Morgunblaðið - 29.05.1954, Page 9

Morgunblaðið - 29.05.1954, Page 9
Laugardagur 29. maí 1954 MORGUNBLABID 9 - NITOUCHE - ÞJÓÐLEIKHUSEÐ frumsýndi s.l. miðvikudagskvöld óperettuna „Nitouche“ eftir Florimond Hervé. Höfundurinn var franskur tónlistarmaður, fæddur í París 1825, en dáinn 1892. Samdi hann margar óperettur, er nutu mikilla vinsælda í Frakklandi og reyndar víða um lönd. — Mestum vin- sældum hefur þó óperett.an Nitouche átt að fagna, en hana samdi Hervé 1883. Hefur hún síð- an verið leikin oft og mörgum sinnum víðsvegar um heim allt til þessa dags og hvarvetna við mikla aðsókn og góðar viðtökur. „Nitouche" er heldur ekki óþekkt hér á landi, bvi að hún var sýnd hér á vegum Leikfélags Reykjavíkur í samstarfi við Hljómsveit Reykjavíkur á leik- árinu 1940—41 og aftur 1941—42 og sýndi þá leikflokkurinn óper- ettuna einnig á nokkrum stöðum norðanlands, þar á meðal á Ak- ureyri. Hinar miklu vínsældir óperettunnar hér má marka af því að hún var sýnd hér vfir 70 sinnum og jafnan við góða að- SÓkn. Enda þótt „Nitouche" hafi jafnan átt mikilli hylli að fagna, verður hún ekki talin með merk- ari óperettum, hvorki að efni né tónlist. — Stendur hún að baki fjölmörgum óperettum í þeim efnum og er því næsta furðulegt að Þjóðleikhúsið skyldi velja hana til sýningar. — Þegar Nitouche var sýnd hér áð- ur, voru söngleikir að heita mátti algert nýmæli hér og þeim því tekið tveim höndum hvernig sem þeir voru. En nú horfir öðruvísi við í leiklistarheimi vorum. Vér erum, meðal annars fyrir lofsam- legt starf Þjóðleikhússins, orðin ýmsu góðu vön, höfum átt þess kost að sjá glæsilegar óperur og ágæta óperettu (Leðurblökuna) og gerum því meiri kröfur nú en fyrir fjórum árum. — Það leyndi sér heldur ekki á frumsýning- unni nú, að margir, sem höfðu hugsað til þess með gleði að sjá nú aftur Nitouche, urðu fyrir verulegum vonbrigðum. — Hið ágæta svið Þjóðleikhússins, tæhni þeess og íburður, gat hér engu við bjargað og það var eins og leikstjórinn og leikendurnir hefðu ekki trú á fyrirtækinu, fyndust þeir vera að rifja upp eitthvað, sem verið hefði gott og gilt á sín- um tíma, en væri ekki tímabært nú. — Það var þetta hugarfar, ópereftta í þremur þáftftum eftir Flcrimond Hervé iir tsierRsson. íiaísíióri: Dr. VicSar Lárus Pálsson og Sigrún Magnúsdóttir. Lárus Ingólfsson. er setti svip sinn á sýninguna í heild. Hina fersku, léttu leikgleði vantaði. Leikstjórinn, Haraldur Björns- son, virðist ekki hafa unnið að leikstjórn og sviðsetningu af sömu sannfæringu og eldmóði nú 1 sem fyrr og því hefur honum ekki tekizt að blása nægilegu lífi í leikinn til þess að hann hrifi áhorfendur. —T Jafnvel leikur hans sjálfs í hlutverki leikhús- stjórans í Pont d’ Arcy bar á sér þreytumerki og var aðeins svipur hjá sjón við það sem áður var, en hann lék hlutverk þetta 1941, som kunnugt er. Leikstjóranum til málsbóta má þó færa það, að hann hefur í þsssum leik haft mjög sundurleitum leikkröítum á að skipa. — Guðmundi Jóns- syni eru enn mjög mislagðar hendur að því er leik snertir, sem eðlilegt er, og hann veldur ekki hlutverki majorsins. Hann gerir þennan hégómlega og upp- stökka hermann að hálfgerðum fáráðlingi, sem ekki mun þó ætl- azt til, enda þótt hann stigi ekki í vitið. Og hermannlegur er hann ekki, hvorki í fasi né göngulagi. Hins vegar er söngur Guðmund- ar frábær og nær hæst í fyrri j hluta þriðja þáttar, í herskála- garðinum. Er söngur hans þar eitt glæsilegasta atriði leiksins. I Magnús Jónsson fer með hlut- verk hins ástfangna unga liðs- foringja og greifa, Fernand de Champlatreux. Er hann alger ný- liði á leiksviði, enda vantaði hann flest j hlutverk þetta nema rödd- ina, sem naut sín þó ekki til fulls. Með aðalhlutverkin tvö, Celes- tin og Nitouehe fóru sömu leik- endur og áður, þau Lárus Pálsson og Sigrún Magnúsdóttir. Leikur Lárusar í hlutverki Celestin er afbragðsgóður nú sem fyrr, en hefur þó ekki til að bera þann „sjarma" og þá léttu glettni og áður. Hygg ég að það stafi af því að Lárus hefur á undanförnum árum tamið sér nokkuð tilbrigða- Iitla framsögn, sem oft getur ver- ið ágæt, en á þó ekki alls staðar jafn vel við. Sérstaklega athyglis- vert var hversu prýðilega hann fór með það, sem hann söng, þó röddin sé ekki mikil. Sýnir það nýja og skemmtilegai.fflið á hæfi- leikum hans. Sigrún Magnúsdóttir er hin sama, skerhmtilega Nitouche og áður, ef til-vill ékki álveg eir.s fislétt og leikandi og hún var, en gáskinn og glettnin eru ekki minni nú, hláturinn dillandi ogl söngur hennar einkar góður. — Heldur hún enn óskertum þeim heiðri að vera bezta óp'erettu- leikkona vor. Um leik Önnu Guðmundsdótt- ur er leikur abbadísina er allt gott að segja. Hún er virðuleg á svip og í öllu látbragði sem vera ber. Einnig fer Þóra Borg lag- lega með hlutverk systur Emmu, og ungu stúlkurnar í klaustrinu eru glaðværar og gáskafullar eins og hæfir aldri þeirra og söngur þeirra er ágætur. Lárus Ingólfsson leikur nú sem fyrr Loriot liðþjálfa, kostulegan karlskrjóð og drykkfeldan í bezta lagi. Er leikur Lárusar bráð- skemmtilegur, gerfið ágætt og persónan öll hin skringilegasta, ekki sízt baksvipurinn þegar hann gengur út af sviðinu. Hann var að vísu líkur nokkuð fanga- verðinum í Leðurblökunni, sem hann lék með miklum ágætum á sínum tíma, en þessar skemmti- legu manngerðir eru náskyldar og vissulega þess virði að sjá þær tvisvar sinnum. Var Lárusi ákaft fagnað af leikhúsgestum og var hann vel að því kominn. Inga Þórðardóttir virtist ekki b'eita sér í hlutverki Corinnu, óperettusöngkonunnar, en hins vegar tókst Róbert Arnfinnssyni að gera töluvert úr hlutverki Pegion leiksviðsstjóra. Leikkon- nrnar ungu að tjaldabaki í leik- húsinu í Pont d’ Arcy voru glæsi- legar og iiðsforingjarnir í her- skálagarðinum sómdu sér vel og söngur þeirra, afbragð. Dansana í öðrum þætti hefur hinn ágæti balletmeistari . Erik Bidsted samið, cn aðra dansa SigríðUr Ármann og hefur hún einnig æft dansana. Hefur mjög verið til þeirra vandað og dans- fólkið leysti sitt hlutverk vel af Framh. á bls. 11 ilálf sjötugur lipllenzkur hjólagarpur til Guli- íoss, Geysis og Þingvalla Hann hefur hjólað m Noróurlöndin og lönd Vesfur-Evrcpu, fér fii Tyrkfands í fyrra HOLLAND — ísland — Nord- kap. — Þessi álertun stendur á spjaldi framan á svörtu reið- hjóli, og ýmsir vegfarendur ráku augun í þetta og spurðu sjálfa sig: Hvað er nú þetta? Fullorðinn maður leiddi hjólið víð hlið sér, á bögglabera þess var værðarvoð, vafin í plastdúk. — Þeir hafa kallað mig „Hol- lendinginn fljúgandi“ í Rretiandi og FrakklandJ, sagði maðurinn, er tíðindamaður Mbl. gaf sig á tal við hann í Austursti'æti í gær- morgun. BARNAKENNAKl Hollendingurinn fljúgandi, er Adríann Roetman, barnakennari í litlu þorpí skammt frá Rotter- dam. Hann er nú 66 ára. Hann er hingað kominn tíl þess að sjá Þingvelli, Gullfoss og Geysi og ætlar þessa leíð á reiðhjólinu sínu, sem er af gömlu gerðinni, engir gírar eða þess háttar. Hann lét setja það saman úr þrem öðr- um reiðhjólum, sem hann átti og segist með bví hafa fengið gott reiðhjól. ÞAULÆFÐBR FERÐAMAÐUR Roetman er þaulæfður ferða- lögum á reiðhjólL Allt frá því hann náði sextugu, hefur hann hjólað um öll löndin fyrir vestan Járntjald, um Norðurlöndin, jafn- vel austur fyrir Járritjald. í fyrra sumar fór hann einn sins liðs, eins og hans er vani, austur til Júgóslavíu, allt austur til Tvrk- lands og síðan til Grikklands, — og í Aþenu svaf hann eina nótt- ina á Akropolis. Ekki kvaðst hann hafa tjald meðferðis á ferðalögum sínuip. — Mér nægir værðarvoðin, sagði hann. — Ég svef sjaldnast í gisti- húsum, heldur læt fyrirberast undir berum himni. Ég hef ekki efni á neinum lúxus, en hef ánægju af ferðalögum á reiðhjóli. HANDTEKINN FYRIR SKEMMDARVERK — Eg hef eiginlega aldrei orðið fyrir neinum óþægindum á öllum „Hollendingurinn fljúgandi“. Adriann Roetman, kennari. (Ljósm. R, Vignir). ferðum mínum, nema einu sinni. suður í Frakklandi. Mig bar þar að, sem skógareldur hafði geisað. Allt byggðarlagið var í uppnámi og talið var fullvíst að brennu- vargur hefði verið að verki. Lög- reglan gaf lýðnum leyfi til að handtaka hvern sem er, að mér virtist, og ég varð fyrir barðinu á þeim, sagði hinn þrautseigi hjólreiðakappi. — Mér var skellt upp á bíl, maður með skamm- byssu hélt henni við brjóst mér, unz komið var á næstu lögreglu- stöð. Þar tókst að leiðrétta mis- skilning þennan og lögreglan flutti mig aftur á þann stað, sem. ég hafði verið handtekinn, annað tók ég ekki í mál, sagði Roetman. — Ég hef einnig lent í höndum lögreglunnar hér og get ekki kvartað undan því, sagði Roet- man. HANDTEKINN í REYKJAVÍK Nú skal sagt frá því: Það var klukkan að ganga 11 á sunnudagskvöldið, að lögregl- unni var tilkynnt, að maður svæfi á bekk í biðskýli SVR við Grensásveg. Talið var fullvíst, að hér myndi vera um einhvern dauðadrukkinn náunga að ræða. Lögreglumenn fóru á vettvang og vöktu þar eldri mann, sem sagði til nafns síns: Adrían Roetman. Hann kvaðst hafa komið með Gullfossi þá um morguninn og ætlaði sér að ferðast á reiðhjóli sínu nokkuð um landið. Hefði hann ætlað að liggja þarna fram undir morgun, en leggja þá af stað á ný austur til Þingvalla. Lögreglumenn bentu honum á, að hann gæti ekki gist í biðskýl- inu, tók hann með sér niður á lögreglustöð og þar fékk hann að sofa í herbergi inn af herbergi varðstjórans. FERÐIN Lét Roetman vel yfir viðskipt- um sínum við lögregluna, en fannst það út af fyrir sig ein- kennilegt að banna mönnum að sofa undir berum himni. Það var á honum að heyra, að hann hefði strax á fimmtudaginn ætlað að leggja upp í Þingvallaferðina, en villst af leið. En kl. 1.30 í gærdag lagði hann upp á ný, en nú ætlaði hann að fara fyrst aust- ur að Gulifossi og Geysi, en síðan fara um Þingvelli í bakaleiðinni. Héðan af landi fer hann 12. júní. Héðan hyggst hann leggja leið sína til Danmörku, síðan til Nor- egs, hjóla norður allan Noreg, norður fyrir heimskautabaug, til Nordkap. Þar með er skýringin fengin á því hvað Nordkap táknar á spjaldinu. — Hann hefur áður komið á þær slóðir, en varð frá að hverfa vegna þess hve mikill snjór var þar um slóðir. — Nú vonast hann til að komast á leiðarenda. ♦—★—♦ Þessi fljúgaridi Hollendingur, sem er eins og landar hans, hóg- vær og kurteis í framkomu, talar ensku, þýzku og frönsku nokkurn veginn reiprennandi, hefur þegar ákveðið hvert hann skuli fara næsta sumar á reiðhjólinu sínu — til Norður-Afríku. Á SJÖ KLUKKUSTUNDITM í SKÍÐASKÁLANN í gærkvöldi um klukkan 9,3ft átti Morgunblaðið tal við Roet- man, sem þá var kominn upp í Skíðaskála — Þar sem ég hef aldrei úr Framh. á bls. 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.