Morgunblaðið - 23.12.1956, Síða 7

Morgunblaðið - 23.12.1956, Síða 7
Swwn»í?>ff»r 2S. <l«s. 1*5<J MOR G'V tf ItL A'B IB 33 'Ylji h a ftj Uörö öröámart Fyrsta stórskald Ungverja FYRIR 101 ARI lézt Mihaly Vörösmarty, eitt mesta ljóð- skáld 19. aldar, í Pest 55 ára að aldri. Hann lézt vitskertur eins og tveir af ungverskum skáld- niðjum hans. Endre Ady og Attila Jozsef. Síðustu mán. ævi sinnar Jtegar hann var hættur að geta talað skiljanlegt mál, skrifaði hann kvæðið „Gamli Sígauninn", sem einn gagnrýnandi hefur nefnt „fegursta kvæði ungverskrar tungu“. Sex árum fyrir dauða hans höfðu Ungverjar beðið mik- inn ósigur fyrir Rússum í „Fvelsis stríðinu“ og týnt einu ástsælasta skáldi sínu, Sandor Petöfi, sem féll — eða öllu heldur hvarf á vígvellinum — 26 ára að aldri. Þegar stríðið milli Rússa og Tyrkja hófst, eygði Vörösmarty -— „gamli Sígauninn" í kvæðinu .— vonargeisla fyrir langhrjáða þjóð sína. „Hátíðardagar munu enn renna upp yfir þennan heim“, þrumaði hann í þessu stórbrotna kvæði. En vonir hans rættust ekki, hátíðin var ekki haldin, og hann lézt farinn að andlegri og líkamlegri heilsu. SONUR 19. ALDAR Vörösmarty var jafnaldri 19. aldarinnar, fæddur árið 1800, og um leið sannur sonur hennar. Við fæðingu hans var Ungverja- land miðaldaríki. Langar aldir tyrkneskrar ltúgunar höfðu svipt Ungverja öllum tækifærum til þróunar, og þegar þeir losnuðu undan Tyrkjum á 18. öld voru þeir hrjáðir af styrjöldum og deilum við Austurríki. Eigingirni og miskunnarleysi hins innlenda aðals stóð þróuninni einnig mjög fyrir þrifum. Aðalsmenn Magy- ara héldu dauðahaldi í forn og úrelt sérréttindi; þeir voru und- anþegnir sköttum, og öll skatta- byrðin hvíldi á herðum leigu- liða, sem lifðu og störfuðu í hálf- gerðri þrælkun. Jafnvel á 19. öld dóu margir leiguliðanna úr hungri. Af þessum sökum var engin verzlun í Ungverjalandi, enginn iðnaður, engar millistétt- ir og engar borgir í vestrænum skilningi. „Þjóðfélagið var í engu frábrugðið miðaldaskipulaginu, og stjórnarskráin, sem byggðist á sérréttindum aðalsins, kom í veg fyrir pólitískar breytingar", segir merkur ungverskur sagn- fræðingur. Inn í þennan heim íæddist Vörösmarty. Hann var sjálfur af aðalsættum, en hann átti ríkan þátt í að koma á þeim breytingum, sem urðu I lífstíð hans. Hundrað árum síðar var Ungverjaland nútíma-menningar- ríki með aðeins örfáum leifum hins forna lénsskipulags. RAUNSÆ BJARTSÝNI Vörösmarty var 25 ára gamall, þegar hann gaf út fyrsta langa sögukvæðið, „Flótti Zalans“ og vann sér nafn sem eitt af þjóð- skáldum Ungverja. Ætlun hans var að skapa Ungverjum þjoðlegt sögukvæði svipað Nibelungenlied eða Kalevala, en þar mistókst honum eins og Longfellow, sem ætlaði að gera hið sama fyrir Ameríku með kvæði sínu Hiaw- atha. Kvæðið hefur að geyma gullfagra kafla, einkum upphaf- ið, en það dó löngu á undan höf- undinum. Enn í dag er því hrós- að af mörgum, en lesið af fáum. Hins vegar voru áhrif þess á ung- verskan skáldskap djúptæk og langvarandi. Áður en Vörösmarty kom fram á sjónarsviðið, ortu skáldin um óhjákvæmilega hrörn un og eyðingu „ungversku þjóð- arinnar með sína glæstu fortið". Þessi harmsýn var upprunalega einlæg, en varð brátt að tilgerð- arlegu tízkufyrirbæri, sem jafn- •■'*} (*} •:*} vel beztu skáld Ungverja geng- ust upp við. Vörösmarty orti líka um „hina glæstu fortíð“, og hann varpaði fram spurningu Jónasar: „Hvað er nú orðið okkar starf í sex hundruð sumur? Höfum við gengið til góðs götuna fram eft- ir veg?“ Svar hans er tvímæla- laust jákvætt. Þó var hann fjarri því að vera áhyggjulaus bjavt- sýnismaður. Hann dró upp óhugn anlegar myndir af samtiðinni, og sá fram á enn dekkri framtíð. En hann trúði eigi að síður á ,,hátíðardagana“, sem koma mundu — hann trúði á þa allt frá guðmóði æskuáranna íram til dapurra og hugsjúkra efri ára. EINÖRÐ ÆTTJARÐARÁST Ættjarðarástin var sterkasta ástríða Vörösmartys. Hann bar í brjósti brennandi ást til hinnar kúguðu og hamingjusnauðu þjóð- ar, og hann þráði frelsi hennar. Kommúnistar saka hann um að hafa vanrækt hið „þjóðfélagslega innihald“ í skáldskap sínum. En því má ekki gleyma, að hin ein- arða og ákafa ættjarðarást hans var alveg ný af nálinni á þessum árum hinnar klassísku tilgerðar. Árið 1823, sama ár og Petöfi fædd ist, neitaði jafnvel hinn fram- sækni Karoly Kisfaludy að prenta eitt af kvæðum Vörösmartys, vegna þess að í því stóð orðið „smali“, sem ekki var talið prent- hæft. Það féll í hlut Petöfis að hefja smalann til meiri virðingar, en margir álitu, að með þvl hefði hann grafið undan virðingu skáld skapar. Ady var fyrsta stórskáld Ungverja, sem kvað um óróman- tíska eymd öreiganna, en það varð meginefnið í skáldskap Attila Jozsefs tæpum hundrað ár- um eftir daga Vörösmartys. KYRRLÁTT LÍF Vörösmarty lifði öfgalausu og tilbreytingalitlu lífi sem ungur maður. Hann átti tvö ástarævin- týri — ef þau geta þá kallazt því nafni — sem voru ósköp hvers- dagsleg og viðburðalítil. í æsku varð hann ástfanginn af Etelku Perczel, heimasætunni á heimil- inu þar sem hann bjó og kenndi, en hann átti aldrei áræði tii að játa henni ást sína. Mörgum ár- um síðar, þegar hann var 41 árs gamall, hitti hann á heimili skáld- bróður síns, Bajza, mágkonu hans, Lauru Csajaghy, varð ástfanginn af henni og gekk að eiga hana. Um skeið gat Laura ekki ráðið það við sig, hvort hún ætti að giftast Vörösmarty, og það var á því tímabili, sem hánn orti kvæð- ið „A Merengöhöz" (Til hugsandi hefðarmeyjar), sem nefnt hefur verið eitt af ódauðlegum ásta- Ijóðum heimsbókmenntanna. Sé kvæðið klætt úr skáldlegum bún- ingi sínum (það á maður auðvit- að aldrei að gera), verður það næstum hversdagslegt. Það er hvorki ástríðuþrunginn ástaróður né átakanleg bæn um andsvar, heldur einföld og látlaus áminn- ing um hæversku. Hann segir Lauru að setja ekki markið of hátt, reyna ekki að vinna heim- inn, því þá muni hún verða fyrir þungum vonbrigðum. Hann er auðvitað óbeinlínis að hvetja hana til að játast sér í stað ann- ars betri. í hinu fræga heim- spekilega kvæði „Hugsanir í bóka herberginu" hvetur hann okkur til að berjast fyrir göfugum markmiðum eftir beztu getu. En bak við þetta rólega og blátt áfram hljómfall finnum við ólg- andi ástríður, heitar þrár og villt.a drauma, sem lúta verða aga skyn- seminnar. Mál hans er gætt sér- stæðum töfrum og fegurð. Það er í senn þróttmikið og blitt, þokkafullt og taumlaust, stórbrot- ið og gamansamt; skáldmál sem fáar á hliðstæður. Gyulal, fræg- asti gagnrýnandi Ungverja, hefur sagt, að mál Vörösmartys verði aldrei skýrt eða skilgreint. Og þá vaknar gamla spurningin: Að hve miklu leyti á ágæti skálda rætur í orðavali þeirra? Hvers vegna verða þreytandi og hvers- dagslegir hlutir að ódauðlegum perlum, þegar þeir eru sagðir með ákveðnum orðum, en ekki samnefnum þeirra? HÆGFARA STJÓRNMÁLAMAÐUR Vörösmarty var stuðningsmað- ur hinnar hægfara umbótastefnu Szechenyis greifa fremur en hinna róttæku áætlana Kossuths. Hann var hræddur við bylíing- una, „gröfina sem sveígir heilar þjóðir", eins og hann komst oft að orði. Hann var lcosinn á þing með einróma atkvæðum í viður- kenningarskyni fyrir bókmennta- afrek sín, en hann var þöglasti maður þingsins — hélt ekki eina einustu ræðu. Hann greiddi jafn- an atkvæði með hinum hægfara meirihluta, og við eina atkvæða- greiðsluna (um það hvort nota skyldi þýzku eða ungversku í ákveðnum herdeildum) reiddist Petöfi horium og réðst á hinn aldna vin sinn með harðorðum skömmum. Vörösmarty tók þetta mjög nærri sér, en svaraði með stillingu. Þessi árekstur tveggja fremstu skálda Ungverjalands vakti almenna athygli jafnvel á þéssum óróasömu tímum, og næstu áratugina var mikið um þessa deilu ritað. Sumir sökuðu Petöfi um afbrýðissemi, aðrir töldu Vörösmarty hafa f/rirlitið hinn unga keppinaut sinn. Milli þeirra urðu ekki neinar forrnleg- ar sættir, en þeir gleymdu brátt árekstrinum, enda þótt aðrn yvðu til að halda minningunni um hann við lýði. Þegar Petöfi fór til vígstöðvanna, bað hann Vörös- marty að vera guðfaðir barns síns, sem þá var enn ófætt; og Vörösmarty hrósaði hinum skammlífu hæfileikum Petöfis við mörg tækifæri eftir þetta. Enda þótt Vörösmarty hefði ímugust á byltingunni, þjónaði hairn henni dyggilega, þegar hún K O S S frelsishetja var gerð. Veturinn 1848 fór hann með ríkisstjórninni til Debrecen, og vorið 1849, þegar Habsborgar- ættin hafði verið rekin frá völd- um, tók hann við virðulegu en lítilvægu embætti hjá Kossuth rikisstjóra. Þetta var álitinn al- varlegri glæpur en hersöngvarn- ir, sem hann hafði ort, og þegar byltingin fór út um þúfur, var hann dæmdur til dauða í fjarveru sinni. Hann fór huldu höfði nokkra mánuði. En árið 1850 íór að bera á geðbilun hans, sem ágerðist við fráfall dóttur hans, og voru honum þá gefnar upp sakir af hinum alvalda Haynau hershöfðingja. VILDI EKKI VERA MESTA SKÁLDIÐ Endre Ady, einn af ungversk- um skáldjöfrum þessarar aldar, bölvaði þeim manni, sem taka mundi sæti hans á skáldaþingi, í ofsafengnu og áhrifamiklu kvæði. Hinn mildi og viðmótsþýði Vörösmarty sagði hins vegar: „Ég vil ekki deyja sem mesta skáld Ungverjalands". Slík ósk verður aðeins skilin sem einlæg von mannsins, sem ríkt hafði í ald- arfjórðung á öllum sviðum skáld- skapar, um enn stærri sigra niðja sinna. Skáldskapur Vörösmartys er margbreytilegur. Kvæði hans, „Um dauða lítils fátæks barns“ („Þú sefur, en sérð enga drauma. Þú sefur, en morgunninn rennur ekki upp“), er e.t.v. fegursta harmljóð ungverskrar tungu. Og „Söngurinn um Foth“ er talinn PETÖFI ástsælasta skáld Ungverja- U T II Ungverja. bezti drykkjusöngur Ungverja, þótt hann hæfi fyrst og frenisl hófdrykkjumönnum. „Fagra Ilon- ka“ er sagan um rómantískt ást- arævintýri Ilonku, dóttur skóg- arvarðarins, og hins dulbúna konungs, Mathíasar. Yfir þessu kvæði eru frábærir töfrar, og Ilonka sjálf, sem veslaðist upp af ástarsorg, hefur verið uppáhald margra kynslóða. Ótalin eru þau tár, sem Ungverjar hafa fellt yfir örlæti móður Vörösmartys, sem deildi einustu eign sinni, gamalli tættri Bíblíu með annarri gamalli og fátækri konu með því að rifa hana í tvennt. Hinn frægi söngur hans, „Szozat", sem flytur boð- skap vonar og uppörvunar á þrengingatímum, hefur orðið annar þjóðsöngur Ungverja. Sögu kvæði hans eru flest of löng og flókin fyrir nútímalesendur, en eitt þeirra þykir þó sérstakt af- bragð sinnar tegundar. Það fjall- ar um tvo miðaldra-kastala, sem áttu í ófriði, en blóðbaðið í því er svo stórkostlegt, að það heíur stundum verið kallað „mannætu- kvæðið“‘. LEIKSKÁLD OG ÞÝÐANDI Vörösmarty var líka mikilvirkt leikskáld. Hæfileikar hans á sviði sögukvæða voru kannski ekki sérlega vel fallnir til að framleiða sjónleiki, en leikur hans „Csongor og Tiinde“, sem er ævintýri í ljóðformi, þykir standa „Jónsmessudraumi“ Shake speares á sporði að því er snertir málfegurð, enda var Vörösmarty undir sterkum áhrifum frá Shake speare. Annars er gaman að bera saman ævintýraheim Vörös- martys og ævintýraheiminn, sem Petöfi skapaði í hinu langa kvæði sínu, „Hetjan Janos“. Ævintýra- land Vörösmartys er yfirheims- legt, furðulegt, háleitt; en ævin- týraheimur Petöfis er traustur, jarðbundinn, heilbrigður bænda- heimur, svo mörkin rnilli veru- leika'og ævintýris virðast næst- um hverfa. Vörösmarty gerði líka margar þýðingar á verkum Shakespeares, sem hann hafði sérstakt dálæti á. Hann varð fyrstur til að kynna Shakespeare fyrir Ungverjum, en þeir líta nú á hann sem „þjoð- skáia sitt á sviði leikritunar”, ei.u og einn ungverskur gagn- rýnandi hefur komizt að cröi i gamni. Vörösmaity reit íjölda greina um Shakespeare, vegna þess að hann dáði hinn brezka skáldj'ifur og vudi, sS eosk leiklist tæki s*ti nii.nar þýzku, sem þá var í alglevm- ingi GLÆSILEG BROTTFÖR Ósk Vörösmartys rættist áður en yfir lauk. Hann lézt ekki sem mesta skáld Ungverja. Það var hann sem sá um fyrstu útgáfuna á ljóðum Petöfis og rómaði ágæti Framh. á bls. 67.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.