Morgunblaðið - 08.10.1957, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.10.1957, Qupperneq 3
Þriðjudagur 8. október 1957 MORCVHBL AÐIÐ 3 'Uppdrátturinn sýnir, hvernig braut fyrsta gervihnattarins var kringum jörðina fyrstu þrjá snún- ingana. Honum var skotið upp með flugskeyti frá norðurströnð Kaspíaliafsins. Hélt hann fyrst í suðaustur, allt að 65. suðlægri breiddargráðu. Þá hélt hann ferðinni áfram í norðausturátt hinum megin við jörðina, þar til hann komst upp að 65. norðlægri breiddargráðu. Eftir það sneri hann aftur í suðaustlæga átt, en hafði verið 96'A mínútu hringinn. Á þessum tíma hafði jörð- in hreyfzt nokkuð, sVo að hnötturinn fer ekki yfir sömu staði í annarri umferð, heldur svo- lítið vestar. Andrúmsloftið færist með jörðinni. en þar sem hnötturinn er fyrir utan andrúms- loftið fylgir hann ekki með við snúning jarðarinnar. Hugsanlegt að rússneska gervitunglið sjáist hér þrisvar á nóttu^ RÚSSNESKA gervitunglið legg- ur leið sína yfir Island á hverri nóttu og er líklegt að sjá megi það í sjónaukum, er það fer yfir landið. Radiómerki þess heyrast og greinilega hér á landi. Eftir- farandi upplýsingar um tunglið létu þeir próf. Trausti Einarsson og Karl Eiríksson rafmagnsverk- fræðingur, Mbl. í té í gærkvöldi. ★ Gervitunglið fer yfir ísland tvisvar á hverri nóttu, og í þriðja skiptið rétt sunnan við landið. í öll skiptin heyrist vel til þess á 15 og 7,5 m öldulengd, og það gengur hér um bil í hvirfilpunkt ! og skilyrði til þess að sjá það j ættu að vera tiltölulega góð í . björtu veðri. Tekizt hefir að mæla j tímana nákvæmlega þegar það gengur hér yfir, en lega brautar- innar er ekki eins örugg. bó er j hægt að gefa bráðabirgðaupplýs- ingar um tímana þegar tunglið gæti sézt. Vegna þess hve ís- land liggur norðarlega feilur sól á gervitunglið, þótt hér sé mið nótt, og kemur þess vegna til greina að sjá það fimm sinnum á nóttu. Hér verða þó aðeins nefnd nánar þau þrjú skiptin sem hagstæðust eru. Tímarnir eru miðaðir við að- faranótt 8. október, en næstu daga þarf að bæta við þá um 3 mín. á sólarhring. 1) Tunglið ætti að sjást fyrst kl. 3,46—3,54. Kemur tunglið upp j myrkvað í suðvestri en gengur hér um bil upp í hvirfilpunkt kl. 3,48 og er þá bjart. 2) Kl. 5,23—5,33. Kemur upp í yestri og gengur austur yfir landið og er við hvirfilpunkt kl. 5,26. 3) Kl. 7.00—7,13. Kemur upp í vestri til norðvesturs og gengur sem næst í hvirfilpunkt kl. 7,05. Til þess að sjá tunglið er vænieg- ast að fylgjast með hvirfilpunkti og umhverfi hans á þessum til- greindu tímum. Ekki er vitað hvort tunglið getur þá sézt með berum augum en væntanlega sýnilegt í venjulegum sjónauka. Hraði gevitunglsins í nánd við hvirfilpunkt er þannig, að það fer 30 gráðu horn á mínútu en hægar fjær þeim stað. Radioáhugamönnum er bent á Mynd þessi var lekin í Rússlandi fyrr á þessu ári og symr rússneska eldflaug, sem verið er að skjóta. að radiomerkín frá tunglinu heyr ast mjög vel á hinum tilgreindu tímum, á tíðninni 20005 og 40002 kílórið á sekúndu. Tíðnin hækkar meðan tunglið nálgast, en lækkar meðan það fjarlægist, en hefir rétt gildi, þegar tunglið er næst athugunar- stað. Sum heimilisviðtæki, sem ná 15 m. öldulengd, gætu náð merkinu frá tunglinu sem slitr- óttri radiobylgju er tifar um þrisvar sinnum á sekúndu. Það skal að lokum tekið fram að eldflaugarhylkið sem fylgir gervitunglinu er sem svarar tveimur mínútum á eftir því og er ef til vill betur sýnilegt en gervitunglið sjálft. STAKSTEINAR * Teikningin sýnir stærð rússnesku eldflaugarinnar í samanburði við stærð mannsins. Má glöggt sja, að hún er miklu stærri en flug - skeyti það sem Bandaríkjamenn eiga stærst nú, en það er markað svart inn í rússneska flugskeyt- inu. Bandaríkjamenn segja, að það sé aðeins kortur á fjárveit- ingu, sem hafi hindrað þá í að smíða stærri fiugskeyti. Glæsilegur samkomusalur UMFR tekinn í notkun A LAUGARDAGSKVÖLDIÐ bauð Ungmennafélag Reykjavíkur til kaffisamsætis í nýjum samkomusal í Félagsheimili sínu við Holta- veg í Laugardal Var þar margt gesta, forýstumenn íþróttahreyf- ingarinnar og borgarstjóri ásamt eldri og yngri Ungmennafélags- mönnum. Samkomusalurinn er stór og glæsilegur og var tekin í notkun með samsæti þessu. Er hann annar áfangi UMFR í bygg- ingamálum félagsins. arsson form. UMFÍ, Gísli Ólafs- son frá ÍSl, Gísli Halldórsson frá ÍBR, Erl. Ó. Pétursson frá íþrótta félögunum í höfuðstaðnum. — Form. UMFR, Birna Björnsdóttir, flutti skörulega ræðu og síðan töluðu eldri og yngri Ungmenna- félagar. Samkomusalurinn sem nú er tekinn í notkun er stór og glæsi- legur. Hann er annar áfangi í byggingaframkvæmdum UMFR en upphafið var fordyri þessa salar. Þar hefur verið sunnu- dagaskóli að undapförnu. Hinn nýi salur er næstu tvo vetur leigð ur hluta úr dögum Reykvíkur- bæ, en þar verður rekinn skóli. Næsti áfangi i byggingafram- kvæmdum UMFR er íþróttasal- ur, búningsherbergi og fleira til heyrandi, en eitthvert hlé verður nú á framkvæmdum. Kveðjur og gjafir bárust frá ýmsum, m. a. Þorsteini Einars- syni íþróttafulltrúa og Jóhannesi Jósefssyni veitingamanni Hófinu stýrði Kjartan Berg- mann, en Stefán Runólfsson form. bygginganefndar flutti að- alræðuna, lýsti sögu hins 15 ára félags og bygginaframkvæmdum þess. Hann þakkaði stuðning sem félaginu hefur verið sýndur, sér - staklega þakkaði hann borgar- stjóra og bæjarstjórn fyrir mik- inn stuðning og ekki sízt lóðina, sem hann kvaðst telja þá „beztu í bænum“. Næst talaði Gunnar Thor- oddsen borgarstjóri. Ræddi hann um nauðsyn æskulýðsheimila og íþróttamannvirkja í hverju íbúða hverfi bæjarins. Kvað hann bæj - arstjórn vilja stuðla að slíkum framkvæmdum og það mál væri komið á góðan rekspöl þó mikið væri enn óunnið í þeim efnum. Hann ræddi um mannvirkin í Laugardal, glæsilegustu íþrótta- mannvirki landsins, sem tekin hefðu verið í notkun að nokkru í sumar. Kveðjur fluttu sr. Eiríkur Ein- Gervihnöttur og stúd- entaóeirðir Þjóðviljinn ræður sér ekki fyr- ir gleði yfir því, að fyrsti gervi- hnötturinn skuli „sendur upp i efri lög gufuhvolfsins frá Sovét- ríkjunum“. Þessu afreki er fagn- að sem flokkslegum sigri og seg- ir Þjóðviljinn á laugardaginn sl.s „-----Sovétríkin sjálf sannað, svo að enginn fær um villzt, yfir- burði þess þjóðfélags, sem & fjörutíu árum hefur lyft þjóðum þeirra úr algerri eymd og niður- lægingu í æðsta sess vísinda og menningar". Víst er hér um mikið afrek að ræða og vonandi verður það áfangi á farsældar-braut mann- kynsins. En meira en hæpið er að telja það sanna „yfirburði" kommúnismans. Kunnugt er, að Þjóðverjar voru á valdaárum Hitlers komnir allra manna lengst í gerð flugskeyta. Mátti litlu muna, að þeir „yfirburðir“ réðu úrslitum í styrjöldinni. Eng- ir aðrir en Hitler sjálfur og blindustu aðiáendur hans töldu þetta sanna neitt um gæði naz- ista-ríkisins. Viðurstyggð þess minnkaði ekki við flugskeyta- gerðina, sem síðar varð til mik- illar leiðbeiningar fyrir vísinda- menn annarra þjóða. Stúdentaóeirðirnar í Varsjá segja meira en smíði flugskeyta og gervihnatta til um eðli stjórn- arfarsins í ríkjum kommúnista. Með hverju á nú að kaupa þá? Á laugardaginn birti Þjóðvilj- inn forystugrein, sem heitir: „Er verið að leika sama leik- inn einu sinni enn?“ Þar segir m. a.: >.Og þegar eftir kosningar var mynduð stjórn, sem hét því að hafa brottför hersins sem eitt aðalatriði stefnu sinnar. En síðan ekki söguna meir. Þegar talca átti upp samninga við Bandarík- in um brottför hersins var samn- ingum frestað „í bili“ og siðan hefur ekkert heyrzí um undir- búning þess að taka þá upp á nýjan Ieik. Þvert á móti eru all- ar starfsaðferðir Guðmundar I. Guðmundssonar slíkar, að engu er líkara en að hann telji það forsendu athafna sinna að ísland verði hernumið um langa fram- ííð og leggi sig í líma til þess að afnema þær litlu tálmanir, sem áður höfðu þó verið settar við frjálsu framtaki dátanna hér á landi. Og sagt er að fátt sé hon- um meira kappsmál en að her- námsframkvæmdir hefjist af kappi á nýjan leik. Það er ástæða til að segja það afdráttarlaust, að við svo búið má ekki standa. Loforðið um brottför hersins er einn af hyrn- ingarsteinum núverandi stjórnar- samvinnu, og því aðeins stendur sú samvinna að Ioforðið verði efnt. Stjórn, sem sættir sig við hernám landsins verður aldrei kölluð vinstri stjórn og hún mun ekki njóta síuðnings vinstri | manna í landinu.----enn sem I fyrr rnunu hernámsmálin ráða árslitum um örlög og gengi í liverrar stjórnar, sem mynduð er á íslandi.“ Alþýðubiaðið svarar þessu á sunnudag svo: „Þessu er því til að svara, að ráðherrar og þingmenn Alþýðu- bandalagsins eru hér í sömu sök og Þjóðviljinn vill koma á Guð- mund I. Guðmundsson utanríkis- ráðherra". Auðvitað er þetta rétt. En áhyggjur Alþýðublaðsins eru ástæðulausar. Hótanir Þjóðvilj- ans eru ekki iakandi alvarlega. Ætlunin nú sem fyrr er einungis að nota þetta mál til að knýja fram einhver hlunnindi handa kommúnista-broddunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.