Morgunblaðið - 21.05.1954, Blaðsíða 1
16 síður
41. árgangnr.
114. tbl. — Föstudagur 21. maí 1954.
Prentsmiðja Morgunblaðsim
Borgarstjórinn Keggur fram hæjarreikmngmn 1953:
*
Fjáihagur Reykjavikur blómgast —
iáriitu um 38
Eignir jukust á
Hikið lið uppreisiarmanna
slefnir til Rauðárslétlunnar
; Þar er fyrir 100 þús. manna lið þeirra
Vígi stjórr.arhersins 150 km sunnan Hanoi fallið
Saigon, 20. mai. — Reuter-NTB.
ÞÆR hersveitir uppreistarmanna, sem tóku þátt í orrustunuin
um Dien Bien Phu eru á leið til Rauðérsléttunnar eftir vegi
41, en Frakkar gera nú í sífellu loftárásir á þessa samgönguleið
ef.tir að uppreistarmenn rufu samkomulagið um þrottflutning fanga
með því að nota veg þenna til herflutninga. Talið er, að kommún-
istar eigi að auki á að skipa 100 þús. hermanna á Rauðársléttu
UNNU VÍGI
STJÓRNARHERSINS
Uppreistarmenn hafa tekið eitt
af virkjum stjórnarherjannu,
sem voru til varnar Rauðárslétí-
unni. Virki þetta er skammt frá
ströndinni um 150 km suður af
Hanoi. í varnarliði virkisins voru
hermenn Vietnams, og biðu þeir
mikið tjón.
Kommúnistar hafa gert harða
hríð að öðrum varnarstöðvum
stjórnarherjanna, sem verja Rauð
ársléttuna.
FALLBYSSUDRUNUR
HEYRAST TIL HANOI
Frakkar vinna að því að upp-
ræta skæruliðasveitir, sem kom-
izt hafa að baki varnarlínu
þeirra. Má heyra fallbyssudrunur
til borgarinnar af þessari viður-
eign.
RÆÐIR VIÐ NAVARRE
Yfirmaður herafla Frakka, sem
nú er í eftirlitsferð í Indó-Kína,
hefur setið á fundum með Nav-
arre hershöfðingja, sem er yfir-
maður herjanna í Indó-Kína. —
Þykir óvænlega horfa fyrir
Frökkum um þessar mundir.
Finnska stjóiruirj
völt í sessi
HELSINKI, 20. maí — Þó að
finnska stjórnin sé ekki nema
hálfs mánaðar gömul, bólar þeg-
ar á allmikilli sundrung í henni.
Þingflokkur Bændaflokksins
hefir afráðið að setja jafnaðar-
mönnum úrslitakosti. Hefir flokk
urinn samþykkt að tilkynna
jafnáðarmönnum, að hann muni
hverfa úr ríkisstjórninni, ef til-
lögur um landbúnaðarmál, sem
nú eru fvrir þinginu, verði ekki
afgreiddar viðhlítandi.
Við atkvæðagreiðslu um frum-
varpið í dág tóku 23 þingmenn
jaínaðarmanná sig út úr og
greiddu atkvæði gegn frumvarp-
inu, sem var fellt.
Bændaflokkurinn hafði gert
ráð fyrir, að frumvarpið yrði
samþykkt, enda gert það að skil-
yrði fyrir þátttöku í ríkisstjórn
Törngrens. —NTB.
Hættuiegt að
heita Natan
I.UNDÚNUM, 19. maí. — í gær-
kvöldi elti Lundúnalogreglan geð
veikan mann, sem hafði skamm-
byssu í fórum sínum og hafði
skotið á tvo menn í gærdag. Er
að honum kreppti, svipti hann
sjálfan sig lífi.
Það þykir einkum í frásögur
færandi um þennan mann, að
hann hafði uppi ráðagerðir um
ag ráða bana 28 manns, sem hann
þekkti ekki nokkurn skapaðan
hlut. Fannst skrá yfir þessa menn
í vasa hans. Voru það allt karlar.
Báru 13 þeirra nafnið Natan, en
hinir áttu sama far.gamark og
hann sjálfur, Goldberg.
Nöfnin hafði hann tekið saman
upp úr símaskrá. Þeir, sem Gold-
berg tókst að koma skotum á í
gær, særðust illa, og liggur ann-
ar fyrir dauðanum.
— Reuter-NTB.
Rekstrarafgangur meiri en á undan-
förnum árum og varið til framkvæmda
r
Utgjöld standast vel áætlun
Úr ræðu borgarsf jóra á fundi bæjarsf jórnar í gær
REIKNINGAR Reykjavíkurbæjar og fyrirtækja hans
íyrir árið 1953 voru lagðir fyrir bæjarstjórnarfund í gær.
Borgarstjóri gerði grein fyrir afkomu bæjarins og fyrirtækj-
anna, eins og hún kemur fram í reikningunum. Rekstrar-
kostnaður bæjarins hefur orðið minni en áætlað var og
rekstrarafgangur nam rösklega 20 milljónum króna, sem
varið verður til framkvæmda bæjarins. Hrein eign bæjar-
ins hækkaði um 38 milljónir króna á árinu og greiðslujöfn-
uður varð hagstæður og áætlanir, sem gerðar voru um út-
gjöld bæjarins hafa staðizt vel.
Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri.
Kosið í Suður-Kóreu
í gær
SEOUL, 20. maí. — Kosningar
fóru fram í Suður-Kóreu í dag,
þær fyrstu síðan Kóreustríðið
hófst. Talið er, að um 80% kjós-
enda hafi neytt atkvæðisréttar.
Lögreglan var viðbúin að skakka
leikinn, ef til óeirða kæmi, en að
sögn leið kosningadágurinn í
friði og ró. — Reuter-NTB.
Vínandi i blóði
KAUPMANN AHÖFN — Vísinda-
menn þykjast nú geta sannað, að
í blóði sumra sé jafnan fyrir
hendi nokkurt magn vínanda,
enda þótt viðkomandi hafi einskis
áfengis neytt.
Hokkur ágreininpr V'esfur-
veldanna um fndó-ina
Bretom ekki tHkyamt fyrir
fram uim viðræðurnar i París
Lundúnum, 20. maí. — Reutsr-NTB.
STJÓRNMÁLAMENN í Lundúnum segja, að verulegur ágrein-
ingur sé risinn milli Breta og Bandaríkjamanna um málefni
Indó-Kína. Þingmaður Verkamannaflokksins spurði Churchill að
því í þinginu í dag, hvenær Bretum hefði verið tilkynnt um við-
ræður Frakka og Bandaríkjanna um skilyrði fyrir beinni íhlutun
Bandaríkjamanna í Indó-Kína striðinu. Svaraði ráðherra því til,
að Bretar hefðu ekki fengið vitneskju um viðræður þessar fyrr
en eftir á.
UPPLYSINGAR EFTIR A
Churchill sagði, að Eden, ut-
anríkisráðherra, hefði tekið mál
þetta upp við sendinefnd Banda-
ríkjanna í Genf. Seinna fékk
líka sendiherra Breta í Washing-
ton nákvæma skýrslu um við-
ræðurnar.
Ráðherra tók fram, að viðræð-
urnar milli Frakka og Banda-
ríkjamanna virtust hafa verið
óformlegar og ekki skuldbindandi
enda hefir hvorugur aðili tekið
sér nýjar skyldur á herðar með
þeim.
EKKI I VESTRÆNUM ANDA
Fyrirspyrjandi Verkamanna-
flokksins hélt því fram, að
bandamenn skorti siðferðilegan
rétt til að fara á bak við hver
annan, geti slíkt aðeins orffið til
að aln á ágreiningi, enda ekki
í anda vestrænnar samvinnu.
„Okkur sézt ekki yfir það“ svar-
aði Churchill.
ÁGREININGUR BRETA OG
FRAKKA UM INDÓ-KÍNA
Sagt er, að Bretar hafi und-
Fi-amh. á bls. 2
ÍJR RÆBU
BORGARSTJÓRA
Reikningur Reykjavíkurkaup-
staðar fyrir árið 1953 er hér lagð-
ur fram fyrir bæjarstjórn til úr-
skurðar.
Reikningurinn er nú fyrr til-
búinn en nokkru sinni áður og
vil ég við þetta tækifæri þakka
aðalbókara, aðalendurskoðanda
og borgarritara fyrir þeirra ötula
starf við að hafa reikninginn
fullbúinn svo snemma.
Að því er stefnt nú, eins og
undanfarin ár, að reikningur
bæjarsjóðs og bæjarfyrirtækja sé
sem allra ýtarlegastur og mest
sundurliðaður. Að vísu gefur það
þeim, sem hafa hug á smásálar-
legum aðfinningum, tækifæri til
að taka einstök smáatriði út úr
og reyna að gera þau tortryggileg.
Hitt tel ég þó miklu meira varða,
að hinn almenni, skynsami borg-
ari, eigi þess færi í bæjarreikn-
ingunum að fylgjast sem allra
bezt og mest sundurliðað með
því, hvernig það fé er notað, sem
bæjarbúar greiða til opinberra
þarfa höfuðborgarinnar.
Eg vil nú gefa nokkurt vfirlit
um meginatriði bæjarreiknings-
ins fyrir 1953:
ÚTGJÖLD STÓÐUST VEL
ÁÆTLUN
Fyrst er yfirlit um rekstrar-
reikning bæjarsjóðs, samanborið
við fjárhagsáætlun. Með sérstök-
um ákvörðunum bæjarráðs og
bæjarstjórnar voru nokkrar við-
bætur gerðar til hækkunar á
áætluninni á árinu (Þetta yfirlit
er á bls. 2 í blaðinu).
Tekjurnar voru áætlaðar 103,3
millj., en urðu samkv. reikningi
113,8 milljónir, eða lOVá millj.
umfram áætlun.
REKSTURSGJÖLD URÐU
LÆGRI EN ÁÆTLAÐ VAR
Reksturs.gjöldin voru áætluð
upphaflega á 90,8 millj., með við
bótum 91,4 millj., en urðu 90,4
í reikningi. Rekstursgjöldin urðu
því nokkru lægri en áætlað hafði
verið, eða 431 þús. sé miðað viff
upphaflega áætlun, en 951 þús.
sé miðað við hækkanir, sem gerð-
ar voru við áætlunina á árinu.
í janúarmánuði s.l. var gert
bráðabirgðayfirlit um reksturs-
reikning bæjarsjóðs, og skýrði ég
frá því yfirliti á bæjarstjórnar-
fundi í janúar. Samkvæmt því
var talið, að rekstrargjöldin
mundu verða um 90,6 millj., eða
mjög nærri því, sem þau raun-
verulega urðu.
REKSTRARAFGANGUR
VARÐ MEIRI EN Á
SÍÐUSTU ÁRUM
Rekstrarafgangur til yfirfærslu
á eignarbreytingareikning varð
að þessu sinni 21.4 millj. króna.
Til samanburðar má geta þess,
að árið 1952 var rekstrarafgang-
urinn 15,8 millj., árið 1951 13,7
millj. og árig 1950 6,6 millj. kr.
Þéssi rekstrarafgangur á rekst-
ursreikningi er nú sem endranær
notaður, ásamt öðrum tekjum
bæjarsjóðs, sem ekki teljast
rekstrartekjur, til verklegra fram
kvæmda og afborgana. Þegar
eignabreytingareikningur er gerð
ur upp, verður greiðslujöfnuður
bæjarsjóðsins hagstæður um 3V2
milljón króna.
SKULDLAUS EIGN
HÆKKAÐI
Skuldlaus eign kaupstaðarins
hækkaði um 38 miilj. króna á ár-
Framh. á bls. 2
AUGLYSIIMGAR
sem birtast eiga í
Sunnudagsblaðinu
þurfa að hafa- borizt
fyrir kl. 6
á föstudag