Morgunblaðið - 08.10.1957, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.10.1957, Qupperneq 10
10 MORCVHBT4ÐIÐ Þriðjudagur 8. október 1957 Ctg.: H.t. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. AOairitstjórar: Valtýr Stefánsson Cábm.) Bjami Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, sími J3045 Auglysingar: Arni Garðar Krisunason. Ritstjórn: Aðaistræti 6. Auglýsingar og algreiðsla: Aðaistræti 6. Sími 22480 Askriftargjald kr 30.00 á mánuði innaniands. I lausasölu kr i 50 eintakið. „GÓD SKILYRÐI" EFTIR því sem Tíminn skýrir frá nýlega, hefur Eysteinn Jónsson, fjár- málaráðherra, látið sér þau orð um múnn fara á fundi í Fram- sóknarfélagi Reykjavíkur fyrir stuttu, að núverandi stjórn hefði „góð skilyrði til að leysa efna- hagsvandamáiin“. Ekki er þó nán ar frá því skýrt í Tímanum í hverju þessu „góðu skilyrði" eigi að vera fólgin. Samkvæmt því, sem Tíminn hefur eftir E. J. á hann að hafa tekið svo tii orða: „Kvað hann mjög mikla erfið- leika framundan í þeim efnum, og þyrfti það engum að koma á óvart, sem hefði fylgst með gangi framleiðslunnar á þessu ári“. En síðar í sömu greininni, segir svo blaðið eftir ráðherran- um, að „ráðstafanir ríkisstjórn- arinnar og þingmeirihlutans í framleiðslumálunum hefði örfað framleiðslustarfið". Það er vand- séð, hvernig á að koma því heim og saman á annan bóginn, að efnahagsvandræðin nú stafi sér- staklega af „gangi framleiðsl- unnar á þessu ári“ og að á hinn bóginn hafi ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar „örfað framleiðslu- starfið“. Ruglingurinn og fálmið hjá Eysteini Jónssyni, þegar hann er að reyna að verja þá glap- ræðisstjórn, sem situr hér við völd, er í samræmi við ráðaleysið hjá ríkisstjórninni allri og hon- um, sem fjármálaráðherra, alveg sérstaklega. ★ Ríkisstjórnin hefur „góð skil- yrði“ til að leysa efnahagsvanda- málin, segir Eysteinn Jónsson. Hann og samráðherrar hans hafa nú setið við völd í meira en eitt ár og ekki leyst neinn vanda. Við þetta má raunar bæta því, að Eysteinn Jónsson hefur verið fjármálaráðherra samfleytt í 7 ár og ekki er kunnugt að hann hafi leyst neinn efnahagsvanda á þeim tíma. Eftir 6 ára setu E. J. í því starfi, lýsti formaður flokks hans og núverandi for- sætisráðherra því yfir, að efna- hagslífið væri „helsjúkt". Ey- steinn Jónsson var fjármálaráð- herra á árunum 1934—1939. Þá steðjaði efnahagsvandi að þjóð- inni. Undir fjármálastjórn E. J. jókst sá vandi fremur en minnk- aði og árið 1939 varð E. J. að gefast upp, þótt hann hefði næg- an þingmeirihluta á bak við sig og afhenda fjármálastjórnina í hendur Sjálfstæðismönnum. Ey- steinn Jónsson hefur ef til vill oft haft „góð skilyrði“ til þess að leysa efnahagsvandamál, en hann hefur ekki gert það og mun heldur ekki gera það. ★ Óhæfni Eysteins Jónssonar og þeirrar skatta- og haftastefnu sem er uppistaðan í hugmyndum hans um fjárstjórn, er augljóst mál. En hér lcemur lika annað til greina. Efnahagsvandamál þjóðarinnar ná til hennar allrar. Þau snerta allar stéttir og starfs- greinar. Þar er enginn undan- skilinn. Til að leysa þau mál þarf yfirsýn um aimannahag og vilja til að greiða úr þeim vandamál- um, sem fyrir liggja án hlut- drægni og áníðslu í garð eins eða annarra. Efnahagsmálin eru þjóð- mál í þess orðs hreinasta skiln- ingi. En sú ríkisstjórn, sem nú - ENGIN SKILYRÐ1 situr að völdum, miðar ekki störf sín við þjóðmál heldur flokksmál og valdastreitu. Þess vegna hefur efnahagsvandinn stóraukizt á því rúma ári, sem ríkisstjórnin hefur setið, í stað þess að minnka. Hér hefur þró- unin orðið hin sama og í valda- tíð Eysteins Jónssonar 1934—’39. Þegar flokkarnir, sem nú ráða, eru athugaðir, verður þetta líka Ijósara. Framsóknarflokkurinn er byggður upp í kringum einn tiltekinn rekstur, samvinnurekst- urinn, og Eysteinn Jónsson er einn mesti valdamaður í mesta og raunar einasta auðhring lands- ins, S.Í.S. Flokknum er haldið uppi af þessum samtökum og mið ast allt við að viðhalda sérrétt- indum þeirra og pólitísku valdi. Þetta kemur ljóslega fram í skattamálum og á fjölda mörgum öðrum sviðum. Þá er kommún- istaflokkurinn. öllum er ljóst að hann miðar aldrei sínar aðgerðir við annað en hagsmuni hins al- þjóðlega kommúnisma en íslenzk þjóðmálastefna er honum fram- andi. Loks er svo Alþýðuflokk- urinn, sem nær til tiltölulega lítHs hóps manna og er vanmegna og reikandi. Valdamenn þess flokks kjósa fremur sendiherra- stöður í fjarlægum löndum held- ur en að berjast í vonleysi flokksins heima á íslandi. Alþýðu flokkurinn miðar sína baráttu líka fyrst og fremst við sam- keppnina við kommúnista um atkvæði og áhrif innan verka- lýðshreyfingarinnar. Það má því ljóst vera að enginn af þeim flokkum, sem nú sitja við völd, hefur skilyrði til að leysa efna- hagsvandamálin á breiðum og hlutlausum grundvelli. Það hef- ur líka komið ljóst fram síðan í fyrra, enda hefur allt sigið á ógæfuhlið síðan. Flokkar, sem miða allt sitt við tiltekinn rekst- ur, eins og S.Í.S. eða aðra þrönga og takmarkaða hagsmuni, hafa aldrei „góð skilyrði“ til að leysa þjóðmál eins og efnahagsmólin. Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn, sem nær til allrar þjóðarinnar. Hann er eini flokk- urinn, sem hefur skilyrði til að reka raunverulega þjóðmála- stefnu. Hann einn mundi verða fær um að leysa efnahagsvand- ann. En til þess þyrfti hann al- geran þingmeirihluta. Flokkur- inn þyrfti þá að vera óháður klíkuflokki, eins og Framsóknar- flokknum og vandræðastefnu Eysteins Jónssonar. Og sá tími mun líka upp renna. En fyrr en gengið verður að því að leysa efnahagsvandann sem þjóðmál,, munu þau mál ekki verða leyst. Efnahagsvandamálin verða ekki leyst með neinni „eysteinsku" skattpíningar og ríkisafskipta. Framtak og athafnaþrá þurfa að fá að njóta sín. Það traust, sem við höfum glatað meðal banda- manna og nágranna þarf að end- urreisa. íslenzka krónan þarf aftur að verða að krónu. Þau verkefni, sem hér blasa við geta hinir eysteinsku flokkar aldrei leyst. Sjálfstæðisflokkur- inn einn gæti gert það en með því eina móti að fá einn að ráða stefnunni. Með eysteinskuna fyrir myllustein um hálsinn get- ur enginn gert það, sem gera þarf. UTAN UR HEIMI Leiksystir Önnu Frank ANNA FRANK er orðin heims- kunn. Dagbók hennar hefur verið þýdd á fjölda tungumála og kemur út hér fyrir jólin. Gert hef ur verið leikrit, sem byggt er á dagbókinni, og verður það sýnt í Þjóðleikhúsinu í vetur. Grem- in, sem fer hér á eftir í laus- legri þýðingu er eftir Moshe Brilliant og birtist í „The New York Times Magazine" í vor sem leið. Segir þar frá Lies Goosens, leiksystur önnu Frank, en hún er nú hamingjusöm húsmóðir í Israel. „Köld og hungruð, krúnurökuð og klædd grófum ólögulegum fangaklæðum þærlabúðanna stóð Anna Frank við þröskuld dauð- ans og fékk eina ósk sína upp- fyllta. Hún hitti aftur beztu vin- stúlku sína og leiksystur. í hlýju rúmi sínu á loftinu í bakhúsinu í Amsterdam, þar sem Frank-fjölskyldan leyndist, hafði Anna beðið fyrir bekkjarsystur sinni, Lies Goosens, sem átti heima í næsta húsi, en hafði ver- ið tekin af nazistum. „Hvers vegna erum við svo fjarlægar hvor annarri núna?“ reit þessi viðkvæma unga stúlka í dagbók sína á loftinu í Amsterdam, dag- bókina sem nú er orðin heims- fræg. Endurfundir Mánuði áður en Anna dó, áttu vinstúlkurnar sorglega endur- fundi. Þær voru aðeins aðskildar af rammgerðri gaddavírsgirðingu í Bergen-Belsen-þrælabúðunum. Það var hörkufrost og vindur þessa febrúarnótt árið 1945, en myrkrið huldi þær sjónum hinna skotfimu vaktmanna í varðturn- unum, og þær hölluðu sér skjálf- andi upp að girðingunni, sem skildi þær að, og grétu hljóðlaust. Anna og Lies höfðu verið óað- skiljanlegir vinir alla tíð síðan 1933, þegar þær voru 4 ára gaml- ar. Það var árið, sem Frank- fjölskyldan flúði frá Frankfurt og Goosens-fjölskyldan frá Berlín undan ofsóknum Hitlers og leigðu sér íbúðir í samliggj- andi húsum. Þegar samband þeirra slitnaði eftir að Frank- fjölskyldan fór í felur, hugsaði Anna svo að segja daglega til vinkonu sinnar. „Ó Guð“, skrifaði Anna eitt kvöldið í dagbókina, „hvers vegna skyldi ég hafa allt, sem ég get óskað mér, en hún að verða fyrir þessum hræðilegu ör- lögum? . . . Hvers vegna ætti ég að vera kjörin til að lifa en hún sennilega til að deyja?“ Lies er hamingjusöm í ísrael örlögin voru hins vegar á end- J anum blíðari við Lies. Lies komst ; loks til ísraels árið 1947, en henni | hafði verið bjargað af Rauða hernum fjórum dögum áður en Þjóðverjar gáfust upp, úr járn- brautarlest, sem var að flytja Gyðinga til gasklefanna í Theres- ienstadt. Þessi einmana munaðar- leysingi fann nýtt athvarf á stúlknaheimili í Jerúsalem. Þar lærði hún barnauppeldi og var brátt búin að fá starf sem barn- fóstra í innflytjendabúðum, á sjúkrahúsi og á mæðraheimili. Lies varð það sem systur önnu, hina fögru og duglegu Margot, hafði dreymt um að verða: barn- fóstra í ísrael. Lies heldur því fram, að hún hafi verið miklu málóðari en Anna, þegar þær voru litlar. En þegar hún óx, varð hún feimin og mannfælin. En eitt sumarið í Jerúsalem fékk fjölskylda eir hana til að þiggja heimboð á hvíldardaginn, og þá hitti hún bróðurson húsráðandans, Walter Pick, frískan, glaðan og gáfaðan ungan mann, sem var liðsforingi í ísraelsher. Vinátta þeirra greri hægt, en hún blómgaðist smám saman og árið 1950 gengu þau í hjónaband. Walter Pick og kona hans búa nú í fallegri íbúð á fyrstu hæð í rólegu hverfi Jerúsalem-borgar. Heimilið er fullt af leikföngum, því þau eiga þrjú börn, Yohanan 4 ára. Haim Giaeon 2 ára og Ruthie 1 árs. Lies er önnum kafin við húsverkin, en um helgar halda hjónin kyrru fyrir heima, því þau virða helgi hvíldardags- ins að hætti rétttrúaðra Gyðinga. Tvisvar í mánuði hafa þau heim- boð, og koma þá vinir þeirra til að ræða dægurmálin eða hlusta á góða tónlist á grammófóninum. Lies talar og les hebresku, en henni þykir betra að lesa skáld- sögur á hollenzku eða þýzku. Hún hefur mest yndi af sögulegum skáldsögum. Þessi grannvaxna, fallega og svarthærða kona var óþekkt þang að til snemma á þessu ári. Þá kom sendisveinn frá Habimah- leikhúsinu með boðskort á frum- sýninguna á „Dagbók önnu Frank“, sem átti að fara fram sama kvöld. Á nokkrum klukku- stundum var hún gersamlega ringluð af fréttamönnum og Ijós- myndurum. Hún var ljósmynduð með Ben-Zvi forseta fsraels og konu hans. Áhugasamir útvarps- menn komu með hljóðnemana og áttu viðtöl við hana, og forviiið fólkið þyrptist í kringum hana til að sjá hana sem snöggvast. Niðurlag á morgun. Anna Frank fwduu.t -i. ju.ú iááá í Þýzkalandi. Hún reit dagbók sína á lofti einu í Amsterdam, þar sem fjölskyldan faidi sig í 2 ár fyrir nazistum. Anna krítar á gangstéttina og Lies stendur fyrir framan húsið í Amsterdam, þar sem Anna bjó. Þær voru 10 ára þegar myndin var tekin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.