Morgunblaðið - 28.08.1956, Page 11

Morgunblaðið - 28.08.1956, Page 11
Þríðjódagur 23. ágúst 1956 M Or'r- n f ’/í f? J f) Tí Ts^EGAR miklir framkvæmda- £* menn og vinsælir ciga mcrki- lcg afmæli þá er þa5 góöur sið- ur og nú nokkuð tíðkaður, að minnast á þá opinberlega. Sextiu ára aldurinn er til þessa heppi- légur tíini og æíii tæplega að vera fyrr, því þá eru verkin oft- ast farin að sjást að mestu. Og nóg er af aímælisg.'cinum þó eigi sc byrjað fyrr. Þessi greinarstúfur um vin minn Júlíus á Mosfclli er á seinni skipunum, því hans 60 ára af- msli var 19. f. m. En þessu veldur fjarvera mín úr héraðinu og veit ég að maðurinn afsakar dráttinn. Júlíus Jónsson er einn þeirra bænaa í okkar héraði, sem á mikla sögu og góða. Sögu fram- kvæmda, hugrekkis og. þrek rauna. Sú saga lifir í merkilegum verkum, hvort sem maðurinn sjálfur lifir fleiri eða færri ára- tugi hér eftir. Jörðin Mosfell er norðasti bær í Svínadal undir háu fjalli. Er þar nokkuð stormasamt og kulda- legt um að litast. Þessi jörð var löngum talin meðal lélegusíu kota í Svínavatnshreppi og marg- ui sá er þar bjó áður fyrr, átti við kröpp kjör að búa. Nú er þetta orðið stórbýli með reisu- legum byggingum, 60—70 dag- slátta vélfæru túni o, giitu beitilandi. skotum á yfirlætismenn og hirðir lítt um þó undan svíði. Júlíus er fæddur að Brekku í Þingi 19. júlí 1896, sonur hjón- anna Þórkötlu Guðmundsdóttur og Jóns Jóhannessonar er þar bjuggu lengi. J'úlíus ólst upp heima og stund- aði öll sveitastörf af dugnaði. Ár- in 1924—’2G átti hann heima á Stóru-Giljá, en hafði til afnota hluta af Litlu-Giljá, sem hann hafði keypt og átti um allmörg ár. Árið 1927 giftist hann Guð- rúnu Sigvaldadóttir, ágætri.konu, ættaðri úr Árneshreppi í .Stranda sýslu. Byrjuðu þau búskap á Hurðarbaki á Ásum og bjuggu þar 4 ár. En eins og áður segir keyptu þau Mosfell 1930. Þau hafa eigi eignazt eigin börn, en hafa tekið sér þrjú kjör- börn og alið þau upp. Heita þau Hallgrímur Anton, Sólveig og Bryndís. Eru tvö þeirra heima en Sólveig er gift Þórði Þórarins- syni á Ríp í Hegranesi. Auk þessa ólu þau upp að mestu dreng úr Reykjavík, Pét- ui' Sigurðsson að nafni. í þessa barnauppeldi, sem er mjög myndarlega gert, hefir komið fram fyrirhyggja og fram sýni þessara merku hjóna. Hafa börnin vel gefizt og verið til mikillar ánægju., enda vel til þeirra gert. — Heimilið er glað mikiö | vært og alúð og gestrisni þar á háu stigi, enda er þar oft gest- Allt eru þetta verk Júlíusar kvæmt mjög. Jónssonar og hans myndarlegu konu, Guðrúnar Sigvaldadóttir. Þegar þau komu þar og keyptu þessa jörð árið 1930 var túnið 6—7 dagsláttur, allt þýft og sumt grýtt. Hús fyrir fólk og fénað voru í lélegasta lagi og enginn kofi úr varanlegu efni. Heyskap varö að notast við á þýfðum og lítið grasgefnum mýrum og íló- um og hvergi slægt nema annað hvert ár. Aðalkostir jarðarinnar voiu álitlegt ræktanlegt land og ailgott beitiland. Þegar Júlíus flutti á þessa jörð tók hann fljótt til óspilltra, mála með miklar umbætur. Byrjaði á ræktuninni og heíir haldið drjúgt áfram á þeirri leið allt til þessa. Vandað ibúðarhús byggði hann á árunum 1934—’36. Myndarlegt fjós með hlöðu og haughúsi, og fjárhús yíir 280 fjár með hlöðu við, heíir hann síðan reist. Eru allar þessar byggingar úr stein- steypu með járnþaki. Tún og beitiland heinía við er að mestu afgirt. Ekki var örgrannt. um það á tímabili, að raddir heyrðust í þá átt, að þessi maður hlyti að koll- sigla sig með of miklum og dýr- um framkvæmdum. Nú eru allar slíkar raddir þagnaðar fyrir löngu. Maðurinn hefir sigrazt á öllum örðugleikum. Þetta hefir tekizt þrátt fyrir viðskiptalega örðugleika og þrátt íyrir Kara- kúlpest, sem reynzt hefir hún- vetnskum bændum versta plágan á þessu tímabili. En þarna hafa líka haldizt í hendur fyrirhyggja og bjartsýni, áhugi og dugnaður. Bóndinn á þessum stað er Sjálfstæðismaður í orði og verki, stjórnmálum og öllu hugarfari. Hann lætur ekki hlut sinn fyrir neinum og mundi manna ólíklegastur að slá af þeim skoðunum, sem hann telur réttar til þess að ná einhverri vegtyilu innan sveitar eða utan, eða kaupa sér önnur fríðindi. Hann hugsar eins og Stefán G.: „Eg er bóndi og allt mitt á, undir sól og regni.“ Júlíus er greindur xnaður og gjörhugull. Hann er vel hagmælt- ur og lætur fjúka í kviðlingum. Hlífist hann eigi við að beina Á afmælisdaginn 19. þ. m. var á Mosíelli veizla rnikil og sköru- leg og óspart veitt. Þangað komu þann dag 120—130 manns, og var mikil gleði, með ræðuhöldum, söng og samræðum. Sýndi fjöl- menni það vinsældir bóndans og þá virðingu er hann nýtur meoal sveitunga og annarra héraðs- manna. Komu menn þar til aö heiðra húsbóndann fyrir unnin afrek og óska honum og fjöl- skyldunni allrá heilla. — Má segja að þarna hafi húsbændurnir gert garöinn frægan og verið sinnar gæfu smiðir. Eg enda svo þessi orð með þvi að þakka Júlíusi langa og trausta vináttu og óska honum, konu hans og börnum allrar hamingju á komandi árum. Akri, 12. ágúst 1956. Jón Pálmason. Ópel Caravan módel 1955, fimm farþega vel með farinn og í g'óðu lagi. Tilboð afhendist Morgunblaðinu fyrir fimmtudag 29. þ.m. merkt „Ópel 1955 — 3992“. - ITSAIA Útsalan verður aðeins í tvo daga. Komið og gerið góð kaup. Iðnaöarvélar til sölu hnappagatavél, hnappaáfestingavél, fatapressa, zig- zag-vél, smellu- og gatavél, rafmagnsskurðhnífur, 17 hraðsaumsvélar o.fl. vélar. Ennfremur margskonar fatamót og stanzajárn. Upplýsingar gefur Árni Guðjónsson hdl., Garðastræti 17. (Uppl, ekki gefnar í síma). Sérsundtímar kvenna eru í Sundhöll Reykjavíkur mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga kl. 9 e.h. Ókeypis kertnsla. Sundfélag kvenna. Hcrbergi lil leign. — Einn- ig barnavagn til sölu á saina stað. Sími 9701. Vorubíll (G.M.C.) 4ra tonna til sölu og sýnis við vörugv„ mslu okkar, Hverfisgötu 54. Eggerf Krisfjánsson & Co., h.f. MARKAÐURINN Hafnarsfræti 5 MARKAÐURINN Lauaavealðð IVffeðeigasindi eða samstðifsmaður Óska eftir að gerast meðeigandi í innflutnings- eða iðnfyrirtæki með aðskyldum atvinnurekstri. Tala og rita ensku, þýzku og Norðurlandamál og hef mikla reynslu í út- og innflutningsviðskiptum. Forstjórastarf eða svipuð staða getur einnig komið til greina. Tilboð, merkt: ,.Sam- starfsmaður 4502“ sendist afgreiðslu blaðsins fyrir föstu- dagskvöld. :ooa óskast strax að Arnarholti. — Upplýsingar í Ráðning- arstofu Reykjavíkurbæjar. Heildsölum og öðrum, sem þurfa að senda vörur til Skagaf j arðar tilkynnist, að ég annast vöruflutninga með bifreið einu sinni í viku og oftar, ef með þarf, miili Reykjavíkur og Sauðárkróks. Afgreiðsla í Reykjavík hjá Bifreiðastöð íslands sími 81911, á Sauðárkróki hjá verzlun Haraldar Júlíussonar, sími 24. Vörurnar sem sendar eru gegn kröfu, afhendast viðtakanda gegn frumriti, Bjarni Haraldsson. Húseignir við innanverða Hveríisgötu, Miðstræti, Bragagötu, Baldursgötu o.fl. eru til sölu. Sumar eignirnar eru hent- ugar til iðnrekstrar. Upplýsingar ekki gefnar í sírna. Kristján Guðlaugsson, hrl., Austurstræti 1. Hef meðal annars til sölu 2ja og 3ja herb. íbúðir víðs- vegar um bæinn. Ennfremur einbýlishús í Silfurtúni, Kópavogi og á Seltjarnarnesi. Fjölmargir eignaskipta- möguleikar. KRISTINN Ó. GUÐMUNDSSON hdl., Hafnarstræti 16, sími 82917 kl. 2 til 6.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.