Morgunblaðið - 03.08.1956, Síða 16

Morgunblaðið - 03.08.1956, Síða 16
Veðrið Norðan gola — Léttskýjað rojpttMftfrifr 175. tbl. — Föstudagur 3. ágúst 1956 Kvenþjóðin og heimiiið Sjá blaðsíðu 10. Ákvörðun íslendánga hraö> ar eyöileggingu IMATO, Myndin er tekin í Dóm- kirkjunni í gær, er nor- ræni prestafundurinn var settur þar. segir danska kommú nistablaðið Birkeröd, 2. ág. Einkaskeyli til Mbl. frá PáU Jónssyni. í TILEFNI af forystugrein Politiken í gær skrifar danska kommúnistablaðið, Land og Folk: Það er mikil framför, ef Bandaríkjaher (á Islandi) verður kallaður heim, en Rómaborg var ekki reist á einum degi og eins verður NATO ekki eyðilagt á einni nóttu. En það er unnið öflug- lega að því að eyðileggja bandalagið og ákvörðun ís- lenzku þjóðarinnar liraðar þeirri eyðileggingarstarfsemi til muna. SAMEIGINLEG STEFNA í tilefni þess að „Þjóðviljinn'* birti ekki yfirlýsingu ríkisstjórn- ar íslands um utanríkismál skriS- ar málgagn danskra sósíaldemó- krata m. a.: Auðvitað felur yfir- iýsingin í sér stefnu allrar ríkis- stjórnarinnar, einnig kommún- istanna, en það má ekki skýra lesenöum kommúnistablaðsins frá því að flokkur þeirra sé reiðubúinn að taka þátt í sam- starfi Atlantshafsbandalagsins. BIRTA YFIRLÝSINGUNA Mörg dönsku blaðanna birta í dag orðsendingu fastaráðs At- lantshaísbandalagsins til ís- lenzku ríkisstjórnarinnar. Er hún, segir Sósíaldemókraten, ] svar við fyrirspurn islenzku stjórnarinnar sem bað um góð 1 ráð frá París. Slæmar fréttir af síldar- miðunum. Bræla aftur AFTUR ER KOMIN norðvestan bræla á síldarmiðunum með rign- ingu. Upp úr hádeginu fóru síldveiðiskipin að sigla inn og liggja þau nú öll í höfn eða landvari. Fanney landaði í dag 100 tunnum af síld veiddri við Kolbeins- ey. Annars engin síldveiði norðan Langaness. Eitthvað varð vart við síld út af Glettinganesi. Island í 7. sæti eftir 2 löp STAÐAN í Evrópumeistaramótinu í Bridge er nú þannig, að Ítalía og Frakkland eru efst með 20 stig af 24 mögulegum. ísland er sjöunda í röðinni með 12 stig. Fór illa í tveim síðustu umferð- um, því að íslendingar töpuðu fyrir Þýzkalandi og Frakklandi. I Álitsgerð Atlants- hafsbandalagsins hefir borizt rikis- stjórninni Tafarlaus birting er sjálfsögð ÁLITSGERÐ Atlanls- hafshandalagsins um varnir íslands barst ríkis- stjórninni s.l. laugardag. Efni þessarar álitsgerðar er nú farið að ræða í hlöð- um erlendis, eins og kom fram í fréttaskeyti hér í blaðinu í gær. Islenzka þjóðin á heimt- ingu á að vita hvað í álits- gerð þessari stendur og er þess að vænta, að ríkis- stjórnin birti hana nú taf- arlaust. 11. OG 12. UMFERÐ í elleftu umferð tapaði ísland fyrir Þýzkalandi með 36 gegn 46 og í tólftu umferð tapaði það fyrir Frakklandi með 41 gegn 51. Úrslit í þeirri umferð urðu að öðru leyti m.a. þessi: Sviss vann Holland með 63 gegn 17, Austur- ríki vann Ítalíu með 48 gegn 36, Bretland vann Svíþjóð með 70 gegn 49, Danmörk vann Noreg með 63 gegn 42 og Finnland vann Beigíu með 48 gegn 40. STAÐAN Röðin er nú þessi: 1.—2. Ítalía og Frakkland .. 20 3. Austurríki ......... 18 4. Bretland ........... 17 5. Sviss............... 14 6. Belgía ............. 13 7. ísland ............. *2 8.-12. Þýzkaland .... Svíþjóð ............ Holland ............ Danmörk ............ Egyptaland ......... 11 13. Finnland ........... 9 14. Noregur ............ 8 15. Lebanon ............ 5 16. írland ............. 0 Emil Jónsson gegnir slörfum utanríkisráðli. ÁKVEÐIÐ mun nú vera að Emil Jónsson taki við embætti utan- rlkisráðherra í veikindaforföll- um Guðmundar í. Guðmundsson- ar. Er gcrt ráð fyrir að hann þurfi að vera nokkrar vikur í sjúkrahúsi. Emil Jónsson var ráð- herra í ráðuneyti Ólaís Thors á árunum 1944—1947 og í ráðu- neyti Stefáns Jóh. Stefánssonar á árunum 1947—1949. ÞjóðháfíS Vesfmanna- eyinga hefsf í dag Vestmannaeyjum, 2. ágúst. UNDANFARNA daga hefur verið mikið- að gera hjá Íþróíta- félaginu Þór hér í Vestmannaeyjum við undirbúning Þjóð- hátíðarinnar, en hún hefst hér á morgun, föstudag og stendur fram á laugaröagskvöld. FJOLBREYTT SKEMMTIATRIÐI Mjög vel er til skemmtunar- innar vandaS eins og að venju og fjölbreytt dagskrá. Hátíðin hefst á morgun kl. 14 með því að Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur, undir stjórn Oddgeirs Kristjánssonar, við handbolta- leikvanginn í Herjólfsdal. Síðan verður handboltakappleikur. Kl. 15 verður hátíðin sett af Valtý GRACE ER MEÐ BARNI MONACO, 2. ágúst: — Prins Rainier þriðji af Monaco kunn- gerði í dag að prinsessa Grace vænti sín í febrúarmánuði n.k. Hefir þetta vakið mikla hrifn- ingu undirsátanna. — NTB. Bifreiðastjórafél. Hreyíill gerir hagkvæma samninga við sérleyfishafa SVOHLJÓÐANDI fréttatilkynning barst blaðinu í gær frá stjórn bifreiðastjórafélagsins Hreyfils: í júnímánuði s.l. sagði Bifreiðastjórafélagið Hreyfili upp samn- ingum sínum við Félag sérleyfishafa, um kaup og kjör bifreiða- \ stjóra á sérleyfisleiðum. — Samningar tókuzt 30. júlí og eru aðal- breytingar frá fyrri samningi þessar: Grunnkaup bifreiðastjóra hækkaði úr kr. 2.600,00 í kr. 2.900,00 á mánuði, með núgildandi vísitölu verður mánaðarkaupið kr. 5.162,00. Þá liækkuðu fatapen-' ingar úr kr. 100,00 í kr. 125,00 á mánuði (án vísitölu). Yfirvinnu-' kaup verður kr. 18.00 (með vísitölu kr. 32,04 pr. klst.). Helgidaga- kaup verður kr. 24.00 (með vísitölu kr. 42,72 pr. klst.). Kaup bif- reiðastjóra, sem vinna einn og einn dag eða hluta úr degi verður1 kr. 17.00 (með vísitölu kr. 30,26 pr. kist.). Fyrir akstur sem ein- vörðungu fer fram á tímabilinu frá kl. 21 — 6 verður greitt 25% álag á mánaðarkaupið, og verður grunnkaup þeirra kr. 3.625.00 á mánuði (með vísitölu kr. 6.453,00 á mánuði). Veikinda- og slysagreiðslur fyrir þá sem unnið hafa eitt ár eða lengur verða auknar úr 30 dögum á ári í 45 daga á ári. — Samningurinn gildir (il 1. júní 1957. 1 Snæbjörnssyni. Síðan rekur hvert dagskráratriðið annað, m. a. söngur, ræðuhöld, lcvartettsöng- ur, knattspyrna og bjargsig. Kl. 20 hefst svo kvöldvaka og koma þar fram ýmsir skemmtikraftar. — Kl. 10,30 hefst dansleikur á tveimur pöllum í Herjólfsdal. Hápunktur hátíðahaldanna verð- ur kl. 12 á miðnætti, en þá verð- ur efnt til brennu og flugelda- sýningar á Fjósakletti. Á laugardaginn heldur hátíðin áfram kl. 14 með guðsþjónustu. Sr. Jóhann Hlíðár prédikar. Þann dag verða ýmis skemmtiatriði og mun þá endað með dansi á pöll- unum í Herjólfsdal. MIKIÐ UM AÐKOMUFÓLK Margt fólk hefur drifið hingað út til Vestmannaeyja undanfarna daga. Hins vegar hefur það orð- ið minna en skyldi sökum þess að ekki var flugveður í dag, en norðan gola var, þótt veður væri annars gott. Fyrirhugað er að fljúga látlaust á morgun og er gert ráð fyrir 20—30 ferðum, ef veður leyfir. — Björn. Bygging nýs barna- skóla á Akureyrl hafin AKUREYRI, 2. ágúst: — Fj'rlr nokkrum dögum var byrjað a8 grafa fyrir barnaskólahúsl á Odd- eyri. Verður fyrst byggð ein hæð í tveimur álmum. Verða þar fjórar kennslustofur, kennara- stofur og aðalinngangur, e» tveggja hæða viðbygging mun koma síðar, ef frekara rúms er þörf. Hefur teikning ekkl veriS I gerð af henni ennþá, en fjárfest- ingarleyfi hefur fengizt fyrir byggingunni. Hefur barnaskólinn átt vlS mikinn húsnæðisskort aS búa síðustu árin, svo nýbygging var óumflýjanleg. Þótti sjálfsagt at byggja hinn nýja skóla á Odd- eyri sem er eitt fjölmennasta bæjarhverfið og alllöng gangn þaðan upp á brekkuna þar sem barnaskólinn or. — Joþ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.