Morgunblaðið - 27.03.1957, Blaðsíða 1
20 stður
44. árgaagttr
72. ÚA. — Midvfkttdagttr 2«. marz 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsinz
Pað var sannkallað vorveður í gær, heiður himinn, sólskin og
hiti. Snjóa er farið að leysa í byggð sunnanlands — og vorið gæti
verið á næstu grösum þess vegna. Margir eru þó svartsýnir og
segja, að „páskahretið“ komi á sínum tíma. En hvað um það.
Við verðum að láta hverjum degi nægja sína þjáningu hvað veðr-
áttunni viðkemur — og mynd þessi, sem G. Sverrisson tók í gær,
gæti vel verið tekin að vorlagi.
Bermudafundi Macmillans og St.Laurent lokið
Bretur fd miklar birgðir uran-
íum frd Kanoda
Hamilton, Bermuda, 26. marz. — Einkaskeyti fi'á Reuter.
FUNDUM þeirra Macmillan, forsætisráðherra Breta, og St. Lawr-
ent, forsætisráðherra Kanada, lauk í kvöld. Utanríkisráðherr-
arnir Lloyd og Pearson ræddust eiimig við í dag — og skýrði
talsmaður brezku stjcs'narinnar svo frá, að samkomulag hefði náðst
með Bretum og Kanadamöimum í öllum aðalatriðum dagskrár-
málanna. 4
Fréítamaður Reuters sagði í
kvöld, að víst væri talið, að for-
sætisráðherrarnir hefðu komizt
að þeirri niðurstöðu, að þjóðirnar
yrðu neyddar til þess að greiða
Egytum siglingagjöldin af Súez-
skurðinum, t-il þess að sigling-
ar kæmust í eðlilegt horf á ný.
Hins vegar munu forsætisráð-
herrarnir hafa heitið hvor öðrum
að gefa hvergi eftir, ef Egyptar
ætluðu sér að beita einhverja ein-
staka þjóð órétti hvað viðkemur
siglingum um skurðinn — þar
eð skurðurinn væri viðurkennd
alþjóðasiglingaleið. Talið er, að
„Ef þeir hafa barið þig,
þá gerðu þeir rétt
>44
Búdapest, 26. marz.
Einkaskeyti frá Reuter:
FYRRUM foringi í ungverska
hernum var í dag leiddur fyrir
rétt í Búdapest, sakaður um
morð — í uppreisninni í
haust. Kvartaði sakborningur-
inn yfir þvi, að rússneskir
leynilögreglumenn hefðu bar-
ið hann í fangelsinu.
Hinn opinberi ákærandi
spurði hann m.a. hvort hann
hefði verið barinn af rúss-
nesku leynilögreglunni „er
hann laug og neitaði morð-
ákærunni“.
Herforinginn svaraði ját-
andi — og hélt áfram: Ég veit
ekki hvaða rétt rússneska
Ieynilögreglan hefur til að
berja mig. Ég er ungverskur
ríkisborgari.
Ákærandinn barði þá í borð
ið og hrópaði hástöfum: Ef
þeir hafa barið þig, þá hafa
þeir gert rétt. Morðingi.
Áður hafði eitt vitnanna
borið það, að ungverskir
frelsisvinir hefðu misþyrmt
Súezskurðurinn opn-
aður eftir mánaðamóf
KAIRO, 26. marz: — Búizt
er við því, að Súez-skurður-
inn verði að fullu hreinsaður
um mánaðamótln og eðlileg-
ar siglingar geti hafizt um
hann — ckki síðar en hinn
5. april. — Reuter.
þessum sama manni vegna
þess, að þeir héldu hann vera
á snærum ungversku leynilög-
reglunnar. — Reuter.
Brezkt flugfélog tilkynnir sölu
tveggjn Viscount-flugvéln til
Flugfélngs íslunds
Nairobi, Kenya, 26. marz.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BREZKA flugfélagið „Hunting Clan Air Transport
Limited“, sem er sjálfstætt fyrirtæki, tilkynnti í dag,
að það hefði selt Flugfélagi íslands tvær flugvélar af
gerðinni Viscount. Hefur félagið fest kaup á flugvél-
um annarrar gerðar til þess að annast áætlimarferðir
milli Bretlands og Austur-Afríku.
Ástæðan til þess, að flugfélagið seldi Viscount-flugvélar
sínar nú er sú, að brezka stjórnin lagði bann við því að það
notaði þær á þessari flugleið. Sagði talsmaður flugfélagsins,
að brezka síjórnin hygðist með þessu gæta hagsmuna BOAC,
sem er í eigu rikisins. Samkvæmt lögum frá áiinu 1946 er
það á valdi stjórnarinnar á hvaða flugleiðum sjálfstæð flug-
félög halda uppi ferðum — svo og hvaða flugvélagerðir þau
nota.
Eisenhower eigi mikinn hlut i
þvi, að málalok urðu þessi.
Macmillan og fylgdarlið hanc
héldu heimleiðis í kvöld.
SEINNI FRETTIR
í sameiginlegri yfirlýsingu,
er þeir Macmilian og St. Laur-
ent gáfu í kvöld á Bermuda,
segir, aö forsætisráðherrarnir
hafi skipzt á skoðunum og sam
ræmt afstöðu stjórna sinna tð
Súez-deilunnar og hagkvæm-
asi.rar lausnar hennar. Segir
og, að Bermudaráðstefnan hafi
sýnt, hve mikils virði náin
samvinna og vinátta sé sam-
veldislöndunum. — Afstaða
þeirra til heimsvandamálanna
sé hin sama — og bæði lönd-
in mundu vinna í sameiningu
að heillavænlegri lausn þeirra.
Þá var og tilkynnt, að Kanada-
menn mundu láta af hendi við
Breta uranium að verðgildi
115 milljónir dollara — næstu
fimm árin. Fyllri frásögn *f
yfirlýsingunni hafði ekki bor-
izt, er blaðið fór í prentun.
Allt bendir til þess < ð
fundur HammarskjÖlds og Nassers
hafi borið mikinn árangur
Hammarskjöld fer heimleiðis i dag
Kairo, 26. marz. —
Einkaskeyti J'rá Reuter.
HAMMARSKJ ÖLD, framkv.stj.
S.Þ., mun á morgun halda flug-
leiðis til New York með viðkomu
í Beirut, en hann hefur að und-
anförnu setið fundi með egypzk-
um ráðamönnum og rætt Súez-
vandamálið sem kunnugt er.
Talsmaður S.Þ. skýrði frá þvi
í kvöld, að viðræður Hammar-
skjölds og egypzku stjórnarinnar
hefðu verið mjög „nytsamar“
eins og komizt var að orði. Að-
allega hefur hann átt í viðræð-
um við Nasser og persónulega
ráðgjafa hans, en í dag ræddi
hann við Fawsi utanríkisráð-
herra.
Fawsi hélt einnig hálfrar stund
ar fund með ambassadorum sjö
ríkja í Egyptalandi, og skýrði
hann afstöðu Egypta gagnvart
deilunni um Súez-skurðinn.
Fréttamaður Reuters hefur það
eftir áreiðanlegum heimildar-
manni í Kairo, að mikill árang-
ur hafi náðst á fundum þeirra
Hammarskjölds og Nassers, en
samt hafi ekki náðst fullt sam-
komulag um frjálsar siglingar
ísraelsmanna um Súez-skurðinn.
Allt þykir hins vegar benda tál
þess, að leitað verði til Alþjóða-
dómstólsins í Haag um lausn
deilunnar. Enn er ekki ljóst, í
hvaða formi það verður gert —
hvort dómstóllinn verður beðinn
ráða, eða leitað úrskurðar.
★ ★ ★
Þá segir, að Nasser hafi skýrt
Framh á bls. 19
Bretar vora við sigl-
ingum um Súez
LONDON, 26. marz. — Brezka
stjórnin hefur varað brezka
skipaeigendur við því að sigla
um Súez-skurðinn fyrst um sinn.
Ástæður eru m. a. sagðar þær,
að ekki sé tryggt að allar sprengj
ur hafi verið fjarlæðar úr skurð-
inum.
Ekki mun brezka stjórnin gefa
út neina opinbera yfirlsýingu um
afstöðu til deilunnar um Súez-
skurðinn fyrr en Hammarskjöld
hefur gefið skýrslu um viðræð-
«r sínar við Nasser. Hins vegar
er það tillaga brezku stjórnarinn
ar i máli þessu, að siglingagjöld
verði greidd sérstökum sjóði í
Alþjóðabankanum, en Egyptar
fái síðan helming fjárins til eig-
in afnota. Hinn helminginn skuli
bankinn varðveita þar til deil-
an hefur verið jöfnuð að fullu.
Sjáið þið „fljúgandi diskinn“,
sem er þarna hátt á lofti? Þenn-
an „disk“ eru Bandaríkjamenn
óðum að fullkomna — og ætla
hann til notkunar í innrásarher.
Ekki er flugtæki þetta stórt, að-
eins hreyfillinn. En það ber
heldur ekki nema einn mann,
sem stendur ofan á því — og
heldur sér sennilega dauðahaldi
í hringmyndaða grind, sem á að
auka á öryggistilfinninguna.
Þessi „fljúgandi diskur“ getur
flogið hvort sem er — beint nið-
ur eða upp — og hvorki er til
framendi né afturendi á honum,
því að hann er jafnvígur á allar
hliðar. '