Morgunblaðið - 29.05.1954, Síða 14

Morgunblaðið - 29.05.1954, Síða 14
14 MORGUHBLABIt* Laugardagur 29. maí 1954 Skugginn og tindnrinn SKÁLDSAGA EFTIR RICHARD MASON F ramhaldssagan 48 ] setið og drukkið romm úti á svöl- nnum hjá verksmiðjustjóranum. Douglas gekk við hliðina á •Tohn og Rosemary, en þau vildu sýna að sem nemendur hans ættu þau meira í honum en hin. Þau böfðu ekki farið nema hálfa mílu, þegar John sagði yfir öxlina við Silvíu: ( „Hættu að sparka steinum í mig‘‘. | „Ég var ekkert að sparka steinum í þig“, sagði Silvía. | „Víst“. | Sennilega hafði Silvía ekki gert það viljandi, en nú fannst henni hún verða að gera það úr því henni hafði verið kennt um það. Augnabliki síðar lenti steinn í kálfinum á John. „Ég var búinn að biðja þig að hætta þessu“, sagði John. Hann var óvenju áræðinn, af því að Douglas gekk við hliðina á hon- um. , „Gakktu þá einhvers staðar anats staðar, ef það er vont að ganga þarna“, sagði Silvía. „Þú getur gengið einhvers stað- ar annars staðar sjálf‘0. j „Ég geng þar sem mér sýnistí1. Dougias sagði þeim að hætta að þrátta og þau héldu áfram. En John hlaut að hafa fengið annan stein í sig því hann heltist aftur úr. Douglas hélt áfram að tala við Rosemary, en brátt heyrði hann ltávaða og leit við. John og Silvía voru farin að fljúgast á og veltust hvort um annað á stígn- um. Hvortugt þeirra hætti þegar hann kallaði til þeirra, svo hann sneri við, skildi þau að og sagði þeim að hætta þessu tafarlaust eða hann sendi þau ‘bæði heim. Þá fóru þau að rífast um það hvort þeirra hefði byrjað. Hann sagði þeim að þegja. Þau litu leiðilega hvort á annað. Svo sagði Silvía með viðbjóði. | „Eg skil ekki hvernig mér datt i hug að snerta á þér skítugum og holdsveikum. Nú smitast ég auðvitað“. I Þessi orð höfðu kannski ekki : mikil áhrif á John, hann var j vanur allskonar svívirðingum frá Silvíu, en þau höfðu þeim mun meiri áhrif á Douglas. Hann sagði John og hinm börnunum að Jialda áfram. Svo skipaði hann Silvíu að snúa heim aftur. „Þetta var mjög illa sagt — þú ert ekki hæf til að umgangast j önnur börn“. Hann var afar reið- ' ur. Hann missti sjaldan stjórn á skapi sínu í starí'i sínu við skól- ann. En nú hlaut það að vera mjög auðséð. „Þú getur sagt frú Morgan að ég hafi sent þig til baka. Biddu hana að gefa þér eit.thvað að borða“. „Ég vil ekki hafa heim“, sagði ' Silvía. Hún reigðí sig og hélt af J stað niður brekkuna, Dougias náði henni og stöðvaði hana. „Þú ferð ekki með okkur“, sagði hann. „Ef nauðsyn krefur iæt ég fara með þig heim“. Augu hennar skutu neistum af hatri, eh um leið var -hún sigri 'hrósandi. Hann hélt að hún mundi neita að fara, og hann mundi þurfa að haía íyrir því að framfylgja hótuninni. En þá brosti hún háðslega og sagði: „Jæja, mér e rsvo sem sama. — Ekki lagar mig til að fara í þetta kjánalega ferðalag“. Hún sneri við og gekk upp eftir aftur. Þegar hann náði hinum börn- unum, kom John til hans. „Þetta var líka mér að kenna, herra Lock#ood“, sagði hann auðmjúkur. „Ég þóttist ætla að íútta hana og hún hélt að ég mundi gera það og þess vegna réðist hún á mig“. „Þetta var kjánalegt af ykkur báðum“. „Hvers vegna senduð þér hana heim? Var það vegna þess að hún sagði að ég væri holdsveik- ur?“ „Það er ljótt að segja slíkt við aðra“. „Haldið þér að hún hafi í alvöru haldið. .. .“ „Láttu eyd eins og kjáni, John“, sagði Douglas. „Þú ættir að vera farinn að þekkja Silvíu“. o—O—o Kaffiverksmiðjan var byggð yfir á og hluti af ánni rann í gegn um húsið þar sem baunirnar voru þvegnar. Síðan var dreift úr baununum á steypt gólf og þær látnar þorna í sólinni. — Rigningarský færðist yfir him- ininn. Verkstjórinn blés i flautu sína og um leið spruttu fram 6-—7 svertingjar, sem sópuðu öllum baununum saman undir skýli. — Skýið fór fram hjá án þess að nokkur dropi kæmi úr því og um leið var breitt úr baununum á nýjan leik. Verkstjórinn var Jamaica-mað- ur með mikið grátt áhr og vin- gjarnlegt andlit. Hann fylgdi börnunum um verksmiðjuna og útskýrði fyrir þeim hvernig hin- ar ýmsu vélar störfuðu — ein vélin aðgreindi stórar og litlar baunir, á öðrum stað voru skemmdar baunir teknar frá. — Síðan gengu þau í gegn um stór- an sal þar sem glaðlegar, feit- lagnar stúlkur fóru síðustu hönd- um um baunirnar áður en þeim var pakkað inn. Síðan borðuðu þau nestig sitt úti á árbakkan- um. Verkstjórinn séndi þeim ávaxtasafa til að svala þorstan- um. Þau höfðu rétt lokið við að snæða, þegar kvað við úr flautu verkstjórans. Ský bar fyrir sólu og það fór að rigna — Morgan hafði spáð góðu veðri allan dag- inn, svo ekkert var eðlilegra en hann færi að rigna. Þau leituðu skjóls inni í verk- smiðjunni. Fyrsti skúrinn varð að úðarigningu, en himininn var orðinn kolgrár. Þau biðu í hálf- tíma, en þá var ákveðið að halda heimleiðis. Stígurinn upp hæð- ina var brattur, en börinin voru kát og þeim miðaði allvel áfram. Douglas var hins vegar ekki léttur í skapi. Hann hafði á- hyggjur af John og sömuleiðis af Silvíu. Honum datt í hug að Sil- vía kynni að hafa fundið upp á því að strjúka. Hann minntist augnaráðsins, sem hún hafði sent honum, hatursfullt og sigri hrós- andi, um leið. Hann hefði átt að láta einhvern fara með henni og láta hana fara beint til Pawley og skella ábyrgðinni á hann. — Hann óskaði þess innilega að hon- um hefði dottið það strax í hug, en það var þýðingarlaust að fást um það nú. Hann ákvað að hugsa um eitthvað annað og þá datt honum Judy í hug Hann velti því fyrir sér, hvað hún væri að gera á þessu augnabliki með Louis. Sennilega var líka rign- ing í Kingston og þau væru heima hjá henni. Hann sá fyrir sér litlu, hlýlegu íbúðina með eldhúsinu og matarbirgðunum, sem gætu enzt í mánuði, og svefn herbergið og granna fótleggina á Judy.. . . „Um hvað eruð þér að hugsa, herra Lockwood?“ „Eg var að óska þess að enginn fengi lungnabólgu í rigningunni“. „Ekki fæ ég lungnabólgu. Mér finnst gaman að vera úti í vætu“. „Það rennur úr hárinu á þér“, sagði hann. „Þú ert eins og haf- meyja“. „Eg trúi ekki á hafmeyjar". Afgreiðslustúlka óskast hálfan daginn í sérvei-zlun við Laugaveginn. Tilboð ásamt meðmælum og mynd (sem endursendist) óskast send blaðinu merkt: Afgreiðslustúlka —349. Stór sumarbústaður á eínum fegursta stað Suðurlands til rölu nú þegar, ef um semst. — Uppl. í síma 2343. U n g I in g s p i 11 u r óskast til sendiferða og pakkhúsvinnu. LYFJABÚÐIN IÐUNN Eitt, tvö eða þrfú herbergi og etdhús vantar strax fyrir reglusöm, ung hjón, með eitt barn. Upplýsingar hjá Árna Guðjónssyni, lögfræðingi, Garðaslræti 17 (sími 5314) eða Ragnari Jónssyni, sími 80881. APPPELSIIMIJRNAR með HESTMERKIIMU eru nú aftur fáanlegar í öllum matvöi u- verzlunum. Biðjið kaupmann yðar sérsfaklega um HESTMERKID þá fáið þér Ijúffengar og safamikiar appelsínur. SundnámskeLd fyrir konur og börn hefst 1. júní í sundlaug Austurbæj- arskólans. — Kennslan fer fram í smáflokkum alla virka daga nema laugardaga. Fyrir börn frá klukkan 10—12 f. h. Fyrir konur frá klukkan 6—9 e. h. Uppl. í síma 3140 í dag og á mánudag kl. 3—5 e. h. Unnur Jónsdóttir, sundkennari. Spergil Súpa Þessi Ijúffenga { rjómamjúka súpa inniheld- ur beztu tegund af spergiltopp- um og er uppáhald ungra sem gamalla. Það er einfalt og fljótlegt að búa hana til — aðeins 5 mínútna suða. Aðrar tegundir: Sveppir, , Créme, Duchess, Bl.græn- ! meti Blómkál, Spínat og Hænsna súpur með hrís- grjónum og núðlum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.