Morgunblaðið - 08.10.1957, Side 13

Morgunblaðið - 08.10.1957, Side 13
t>riðjudagur 8. október 1957 MOnGVlSBT AÐIB 13 íþróttahennaror þakka íþrótto- fnlltrna vel nnnin störf AÐALFUNDUR íþróttakennara- félags íslands var haldinn í Reykjavík 27. sept. sl. Fundinn sátu óvenjulega margir íþrótta- kennarar víða af landinu. Formaður félagsins, Stefán Kristjánsson, skýrði frá störíum á liðnu ári. Helzta verkefni fé- lagsins var að gangast fyrir sýn- ingum á skólaíþróttum til'minn- ingar um 100 ára afmæli skóla- íþrótta í landinu. Voru skóla- íþróttasýningar haldnar um land allt, en hátíðasýning var í Þjóðleikhúsinu. Þessar sýningar þóttu takast mjög vel. Félaginu hafa borizt kveðjur og þakkir fyr ir þessar sýningar frá Gylfa Þ. Hraðfrystihúsið heiur veitt hreppsbúum mikla vinnu. Morgisnheimsókn suður í Voga Rætt v/ð Jón G. Benediktsson forstjóra ÞEGAR minnzt er á verstöðvarn- ar suður með sjó, eins og Suður- nesin eru oftast kölluð í daglegu tali hér í Reykjavík, hættir mörg- um við að gleyma einni elztu veiðistöðinni þar um slóðir: Vog- um í Vatnsleysustrandarhreppi, byggðinni norðan við Stapann, þaðan sem svo margar sagnir eru komnar um Stapa-draug. Það sem veldur þessari gleymsku manna á Vogunum er vafalaust það, hve það litla sjávarþorp hefur átt erfitt uppdráttar. En það á samt sína merkilegu sögu. Fyrr á árum var þar mikil útgerð og athafnalíf. Um daginn áttum við leið suð- ur með sjó og þá brugðum við okkur sem snöggvast í Vogana, en þar hittum við Jón G. Bene- diktsson framkvæmdastjóra hrað frystihússins þar. Jón sem um langt skeið hefur verið helzti framkvæmdamaður í Vogum, er þar fæddur og uppalinn. Eins og í öðrum verstöðum hér um slóðir réru menn þar í gamla daga á opnum áraskipum. — Menn sóttu sjóinn fast úr þessu plássi og hingað komu menn um larigan veg til sjóróðra á vertíð. Á vetrarvertíðum voru hér í hreppnum 1000—1200 manns, enda gengu þá sex áraskip frá stærstu útvegsbændunum hér í j hreppnum. Hér hefur útgerð æ' síðan haldizt að vísu mismunandi I mikil eins og gengur og geríst, j sagði Jón G. Benediktsson. Það varð samdráttur í útgerð- inni er skútuöldin hófst og lenti í algjöran öldudal þá er togar- arnir komu til sögunnar. Þá fóru héðan úr hreppnum á togarana dugmestu sjómennirnir, enda urðu sumir þeirra skipstjórar á þeim, og jafnan síðan hafa héðan verið fleiri eða færri skipstjórar á togaraflotanum. Ég minnist þess, sagði Jón, að um skeið voru sex menn héðan úr Vatnsleysu- strandarhreppi skipstjórar á ný- sköpunar togurum. Nú, þéssi straumur hinna ungu manna á togarana hafði víðtæk áhrif á vöxt og viðgang útgerð- arinnar hér og það svo að það er ekki fyrr en upp úr 1940, að skriður komst á ný á útgerð og þá fer fólkinu brátt að fjölga á nýj- an leik. En ekki má þó fara svo geyst yfir sögu, að ekki sé minnzt á stofnun Útgerðarfélags Vatns- leysustrandarhrepps. Stofnun þess var vissulega átak og átti þar frumkvæðið Árni Kl. Hall- grímsson. Þetta félag lét byggja tvo báta úti í Danmörku. Þeir komu 1931. Þá var byggð hér fyrsta bryggjan, trébryggja og einnig fiskverkunarhús. Þessi mannvirki standa enn, en fisk- húsið er að falli komið Bryggj- an stendur að nokkru enn þá cn er ónothæf. Þegar bátarnir voru komnir og fiskverkunarstöðin tilbúin. Jón G. Benediktsson vetrarvertíð 1931, blés ekki sér- lega byrlega fyrir útgerðarfélag- inu, en þá fóru eríiðir timar í hönd sem allir vita. — En þrátt fyrir það, tókst félaginu að starfa áfram í nokkur ár og það veitti fólki hér allpiikla atvinnu í byrjun héimsstyrjaidarinnar síðustu lifnar yfir útgerðinni í Vogum á ný. Nokkrir bátar hófu þá róðra með línu. Voru bátarnir flestir sex að tölu. Þeir veiddu fyrir Englandsmarkað. — Næst gerist það í útgerðarsögu Voga, að hraðfrystihúsið er reist þar og tekur það til starfa 1943. Það hef- ur síðan verið starfrækt og hefur Jón G. Benediktsson verið fram- kvæmdastjóri þess. Rekstur hússins hefur gengið allvel, sagði Jón. — Nokkur síð- astliðin ár höfum við greitt í vinnulaun um 900.000 kr. árlega til hreppsbúanna. — Hvað um hin miklu hafnar- mannvirki hér? Þessi mannvirkjagerð hófst 1944. — Við enda hafnargarðs- ins er nú hægt að losa samtímis 4—5 báta. — En þó miklum á- fanga hafi verið náð með þessum hafnarmannvirkjum, þá verður ekkj hjá því komizt að lengja enn bryggjuna um 15—20 metra og dýpka méðfram heani að sjálf sögðu, en þegar þessu er lokið verður komin hér bezta höfn í alla staði. í fyrra sumar var bryggjan lengd. Áætlun vitamálastofunnar var, að með þeirri fjárveitingu sem til hafnarinnar var veitt, 500.000 kr., myndi verða hægt að lengja bryggjuna um 12—-14 m. —-En reyndin varð önnur, sagði Jón, því fyrir 650 þus. kr. tókst að lengja hana um hvorki meira né minna en 26 metra. Mér mun vera óhætt að full- yrða að sjaldgæft sé að slíkar framkvæmdir verði langt fyrir neðan kostnaðaráætlun. — Hall- dór Ágústsson i Ásgarði hér í Vogunum hafði verkstjórnina með höndum. — Hvernig er þá útgerðinni komið í dag? Á síðustu vetrarvevtíð lögðu fjórir bátar afla sinn hér upp, auk nokkurra trillubáta. Einn hinna stærri fjögurra báta lagði c er að sjú Luú íorna höiuouo- afla sinn upp hér að staðaldri yfir vertíðina. Við höfum orðið að kaupa hingað fisk ti) vinnslu úr nálægum verstöðvum. Það ber þó ekki að skilja þetta á þann veg að hér sé skortur á vinnuafli í hraðfrystihúsinu, eða að ekki sé aðstaða til að hagnýta aflann hér. Þetta ástand er vissulega alvar- legt fyrir okkur og veldur þeim áhyggjum sem að þessu starfa hér hjá okkur, eins og þú getur bezt séð á því að margir hrepps- búar lögðu sinn skerf fram til hafnarframkvæmdanna, í þeirri von að takast myndi að glæða atvinnulífið með aukinni útgerð og bættum hafnarskilyrðum. — Þetta er vissulega alvörumál fyr ir okkur, endur tók Jón. — Hér hefur byggðin aukizt mikið? Jú það hefur allmikið verið byggt hér að undanförnu og nú hefur plássið verið skipulagt. — Ibúðarhúsum hefur fjölgað um helming á síðustu 10 árum. Það er því orðið mjög aðkallandi að leggja hér holræsi um þorpið Um þetta hafa verið gerðar áætl- anir, sem eru fjárfrekar og munu kosta rúma 1 millj. kr., það er að segja þar sem byggðin er þéttust. Er tala íbúanna nú kring- um 400. Vatnsveitufélag var hér stofn- að fyrir um 2 árum, en það er takmark þess að leggja vatn i húsin hér og eru nú 15 hús komin í samband við vatnsæð þorpsins. Formaður þessa félags er Eirík- ur Kristjánsson. Þannig hafa hér orðið tölu- verðar framkvæmdir á undan- förnum árum sagði Jón. En segja má að samtímis hafi landbúnaði hér farið mjög hnignandi. Hið gamla höfuðból hér Stóru-Vogar eru í eyði, og eigandi þess Jón Waage austur á fjörðum. Þið munuð sjá að jörðin er í algörri niðurníðslu, húsið grotnar niður ár frá ári, en það var þó í eina tíð veglegt hús. Það stendur opið, en útihúsin ýmist fallin eða að falli komin og í vetrarveðrum hef ur bárujárnið af þessum húsum verið að fjúka hér á milli hús- anna, og stafar vegfarendum af þessu hætta. — Okkur þykir leitt að sjá þetta gamla höfuðból fara svona. Þyngsti dilkurinn 28 kg. BORGARNESI, 7. okt. — Slátr- un stendur nú sem hæst. Þungi dilka er í meðallagi. Að hurðar- baki var fyrir skömmu slátrað dilk, einlembingi sem vog 28 kg. Þykir það með afbrigðum gott. Heimtur hafa verið góðar af fjalli Síðasta leit er eftir og verð- ur hún farin í þessari viku Áætl- að er að slátra alls á verzlunar- svæði Borgarness um 55 búsund fjár. Er slátrunin nú um það bil að verða hálfnuð. — Friðrik. Gíslasyni menntamálaráðherra og Benedikt G. Waage, forseta íþróttasambands íslands. Félagið hefur í hyggju að láta gera líkán af fyrsta íþróttasalnum, sem byggður var við Lærða skólann í Reykjavík, nú Menntaskólann. Þá ætlar félagið að gangast fyrir því, að skrifuð verði saga skóla- íþrótta á íslandi. í sambandi við blaðagrein eftir Ásdísi Erlingsdóttur „íþróttafull- trúinn og skólamálin," sem birt- ist í Morgunblaðinu 19. sept. sl., samþykkti fundurinn með öllum greiddum atkvæðum gegn einu að lýsa andúð sinni á hinni persónulegu árás á íþróttafull- trúa ríkisins, vottaði honum fullt traust og þakkaði vel unnin störf. Ennfremur lýsti fundurinn yíir undrun sinni á þeirri staðhæfmgu greinarhöfundar, að kennarar hefðu uppeldismálin aðeins að hjáverkum. Taldi fundurinn þessa fullyrðingu fjarri sanni. í stjórn félagsins fyrir næsta ár voru kjörin Stefán Kristjáns- son formaður, Valdemar Örnólfs- son ritari og Elín Sigurvinsdóttir gjaldkeri. f varastjórn voru kjör- in Eiríkur Haraldsson og Krist- jana Jónsdóttir. Fundi varð ekki lokið og verður framhaldsaðal- fundur haldinn fljótlega. (Frá stjórn íþróttakennara- félagi íslands) - Síðo S.U.5. Framh. af bls. 6 16. Ekki dámar greinarhöfundl sú staðreynd, að aragrúi port- kvenna þrífst góðu lífi í borginni, en viðurkennir þó, að rnenn séu misjafnlega fundvísir á þær. T. d. hafi Þórbergur, sem enginn myndi væna um að færi ekki með rétt mál (sbr. Rauðu hættuna, sem nú þyrfti að endurprenta ásamt Gerska ævintýri Kiljans) fullyrt, að vændi væri úr sögunni í Moskvu. Það stendur líka í rúss- nesku alfræðibókinni, að skækju- lifnaður sé gersamlega horfinn í Sovétríkjunum, þar eð hann þríf- ist eingöngu í kapítalískum lönd- um. En ég vil benda greinarhöf- undi á að kynna sér grein eftir fundvísa blaðamenn við Trud, sem er málgagn verkalýðssam- takanna í Moskvu, ef ég man rétt. Þar er fyrir stuttu síðan drepið á þetta „erfiða vandamál" í Moskvu og tekið fram, að ekki sé'lengur hægt að þegja yfir þessu pjóð- félagsmeini. 17. Greinarhöfundur segist hvergi hafa orðið var við drukk- inn mann á almannafæri í Moskvu. Ég fer nú að halda, að hann hafi lítt haldið sig á al- mannafæri, því að svo áberandi var þetta fyrirbæri. En hann var líka í fararstjórn, og man ég ekki betur en að menn, sem störfuðu í henni, kvörtuðu undan því, að þeir gætu ekkert séð af borginni vegna starfa síns, því að dag og nótt sætu þeir önnum kafnir í hótelkamesi sínu, en hxns vegar mættu þeir ekki gleyma því, að þeir færu ókeypis á mótið. Það væri eina huggunin. Nú rifjast og upp fyrir mér, að eitt sinn mætti ég fararstjórn að næturlagi niðri í borginm af tilviljun, svo að eitt- hvað hefur hún skoðað sig um, og í sömu andrá urðum við varir við drykkjuskap á almannafæri. Ég vona, að þetta rifjist einnig upp fyrir greinarhöfundi. 18. Eins og sjá má, snertir Hörður ekkert atriði, sem máli skiptir, í greinum mínum, en sparðatíningur hans er svo ná- kvæmur, að hann hlýtur að vera tæmandi. Því skilst mér, að hann geti skrifað undir allt annað. Ef því er samt ekki þann veg farið, vildi ég biðja hann að gera nákvæma grein fyrir öllum pen- inga- og gjaldeyrismálum í sam- bandi við förina, því að fólk er að vonum allforvitið að frétta nánar af þeim. Við bíðum í eftirvæntingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.