarmanna
sem lifa í trú en ekki í skoðun.
í þessari klíku eru aðeíns örfáir
Jnenn, sem hafa ofurselt sig sál-
arlausri skurðgoðadýrkun og
telja það eitt hlutverk sitt að
ganga erinda harðstjórnarinnar í
JVIoskvu í hvívetna.
Æskan á Norðurlöndum telur
sig að sjálfsögðu enga samleið
eiga með slíkum mönnum. Ungt
fólk þar hefur gert sér ljóst að
frjálslyndi og kommúnismi eru
tvær andstæður, sem mikið djúp
er staðest á milli.
Þróun í svipaða átt
hér
ALLT bendir til þess að hér á
landi horfi í sömu átt um afstöðu
Ungs fólks til kommúnismans.
Barátta íslenzkra kommúnista
gegn glæsilegustu raforkuverum,
sem reist hafa verið á íslandi eru
æskunni greinileg vísbending um
það, hverra hagsmunum þeir
þjóna.
Ungum iðnaðarmönnum á
Akureyri og í Reykjavík er
það ljóst, að fjandskapur
kommúnista gagnvart virkjun
Sogs og Laxár byggist ekki á
trúnaði við þeirra hagsmuni.
Iðnaðurinn þarf aff fá næga
raforku til þess að auka rekst-
ur sinn og gera hann f jölbreytt
ari. Þess meiri orka, sem fyrir
hendi er til iðnaðar, þess
meira verður afkomuöryggi
iðnaðarfólksins.
Þetta er svo einfalt mál að það
hljóta allir að skilja. Þess vegna
munu hin nýju orkuver ekki að-
eins veita ljósi og yl um hýbýli
fólksins og nýrri orku til íslenzks
iðnaðar. Þau munu upplýsa hugi
fjölda fólks, sem áður hafði reik-
að um myrkviði hins kommún-
iska ofstækis.
Einangraðir á Alþingi
Á ALÞINGI eru kommúnistar nú
gersamlega einangraðir. Þeir eiga
engan fulltrúa í nefndum þing-
deildanna. Við þá vill heldur
enginn eiga samvinnu, nema hin-
jr svokölluðu „Þjóðvarnarmenn",
sem ekkert vita hvert þeir stefna
eða hvað þeir vilja.
Kommúnistaflokkurinn á ís-
landi er þannig orðinn algerlega
áhrifalaus í íslenzkum stjórnmál-
um. Hann hefur dagað uppi í
ofsatrú sinni á erlenda kúgunar-
stjórn. í „Æskulýðsfylkingu“
hans fækkar stöðugt. Þrátt fyrir
ódýrar boðsferðir til Búkarest
hefur unga fólkið engan áhuga
fyrir sálufélagi við hinn fjar-
stýrða flokk.
Eina lífsmarkiff meff flokkn-
um er nú blað hans, sem að
mestu er gefiff út og kostað af
Rússum. En> svo f jarlægur er
málflutningur þess íslenzku
fólki að útgefendur þess verða
að gefa það í þúsundum ein-
taka.
Þetta er heldur dapurleg mynd
af ástandinu á hjáleigu Moskvu-
stjórnar á Islandi. En það er rök-
rétt afleiðing af vaxandi skiln-
ingi íslendinga á hlutverki komm
únista í landi þeirra.
Jósep Björnsson á Svarfhóli !
Á MORGUN, 12. þ. m., verður'
héraðshöfðinginn Jósep Björns- ^
son á Svarfhóli 75 ára að aldri.!
Hann er fæddur 12. október 1878.1
Foreldrar hans voru þau Björn |
Ásmundsson, bóndi á Svarfhóli,
og kona hans, Þuríður Jónsdóttir.1
Jósep tók við fcúsforráðum á
Svarfhóli 1913 og giftist árið 1923
Jóhönnu Salvöru Magnúsdóttur
frá Svefneyjum á Breiðafirði. —
Þeim hjónum varð ekki barna
auðið, en eina fósturdóttur ólu
þau upp. Jósep sat í hreppsnefnd
Stafholtstungnahrepps í 33 ár og
oddviti var hann í 24 ár. Hann
var einn af aðalhvatamönnum
Hví*árbakkaskólans og í skóla-
nefna hans árum saman.
að deila við hann þar, því að ■
maðurinn er rökvís og hefur víða ;
skyggnzt um í völundarhúsi •
stjórnmálanna. ;
Þó að heilsu Jóseps hafi heldur •
hrakað síðustu árin, má þó segja, ;
að hann eldist vel og skemmti- ;
lega. Hefur hann heigzt til meiri I
og meiri mildi á því tímabili, sem ;
venjulega er nefnt „elli“, og er *,
því í raun og veru alltaf að yngj-
ast, því að harðlyndi allt er
andleg kölkun. Og alltaf er
Jósep einnig að safna í sarp
hugsunar sinnar og skilnings. —
Hann er enn þá vaxandi maður,
og hvað er í raun og veru hægt
að segja betra um mann á hans
aldri?
Ég vil að lokum óska þessum
aldna héraðshöfðingja og heim-
spekingi í bændastétt allra heilla
á þessu merkisafmæli hans og
þakka honum fyrir ánægjulega
viðkynningu og viðskipti, sem
engan skugga hefur borið á um
margra ára skeið.
Gretar Fells.
Bandaríkjamenn ánægffír
WASHINGTON, 9. okt. — Banda
ríkjastjórn hefur látið í ljósi
ánægju yfir ráðstöfunum brezku
stjórnarinnar í Guina. —NTB.
Jósep Björnsson hefur alla
jafna búið rausnarbúi á Svarf-
hóli og mun hafa verið með efn-
uðustu bændum Borgarfjarðar.
Fyrir fjórum árum hætti hann
búskap og er nú seztur í „helgan
stein“, eins og komizt er að orði.
Ekki situr hann þó auðum hönd-
um, því að mörgu er að sinna á
stórri bújörð og ennþá mun hinn
snyrtilega búhöldur kunna því
betur, að ekki sé allt í óreiðu
á býli sínu. — Jósep var alltaf
mjög gestrisinn og góður heim
að sækja, og ekki hefur sá mann-
kostur minnkað með aldrinum.
Fer orð af því, að Jósep sitji
næstum því fyrir mönnum til
þess að bjóða þeim til sín og
leiða þá að nægtaborði íslenzkr-
ar gestrisni. Sá, er þetta ritar,
mun lengi minnast ánægjulegra
stunda á heimili Jóseps og rausn-
arlegra veitinga.
En þó að Jósep kynni vel að
búa, hefur hann þó alltaf verið
meira en bóndi. Hann hefur átt
sér ýmiss áhugamál, sem tekið
hafa hug hans og lyft honum
frá búmannsraunum og brauð-
striti. í prentun mu nú vera bók
frá hans hendi, þar sem hann
reku rendurminningar sínar, og
sennilega mun hann láta þar í ljós
eitthvað af lífsskoðunum sínum.
Mun marga fýsa að eignast þá
bók, þegar hún kemur á mark-
aðinn.
Jósep Björnsson er um ma?gt
merkilegur maður og sérkenni-
legur. Hann er andlega sinnaður,
en frjólslyndur og aðhyllist kenn-
ingar Guðspekinnar, því að þær
fullnægja bezt hinni ríku skiln-
ingsþörf hans. Er hann maður
íhugull, í raun og veru heim-
spekingur að eðlisfari, hugkvæm-
ur og frumlegur. Þeir, sem þekkja
hann vel og eru að einhverju leyti
á sömu eða svipuðum andlegum
„bylgjulengdnum“, munu minn-
ast margra ánægjulegra samveru
stunda með honum, þegar hann
lét skilningsljós sitt skína yfir
umræðuefnin. Kryfur hann jafn-
an hvert mál til mergjar og leit-
ar að kjarna þess, —
! í stjórnmálum er Jósep og hef-
ur alltaf verið geymistefnumaður
(„konservativ"), en víðsýnn þó
og sanngjarn. Hefur hann mynd-
að sér sínar eigin skoðanir á því
sviði, og er ekki heiglum hent
Fjölbreyll hefli af
Helpfelfi kontið út (
f TILEFNI af afmæli dr. Páls
ísólfssonar kemur tímaritið
Helgafell út á morgun. —- Fyrri
hluti ritsins, en það er 3. hefti
þessa árgangs, er tileinkað Páli.
— Fyrst er löng ritgerð um Pál
ísólfsson eftir Jón Þórarinsson.
Þá er ritgerð eftir próf. Alex-
ander Jóhannesson Háskóla-
rektor, sem hann nefnir Ljóð og
lag. Afmæliskveðju sendir Jónas
Þorbergsson fyrrum útvarpsstj.
og ljóð eftir Andrés Björnsson,
sem hann kallar Að lifa. Þá er
lag fyrir píanó, sem dr. Páll
nefnir tileinkun.
í ritinu eru ennfremur þessar
greinar: Enn viljóst sveinar eftir
séra Eirík J. Eiríksson. Ritgerðir
um Stephan G. Stephansson eft-
ir Þorkel Jóhannesson próf. og
Kristján Albertson sendifulltrúa,
ennfremur er í Helgafelli ritgerð-
ir eftir Lárus Sigurbjörnsson:
Bæjarleikhús, og eftir Björn Th.
Björnsson: Hvað um Skálholt?
Þá eru birt tvö bréf, annað um
styttu Stephans G. í Skagafirði,
en hitt um starfsemi góðtempl-
arareglunnar. í Bókmenntadálki
eru 2 ritgerðir, önnur um V. S.
Vilhjálmsson og hin sem heitir:
Löng er leiðin frá Benedikt á
Auðnum til Benna í leyniþjón-
ustunni. í kaflanum Á fornum
vegi eru eftirtaldar greinar, all-
ar skreyttar myndum karikatúr-
um: Verk gjalda höfunda sinna.
Reimleikum aflétt. — Kvartett
Björns Ólafssonar. Heimsókn er-
lendra listamanna. La Traviata.
Bachkynning í útvarpinu. Víð-
frægt ballettfólk í Þjóðleikhús-
inu. Stjörnurnar úr austri. Pal-
acco Medici eignast afkvæmi í
! Flóanum. Hljómleikar í septem-
ber. Sovét listamenn á vegum
MÍR. Gúmmímálning flæðir yfir
landið. Óþrifnaður á opinberum
stöðum „Ég einn“. Fold og sjó-
inn tóku dans. Saga góðtemplara
reglunnar.
Æd®ssasa&r
íorsæiis-
rá&herres
BONN, 9. okt. — Vestur-þýzka
• þingið endurkaus í dag
hinn sigursæla öldung
Konrad Adenauer forsætisráð-
herra nýrrar stjórnar. — Hlaut
hann 304 atkvæði, en andvígir
honum voru 148 þingmcnn.
Adenauer varð fyrsti forsætis-
ráðherra vestur-þýzku stjórnar-
innar i september 1949 og hefur
verið það síðan. — Reuter.
Fegrunarfélag Reykjavíkur:
Habarettsýninef
ogr dans
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld k! 9.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2. — Sími 2339. —
Borð tekin frá um leið og aðgöngumiðar eru afhentir.
HAFNARFJÖRÐUR
HL JÓMLEIKAR
í Bæiarbíói í kvöld kl. 11,15.
Guðný Jensdóttir
Islenzk söngkona, sem kemur fram í fyrsta sinn
hérlendis.
Justo Barreto
Ameríski Boogie Woogie-píanóleikarinn.
Haukur Morthens
syngur með tríói
Evbórs Þorlákssonar
Hljómsveit Kristjáns Kristjánssonar
Aðgöngumiðasala hefst í dag í Bæiarbíó.
Kvenfélag Háteigssóknar
Kcsf iisala
í Sjálfstæðishúsinu í dag.
síðdegis, til ágóða fyrir kirkjubyggingu safnaðarins.
Hefst kl. 2,30.
FUNDUR
Slysavarnadeildin Hraunprýði,
Hafnarfirði, heldur fund n.k. þriðjudag 13. okt.
kl. 8,30 e. h. í Sjálfstæðishúsinu.
Sagt verður frá sumarstarfinu. Sýndar kvikmyndir •
frá síðasta sjómannadegi. Sameiginleg kaffidrykkja. ;.,
Mætið vel og stundvíslega á fyrsta fundinn. ; ,
■ '
r,‘
STJÓRNIN
VerkakvefMttafél. FramsÖkn
heldur f u n d mánudaginn 12. þ. m. kl. 8,30 í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Fundarefni:
1. Félagsmál.
2. Rætt um vetrarstarfið.
3. Sýnd kvikmyndin „Dagrenning", sem sýnir fyrsta
verkfall er konur háðu í Noregi.
Fjölmennið! Mæti-5 stundvíslega.
STJÓRNIN
S t ó r t
nefzlanarfyrirtæki
vantar gjaldkera.
Æskilegt, að hann hafi einhverja bókhaldsþekkingu.
Tilboð, ásamt meðmælum ,ef til eru, sendist Mbl.
merkt: „Góð staða —546“.