Morgunblaðið - 28.08.1956, Síða 8

Morgunblaðið - 28.08.1956, Síða 8
8 MORCZJiSBL A ÐIÐ Þriöjudagur 28. ágúst 1956 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík iramkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjóri: Tfaltýr Stefánsscn (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600 ’Askriftargjald kr. 25,00 á mánuði innanlands. I lausasölu kr. 1,50 eintakið * Farsæi forysta Olafs Thors um hygyingu sementsverk- smiðjunnar ÞEGAR siðasta ríkisstjórn Ól- afs Thors tók við völdum haustið 1953 var ekkert fé fyrir hendi til byggingar sementsverk- smiðju, sem þá hafði um skeið verið rætt um að byggja. Næstu ríkisstjórn á undan hafði ekki tekizt að útvega lán til þess nauð- synjafyrirtækis. Það kom í hlut Ólafs Thors að hefja sókn í sementsverksmiðju- málinu. öllum var ljóst að mál- ið yrði ekki leyst nema með lán- töku erlendis. Var því snúið að því að útvega slíkt lán til fram- kvæmdarinnar. Tókst það á s.l. vori, eins og skýrt var frá í Reykjavíkurbréfi blaðsins s.l. sunnudag. Var lánið tekið í Dan- mörku af fé, sem Bandaríkja- stjórn hafði þar til ráðstöfunar. Upphæð þess var 37,8 millj. kr. IVIeð þessari lánveitingu var tryggt fé til kaupa á vélum og mestöllu erlendu efni til verksmiðjunnar. Undir forysíu Ólafs Thors hafði Alþingi einnig lagt fram um 10 millj. kr. til þessarar nauðsynlegu framkvæmdar. Ennfremur hefur Fram- kvæmdabankinn lánað 10,5 millj. kr. til verksmiðjunnar. Var gert ráð fyrir að hann héldi áfram að lána fé til framhaldsbyggingarinnar. Viðskilnaður frá- farandi stjórnar Þannig var þá viðskilnaður Ól- afs Thors og stjórnar hans við sementsverksmiðjumálið. Þegar hann tók við völdum var enginn peningur til í verksmiðjuna. Þeg- ar hann lét af stjórnarforystu hafði hann tryggt 37,8 millj. kr. erlent lán til kaupa á vélum og erlendu efni. Þar að auki hafði Ólafur Thors fengið rúmlega 20 millj. kr. innlent íjármagn til verksmiðjubyggingarinnar, og tryggt iramkvæmdir við hana fram á næsta haust. Flestum virðist sem Ólafur Thors og ríkisstjórn hans hafi haldið vel á sementsverksmiðju- málinu. Er það og málá sannast, að hann lagði hið mesta kapp á að þessu nauðsynjamáli alþjóð- ar yrði hrundið í framkvæmd. Ilrunstefnumenn koma til skjalanna En nú hefst þáttur hrunstefnu- mannanna, hinnar nýju ríkis- stjórnar í þessu þýðingarmikla máli. í síðustu viku hefja öll mál- gögn hennar upp skræk mikinn og skammir um Ólaf Thors. Hann hafi svikizt um að útvega fjár- magn til sementsverksmiðjunnar og látið við það eitt sitja, að gefa út fyrirskipun um að framkvæmd um við byggingu hennar skyldi hraðað. Fyrir þetta svívirðir svo öll vinstri hersingin Ólaf Thors. Þessi framkoma gefur góða hug mynd um vmnubrogð hinna nýju valdhafa á fslandi. Þeir taka við framfaramáli, sem formaður Sjálf stæðisflokksins hefur haft for- göngu um að hrinda í fram- kvæmd og hefur tryggt fjármagn til, og láta það vera sitt fyrsta verk að tilkynna alþjóð, að þeir sjái engin ráð til þess að Ijúka henni. Þetta gerist þrátt fyrir það, að Ólafur Thors hafði ekki aðeins tryggt fjármagn til kaupa á vélum og erlendu efni heldur og innlent f jármagn til þess að' halda áfram fram- kvæmdunum meginhluta þessa árs. Hefur nokkur ríkisstjói’n gerzt ber að öðrum eins ræfil- dómi? Áreiðanlega ckki. Gefast beir upo við raforkuframkvæmd- irnar Það er sannarlega ekki að ósekju, þótt menn spyrji, hvort ríkisstjórn hrunstefnumannanna muni ekki á næstunni lýsa því yfir, að þar sem eitthvert fé kunni að vanta til þess að Ijúka við rafvæðingaráætlun ríkis- stjórnar Ólafs Thors þá verði framkvæmdum hætt upp úr þurru einhvern næstu mánaða. Ólafur Thors hafði að vísu alla forystu um að útvega fé til raf- orkuframkvæmdanna. En vegna dýrtíðarkapphlaups kommúnista hafa þær orðið dýrari en ráð var fyrir gert í upphafi. Nú má gera ráð fyrir að hrun- stefnumenn byrji að skamma Ólaf Thors fyrir að hann hafi vanrækt að tryggja nægilegt fjár- magn til rafvæðingarinnar. Þess- vegna sé hætta á að þær stöðvist. Það sé „arfurinn frá íhaldinu". Boða kyrrstöðu oe: hrun Af hrunstefnumönnum má alls vænta. Það sýna skrif þeirra um sementsverksmiðjuna. í ráðleysi sínu grípa þeir til þess úrræðis að kyrja rakalausan þvætting um menn og málefni. Þegar þeir sjá fram á, að þá brestur manndóm og fyrirhyggju til þess að halda áfram umbótum, sem Sjálfstæð- ismenn hófust handa um, kenna þeir Ólafi Thors og öðrum leið- togum SjálístæðiSflokksins um það. Þa3 er vissulega illa farið ef kyrrstaða og lirun á að móta hið íslenzka þjóðfélag á næstunni. En ekki virðist ann- að sýnt en að hinir nvju vald- hafar séu að búa þjóöina undir það. UTAN Ú R HEIMl) wnzieó er etefci tcimt ciÁ Íci tci í minni po unn O vo sem kunnugt er af fréttum, sendi Menzies, forsætis- og utanríkisráðherra Ástralíu og formaður Súez-nefndarinnar, Nasser Egyptalandsforseta orð- sendingu fyrir lielgina. — Þar var þcss farið á leit við Nasser, að hann kæmi til viðræðna við Súez-nefndina hið fyrsta. Verk- efni nefndarinnar er, eins og al- kunna er, að færa Egypíum miðl- unartillcgu þá, er Dulles bar fram á Súcz-ráðstefnunni — og hlaut þar yfirgnæfandi fylgi. Einnig mun nefndin skýra fyrir Nasser sjónarmið þeirra ríkja, er hagsmuna ciga að gæta í Súez. j námumannafélagsins í Ástralíu. | Menzies var yngslur þriggja 1 bræðra — og í æsku kenndi móð- Ir hans honura að lesa — í biblí- unni, og einnig kenndi hún hon- um á þessum árum ógrynni enskra Ijóða, sem Menzies scgir að hafi reynzt hinn öruggasti og bezti . grundvöllur menntunar sinnar. Er í skóla kom, varð hann hinn ötulasti námsmaður — og skaraði hvarvetna fram úr á því sviði — einnig eftir að hann hóf nóm við háskólann í Melbourne. Auk þess var hann frábær í- þróttamaður og hrókur alls fagn- aðar í félagslífi stúdenta. gær bárust þær fregn- ir, að Nasser hefði ákveðið að þekkjast boð Menzies og ræða við nefndina hið fyrsta. Það er mál manna, að Menzies sé mikill ’vandi á höndum — og það muni geta haft afdrifarikar afleiðing- ar fyrir gang heimsmálanna, hversu honum tekst að haga máli sxnu við Nasser. Hvort honum tekst að skapa einhvern grund- völl fyrir gifturíkri lausn mál- anna. M, enzies er nú 62 ára að aldri — og er íorystumaður Frjálslynda flokksins í Ástralíu. Enda þótt gengið hafi á ýmsu hjá honum á undanförnum órum, má segja, að lánið hafi leikið við hann á hinum stjórnmáialega vettvangi — sé litið yfir allan stjórnmálaferil hans. Hann er sagður sækjast eftir erfiðum og flóknum viðfangsefnum — og mætti þá ætla, að hann væri nú „í essinu sínu“, er hann fer að ræða við Nasser. E, n Menzies er ekki einungis stjórnmálamaður. Hann er nefnilega sagður jafnfær cricket-leikari — og stjórnmála- maður. Þrekinn og íþróttamanns- lega vaxinn er hann, enda er hann sagður borða á við þrjá full- fríska karlmenn. En hvað um það. Þessa dagana lifir hann ekki fyrir matinn — og sennilegt er, að hann „gluggi“ meira í skýrsl- ur þær, er liggja eftir Súez-ráð- stefnuna en matseðla dagsins. E r fyrri heimsstyrjöld- in brauzt út, innritaðist Menzies ekki í herinn samkvæmt beiðni fjölskyldu hans, en eldri bræð- urnir tveir gegndu herþjónustu. Þessi ákvörðun ótti eftir að valda Menzies miklum erfiðleikum síð- ar, er hann fór að berjast á víg- stöðvum stjórnmálanna. íhalds- flokkurinn, sem Menzies gekk í | upphafi í, var mjög þjóðernis- sinnaður — og var hann fyrst í stað litinn hornauga af flokks- félögum sínum, því að talið var, að hann hefði ekki viljað ganga í herinn. i stað þess að ganga i herinn hóf Menzies málafærslu- störf, og 24 ára gamall var hann þegar orðinn þekktur og mikils metinn mólafærslumaður. Fert- ugur að aldri var hann kjörinn á þing — og árið eftir varð hann varaformaður flokksins. Aðeins 44 ára gamall varð hann síðan forsætisráðherra. Það var hann, sem í upphafi síðari heimsstyrj- aldarinnar fór á íund Churchills og lofaði Bretum öllum peim stuðningi, er Ástralíumenn voru Astralski námumannssonurinn, seni nú hefur tekið að' sér að reyna að Ieiða Súez-vandamálið til lykta. færir um að veita, til þess að sigrast á Möndulveldunum. E K obert Gordon Menz- [ ies heitir hann fullu nafni. Hann í er af áströlsku alþýðufólki, son- ur námuverkamanns, sem fluttist j tiltölulega ungur suður til Ástra- I líu og var meöal annars einn af i hvatamönnum að stofnun fyrsta Prófessor Alfred Klnsey látinn HINN kunni bandarískí dýra- fræðingur og kynlífskönnuð- ur, prófcssor Alfred Kinsey, lézí sl. Iaugardag í Blooming- ton, Indíana, eftir skamma lcgu. Banamein hans var lungnabólga. Kiiisey var 62 ára að aldri. Hann hefur verið heilsutæpur síðastliðið ár og dvalið á sjúkrahúsum annað veifið. Alfred Kinsey hefur starfað sem prófessor við háskólann i Indíana síðan 1929, en hefur aflað sér heimsfrægðar vegna athugana sinna á kynlífsvenj- um karla cg kvenna í Banda- ríkju/.ium og víðar. Kinsey- skýrslurnar eru þannig til- komnar aff spurningafisíar varðan.di kynferðislífið voru sendir þúsundum manna á ýmsum aldri. Fyrsta Kinsey- skýrslan kom út árið 1948 og fjallaði hún um kynlífsvenjur karla. Árið 1953 kons út önnur Kinsey-skýrsla, sem var niður stöður af spurningum, sem hann hafði sent til tugþúsunda kvenna í Ameríku. — Starf Kinseys hefur mætt mikilli gagnrýni, einkum þykja hæp- in ýmis grundvallarsjónarmið, sem hann gengur út frá í at- hugunum sínum. En um hitt verður trauðla deilí, að hann hefur valdið byltingu í Ame- ríku og víðar, hvað viðkemur hugsunarhætti í sambandi við kynferðis’,andamálin. n þrátt fyrir rnikla hæfileika og þekkingu, hafði Menzies ekki auga fyrir því, hvað samstarf og samheldni á öllum sviðum er nauðsynleg í hverju þjóðfélagi — og augu hans voru algerlega lokuð fyrir því, að miklir efnahagsörðugleikar voru framundan hjá Ástralíumönnum að styrjöldinni lokinni. Hann hlaut margar aðvaranir, en lét ekki segjast. Vegna þess beið flokkur hans mikinn ósigur í kosningum — og varð í minni hluta. Menzies lét af ráðherra- embætti, og margir voru þeir, sem ólitu hann eftir það vel gef- inn og sjálfsánægðan skammsýn- ismann. Þetta varð honum vakn- ing, og hann hóf að endurskipu- leggja flokk sinn og búa hann undir harða baráttu, — sigursæla baráttu. lokkur hans, sem var nú lai)gt frá því að vera íhalds- samur, breytti um nafn — og hét eftir þetta Frjálslyndi flokkur- inn. Menzies íerðaðist um landið — og barðist eins og Ijón. Barátt- an bar árangur, og árið 1949 tók hann aítur við stjórnartaumun- um. Framganga hans og öryggi er rómað, er Kóreustyrjöldin brauzt út, og við uppljóstrun Petrovs-njósnamálsins ákvað stjórn hans þegar að slíta stjórn- málasambandi við Ráðstjórnina. í kosningunum, sem fram fóru s.l. ár, sigraði flokkur hans með enn meiri yfirburðum en áður — og enda þótt gengið hafi á ýmsu, má segja, að hann sé nú öruggari í sessi og betur látinn en nokkru sinni fyrr. Nú munu þeir Nasser hittast, og það mun ef til vill verða tilbreyting fyrir Nasser, eftir alla fundi sína með forystumönnum einræðis- ríkjanna, að hitta að máli lýð- ræðislegan forsætisráðherra í orðsins fyllstu merkingu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.